Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 17

Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Ferðamenn spókuðu sig um Gólanhæðir við landamæri Ísraels og Sýrlands í gær. Ísrael náði yfirráðum yfir tveimur þriðju hluta Gólanhæða af Sýrlendingum í sex daga stríðinu árið 1967. Um 20 þúsund ísraelskir landnemar búa nú í Gólanhæðum. Alþjóðasamfélagið hefur ekki viðurkennt yfirráð Ísraela yfir landsvæðinu, en Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í vik- unni að hann vildi að Bandaríkin viðurkenndu yfirráð Ísraela yfir hæðunum. „Eftir 52 ár er kominn tími til þess að Bandaríkin viðurkenni að fullu yfirráð Ísraela yfir Gólanhæðum,“ sagði Trump á Twitter. Benjamin Netanyahu, for- sætisráðherra Ísraels, sem er nú í hörðum kosn- ingaslag, fagnar ummælum Trumps mjög. AFP Ferðamenn heimsækja Gólanhæðirnar Á landamærum Ísraels og Sýrlands Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Þingmenn í neðri deild breska þings- ins samþykktu á mánudagskvöldið að efna til atkvæðagreiðslu í dag um framhald Brexit-málsins. Ríkisstjórn Theresu May lagðist eindregið gegn ályktun þingsins og sögðu sig þrír ráðherrar úr stjórninni til að geta kosið gegn henni. Atkvæðagreiðslan í dag mun ekki binda hendur ríkis- stjórnarinnar en náist meirihluti í þinginu gæti hann reynt að binda þá leið í lög. Nokkrir möguleikar verða í boði fyrir þingmenn um framhaldið. Á meðal þess sem kosið verður á milli er hvort að neðri deildin vilji styðja út- göngusamninginn sem er nú þegar til staðar, eða hvort Bretar eigi að yfir- gefa Evrópusambandið án samnings. Þá gæti þingið einnig ákveðið að óska eftir lengri fresti til að semja um út- gönguna eða jafnvel reynt að koma í veg fyrir útgönguna. Með ákvörðun sinni á mánudags- kvöld hefur neðri deildin í raun tekið frumkvæðið úr höndum ríkisstjórnar- innar, en ekki er enn ljóst hvaða val- kostir verða bornir upp til atkvæða í dag. Þó er talið að hugmyndir um nánara efnahagssamstarf við ESB á grunni EES-samningsins, samningur á borð við viðskiptasamning ESB við Kanada og nýtt þjóðaratkvæði um út- gönguna gætu orðið þar á meðal. Allt þá þegar þrennt er? Þingmenn neðri deildarinnar hafa nú í tvígang kolfellt útgöngusamning- inn sem ríkisstjórn May náði við ESB í nóvember síðastliðnum. Samningur- inn gefur Bretum langan aðlögunar- tíma til að koma á fríverslunarsamn- ingum eftir að landið yfirgefur innri markað ESB. Samningurinn verður þó ekki lagður fyrir þingið að nýju nema ljóst sé að meirihluti þingsins styðji hann. Talið er afar hæpið að þingmenn samþykki samninginn í þriðju atrennu en ef svo yrði myndi Bretland yfirgefa ESB 22. maí. Samþykki þingið engan samning og ekkert samkomulag er gert um frek- ari aðgerðir mun Bretland yfirgefa ESB án samnings á miðnætti í Bruss- el hinn 12. apríl næstkomandi. Emm- anuel Macron, Frakklandsforseti, hef- ur sagt að það ætti að vera hægt væri að semja um að samningslaus útganga yrði síðar. May hefur ekki útilokað möguleikann á útgöngu án samnings. Neðri deildin hefur hins vegar hafnað því að Bretland yfirgefi Evrópusam- bandið án þess að samkomulag liggi fyrir. Óttast er að efnahagleg áhrif þess yrðu vond fyrir Breta, þar sem þeir yrðu þá að taka upp tolla Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar WTO þar til búið væri að gera fríverslunarsamn- inga við hin ýmsu ríki. Útgöngunni mögulega frestað Þingið gæti einnig ákveðið að biðja Evrópusambandið um mun lengri frest, svo að hægt verði að semja upp á nýtt um útgönguna. Framkvæmda- stjórn ESB hefur sagt leiðtogum að- ildarríkjanna að slíkur frestur yrði að minnsta kosti út þetta ár og mögulega mun lengur. Slíkur frestur gæti opnað á þann möguleika að kosið verði aftur til neðri deildar þingsins, eða jafnvel að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um Brexit-málið verði haldin. Þá hefur Evrópudómstóllinn kom- ist að þeirri niðurstöðu að Bretar geti einhliða dregið til baka tilkynningu sína um útgöngu úr ESB samkvæmt 50. gr. sáttmálans um Evrópusam- bandið, en um fimm og hálf milljón manna hafa skrifað undir áskorun til ríkisstjórnarinnar um að hætta við Brexit. Þingið gæti í því ljósi ákveðið að draga útgönguna til baka, en það er talið mjög ólíklegt. Næstu möguleg skref Breta í Brexit  Neðri deild breska þingsins efnir til atkvæðagreiðslu um framhald Brexit-mála í dag  Fjórir val- möguleikar á borðinu  Þingmeirihluti gæti reynt að binda hendur ríkisstjórnarinnar með lagasetningu AFP Sundrung Breska þingið mun í dag kjósa um næstu skref í Brexit-málum. Saksóknarar í Bandaríkjunum hafa ákveðið að saksækja ekki leikarann Jussie Smollet, sem var sakaður um að hafa logið að lögreglunni. Smollet er sagð- ur hafa borgað tveimur mönn- um til að ráðast á sig í þeim til- gangi að auka frægð sína og fá þar af leiðandi hærri laun sem leikari vestanhafs. Tilkynnti hann í fjölmiðlum eftir árásina að um hatursglæp væri að ræða og að árásarmennirnir hefðu ráðist á hann vegna þess að hann væri svartur og samkynhneigður. Olli árásin miklu fjaðrafoki í Bandaríkjunum og voru þjóð- þekktir einstaklingar fljótir að for- dæma hana áður en grunur um að hún hefði verið sviðsett kom fram. Laus allra mála „Í dag hafa allar ákærur gegn Jussie Smollet verið felldar niður,“ er haft eftir Tina Glandian og Patricia Brown Holmes, lög- mönnum Smollet, á fréttaveitu AFP. Smollet neitaði alltaf sök í málinu. Jussie Smollett Saksókn gegn Jussie Smol- let felld niður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.