Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 GMC Denali 3500 Litur: Silver, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, 2019 módel, vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, geymsla undir aftursæti, heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira. VERÐ 11.360.000 m.vsk 2017 RAM 3500 Limited Litur: Perluhvítur, svartur að innan. Ekinn 9600 km. Einn með öllu: Loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, RAM-box. 6,7L Cummins. VERÐ 9.180.000 m.vsk 2019 RAM 1500 Rebel Litur: Flame red, svartur að innan. Glæsilega útbúinn off-road bíll. 5,7 L HEMI, 390 hö. 8 gíra sjálfskipting, hæðarstillan- leg loftpúðafjöðrun, lok á palli. VERÐ 12.390.000 m.vsk 2018 Ford F-150 Lariat Litur: Hvítur og brúnn/brúnn að innan. Einnig til í Ruby red. Mojave leður sæti, bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20 felgur o.fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft of torque. VERÐ 10.990.000 m.vsk Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Margbreytileikinn réð ríkjum á Hornbjargi í ferð kvikmyndagerðar- fólks þangað í síðustu viku. Blítt veð- ur eins og gerist best á þessum árs- tíma, en líka stórhríð og stormur. Þegar haldið var frá Horni síðasta laugardag þurfti að sæta lagi svo hægt væri að ferja fólk og rán- dýran búnað í gúmmítuðru út í bátinn, sem kom- inn var frá Ísa- firði. Reyndar tafð- ist heimferð að- eins því báturinn sem átti að sækja þennan fimm manna hóp hafði strandað í Lónafirði í Jökulfjörðum. Í hans stað var fenginn bátur frá öðru fyrirtæki til að flytja mannskap og farangur frá Horni til Ísafjarðar. Ester Rut Unnsteinsdóttir, spen- dýravistfræðingur á Náttúrufræði- stofnun Íslands og formaður stjórn- ar Melrakkasetursins í Súðavík, tók þátt í ferðinni og segir að myndatök- ur hafi gengið vel og refurinn hafi virst vel haldinn eftir veturinn. Svartfugl hafi þó ekki sést í nein- um mæli, lítið eitt af ritu á sjónum og aðeins fýllinn verið sestur upp í bjargið. Lítið virtist af æti fyrir ref- ina í fyrstu en eftir að brim hafði gengið yfir var nokkuð af vönkuðum æðarfugli í flæðarmálinu. Refurinn hafi tekið fæðunni fegins hendi og steggurinn ýmist grafið hann í skafla eða fært læðunni. Sjálfur hafi hann ekki bragðað á kræsingunum og ver- ið heldur mjósleginn. Gamlir kunningjar Ester er á heimavelli á Horn- ströndum og hefur lengi stundað þar rannsóknir. „Þarna hittum við nokkra gamla kunningja úr refa- hópnum,“ segir hún. „Fyrst sáum við bara eitt par og þar var pörun í gangi, en eftir því sem dagarnir liðu sáum við fleiri. Eftir að parið hafði makast hlupu þau hringi í kringum óðalið og merktu útjaðar þess skil- merkilega, þannig að gulir blettir voru við allt sem stóð upp úr snjónum. Í framhaldinu sáum við að hinir refirnir virtust virða þessi mörk og hættu að fara yfir einhverja ósýnilega línu. Við sáum þetta sama par í fyrra og þá voru þau greinilega að byrja saman. Þá lét læðan stegginn elta sig tímunum saman, greinilega til að kanna þrek hans og úthald. Núna var hún mikið í því að snyrta hann og narta í hálsakot. Allt var miklu nán- ara og hann lygndi aftur augunum af vellíðan. Eins konar aðdragandi að því þegar hún loks gaf merki um að hún væri tilbúin til mökunar. Annað par sem sást til ofar í bjarginu virtist ekki eins mikið fyrir nána samveru. Þau fylgdust þó að og virtust einnig vera að merkja landa- mæri síns óðals. Steggurinn hafði slasað sig á vinstri afturfæti og steig ekki í hann. Fóturinn hefur líklega brotnað og gróið vitlaust þannig að hann stóð út í loftið. Hann náði þó góðri ferð þó ekki notaði hann nema þrjá fætur. Læðan hafði skjanna- hvítar og hreinar vígtennur en allar framtennurnar vantaði í neðri góm. Þetta virtist þó ekki há þeim, bæði litu út fyrir að vera hraust enda enn á lífi á þessum árstíma og óðals- bændur í þokkabót.“ Hörkulegt líf hjá refnum Ester segir að kvikmyndatöku- mennirnir séu frá skoska fyrir- tækinu Maramedia, sem vinni að sjónvarpsþáttaröð undir heitinu Stormborn. Eins og frá var greint í Morgunblaðinu nýlega er talsvert um að hópar óski eftir leyfi til að mynda refinn á Hornströndum. Skoska fyrirtækið hefur fengið leyfi til að koma nokkrum sinnum í ár til að fylgjast með refunum. Ester segir að gestirnir hafi verið ánægðir með það sem þeir sáu og söguna sem þeir náðu að mynda í stórbrotinni nátt- úru Hornstranda. „Þetta er hörkulegt líf hjá refnum, sem á sér þó ótrúlega margar hliðar,“ segir Ester. Ljósmynd/Ester Rut Unnsteinsdóttir Hornbjarg Sam Oakes myndar á bjargbrúninni í átt til sjávar, Jörundur og Kálfatindur í baksýn. Sæta þurfti lagi við brottför frá Horni  Mynduðu refi á Hornströndum við ýmsar aðstæður Á heimavelli Þessi mórauði refur var vakinn af værum blundi. Ester Rut Unnsteinsdóttir Vetur Eftir að sjó lægði var hægt að flytja fólk og rándýran farangur á gúmmítuðru yfir í stærri bát að lokinni vel heppnaðri ferð á Hornbjarg. Dæmi eru um að verulegur munur hafi verið á aflasamsetningu í róðr- um grásleppubáta efir því hvort veiðieftirmaður var um borð eða ekki. Fiskistofa hyggst birta reglu- lega upplýsingar um aflasamsetn- ingu á hinum ýmsu tegundum veiða eftir því hvort eftirlits- menn stofnunar- innar voru með í för eða ekki. Ákveðið hefur verið að byrja með því að birta upplýsingar um afla- samsetningu í grásleppuveiði á síð- asta ári. Stofnunin mun framvegis birta samantektir af grásleppuveið- um reglulega og má þá búast við að gefið verði upp hvaða báta er um að ræða í hverju tilfelli. Talsvert ólík dæmi Á heimasíðu Fiskistofu má sjá nafnlaus dæmi og í einu tilviki kom enginn þorskur á land úr grásleppu- róðrum 21. og 22. mars í fyrra. Í næsta túr á eftir, 24. mars, komu rúmlega tvö tonn af þorski á land, en þá var veiðieftirlitsmaður um borð. Dagana á eftir var landaður þorskur 1,3 tonn og síðan 144 kíló. Þessa fimm daga var grásleppuaflinn frá 662 kílóum og upp í rúmlega tvö tonn. Í öðru tilviki er tekið dæmi um fimm róðra grásleppubáts, sem land- aði engum þorski nema þegar eftir- litsmaður var um borð. Á heimasíð- unni er að finna dæmi um aflasam- setningu 13 grásleppubáta í lok mars í fyrra. Dæmin eru talsvert ólík og í nokkrum tilvikum er mun meiri sam- fella í aflasamsetningu heldur en í dæmunum hér að framan. Eftirlit svo ekki komi til brottkasts „Ástæður breytilegrar aflasam- setningar geta verið margvíslegar. Aðstæður í hafinu geta verið ólíkar hverju sinni og ætlun útgerðar og skipstjórnarmanna getur verið mis- munandi frá einni veiðiferð til ann- arrar. Það er m.a. hlutverk Fiski- stofu að hafa eftirlit með að ekki komi til brottkasts. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir Fiskistofa margvíslegum aðferðum og má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og skipstjórn- armenn, áhættugreiningu og að- gengi allra að upplýsingum um veið- ar og afla. Þannig telur Fiskistofa að hún ræki hlutverk sitt að gæta hags- muna þjóðarinnar við ábyrga nýt- ingu auðlinda hafs og vatna,“ segir á heimasíðu Fiskistofu. aij@mbl.is Hefur eftirlitsmað- ur áhrif á afla?  Birta upplýsingar um aflasamsetningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.