Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 15

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Sigrún María Kristinsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra íbúatengsla, sem er nýtt starf á stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar. Með starfinu er ætlunin að efla þátt- tökulýðræði hjá Kópavogsbæ og er horft til Heims- markmiða Sam- einuðu þjóðanna í því sambandi. Skv. einu þeirra markmiða skulu allar ákvarðanir teknar miðað við aðstæður og víð- tæk þátttaka al- mennings tryggð um hvernig mál séu afgreidd. Verkefnastjóri íbúatengsla mun bera ábyrgð á stefnumörkun á sviði þátt- tökulýðræðis, mun skipuleggja íbúa- fundi og stýra verkefninu Okkar Kópavogur, sem snýr að þátttöku íbúa við ráðstöfun fjármuna til fram- kvæmda skv. niðurstöðum íbúakosn- inga. Sigrún María Kristinsdóttir er menntuð og með gráðu í ritlist og bókmenntum frá Viktoríuháskóla í Kanada og BA-gráðu í enskum bók- menntum frá sama skóla. Þá er hún með doktorsgráðu í umhverfis- og auðlindafræði frá HÍ en áherslan í doktorsnáminu beindist að sjálf- bærni samfélaga. Undanfarin ár hefur Sigrún María starfað hjá verkfræðistofunni Eflu við gerð mats á umhverfisáhrifum framkvæmda, en hefur einnig reynslu úr blaðamennsku og sem upplýsingafulltrúi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugsýn Horft til miðbæjarins og Digraness í Kópavoginum. Stýrir íbúatengslum  Nýju verkefni í Kópavogi ýtt úr vör Sigrún María Kristinsdóttir Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Alls bárust 53 umsagnir í samráðs- gátt stjórnvalda um frumvarp um breytingu á lögum um náttúruvernd sem umhverfisráðherra hyggst leggja fram á vorþingi. Í kynningu á frumvarpinu kemur fram að markmið breytinganna sé að styrkja almannarétt einstaklinga sem ferðast um óræktuð eignar- lönd í byggð. Segir að ekki verði heimilt að meina einstak- lingum að fara um slík svæði nema nauðsynlegt sé að takmarka umferð vega nýtingar eða verndunar svæð- isins. Jafnframt er lagt til að ekki sé heimilt að tak- marka umferð um slík svæði með gjaldtöku fyrir aðgang. Á móti sé lögð til víkkun á rétti einstaklinga, „að landeigendur hafi meiri rétt til að ákveða hvort land þeirra í byggð sé nýtt undir endurteknar skipulegar hópferðir í atvinnuskyni. Þá er gert ráð fyrir beinu samþykki hlutaðeig- andi landeiganda fyrir slíkri nýtingu þriðja aðila á landi hans sé hætta á spjöllum á náttúru eða ónæði,“ eins og það er orðað. Muni valda skaða Meðal umsagna sem bárust um frumvarpið var umsögn frá Lands- samtökum landeigenda á Íslandi en þar er staðhæft að umræddar breyt- ingar séu runnar undan rifjum hags- munaðila í ferðaþjónustu. „Tillagan sé annars tilefnislaus og að hún muni valda landeigendum, verulegum skaða og jafnvel leiða til þess að óviðkomandi einstaklingar eða fyrirtæki geti leynt og ljóst nýtt eða staðið fyrir atvinnurekstri (ferðaþjónustu) á eignarlöndum manna án nokkurs endurgjalds og án þess að landeigandi geti rönd við reist um vernd og umgengni lands síns,“ segir í umsögn Landssam- bandsins. Óskar Magnússon, formaður sam- takanna, segir í samtali við Morgun- blaðið að þau hafi komið athuga- semdum sínum á framfæri við umhverfisráðherra á fundi fyrir helgi. „Okkur sýnist að það eigi að banna að taka aðgangseyri að landi en það megi hins vegar taka bílastæðagjald. Þetta þykir okkur mjög sérkennilegt því inni á svæðunum eru viðamiklir innviðir, til dæmis hellar, stigar, lýs- ing og stígar sem þarf að passa upp á. Við megum semsagt ekki taka gjald fyrir mölina undir fótum ferða- manna en við megum taka gjald fyrir mölina undir bílum,“ segir Óskar. Hann segir að einhver kynni þá að benda á að hægt væri að nota féð sem innheimt væri fyrir bílastæði til uppbyggingar á ferðamannastöðun- um sjálfum. Málið sé hins vegar ekki endilega svo einfalt. „Það er nefni- lega ekki víst að náttúruperlurnar og bílastæðin séu í eigu sama aðila. Ef við tökum Geysi sem dæmi, þá er ríkið nýbúið að kaupa náttúruperl- una, þó það sé reyndar enn í mati, en bílastæðin eru í eigu landeigenda. Ríkið þarf í því tilviki þá að borga fúlgur fjár í viðhald en hefur enga möguleika á að ná sér í tekjur.“ Eftirlit verði ómögulegt Hitt ákvæðið sem félagið gerir athugasemd við er að gjaldtaka verði aðeins heimil af hópferðabíl- um sem koma á umrædda staði í at- vinnuskyni. „Það á bara við ef þeir koma í endurteknum ferðum, ef eitthvert rútufyrirtæki setur ein- hverja náttúruperluna inn á sína túra og kemur reglulega og endur- tekið þar við, þá er heimilt að inn- heimta gjald af farþegum eða fyrir- tækinu,“ segir Óskar, sem telur að ómögulegt verði fyrir staðarhald- ara að hafa uppi eftirlit með þessu. „Í dag er þetta þannig að það koma rútur og það er enginn ágreiningur. Nýju lögin bjóða upp á þras og uppákomur. Þarna þarf að ganga á milli og komast að því hvort um hópferðir tíu ára stúdenta er að ræða eða skipulagðar ferðir af ferðaskrifstofum. Norræna kóra- sambandið gæti komið á fimmtán rútum og fengið frítt inn,“ segir Óskar. Hann bendir jafnframt á að meira sé um sjálfstæði í ferða- mennsku en áður var. Bílaleigur á Íslandi séu yfir hundrað talsins og þær hafi yfir 25 þúsund bílum að ráða. „Fólk kemur á þessa staði í hundruðum þúsunda tali á bíla- leigubílum en í þessum nýju lögum er engin tilraun gerð til að heimila mönnum að innheimta gjald af ferðamönnum á bílaleigubílum. Þetta er óframkvæmanlegt nema með gríðarlegri skriffinnsku og eft- irliti. Það versta er samt að í þessu felst engin náttúruvernd. Þessi lög eru andstæð náttúrunni.“ Telja náttúruverndar- lög andstæð náttúrunni  Landeigendur ósáttir við lögin  Funduðu með ráðherra Morgunblaðið/Árni Sæberg Við Geysi Ríkið á náttúruperluna en landeigendur eiga bílastæðin og mega rukka bílastæðagjöld, samkvæmt breyttum náttúruverndarlögum. Óskar Magnússon Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir athugasemd við frumvarp um breyt- ingu á lögum um náttúruvernd. Í fundargerð kemur fram að ákvæði um að óheimilt sé að takmarka för um land með gjaldtöku sé of for- takslaust, enda þurfi landeigendur og sveitarfélög víða að leggja í tals- verðan kostnað við að vernda nátt- úru og tryggja öryggi ferðafólks. „Í mörgum tilfellum er útilokað að loka svæðum alfarið og landeigendur eru nauðbeygðir til að ráðast í fram- kvæmdir til að afstýra varanlegum spjöllum á landi. Telja verður eðli- legt að heimilt sé að innheimta hóf- legt gjald til að standa undir kostn- aði þeim sem að framan greinir, ella er viðbúið að landeigendur treysti sér ekki til að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir,“ segir þar. Sveitarstjórnin bendir einnig á að talsverðar breytingar hafi orðið á ferðavenjum á síðustu árum og mikill fjöldi ferðamanna notist nú við bílaleigubíla. Því sé ekki rétt að gjaldtaka geti einungis náð til skipulegra hópferða. „Ágangur, átroðningur og náttúruspjöll sem slíkum ferða- mönnum fylgir er oft ekki minni,“ segir sveitarstjórnin um ferðamenn á bílaleigubílum. Þá fer sveitarstjórnin þess á leit að rúmar heimildir til að tjalda við al- faraleið í byggð verði takmarkaðar við skipulögð tjaldsvæði. Ágangur og náttúruspjöll ATHUGASEMDIR ÚR BLÁSKÓGABYGGÐ Laugarvatn Vinsæll viðkomustaður ferðalanga í Bláskógabyggð. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.