Morgunblaðið - 29.03.2019, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 9. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 75. tölublað 107. árgangur
ALLT FYRIR ÚTIVIST OG HREYFINGU
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
27.414 KR. 24.187 KR.17.736 KR.
TAX FREE
UMHELGINA
Helgi Bjarnason
Baldur Arnarson
Stefán Einar Stefánsson
Búast má við því að störfum við flugrekstur
og ferðaþjónustu hér á landi muni fækka um
2-3 þúsund í kjölfar gjaldþrots WOW air.
Þar af eru um 900-1.000 starfsmenn flug-
félagsins. Ekki hafa áður jafnmargir starfs-
menn misst vinnu sína hér á landi á einum
degi.
Margra mánaða tilraunum stjórnenda
WOW air til að bjarga rekstri fyrirtækisins,
með því að fá nýja fjárfesta til liðs við það,
lauk í fyrrinótt með því að síðasti frestur
ALC, sem á sjö af þeim þotum sem WOW
hafði enn til afnota, rann út og kyrrsetti
fyrirtækið vélarnar í Bandaríkjunum og
Kanada. Skúli Mogensen, samstarfsmenn
hans og ráðgjafar gátu ekki greitt þær
skuldir sem ALC krafðist og skilaði WOW
air flugrekstrarleyfi sínu til Samgöngustofu
í gærmorgun og gaf félagið upp til gjald-
þrotaskipta hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.
Lögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og
Þorsteinn Einarsson voru skipaðir skipta-
stjórar.
Þúsundir strandaglópa hér og erlendis
Þúsundir flugfarþega urðu strandaglópar
á Íslandi og austan hafs og vestan. Stjórn-
völd virkjuðu viðbragðsáætlun, sem miðar að
því að draga sem mest úr því að orðspor
landsins sem ferðamannaland skaðist, með
því að aðstoða þá sem áttu bókað flug við að
komast á áfangastað.
Gekk allvel að greiða úr erfiðleikum
þeirra sem áttu pantað flug með WOW air.
Það var gert með aðstoð fjögurra erlendra
flugfélaga sem hingað fljúga, auk Icelandair.
Talið er að tekist hafi að koma nokkrum
hundruðum manns í flug, jafnvel allt að þús-
und, og mörg þúsund hafa bókað flug næstu
daga.
Í viðbragðsáætlun stjórnvalda er miðað
við að það taki 4-5 daga að taka af mesta
kúfinn. Einhverjir eiga bókað flug síðar.
Spá auknu atvinnuleysi
Sérfræðingar reikna með að starfsmönn-
um þjónustufyrirtækja muni fækka. Um 400
starfa til að mynda hjá Airport Associates,
fyrirtækinu sem þjónar flugfélaginu á Kefla-
víkurflugvelli, og var um helmingur verkefna
félagsins fyrir WOW air. Stjórnendur félags-
ins hafa boðað til starfsmannafundar í dag.
Þá er búist við að fækkun ferðamanna komi
við ferðaþjónustufyrirtæki. Kynnisferðir
sögðu í gær upp 59 starfsmönnum. Greining-
ardeildir bankanna spá auknu atvinnuleysi.
Stéttarfélög starfsmanna aðstoða félags-
menn sína og veita upplýsingar og Vinnu-
málastofnun hóf að vinna eftir sérstakri við-
bragðsáætlun til að anna verkefnum. VR
hefur boðað félagsmenn sína úr starfsliði
WOW til fundar í dag.
Morgunblaðið/Hari
Þúsundir missa vinnuna
Störfum á Íslandi gæti fækk-
að um 2-3 þúsund vegna gjald-
þrots flugfélagsins WOW air
Fall félagsins hefur neikvæð
áhrif á ferðaþjónustufyrirtæki og
hagkerfi landsins í heild
Tekur að minnsta kosti 4-5
daga að greiða úr málum flestra
farþega sem áttu bókað flugfar
MGjaldþrot WOW air »2, 4, 6, 10,11,12
2.900
manns gætu misst vinnuna
vegna gjaldþrots WOW air
7.400
farþegar WOW air stranda-
glópar víðs vegar um heim
14,6%
hækkun varð á bréfum
Icelandair í Kauphöllinni í gær