Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Ertu með góða hugmynd um hvernig
Kjalarnes getur orðið snjallara,
skemmtilegra, vistvænna eða betra?
Öllum er frjálst að senda inn hugmynd
á hverfidmitt.is.
Sendu inn þína hugmynd
fyrir 9. apríl.
HUGMYNDASÖFNUNIN
ER Í FULLUM GANGI
Glerveggur í Klébergslaug
Hugmynd send inn 2017
Kjalarnes
hverfidmitt.is 20. mars – 9. apríl
Anna Sigríður Einarsdóttir
Ágúst Ingi Jónsson
Tilkynnt hefur verið um úthlutun á
rúmum 3,5 milljörðum króna á
næstu þremur árum til uppbygg-
ingar innviða og annarra verkefna
á 130 fjölsóttum stöðum í náttúru
Íslands og á öðrum ferða-
mannastöðum vítt og breitt um
landið. Á sama tíma er áætlað að
verja 1,3 milljörðum króna sér-
staklega til landvörslu til að
tryggja ráðningu heilsársstarfs-
manna sem og mönnun á háanna-
tíma á fjölsóttum stöðum og frið-
lýstum svæðum.
Þau Guðmundur Ingi Guð-
brandsson, umhverfis- og
auðlindaráðherra, og Þórdís Kol-
brún Reykfjörð Gylfadóttir, ferða-
mála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra, greindu frá þessum
verkefnum í gær, en markmiðið er
að halda áfram þeirri uppbyggingu
sem þegar er hafin. Þetta er í ann-
að sinn sem kynnt er sameiginlega
um úthlutun úr Landsáætlun um
uppbyggingu innviða og Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða.
Óvæntar vinsældir
Gert er ráð fyrir ríflega þriggja
milljarða framlagi til þriggja ára í
verkefnaáætlun Landsáætlunar um
uppbyggingu innviða sem gildir
fyrir árin 2019-2021. Þar með bæt-
ist rúmur milljarður króna við þá
áætlun sem kynnt var í fyrra. Í
áætluninni nú er ekki einungis
horft til stakra staða í náttúrunni
heldur lögð áhersla á heildræna
nálgun í gegnum svæðisheildir og
skilgreindar leiðir sem liggja á
milli staða.
Frá því í fyrra hafa innviðir ver-
ið byggðir upp á fjölmörgum stöð-
um um allt land. Má þar nefna
uppbyggingu við Dynjanda, lagn-
ingu stíga í Þingvallahrauni, við-
gerðir við Rútshelli undir Eyjafjöll-
um og uppbyggingu við Stuðlagil í
Jökuldal, sem óvænt hefur orðið
vinsæll ferðamannastaður, segir í
frétt frá ráðuneytunum.
Hvítserkur við Vatnsnes er dæmi
um stað þar sem bæta á öryggi
gesta og aðgengi niður í fjöruna.
Bætt aðgengi við þrjá manngerða
hella við Ægissíðu á bökkum Ytri-
Rangár er dæmi um svæðisheild.
Þá er áætlað að ráðast í fyrsta
áfanga hjólaleiðar við Jökulsár-
gljúfur sem liggur frá Ásbyrgi í átt
að Dettifossi.
Framkvæmdasjóður ferðamanna-
staða veitir að þessu sinni styrki til
40 verkefna og nemur heildarstyrk-
upphæðin alls 505 milljónum króna.
Hæsti styrkurinn fer til
innviðauppbyggingar við Goðafoss
sem er nú komin á lokastig eftir
uppbyggingarstarf á undanförnum
árum. Önnur verkefni sem fá hærri
en 30 milljóna króna styrki eru
Breiðin á Akranesi, Laufskálavarða
í Álftaveri, Reykjadalur og Hvera-
dalir í Ölfusi.
Verkefnin sem ráðherrarnir
nefndu í kynningu sinni eru af
ýms-um toga. Nefna má að um-
hverfi Snorralaugar í Reykholti
hefur látið mjög á sjá vegna mik-
illar umferðar ferðamanna. Er nú
unnið að því samkvæmt verk-
efnaáætlun landsáætlunar að lag-
færa skemmdir og styrkja umgjörð
laugarinnar sem og annarra minja
á svæðinu.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað í Snæfellsnesþjóðgarði undan-
farið, m.a. með framkvæmdum við
gestastofu við Malarrif og upp-
byggingu og undirbúningi innviða
við Djúpalónssand. Framundan er
að bæta göngustíg við Öndverðar-
nes, stækka og malbika bílastæði
við Skarðsvík og setja upp útsýn-
ispalla við Saxhól og Svalþúfu.
Innviðauppbygging við Dynjanda
í Arnarfirði hefur einnig verið mik-
il. Í fyrrasumar var bílastæði við
rætur fossins tekið myndarlega í
gegn og á næstu mánuðum á nýtt
salernishús að rísa. Meðal fyrirhug-
aðra framkvæmda á næstu miss-
erum eru endurbætur á göngustíg-
um og nýir útsýnispallar.
Göngustígar og þjónustuhús
Mikill fjöldi ferðamanna kemur í
Dimmuborgir árlega og hafa fjöl-
förnustu göngustígarnir verið mal-
bikaðir til að vernda hraunið og
aðrir stígar verið endurbættir. Fyr-
ir dyrum stendur að koma upp sér-
stökum útsýnisstöðum og að leggja
göngu- og hjólaleið inn á staðinn
frá þjóðveginum.
Þá er á dagskrá að leggja göngu-
brú við Geldingafell yfir Blöndu,
auk stígagerðar á svæðinu. Einnig
má nefna að við Teigarhorn við
Berufjörð stendur til að ráðast í
uppbyggingu þjónustuhúss í sam-
starfi ríkis og sveitarfélags, sem og
í öryggis- og verndaraðgerðir á
svæðinu.
Áfram uppbygging víða um land
3,5 milljarðar á næstu þremur árum í uppbyggingar innviða og annarra verkefna á 130 stöðum
1,3 milljörðum varið sérstaklega til landvörslu Hvítserkur, Jökulsárgljúfur, Ægissíða, Dynjandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dynjandi Aðstaða fyrir ferðamenn hefur verið bætt við Dynjanda og áfram verður haldið á sömu baut.