Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Sigrún María Kristinsdóttir hefur
verið ráðin í starf verkefnastjóra
íbúatengsla, sem er nýtt starf á
stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar.
Með starfinu er ætlunin að efla þátt-
tökulýðræði hjá Kópavogsbæ og er
horft til Heims-
markmiða Sam-
einuðu þjóðanna í
því sambandi.
Skv. einu þeirra
markmiða skulu
allar ákvarðanir
teknar miðað við
aðstæður og víð-
tæk þátttaka al-
mennings tryggð
um hvernig mál
séu afgreidd.
Verkefnastjóri íbúatengsla mun bera
ábyrgð á stefnumörkun á sviði þátt-
tökulýðræðis, mun skipuleggja íbúa-
fundi og stýra verkefninu Okkar
Kópavogur, sem snýr að þátttöku
íbúa við ráðstöfun fjármuna til fram-
kvæmda skv. niðurstöðum íbúakosn-
inga.
Sigrún María Kristinsdóttir er
menntuð og með gráðu í ritlist og
bókmenntum frá Viktoríuháskóla í
Kanada og BA-gráðu í enskum bók-
menntum frá sama skóla. Þá er hún
með doktorsgráðu í umhverfis- og
auðlindafræði frá HÍ en áherslan í
doktorsnáminu beindist að sjálf-
bærni samfélaga.
Undanfarin ár hefur Sigrún María
starfað hjá verkfræðistofunni Eflu
við gerð mats á umhverfisáhrifum
framkvæmda, en hefur einnig
reynslu úr blaðamennsku og sem
upplýsingafulltrúi. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Horft til miðbæjarins og
Digraness í Kópavoginum.
Stýrir íbúatengslum
Nýju verkefni í Kópavogi ýtt úr vör
Sigrún María
Kristinsdóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Alls bárust 53 umsagnir í samráðs-
gátt stjórnvalda um frumvarp um
breytingu á lögum um náttúruvernd
sem umhverfisráðherra hyggst
leggja fram á vorþingi.
Í kynningu á frumvarpinu kemur
fram að markmið breytinganna sé að
styrkja almannarétt einstaklinga
sem ferðast um
óræktuð eignar-
lönd í byggð.
Segir að ekki
verði heimilt að
meina einstak-
lingum að fara um
slík svæði nema
nauðsynlegt sé að
takmarka umferð
vega nýtingar eða
verndunar svæð-
isins. Jafnframt
er lagt til að ekki sé heimilt að tak-
marka umferð um slík svæði með
gjaldtöku fyrir aðgang. Á móti sé
lögð til víkkun á rétti einstaklinga,
„að landeigendur hafi meiri rétt til að
ákveða hvort land þeirra í byggð sé
nýtt undir endurteknar skipulegar
hópferðir í atvinnuskyni. Þá er gert
ráð fyrir beinu samþykki hlutaðeig-
andi landeiganda fyrir slíkri nýtingu
þriðja aðila á landi hans sé hætta á
spjöllum á náttúru eða ónæði,“ eins
og það er orðað.
Muni valda skaða
Meðal umsagna sem bárust um
frumvarpið var umsögn frá Lands-
samtökum landeigenda á Íslandi en
þar er staðhæft að umræddar breyt-
ingar séu runnar undan rifjum hags-
munaðila í ferðaþjónustu.
„Tillagan sé annars tilefnislaus og
að hún muni valda landeigendum,
verulegum skaða og jafnvel leiða til
þess að óviðkomandi einstaklingar
eða fyrirtæki geti leynt og ljóst nýtt
eða staðið fyrir atvinnurekstri
(ferðaþjónustu) á eignarlöndum
manna án nokkurs endurgjalds og án
þess að landeigandi geti rönd við
reist um vernd og umgengni lands
síns,“ segir í umsögn Landssam-
bandsins.
Óskar Magnússon, formaður sam-
takanna, segir í samtali við Morgun-
blaðið að þau hafi komið athuga-
semdum sínum á framfæri við
umhverfisráðherra á fundi fyrir
helgi.
„Okkur sýnist að það eigi að banna
að taka aðgangseyri að landi en það
megi hins vegar taka bílastæðagjald.
Þetta þykir okkur mjög sérkennilegt
því inni á svæðunum eru viðamiklir
innviðir, til dæmis hellar, stigar, lýs-
ing og stígar sem þarf að passa upp
á. Við megum semsagt ekki taka
gjald fyrir mölina undir fótum ferða-
manna en við megum taka gjald fyrir
mölina undir bílum,“ segir Óskar.
Hann segir að einhver kynni þá að
benda á að hægt væri að nota féð
sem innheimt væri fyrir bílastæði til
uppbyggingar á ferðamannastöðun-
um sjálfum. Málið sé hins vegar ekki
endilega svo einfalt. „Það er nefni-
lega ekki víst að náttúruperlurnar og
bílastæðin séu í eigu sama aðila. Ef
við tökum Geysi sem dæmi, þá er
ríkið nýbúið að kaupa náttúruperl-
una, þó það sé reyndar enn í mati, en
bílastæðin eru í eigu landeigenda.
Ríkið þarf í því tilviki þá að borga
fúlgur fjár í viðhald en hefur enga
möguleika á að ná sér í tekjur.“
Eftirlit verði ómögulegt
Hitt ákvæðið sem félagið gerir
athugasemd við er að gjaldtaka
verði aðeins heimil af hópferðabíl-
um sem koma á umrædda staði í at-
vinnuskyni. „Það á bara við ef þeir
koma í endurteknum ferðum, ef
eitthvert rútufyrirtæki setur ein-
hverja náttúruperluna inn á sína
túra og kemur reglulega og endur-
tekið þar við, þá er heimilt að inn-
heimta gjald af farþegum eða fyrir-
tækinu,“ segir Óskar, sem telur að
ómögulegt verði fyrir staðarhald-
ara að hafa uppi eftirlit með þessu.
„Í dag er þetta þannig að það koma
rútur og það er enginn ágreiningur.
Nýju lögin bjóða upp á þras og
uppákomur. Þarna þarf að ganga á
milli og komast að því hvort um
hópferðir tíu ára stúdenta er að
ræða eða skipulagðar ferðir af
ferðaskrifstofum. Norræna kóra-
sambandið gæti komið á fimmtán
rútum og fengið frítt inn,“ segir
Óskar.
Hann bendir jafnframt á að
meira sé um sjálfstæði í ferða-
mennsku en áður var. Bílaleigur á
Íslandi séu yfir hundrað talsins og
þær hafi yfir 25 þúsund bílum að
ráða. „Fólk kemur á þessa staði í
hundruðum þúsunda tali á bíla-
leigubílum en í þessum nýju lögum
er engin tilraun gerð til að heimila
mönnum að innheimta gjald af
ferðamönnum á bílaleigubílum.
Þetta er óframkvæmanlegt nema
með gríðarlegri skriffinnsku og eft-
irliti. Það versta er samt að í þessu
felst engin náttúruvernd. Þessi lög
eru andstæð náttúrunni.“
Telja náttúruverndar-
lög andstæð náttúrunni
Landeigendur ósáttir við lögin Funduðu með ráðherra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við Geysi Ríkið á náttúruperluna en landeigendur eiga bílastæðin og mega
rukka bílastæðagjöld, samkvæmt breyttum náttúruverndarlögum. Óskar
Magnússon
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir
athugasemd við frumvarp um breyt-
ingu á lögum um náttúruvernd. Í
fundargerð kemur fram að ákvæði
um að óheimilt sé að takmarka för
um land með gjaldtöku sé of for-
takslaust, enda þurfi landeigendur
og sveitarfélög víða að leggja í tals-
verðan kostnað við að vernda nátt-
úru og tryggja öryggi ferðafólks. „Í
mörgum tilfellum er útilokað að loka
svæðum alfarið og landeigendur eru
nauðbeygðir til að ráðast í fram-
kvæmdir til að afstýra varanlegum
spjöllum á landi. Telja verður eðli-
legt að heimilt sé að innheimta hóf-
legt gjald til að standa undir kostn-
aði þeim sem að framan greinir, ella
er viðbúið að landeigendur treysti sér ekki til að ráðast í nauðsynlegar
framkvæmdir,“ segir þar.
Sveitarstjórnin bendir einnig á að talsverðar breytingar hafi orðið á
ferðavenjum á síðustu árum og mikill fjöldi ferðamanna notist nú við
bílaleigubíla. Því sé ekki rétt að gjaldtaka geti einungis náð til skipulegra
hópferða. „Ágangur, átroðningur og náttúruspjöll sem slíkum ferða-
mönnum fylgir er oft ekki minni,“ segir sveitarstjórnin um ferðamenn á
bílaleigubílum.
Þá fer sveitarstjórnin þess á leit að rúmar heimildir til að tjalda við al-
faraleið í byggð verði takmarkaðar við skipulögð tjaldsvæði.
Ágangur og náttúruspjöll
ATHUGASEMDIR ÚR BLÁSKÓGABYGGÐ
Laugarvatn Vinsæll viðkomustaður
ferðalanga í Bláskógabyggð.
Morgunblaðið/Eggert