Morgunblaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.03.2019, Blaðsíða 26
P áll Guðmundsson fæddist 27. mars 1959 á Húsafelli í Borgarfirði og ólst þar upp. Hann gekk í barna- skóla á Kleppjárns- reykjum og Hagaskóla í Reykjavík. Hann stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1977-1981 og fór síðar í Listaháskólann í Köln í Vestur- Þýskalandi, þar sem hann lærði högg- myndalist hjá prófessor Burgeff. Hann kom aftur í Borgarfjörðinn eftir námið í Myndlista- og handíðaskól- anum, og var kennari við Grunnskól- ann í Borgarnesi í þrjá vetur, þar sem hann kenndi teikningu og hafði vinnu- stofu í gamla Kaupfélagshúsinu. Eftir námsárið í Þýskalandi fór hann heim að Húsafelli og hefur verið þar við vinnu síðan. Áhuginn á listinni hefur lengi verið til staðar. Þegar Páll var barn sá hann myndir í steinunum og um 12 ára ald- ur var hann farinn að mála olíuverk. Þá voru margir listamenn á Húsafelli, m.a. Pétur Friðrik og Veturliði Gunn- arsson, og fékk hann að fara með þeim út í skóg að mála. Páll segir að hann sjái myndir í steinunum og að hann þurfi oft ekki að gera mikið til að gera myndirnar sýni- legar öðrum. Þetta geta verið tröll, vættir, huldufólk, dýr og menn sem þannig leynast og hann laðar fram. Hann gerir bæði bergþrykk og svell- þrykk auk þess að kljúfa steina í sund- ur til að finna leyndar myndir inni í þeim. Þá steina kallar hann samlokur en þær geta verið af öllum stærðum. Páll notar eingöngu handverkfæri við vinnu sína og náttúrulega liti, oftast liti úr steinunum sjálfum. Bergþrykkið er þannig að hann pússar steininn með sandpappír, bleytir pappírinn og Páll Guðmundsson á Húsafelli listamaður – 60 ára Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höggmynd Páll við verkið Sörli er heygður Húsafells í túni, sem er í höggmyndagarðinum í Chicago. Laðar fram myndir og tóna úr steini Morgunblaðið/Ásdís Steinharpa Páll leikur á steinhörpu á tónlistarhátíðinni Norður og niður árið 2017. 26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 PFAFF • Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is Verð áður 7.900 kr. Tilboð: 6.400 kr. Hitapúði HK-49 Sennheiser RS-175 þráðlaus heyrnartól Smogen Gólflampi Verð áður 34.900 kr. Tilboð: 27.900 kr. Verð áður 16.900 kr. Tilboð: 10.000 kr. Komin yfir fimmtugt hefur safnast drjúgt í reynslubankann svokona hefur tækifæri til að takast á við ýmsar áskoranir. Ég hefbrennandi áhuga á menntamálum og finnst gaman að vinna þeim brautargengi. Finnst reyndar sem betri hljómgrunnur sé nú en oft áður fyrir mikilvægi menntunar og það er vel,“ segir Anna María Gunn- arsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, sem er 52 ára í dag. „Sagt er að þegar æviárin eru orðin jafn mörg og spilin í stokknum sé fólk komið á beinu brautina í lífinu. Það er talsverður sannleikur í því,“ segir Anna María sem ólst upp í Hafnarfirði og Laugarási í Biskups- tungum og tók stúdentspróf frá Menntaskólanum að Laugarvatni. Nam íslensku við Háskóla Íslands, sneri sér eftir það að kennslu og starfaði í meira en 20 ár við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. „Kennarastarfið er áhugavert, ekki síst samskipti við unglingana sem eru flestir hverjir hugmyndaríkir og skapandi. Ég sakna krakk- anna oft, en á móti kemur að störf að félagsmálum eru líka mjög gef- andi,“ segir Anna María, íslenskufræðingurinn sem fylgist vel með bók- menntunum og nýjum bókum. Hún nefnir þar að bókin Skiptidagar, þar sem Guðrún Nordal segir persónulega frá bókmenntum Íslendinga, hafi vakið sig til umhugsunar um margt í samfélagsgerðinni. „Eftir vinnu fer ég oft út að ganga. Við Katrín Jóna Svavarsdóttir, ein af vinkonum mínum frá Laugarvatnsárunum, tökum oft hringinn umhverfis Hvaleyrarvatn. Ferðirnar í fyrra voru um 200 og verða sennilega ekki færri í ár. Eins stunda ég skíðaíþróttina með fólkinu mínu,“ segir Anna María sem er gift Bjarka Sverrissyni kerfisfræðingi. Synirnir eru tveir; Kvennaskólapilturinn Ari Gunnar sem er 17 ára og læknaneminn Jón Gunnar 22 ára. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Menntun Kennarastarfið er áhugavert, segir Anna María. Öll spil í stokknum Anna María Gunnarsdóttir er 52 ára í dag Reykavík Sveindís Kata Stefnisdóttir fæddist föstudaginn langa 30. mars 2018. Hún var 3.200 g að þyngd og 50 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Regína Björk Vignis Sigurðardóttir og Stefnir Ægir Stefánsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.