Morgunblaðið - 29.03.2019, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019
✝ Marteinn EinarViktorsson
fæddist 31. desem-
ber 1951 á Suður-
eyri við Súganda-
fjörð. Hann lést á
heimili sínu 16.
mars 2019.
Foreldrar hans
eru Hulda Frið-
bertsdóttir, f. 24.5.
1933, og Viktor
Hjaltason, f. 22.8.
1928, d. 26.11. 2008. Fósturfaðir
hans var Kristján R. V. Þór-
arinsson, f. 6.5. 1931, d. 12.1.
2007.
Systkini Marteins sammæðra
eru Jón Þórður, f. 1953, Guð-
mundur Magnús, f. 1955, Ólafur
Benóný, f. 1956, Barði, f. 1958,
Friðbert Jón, f. 1960, Birkir, f.
1962, Valdís Bára, f. 1969, og
Hafliði Þór, f. 1971.
Systkini hans samfeðra eru
Rúnar, f. 1951, Elvira, f. 1955,
eldra sinna, Jónu ömmu og Frið-
berts afa, þar sem hann dvaldi
mörg sumur eftir það og átti
ætíð sitt athvarf. Marteinn flutti
í Dýrafjörðinn, að Húsatúni í
Haukadal, er móðir hans hóf
sinn búskap og þar átti fjöl-
skyldan heima uns þau fluttu til
Þingeyrar árið 1966.
Marteinn stundaði nám við
Héraðsskólann í Reykjanesi við
Ísafjarðardjúp. Hann sótti síðar
meir skóla og ýmis námskeið
tengd störfum sínum.
Marteinn og Sigríður hófu
búskap á Þingeyri. Þar stundaði
Marteinn sjómennsku og vann
við fiskvinnslu þar til þau fluttu
til Reykjavíkur árið 1978.
Ævistarf Marteins eftir að
þau fluttu suður var að mestu
tengt jarðvegsvinnu og hellu-
lögn, auk þess sem hann vann í
byggingavinnu. Hann vann fyrst
hjá Miðfelli, þá hjá nokkrum
öðrum verktökum og um tíma
rak hann sitt eigið fyrirtæki,
Borgarprýði. Síðustu árin, allt
til dánardags, starfaði hann sem
verkstjóri hjá Ístaki.
Marteinn verður jarðsunginn
frá Seljakirkju í dag, 29. mars
2019, klukkan 15.
Kristín, f. 1957,
Lýður Pálmi, f.
1958, og Elín Berg-
lind, f. 1969.
Marteinn kvænt-
ist Sigríði Magneu
Gestsdóttur á gaml-
ársdag 1974. Hún
er fædd á Ísafirði 2.
júlí 1956. Foreldrar
hennar eru Sólborg
Ingunn Matthías-
dóttir, f. 17.9. 1932,
og Gestur M. Z. Magnússon, f.
20.12. 1922, d. 23.11. 1972.
Sigríður og Marteinn eign-
uðust tvö börn, Gest Svavar, f.
7.12. 1987, og Hörpu Rós, f. 16.1.
1993. Eiginmaður Hörpu Rósar
er Stephen Serieux, f. 21.12.
1991. Synir þeirra eru Stephen
Dominic, f. 14.2. 2017, og Jay-
den Máni, f. 26.9. 2018.
Marteinn ólst upp fyrstu fjög-
ur æviár sín í Súgandafirði hjá
móður sinni, á heimili móðurfor-
Matti minn kæri vinur, okkur
Olgu langar að kveðja þig með
þessu ljóði sem við höfum fengið
að láni, það segir það sem segja
þarf. Megi Guð geyma þig og
varðveita Siggu og alla fjöl-
skyldu ykkar á þessari sorgar-
stund.
Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans
er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
„Ég hringi á morgun,“ ég hugsaði þá,
„svo hug minn fái hann skilið“,
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli’ okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég
gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
(Höf. ók. þýð. Sig. Jónsson)
Olga og Stefán.
Hringt var til mín á laugar-
dagsmorgni, hann Matti hafði
dáið í svefni um nóttina. Nú var
fallinn frá einn af mínum bestu
vinum. Sá sem alltaf var til stað-
ar, hringdi reglulega og sagði
hress „sæll, Matti hérna“. Hann
fæddist sjö árum eftir seinna
stríð. Hann var af kynslóð sem
var alin upp við það að dugnaður
væri dyggð, og duglegur var
hann, „jæja Sigga, förum að
drífa okkur“, heyrði maður oft.
Ég kynntist honum þegar
hann hóf að slá sér upp með
Siggu, æskuvinkonu minni úr
næsta húsi á Þingeyri. Mér leist
fyrst ekki á blikuna, þessi töffari
að taka saman við hina dagfar-
sprúðu vinkonu mína. En Sigga
vissi sínu viti og ég skipti um
skoðun þegar ég kynntist Matta.
Þau giftu sig ung, hófu búskap
og hann fór á sjóinn. Man að
hann var hálfhræddur við að
skilja ástina eftir í landi og bað
mig að passa hana. Ég tók því
létt, vissi eins og var að það
þurfti enginn að passa Siggu.
Þau bjuggu í þorpinu í nokkur
ár, en allt í einu voru þau farin
suður. Það varð tómlegt eftir að
þau fóru.
Ég fór suður af sömu ástæðu
og þau, þorpið hafði ekki mikið
að bjóða fyrir ungt fólk. Matti
hafði fengið sér vinnu við gatna-
gerð og varð fljótlega verkstjóri
þar. Þau eignuðust tvö yndisleg
börn og nýlega tvö barnabörn,
sem Matti elskaði mikið. Hann
náði vel til barna, talaði við þau
eins og jafningja.
Þegar við hittumst átti hann
til að faðma mig að sér og segja
„ég elska þig“. Þetta gerðu ekki
allir karlmenn. En Matti hikaði
ekki við að gera það. Jákvæðni
hans var smitandi og hann talaði
aldrei illa um neinn mann, það
versta sem hann gat sagt var að
það væri vesen á einhverjum.
Alltaf hreinn og beinn.
Skammaði mig ef honum fannst
ég vera að gera vitleysu. Hló að
mér þegar ég þurfti að leita ráða
vegna bíla, smíðavinnu, o.s.frv.
Þar var hann á heimavelli.
Stundum sátum við og hann
sagði mér frá draumum sínum.
Hann hefði viljað læra meira. En
það var ekki í boði sagði hann.
„Jæja förum að drífa okkur,“
sagði hann og var rokinn. Ætli
það hafi ekki verið ástæðan fyrir
því að hann lagði ekki í langtíma-
nám, þessi dímon sem hann slóst
við, þessi kraftur sem þurfti að fá
útrás.
Í 50 ára afmæli hans kom í ljós
hvað hann var vinamargur. Vinir
hans tróðu upp fyrir hann og
sungu lagið hans, Cotton Fields.
Aldrei þessu vant varð Matti
orðlaus.
Ég fór utan í nám og síðan
vinnu. Matti hélt að ég væri
kominn á annan stað en hann
„ert þú ekki orðinn stór karl,
getur maður nokkuð talað við
slíkan mann?“. Ég var ekki orð-
inn stór karl. Ég var bara strák-
urinn að vestan eins og hann. Við
vorum báðir af sömu rót, strákar
fæddir utan hjónabands, pabbinn
ókunnug persóna fyrir sunnan.
Kannski fundum við samhljóm
þar.
Ég hafði það fyrir venju að
hringja í hann á afmælisdegi
hans. Síðast var vinur minn sof-
andi um miðjan dag. Það var
óvenjulegt. Þá var Matti lasinn.
Það kom líka í ljós, hjartað var
orðið veikt.
Ég veit að Sigga og börnin
munu sakna þín meira en ég get
lýst. Þeim votta ég mína dýpstu
hluttekningu. Vertu sæll vinur
minn, við hittumst síðar.
Ólafur Sigurðsson.
Marteinn Einar
Viktorsson
HINSTA KVEÐJA
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(V. Briem)
Matthildur og Hafsteinn,
Eyrún og Hörður,
Valborg og Magnús.
Nú hefur Anna
fengið hvíldina eftir
erfið veikindi sl. fjög-
ur ár.
Alltaf var nærvera
þín góð og þrátt fyrir erfið veik-
indi þá var stutt í brosið. Ég kveð
þig með söknuði og miklu þakk-
læti fyrir okkar samverustundir.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Anna Jóhannsdóttir
✝ Anna Jóhanns-dóttir fæddist 7.
nóvember árið 1929.
Hún lést 6. mars
2019.
Útför hennar fór
fram 19. mars 2019.
Í munann fram myndir
streyma.
Hver einasta minning
er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja
mér alla tíð,
unz hittumst við aftur
heima.
Loks beygði þreytan
þína dáð,
hið þýða fjör og
augnaráð;
sú þraut var hörð – en hljóður nú
í hinsta draumi brosir þú.
(Hugrún)
Sveinbjörg Rósalind
Ólafsdóttir.
✝ Jóhanna Bjarna-dóttir fæddist í
Reykjarfirði við Ísa-
fjarðardjúp 13. júlí
1922. Hún lést á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 11. mars
2019.
Foreldrar hennar
voru hjónin Bjarni
Hákonarson, f. 28.
apríl 1890, d. 20. maí
1965, bóndi og söðlasmiður, síðar
húsgagnabólstrari, frá Reykhól-
um í Barðastrandarsýslu, og kona
hans Guðrún Ólafsdóttir, f. 14.
desember 1892, d. 5. maí 1957,
húsmæðrakennari frá Reykjar-
firði við Ísafjarðardjúp.
Jóhanna var þriðja í röð sjö
systkina. Eldri systkinin eru Arn-
dís, f. 10. apríl 1918, d. 31.1. 2014,
Eva Sigríður, f. 6. júlí 1919, d. 20.
ágúst 2003, og yngri systkinin eru
Steinunn Gróa, f. 9. september
1924, d. 7. ágúst 1987, Hákon, f.
29. febrúar 1928, d. 30. mars
2005, Kristín Sólborg, f. 15. febr-
úar 1929, d. 26. janúar 1931, og
Ólafur Friðrik, f. 27. október
1933, hinn eini eftirlifandi af
systkinunum.
Jóhanna giftist 17. maí 1947 Ol-
geiri Þórðarsyni, f.
10. desember 1915,
d. 2. mars 1997. For-
eldrar hans voru
hjónin Þórður Árna-
son, f. 23. júní 1880,
d. 30. nóvember
1922, sjómaður frá
Flatey á Breiðafirði,
og kona hans María
Sigurgeirsdóttir, f. 2.
júní 1885, d. 28. maí
1967, húsfreyja frá
Haga í Staðarsveit.
Dóttir þeirra Jóhönnu og Ol-
geirs er María Olgeirsdóttir, f.
30. september 1947, gift Hreiðari
S. Albertssyni, f. 5.1. 1949. Dóttir
þeirra er Jóhanna Olga Hreið-
arsdóttir, f. 14. maí 1984. Fyrir á
Hreiðar soninn Davíð Kristján
Hreiðarsson. Hann er giftur Guð-
rúnu Petru Árnadóttur og eiga
þau soninn Davíð Steinberg
Davíðsson. Sonur Davíðs af fyrra
sambandi er Aron Bjarni Davíðs-
son.
Sambýlismaður Jóhönnu síð-
ustu 20 ár var Sigurður Stein-
dórsson fv. skipstjóri, f. 10.1.
1939.
Útför Jóhönnu fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 29. mars
2019, klukkan 13.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
(Höf. ókunnur)
Í minningu okkar ástkæru
Onnu frænku sem var okkur sem
önnur amma.
Guðný, Kolbrún og
fjölskyldur.
Á lífsleiðinni kynnumst við
stundum fólki sem með fram-
komu sinni og lífsviðhorfum ger-
ir heiminn betri. Þannig mann-
eskja var Onna.
Onna og Eva (mamma/
tengdamamma) voru systur sem
giftust bræðrum, þeim Olgeiri og
Ólafi. Fjölskyldurnar tengdust
mjög nánum vináttuböndum.
Gagnkvæm samskipti, vinátta og
kærleikur einkenndu öll þau
samskipti. Þau Onna og Olgeir
voru mjög gestrisin. Til þeirra
þótti okkur og dætrum okkar
gott að koma, alltaf var tekið á
móti okkur með hlýju og góðum
veitingum. Meðal þess sem fjöl-
skyldurnar gerðu saman var að
ferðast um landið sem öllum
þótti gaman.
Heimsóknir okkar til þeirra á
Kleppsveginn urðu samt nokkuð
stopular á tímabili vegna búsetu
okkar í öðrum landshlutum.
Kjarnafjölskylda Onnu og Ol-
geirs var ekki stór. Þau eign-
uðust Maríu (Mæju) sem giftist
Hreiðari S. Albertssyni. Mæja
og Hreiðar eiga dótturina Jó-
hönnu Olgu sem var augasteinn
ömmu sinnar og hjálparhella.
Það var gaman að sjá þegar
Onna var á Grund hve Jóhanna
Olga sá vel um að Onna væri allt-
af vel snyrt og fín.
Onna var búin að lifa langa og
farsæla ævi og nú kveðjum við
hana með söknuði.
Sambýlismanni Onnu síðustu
árin, Sigurði Steindórssyni,
sendum við kærar þakkir fyrir
góðvild hans, tillitssemi og hjálp-
semi.
Við leiðarlok þökkum við hjón-
in Onnu og fjölskyldu áratuga
vináttu.
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
að heilsast og kveðjast.
– Það er lífsins saga.
(Páll J. Árdal)
Guðrún og Pétur.
Jóhanna
Bjarnadóttir
Fylgstu með á facebook
Mjódd s. 774-7377
www.frusigurlaug.is
Frí póstsending
Sundbolir • Tankini
Bikini • Strandfatnaður
Undirföt • Náttföt
Sloppar • Undirkjólar
Inniskór • Aðhaldsföt
Ný sending
af náttfatnaði
og sloppum
Stærðir 36–58
www.frusigurlaug.is
vefverslun
Hugheilar þakkir til allra sem hafa sýnt
okkur samúð og vináttu við andlát okkar
elskulegu
BRYNHILDAR K. ANDERSEN.
Einnig þökkum við starfsfólki
Landspítalans, einkum á deild 11G, fyrir
umönnun sem henni var veitt og alúð í garð
okkar allra.
Geir R. Andersen
Kristinn Andersen Þuríður Erla Halldórsdóttir
Ívar Andersen Þórhalla Þórisdóttir
Sigríður Á. Andersen Glúmur Jón Björnsson
og barnabörn
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar