Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 14

Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Samfélagsgerðin á Norðurlöndum er auðvitað ekki fullkomin en án nokkurs vafa sú besta sem býðst. Sterkt velferðarkerfi, almennt jafn- rétti, virðing fyrir lögum og fólki, um- burðarlyndi og frjálslynd viðhorf; allt er þetta í hávegum haft í norrænu löndunum og er þó ekki sjálfgefið. Mikilvægt er að minna á það nú þeg- ar að sækja öfl útlendingahaturs og rasisma, sem mér finnst stórhættu- leg,“ segir Bogi Ágústsson, frétta- maður og formaður Norræna félags- ins. Sömu réttindi ekki sjálfgefin Um síðustu helgi var á vegum Nor- ræna félagsins á Íslandi og Norræna hússins efnt til hátíðardagskrár í til- efni af því að öld er síðan fyrstu nor- rænu félögin voru stofnuð, það ís- lenska árið 1921. Það plægði jarð- veginn fyrir stofnun Norður- landaráðs árið 1952 og Norrænu ráðherranefndarinnar sem sett var á laggirnar árið 1971. Á grundvelli þess eru í dag starfræktar samnorrænar upplýsingaskrifstofur í öllum lönd- unum, það er Noregi, Svíþjóð, Finn- landi, Danmörk og Íslandi, hvar veitt er þjónusta til eflingar samvinnu milli landanna sem er á mörgum sviðum. „Það er alls ekki sjálfsagt að fólk njóti jafnan sömu réttinda í öðru landi en sínu heimalandi; hafi aðgang að skólunum þar, félagslegri þjónustu og svo framvegis. Þess njótum við Norðurlandabúar hins vegar og höf- um í meira en 60 ár getað ferðast milli landanna án vegabréfa,“ segir Bogi. Bjó að dönskunáminu Á árunum 1984-1986 var Bogi fréttamaður Ríkisútvarpsins á Norðurlöndunum með aðsetur í Kaupmannahöfn og kynntist þá sál og kviku samfélags landanna. Í því starfi og æ síðan segist Bogi hafa búið að dönskunámi í barna- og mennta- skóla. „Norræn tungumál verða að skipa hærri sess í skólakerfinu á Íslandi en nú er raunin. Fyrir um tuttugu árum var enska tekin fram yfir dönsku sem fyrsta tungumál í íslenskum grunn- skólum. Það tel ég hafa verið mikil mistök. Enskan þarf engan stuðning og kennir sig sjálf gegnum tölvur og snjalltæki sem börn og unglingar nota í dag. Norrænu tungumálin þurfa hins vegar stuðning og þeim verður að halda að krökkunum,“ segir Bogi . Í því efni minnir hann á að í dag séu minnst 30 þúsund Íslendingar búsett- ir á hinum Norðurlöndunum og til að ná fótfestu þar sé kunnátta í tungu innfæddra nauðsyn. Þá sé gott að byrja á dönskunni þótt erfið sé, en með skilningi á henni sé fólk í raun einnig búið að læra norsku og sænsku, svo skyld séu þessi tungumál. „Almennt fer tungumálakennslu í íslensku skólakerfi minnkandi, sem ég tel miður. Danir gera sér þó grein fyr- ir því að danskan skiptir máli á Íslandi og þarf að styðja við,“ segir Bogi. Í því sambandi tiltekur hann samstarfs- samning milli íslenskra og danskra stjórnvalda um dönskukennslu hér á landi sem var endurnýjaður fyrr í mánuðinum af menntamálaráðherr- um landanna; Lilju Alfreðsdóttur og hinni dönsku Merete Riisager. Þar sé áhersla lögð á að Íslendingar geti tal- að dönskuna og að dönsk menning sé kynnt í íslenskum skólum. Þetta sé gott mál. Þá tiltekur Bogi úr starfi sínu sem fréttamaður að RÚV eigi margvíslegt samstarf við systurstofnanir á hinum Norðurlöndunum. Fréttum sé miðlað á milli og fréttamenn hér heima finni vel að landinn; áhorfendur og hlust- endur, vilji fá fregnir af Norður- löndunum, sem svo margir Íslend- ingar hafa tengsl við. Starfi saman í umhverfis- og öryggismálum Samstarf og bandalag milli þjóð- ríkja heldur ekki alltaf endalaust. Í því efni er nærtækt að minna á ólg- una sem nú er innan Evrópusam- bandsins. Norðurlandasamstarfið virðist hins vegar standa traustum fótum, sem Bogi segir ekki þurfa að koma á óvart. „Á Norðurlöndum er rík hefð fyrir virkri þátttöku almennings í lýðræð- inu og hagsmunir landanna eru um margt svipaðir. Því er eðlilegt að þjóðirnar eigi með sér samstarf, sem er í stöðugri þróun. Ætla má að sam- starf um aðgerðir í umhverfismálum vegna loftslagsbreytinga komi til í náinni framtíð sem og í öryggis- og varnarmálum. Nú hefur til dæmis verið settur á laggirnar samstarfs- vettvangur herafla norrænu ríkjanna sem er nýmæli. Fleiri verkefni mætti sjálfsagt tiltaka og minna má á að þegar Barack Obama Bandaríkja- forseti bauð forsætisráðherrum Norðurlandanna í Hvíta húsið vorið 2016 sagði hann að réttast væri að norrænu ríkin stýrðu veröldinni; svo vel hefði þeim tekist til. Það er góð umsögn sem með öðru leggur okkur á herðar þá skyldu að halda í sam- félagsgerð Norðurlandanna.“ Besta samfélagsgerð sem býðst  Norræn félög í eina öld  Fjölþætt og traust samstarf meðal nágrannaþjóða  Sterkt velferðar- kerfi, virðing fyrir lögum og fólki og umburðarlyndi  Tungumálakennslan verði styrkt Morgunblaðið/Sigurður Bogi Norrænt Ásdís Eva Hannesdóttir, framkvæmdastjóri Norræna félagsins, Bogi Ágústsson, formaður Norræna fé- lagsins, og Oddný G. Harðardóttir, alþingismaður og varaformaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs. Nú um mánaðamótin opnar plast- röraverksmiðjan Set hf. á Selfossi afgreiðslu og vörulager í Kletta- görðum 21 í Reykjavík. Stór hluti af sölustarfsemi fyrirtækisins verður á nýja staðnum en ætlunin með þessu er að bæta afhendingar- öryggi og þjónustu við viðskipta- vini. „Starfsemi í vöruhúsinu mun létta mikið á húsnæði og aðstöðu Sets, en aðalstöðvar okkar og verk- smiðja verða þó áfram á Selfossi,“ segir Örn Einarsson, sem stýrir sölu- og tæknisviði fyrirtækisins. Mikill vöxtur og nýsköpun hefur einkennt starfsemi Sets undanfarin ár. Byggingar fyrirtækisins eystra eru samanlagt um 8.000 fermetrar og stefnt er að byggingu nýs verk- smiðjuhúss á komandi árum. Set framleiðir lagnavörur á fjór- um meginsviðum, það er hitaveitu-, vatnsveitu- og fráveituefni og svo efni fyrir raf- og fjarskiptakerfi. Þá rekur Set, vélsmiðju og vöruþróun- ardeild, sérsmíðadeild í lagnavör- um og þjónustudeild fyrir samsetn- ingu röra á lagnastað. Set ehf starfrækir sömuleiðis dótturfélag í Þýskalandi Set Pipes GmbH sem annast framleiðslu á foreinangr- uðum hitaveiturörum, segir Berg- steinn Einarsson, framkvæmda- stjóri Sets. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Set Elas Juknevicius lagermaður og Örn Einarsson sölu- og tæknistjóri. Opna í Klettagörðum  Set hf. með afgreiðslu í Reykjavík Meðal langflestra fulltrúa í Norðurlandaráði, sem eru þing- menn aðildarlandanna, ríkir al- menn sátt um grundvallargildi sem snerta lýðræði, jafnrétti, mannréttindi og velferð. Þetta sagði Oddný Harðardóttir, varaformaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, í ávarpi sínu á fundinum sl. laugardag, 23. mars, sem á almanakinu heitir Dagur Norðurlandanna. Oddný rifjaði upp að endur fyrir löngu var sagt að í nor- rænu félögunum væri fólk með pólitísk markmið. Var í því efni verið talað um „orma í para- dís“. Næði það fólk undirtök- unum væri syndafallið víst. Þetta segir Oddný ekki eiga við í dag. „Ormurinn í paradís norræns samstarfs er ekki pólitíkin eða skoðanaágreiningur heldur öfgafull öfl sem vilja ekki að norræn samvinna og samkennd byggi á jöfnu gildi allra manna og virðingu fyrir mannréttind- um heldur á kynþáttahyggju, útilokun minnihlutahópa og andúð á öllu því sem framandi er. Þessi öfl voru til fyrir einni öld þegar norrænu félögin voru stofnuð, þau voru svo sannar- lega til á fjórða og fimmta ára- tug síðustu aldar og þau eru enn til staðar nú á dögum. Þau laðast að norrænu samstarfi vegna þess að þau telja sig geta fundið þar farveg fyrir ógeðfelldar hugmyndir sínar. Við sem störfum á þessum vettvangi verðum að vera vak- andi fyrir þessari hættu,“ segir Oddný. Vakandi fyrir öfgaöflum GRUNDVALLARGILDI Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ———

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.