Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 21

Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 Það skýtur töluvert skökku við að á blómaskeiði íslenskra innanhússboltaíþrótta skuli aðstaða til al- þjóðlegra keppnis- leikja hérlendis vera óboðleg. A-landslið karla í handbolta hef- ur á þessu „gullna“ skeiði unnið til silfur- verðlauna á Ólympíu- leikum og brons- verðlauna á Evrópumóti og A-landslið karla í körfubolta hefur tvisvar unnið sér þátttökurétt á lokamóti Evrópumótsins, Euro- Basket. Það hefur legið ljóst fyrir í meira en áratug að Laugardals- höllin er úrelt mannvirki sem stenst ekki þær kröfur sem gerðar eru til veigamikilla íþróttamannvirkja í dag. Hún er á undanþágum hjá al- þjóðasamböndum í hand- og körfu- bolta, EHF og FIBA, en hversu lengi þær vara er óvíst. Þessar undanþágur breyta ekki þeirri stað- reynd að Laugardalshöllin er ólög- leg keppnishöll. Staðreyndin er einnig sú að hún er ein elsta íþróttahöll Evrópu sem notuð er að staðaldri í alþjóðlegum keppnisleikjum í hand- og körfu- bolta. Ef við einskorðum okkur ein- ungis við þjóðir sem eru skil- greindar sem vesturevrópskar, þá er hún elst. Þegar Laugardalshöllin var tekin í notkun árið 1965 eignuðust Ís- lendingar í fyrsta skipti íþróttahöll sem gat hýst alþjóðlega keppnis- viðburði. Forveri hennar var skáli sem bandaríski herinn reisti árið 1943 en sú bygging var lítil; bæði fyrir áhorfendur og íþróttafólk. Laugardalshöllin var því kærkomin viðbót í íslenskar íþróttir. En góðir og þarfir hlutir vara ekki að eilífu. Þeir eldast og verða að lokum úrelt fyrirbæri. Þess má geta að Laugardals- höllin var minnkuð töluvert frá fyrsta samþykkta uppdrætti og varð því minni bygging að veruleika en ráð var gert fyrir í fyrstu. Gísli Halldórsson, arkitekt og hönnuður Laugar- dalshallarinnar, sagði að minnkunin hefði verið samþykkt af því að menn trúðu því að innan 20 ára frá vígslu Laugardalshallarinnar yrði enn stærri íþrótta- höll risin í Reykjavík. Það gerðist ekki þrátt fyrir að til stæði að halda heimsmeistara- mót í handbolta hér- lendis árið 1995. Mótið fór fram en engin reis höllin. Á þeim tíma voru aðrar þjóð- ir í óða önn að reisa nýjar og nú- tímalegar íþróttahallir til að leysa af hólmi hallir sem reistar voru á árunum 1950-1970. Vegna framfara í byggingariðnaði og hærri öryggis- staðla í íþróttamannvirkjum þótti öðrum þjóðum það sjálfsagt mál. Hérlendis voru menn sáttir við lúna Laugardalshöllina. Nýir þjóðarleikvangar rísa árlega Á síðastliðnum 10 árum hafa nýir þjóðarleikvangar fyrir innanhús- íþróttir risið víðsvegar um Evrópu þar sem hallir sem voru reistar á árunum 1980-1995 þykja orðnar úr- eltar. Á sama tíma og þjóðir eru að skipta út 25-40 ára gömlum þjóðar- höllum er fátt sem bendir til þess að 54 ára gömul Laugardalshöll verði leyst af hólmi í nánustu fram- tíð. Ríki og borg sýna þessu mál- efni takmarkaðan áhuga. Það er síðan algjörlega óvið- unandi að á sama tíma og hand- og körfuboltalandsliðin hafa átt mikilli velgengni að fagna, skuli sætafram- boð Laugardalshallarinnar minnka nánast ár frá ári. Í dag tekur höllin um 2.200 áhorfendur í sæti en sú tala var yfir 3.000 sæti fyrir rúmum áratug. Ástæða þessarar fækkunar sæta eru hertir öryggisstaðlar EHF og FIBA inni í keppnishöllum þar sem alþjóðlegir viðburðir fara fram. Það er kominn tími til að stjórn- völd vakni af værum blundi og sýni íþróttafólki þá virðingu að hefja undirbúning og byggingu nýs þjóðarleikvangs fyrir innanhús- íþróttir hér á landi. Eftir Þórð Má Sigfússon Þórður Már Sigfússon » Það er kominn tími til að stjórnvöld vakni af værum blundi og sýni íþróttafólki þá virðingu að hefja undir- búning og byggingu nýs þjóðarleikvangs. Höfundur er skipulagsfræðingur. Nýr þjóðarleikvangur fyrir innanhúsíþróttir þolir enga bið Það hefur verið dapurlegt að lesa greinar í íslenskum fjölmiðlum undanfarna mánuði þar sem því er haldið fram að Evrópusambandið sé ólýðræðislegt bákn þar sem skriffinnar eins og ég, sem enginn hefur kosið til embættis, taka allar ákvarðanir. Ekkert er fjær lagi. Engin lög Evrópusambandsins eru ákveðin af fólki eins og mér. Evr- ópusambandið samanstendur af að- ildarríkjum þess, ríkjum sem hafa ákveðið að deila fullveldi sínu á svið- um þar sem þau telja að slíkt efli hag þeirra og styrk. Hvernig verða lögin til? Vissulega semja embættismenn framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins drög að lagafrumvörpum, eins og ókjörnir embættismenn í ís- lenskum ráðuneytum. En það eru lýðræðislega kjörnir forsetar og for- sætisráðherrar ESB-landa sem fyrst marka pólitíska stefnu sam- bandsins með einróma ákvörðunum sínum í leiðtogaráðinu. Auk þess geta stofnanir Evrópusambandsins ekkert gert sem ekki samræmist grunnsáttmálum þess, sem allar ríkisstjórnir aðildarríkja hafa sam- þykkt einróma. Frumvörp eru yfirleitt til komin vegna beiðni frá ráðherraráðinu, sem er skipað ráðherrum ESB- landanna, sem fara með málaflokk- inn sem til umræðu er hverju sinni (til dæmis landbúnað, sjávarútveg, samgöngumál, dómsmál). Einnig geta frumvörp orðið til vegna álykt- unar Evrópuþingsins, sem kosið er með beinni kosningu, eða vegna þess að óháðar ráðgjafarstofnanir leggja til lagaumbætur. Þá getur al- menningur í ESB-ríkjum einnig safnað undirskriftum til að fara fram á að framkvæmdastjórnin setji ný lög. Hvað tekur svo við? Þegar framkvæmdastjórnin hefur undirbúið frumvarp er það lagt fyrir Evrópuþingið, sem er kosið til fimm ára í senn með beinni kosningu íbúa í aðildarríkjunum 28, og ráðherra- ráðið, sem er skipað fulltrúum lýð- ræðislega kjörinna ríkisstjórna í Evrópusambandinu. Þing og ráð- herrar ræða og breyta frumvarps- tillögunum og sammælast svo um endanlega útgáfu laganna eða hafna þeim alfarið. Ef eitt af ESB-löndunum innleiðir eða framfylgir ekki lögum má bera málið undir Evrópudómstólinn, sem er skipaður sjálfstæðum dómurum frá öllum löndunum, rétt eins og bera má íslensk lög (eða brot á þeim) undir dómstóla. En yfirleitt kemur ekki til þessa. Þótt stjórnskipan Evrópusam- bandsins sé ef til vill flókin get ég ekki tekið undir með þeim sem segja að „enginn í ESB sé lýðræðislega kjör- inn“ eða að það sé kerfisbundinn „lýð- ræðishalli“ innan sam- bandsins. Í einföldustu myndinni má segja að ESB sé löndin sem hafa sameinast um að vinna saman. Þau ráða, samkvæmt umboði kjósenda sinna. Brexit var ekki ákvörðun okkar Það hefur einnig valdið mér von- brigðum að lesa skrif um að „Bruss- el“ vilji „refsa“ Bretum fyrir að ganga úr ESB. Bretar kusu að ganga úr Evrópusambandinu og við virðum niðurstöðuna þótt hún hryggi okkur. Við höfum tekið skýrt fram frá byrjun að Bretar geti ekki notið réttindanna sem fylgja ESB- aðild án þess að rækja skyldurnar. Það væri eins og að segja upp áskrift að líkamsræktarstöð en ætl- ast þó til þess að geta áfram notað tækin og sundlaugina eins og ekkert hafi í skorist. Eftir tæpra tveggja ára erfiðar samningaviðræður hefur ESB náð samkomulagi við gagnaðila sinn, bresku ríkisstjórnina. Nú vonumst við til þess að breska þingið ákveði hvaða stefnu skuli taka svo við get- um hafist handa við að semja um ná- ið framtíðarsamstarf við vini okkar í Bretlandi. Ásakanir um „hefnd“ eru tilhæfu- lausar og ósanngjarnar. Samninga- hópur ESB hefur allan tímann starfað samkvæmt skýru umboði lýðræðislega kjörinna ríkisstjórna þeirra 27 ríkja sem eftir eru, sem hafa verið samstiga í gegnum allt ferlið. Raunar er þessi umfjöllun um Brexit-málið fullkomið tækifæri til að svara einnig ásökunum um að ESB hlunnfari smærri aðildarríki, en því er gjarnan haldið á lofti á Ís- landi sem dæmi um meinta ólýð- ræðislega stjórnarhætti sambands- ins. Málefni Írlands, eyju sem telur 4,8 milljónir íbúa af 500 milljón- unum í ESB, hafa verið erfiðasti hjallurinn í Brexit-samningaviðræð- unum. Í viðræðunum hefur Evrópu- sambandið staðið þétt við bakið á Írum, enda var tilgangurinn með stofnun Evrópusambandsins ekki síst að vernda minnstu löndin innan þess. Lýðræði í ESB – Brexit og smáríkin Eftir Michael Mann » Í viðræðunum hefur Evrópusambandið staðið þétt við bakið á Írum, enda var tilgang- urinn með stofnun ESB ekki síst að vernda minnstu löndin innan þess. Michael Mann Höfundur er sendiherra Evrópu- sambandsins á Íslandi. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.