Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 31
Verðmætt Arthur Brand við hið
verðmæta málverk Picassos á heim-
ili sínu, áður en hann skilaði því.
Hollenski einkaspæjarinn Arthur
Brand sem sérhæfir sig í lista-
verkaþjófnaði hefur haft uppi á
málverki eftir Pablo Picasso sem
stolið var af snekkju við frönsku Ri-
vieruna fyrir tveimur áratugum.
Fyrir dugnað við að leysa ráðgát-
ur sem tengjast stolnum verkum
hefur Brand verið kallaður „Indi-
ana Jones listaheimsins“. Hann
hafði uppi á fágætu málverkinu í
Amsterdam. Verkið nefnist Buste
de Femme (Dora Maar) og er metið
á 25 milljónir evra, um 3,4 milljarða
króna. Brand komst að því að mað-
ur nokkur hefði fengið verkið sem
greiðslu og milliliðir komu því síð-
an til hans í ruslapoka. Eftir að
hafa hengt verkið á vegg hjá sér –
hann stóðst ekki freistinguna – kom
spæjarinn því til tryggingafélags
sem fer með mál eigandans.
Hafði uppi á stolnu
Picasso-málverki
AFP
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019
Í tilefni HönnunarMars verða tvær sýningar opnaðar í
Hafnarborg í Hafnarfirði kl. 20 í kvöld. Í aðalsal safnsins
er sýningin Fyrirvari eftir Brynjar Sigurðarson og Vero-
niku Sedlmair. Sýningin miðar að því að þýða eða tengja
saman „hluti“ í umhverfinu; náttúru-, borgar- og menning-
arumhverfi, við hugmyndir og hugleiðingar að nýjum hlut-
um. Sjálft sköpunarferlið er sýningarefnið. Vinnan er séð
sem eins konar röð möguleika og uppspretta fyrir nýja
„hluti“. Hljóð verður kveikja að hlut og ljósmynd spinnur
jafnvel af sér formæfingar í teikningu, svo dæmi séu tekin.
Markmiðið er að nýta og sýna öll þessi stig og miðla eða
setja fram eins konar kortlagningu á tengingum milli mis-
munandi hluta og viðfangsefna, að leggja fram og mynd-
gera ferli, hugmyndir og uppsprettur. Verk Brynjars og
Veroniku taka á sig margar myndir og eru unnin í ólíka
miðla, en samband mannsins við umhverfi sitt er jafnan
sterkur þráður. Þau búa í Frakklandi og standa saman að
íslensk-þýsku hönnunarstofunni Studio Brynjar & Vero-
nika. Þau hafa unnið margvísleg verkefni fyrir fyrirtæki
og gallerí, m.a. fyrir skóframleiðandann Camper og krist-
als- og skartgripaframleiðandann Swarovski. Á síðustu ár-
um hafa þau fengið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir
hönnunarstörf sín, t.d. hin virtu Torsten og Wanja Söder-
berg-hönnunarverðlaun í Svíþjóð.
Óður til upphafsins
Í Sverrissal opnar Kristín Garðarsdóttir á sama tíma
sýninguna Teikningar/skissur í leir og textíl í sýningar-
stjórn Brynhildar Pétursdóttur. Sýningin er óður til skiss-
unnar, upphafsins og tilraunanna þar sem hugmyndirnar
eru frjálsar og flæða óhindrað úr einu í annan. Vinnan
hefst með skissum og teikningum, sem síðan færast af
blaði og yfir í önnur efni. Slíkt ferli er áþreifanlegt í vinnu
og verkum Kristínar, segir í tilkynningu og að skissurnar
og teikningarnar séu yfirfærðar í leir og textíl með ólíkum
aðferðum.
Hönnuðirnir Veronika Sedlmair og Brynjar Sigurðarson stödd í hönnunarheimi sínum á efri hæð Hafnarborgar.
Myndgera ferli, hug-
myndir og uppsprettur
Tvær nýjar sýningar í Hafnarborg í tilefni HönnunarMars
Morgunblaðið/Hari
Rauða hrafnsfjöðrin, verðlaun fyrir
forvitnilegustu kynlífslýsingu árs-
ins 2018 í íslenskum bókmenntum,
verður veitt á aðalfundi Lestrar-
félagsins Krumma 30. mars næst-
komandi. Það verður í þrettánda
sinn sem viðurkenningin verður
veitt.
Í tilkynningu frá lestrarfélaginu
segir að í ár séu tilnefndir höfund-
arnir og skáldin Lilja Sigurðar-
dóttir fyrir lýsingu í sögunni Svik,
Sigríður Hagalín Björnsdóttir fyrir
lýsingu í Hið heilaga orð, Steinunn
Sigurðardóttir fyrir erindi í Að
ljóði skaltu verða, Fríða Bonnie
Andersen fyrir Að eilífu ástin, Sig-
fús Bjartmarsson fyrir erindi í Af
fjölmenningar fögrulistskala,
Auður Ava Ólafsdóttir fyrir lýsingu
í Ungfrú Ísland, Kamilla Einars-
dóttir fyrir lýsingu í Kópavogs-
krónika – til dóttur minnar með ást
og steiktum, Þórdís Gísladóttir
fyrir Horfið ekki í ljósið, Eva Rún
Snorradóttir fyrir erindi í ljóðabók-
inni Fræ sem frjóvga myrkrið og
Hildur Knútsdóttir fyrir Ljónið.
Fyrri hrafnsfjaðrarhafar eru Ei-
ríkur Örn Norðdahl fyrir Eitur
fyrir byrjendur, 2006; Elísabet
Jökulsdóttir fyrir Heilræði lása-
smiðsins, 2007; Hermann Stefáns-
son fyrir Algleymi, 2008; Steinar
Bragi fyrir Himininn yfir Þing-
völlum, 2009; Þórunn Erlu-
Valdimarsdóttir og Magnús Þór
Jónsson, Megas, fyrir Dag
kvennanna – ástarsögu, 2010;
Sigríður Jónsdóttir fyrir ljóða-
safnið Kanil, 2011; Auður Ava
Ólafsdóttir fyrir Undantekning-
una, 2012; Sjón fyrir Mánastein,
2013; Soffía Bjarnadóttir fyrir
Segulskekkju, 2014; Bergsveinn
Birgisson fyrir Geirmundar sögu
heljarskinns, 2015; Sigurbjörg
Þrastardóttir fyrir örsagnasafnið
Óttaslegni trompetleikarinn og
aðrar sögur, 2016 og Þórarinn
Leifsson fyrir skáldsöguna
Kaldakol, 2017.
Tíu skáld og rithöfundar tilnefnd
fyrir forvitnilega kynlífslýsingu
Fjaðrarhafi Pétur Blöndal afhenti
Þórarni Leifssyni Rauðu hrafns-
fjöðrina fyrir forvitnilegustu kyn-
lífslýsingu ársins 2017.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 31/3 kl. 13:00 Sun 28/4 kl. 13:00 Lau 18/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 31/3 kl. 16:00 Sun 28/4 kl. 16:00 Sun 19/5 kl. 13:00
Sun 7/4 kl. 13:00 Sun 5/5 kl. 13:00 Sun 19/5 kl. 16:00
Sun 7/4 kl. 16:00 Sun 5/5 kl. 16:00 Sun 26/5 kl. 13:00
Lau 13/4 kl. 12:00 Sun 12/5 kl. 13:00 Sun 2/6 kl. 13:00
Sun 14/4 kl. 13:00 Sun 12/5 kl. 16:00 Lau 8/6 kl. 13:00
Sun 14/4 kl. 16:00 Lau 18/5 kl. 13:00 Aukas.
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 29/3 kl. 19:30 Lau 13/4 kl. 19:30 Mið 8/5 kl. 19:30
Fös 5/4 kl. 19:30 Lau 4/5 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 12/4 kl. 19:30
Lau 6/4 kl. 19:30 Fös 3/5 kl. 19:30
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 29/3 kl. 18:00 Aukas. Fös 5/4 kl. 18:00 Aukas. Lau 13/4 kl. 15:00
Lau 30/3 kl. 15:00 Lau 6/4 kl. 15:00 Lau 13/4 kl. 17:00
Sun 31/3 kl. 15:00 Sun 7/4 kl. 15:00 Sun 28/4 kl. 15:00
Sun 31/3 kl. 17:00 Sun 7/4 kl. 17:00 Aukas. Sun 28/4 kl. 17:00
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 12/4 kl. 19:30
Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas. Mið 24/4 kl. 19:30
Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 26/4 kl. 19:30
Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fim 11/4 kl. 19:30
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Loddarinn (Stóra Sviðið)
Lau 27/4 kl. 19:30 Frums. Fim 2/5 kl. 19:30 3.sýn Lau 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Þri 30/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 10/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 17/5 kl. 19:30 6.sýn
Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið)
Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 28/3 kl. 21:00 Lau 30/3 kl. 22:00 Lau 6/4 kl. 19:30
Fös 29/3 kl. 19:30 Fim 4/4 kl. 19:30 Lau 6/4 kl. 22:00
Fös 29/3 kl. 22:00 Fös 5/4 kl. 19:30
Lau 30/3 kl. 19:30 Fös 5/4 kl. 22:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 30/3 kl. 14:00 Lau 6/4 kl. 14:00 Lau 6/4 kl. 15:30
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s Fös 3/5 kl. 19:00 aukas.
Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s Mið 15/5 kl. 19:00 31. s
Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s Fim 16/5 kl. 19:00 32. s
Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Lau 30/3 kl. 20:00 45. s Lau 6/4 kl. 20:00 46. s
Allra síðustu sýningar!
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Fös 10/5 kl. 20:00 13. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Sun 12/5 kl. 20:00 14. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Mið 15/5 kl. 20:00 15. s
Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Fim 28/3 kl. 20:00 7. s Fös 5/4 kl. 20:00 8. s Lau 13/4 kl. 20:00 9. s
Síðustu sýningar.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!