Morgunblaðið - 29.03.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.03.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 Ídag er 29.mars. Stórinýi frelsis- dagurinn í sögu Bretlands. Æðsti kjörni trún- aðarmaður bresku þjóðarinnar hafði ótal sinnum sagt að ekkert gæti breytt því að vilji þjóðar- innar, eins og hann birtist í þjóðaratkvæði gengi fram. Þeir sem talað hafa fyrir því að óhjákvæmilegt væri að hnekkja þessari ákvörðun réttlæta það stundum með því að munurinn á milli fylk- inga hafi ekki verið mikill. Úrslitin voru 52% á móti 48%. Fyrirfram vissu allir að eitt atkvæði gæti ráðið úrslit- um. En það var ekki svo tæpt. Meira en milljón fleiri vildu fara út en vera um kyrrt. Allir vita að þeir sem réttlættu fyrir sjálfum sér og öðrum að fremja mætti slíkt stjórnmálalegt hryðjuverk með vísun til þess að mjótt hefði verið á munum hefðu ekki talið miklu naumari meirihluta gallaðan hefði hann fallið þeim sjálfum í skaut. Það eru vissulega dæmi um það að áskilið sé að aukinn meirihluta þurfi til svo niður- staða verði bindandi eða að lágmarksþátttöku þurfi svo niðurstaða sé marktæk. Þátt- taka í þjóðaratkvæðinu nú varð mjög góð eða yfir 70%. En algilda reglan er sú að öll skilyrði verða að liggja fyrir. Það er ekkert skárra að eyði- leggja rétta atkvæðagreiðslu ef meirihluti hennar væri 1000 atkvæða munur eða eins og í brexit um 1,3 milljóna at- kvæða munur. Ef aðeins reglan er sú eins og oftast er að meirihluti, stór eða smár, ráði niðurstöðu, er það virð- ingarleysi við leikreglur lýð- ræðisins og þá borgara sem tóku þátt í góðri trú að reyna tapsárir að tortryggja niður- stöðuna. Fróðlegt er og reyndar allt að því dapurlegt að horfa upp á hvernig fulltrúar Skoska þjóðarflokksins (SÞ), sem eiga sæti á þinginu í London, haga sér í brexit umræðu þar. Þeir gera allt sem þeir mega til að skemma fram- gang málsins. Sumir réttlæta það og segja að meirihluti Skota hafi kosið á móti út- göngu og það gefi svigrúm til svona háttsemi. En í brexit- atkvæðagreiðslunni segja leikreglurnar að atkvæðin séu jafngild hvaðan sem þau koma. Þótt talið sé í ein- stökum kjördeildum eru eng- in úrslit tilgreind þar. Úrslit- in koma einungis úr einum „kassa“ þar sem öll at- kvæðin koma saman, hvort sem það er frá Gí- braltar eða Norð- ur-Írlandi. Forysta Sþ barð- ist sannarlega gegn útgöngu Breta úr ESB. Þeir sömu og heimta í sífellu aðra at- kvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands, þótt þeir fullyrtu sjálfir í baráttunni sinni seinast að þá gæfist eina tækifærið í áratugi, og jafn- vel aldir til að skilja við Lundúnavaldið. Hvernig þætti þeim ef stjórnin í Lundúnum myndi, eftir at- kvæðagreiðslu sem gengi Sþ í hag, haga sér með jafn- ósvífnum og fjandsamlegum hætti og Brusselliðið? Eða að þingmenn í Neðri-deildinni myndu leitast við að eyði- leggja þjóðarvilja Skota eins og menn horfa upp á þá gera núna? Það er ljóst að mestur var meirihlutinn fyrir útgöngu hjá Englendingum eða um 54% . Í dag mun Theresa May gera þriðju tilraun til að fá „sinn samning“ í gegnum þingið. Og það er ekki úti- lokað að hún nái því með hót- unum um að ella verði ekkert af útgöngu! En „samning- urinn hennar“ er reyndar samningur sem forstokkaður ESB-sinni í embættis- mannastétt, Sir Humphrey Appleby, GCB, KBE, MVO og MA nútímans, samdi um fyrir hana og plataði ráð- herrann til að undirrita. Andlegir bræður hans, bú- rókratarnir í Brussel, hanga á þessari niðurlægingu eins og hundar á roði. Stjórn- málaflokkarnir bresku eru ekki sammála um margt þessa dagana. En minnstur ágreiningur er þó um þá nið- urstöðu að núverandi for- sætisráðherra sé einn sá slappasti í manna minnum þar í landi og er þó nokkur samkeppni um efsta sætið á þeim skala. Þessi dagur, sem átti að vera hátíðisdagur sjálfstæðis og fullveldis Breska konungsríkisins, verður því líklega háðung- arefni um langa hríð. Þessi merka vinaþjóð okk- ar og sú sem hélt glóð frels- isins lifandi í álfunni þannig að tvær heimsstyrjaldir end- uðu betur en mátti vona, á það ekki skilið að innlendir svikahrappar og ósvífnir sambands„bræður“ hennar á meginlandinu leiki hana og lýðræðið svo grátt. Ekkert var að marka yfirlýsingar May forsætisráðherra um 29. mars} Ill meðferð Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í lögum um fullnustu refsinga er föngum tryggður réttur til heil- brigðisþjónustu og eiga þeir að njóta samskonar þjónustu og allir aðrir. Á því hefur verið misbrestur eins og Umboðsmaður Alþingis og pyntinga- varnanefnd Evrópuráðsins hafa vakið at- hygli á. Það er óviðunandi að fangar njóti ekki eðlilegrar heilbrigðisþjónustu og þar með geðheilbrigðisþjónustu. Það segir mikið um samfélag hvernig það fer með sína við- kvæmustu hópa og löngu tímabært að gera nauðsynlegar úrbætur á geðheilbrigðisþjón- ustu við fanga. Við viljum gera betur og er nú unnið að því að samhæfa vinnu ráðu- neyta og stofnana til að tryggja föngum við- eigandi geðheilbrigðisþjónustu. Samningar eru í gildi á milli fangelsa og heilbrigðis- stofnana um almenna heilbrigðisþjónustu við fanga. Unnið er að því að koma á samningum á milli sjúkra- húsa og fangelsa í hverju heilbrigðisumdæmi um geð- heilbrigðisþjónustu í fangelsum. Hugmyndin er að heilsugæslulæknir vísi föngum, eftir þörfum hvers og eins, til sérhæfðs teymis sem í eru geðlæknir, geð- hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur þar sem veitt er viðeigandi þjónusta. Auk þess er stefnt að því að eftir- fylgd í samræmi við þarfir hvers og eins verði tryggð í geðteymum heilsugæslanna að lokinni af- plánun. Með þessu er gert ráð fyrir því að ábendingum umboðsmanns hafi verið svar- að að fullu og það sama gildi um ábend- ingar pyntingavarnanefndarinnar. Ætlunin er að byrja á Hólmsheiðinni þar sem undir- búningsvinnan er lengst á veg komin og sama fyrirkomulag verði tekið upp innan árs í öðrum fangelsum. Verkefnið er full- fjármagnað en gert er ráð fyrir að verja 55 milljónum króna í þjónustuna í ár. Sem heilbrigðisráðherra hef ég lagt áherslu á bætta geðheilbrigðisþjónustu. Unnið er að því að fjölga sálfræðingum í heilsugæslunni og koma á fót geðheilsu- teymum um land allt. Stórauknu fjármagni hefur verið veitt til málaflokksins en á þessu ári nemur aukningin 650 milljónum króna og á næstu 5 árum nema aukin framlög 100 milljónum króna ár hvert. Þær umbætur sem eru að eiga sér stað í heilbrigðiskerfinu eiga að skila sér til allra sem þurfa á þjónustunni að halda, þar með talið til fanga. Ég er þess fullviss að þær breytingar sem í farvatninu eru verði mikið framfaraskref í heilbrigðis- þjónustu við fanga. Svandis Svavarsdóttir Pistill Bætt geðheilbrigðis- þjónusta við fanga Höfundur er heilbrigðisráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Það sem skiptir öllu máli er aðhjálpa fólkinu sem mestþarf á því að halda,“ segirRóbert Þorsteinsson, sem nú starfar fyrir Rauða krossinn á flóðasvæðunum í Malaví. Flóðin fylgdu fellibylnum Idai, sem gekk yfir sunnanverða Afríku fyrr í mán- uðinum, og urðu til þess að stór svæði eru umflotin vatni. Hamfarirnar ná til þriggja landa, Mósambík, Malaví og Simbabve, en þau eru með þeim fátækustu í heimi. Íbúar á flóðasvæð- inu lifa margir hverjir á sjálfsþurftar- búskap og hafa þúsundir glatað lífs- viðurværi sínu. „Í byrjun var unnið að því að bjarga þeim sem lentu verst í flóð- unum en nú er neyðarástandið liðið hjá. Eftir situr að fullt af fólki hefur misst allt sitt og við munum reyna að hjálpa því,“ segir Róbert, sem kom til Malaví í lok síðustu viku. Kólerusmit þegar greinst Róbert er viðskipta- og hag- fræðingur og hefur verið virkur á Veraldarvakt Rauða krossins í næst- um tvo áratugi. Hefur hann starfað á vegum Rauða krossins í Tansaníu, Sómalíu og Bangladess. Hlutverk hans er eftirlit með fjármálum í björgunarstarfinu. „Þetta er rosaleg aðgerð sem er að fara í gang núna,“ segir Róbert í samtali við Morgun- blaðið. Talið er að fórnarlömb fellibyls- ins og ofsaflóða telji um þrjár millj- ónir manna á svæðinu öllu. Í Malaví eru fórnarlömbin um 850 þúsund. Ró- bert segir að 50 manns séu látnir í landinu og óvíst um afdrif margra. Þá er staðhæft að 94 þúsund manns hafi misst heimili sín, en sú tala er um- deild að sögn Róberts. Hann kveðst telja að hún sé lægri. Ljóst er þó að fjölskyldur sem hafa misst allar eigur sínar hafast við í fjöldahjálpar- stöðvum. „Við einbeitum okkur fyrst og fremst að því að koma til þeirra hjálpargögnum og gera þeim kleift að koma þaki yfir höfuðið. Og gera þeim kleift að halda áfram með lífið,“ segir Róbert. Hamfarirnar auka líkur á út- breiðslu alvarlegra smitsjúkdóma. Þegar hefur orðið vart við kólerusmit á svæðinu. Mjög gjöfult starf Að sögn Róberts hefur Rauði krossinn á Íslandi lengi starfrækt verkefni á þessum svæðum, til dæmis með uppbyggingu á heilsugæslu, öruggu aðgengi að drykkjarvatni og aðgengi að hreinlætis- og salernis- aðstöðu. „Hjálparstarfið mun verða í sex héruðum í Malaví. Við erum alla jafna með tvö til þrjú prógrömm í gangi í þremur héruðum. Tvö þeirra eru stopp vegna þessara hörmunga. Þau eru eiginlega stopp því skjólstæð- ingar okkar lentu í flóðunum. Við þurfum því að byrja á að hjálpa þeim til að geta haldið áfram með prógrammið,“ segir Róbert. Hann hefur nú verið í Malaví í viku og upphaflega var stefnt að því að hann myndi starfa þar næstu þrjá mánuðina. „Það er reyndar strax far- ið að tala um fram- lengingu og ég verð hér eins lengi og þeir vilja hafa mig. Þetta er það mest gefandi sem ég hef gert, að vinna fyrir Rauða krossinn og taka þátt í hjálpar- starfi.“ Hjálpa fólki sem missti allt í flóðunum Rauði krossinn hefur efnt til neyðarsöfnunar vegna flóðanna í sunnanverðri Afríku. Á þessum tímapunkti er þörfin mest fyrir húsaskjól, mat, hreint drykkjarvatn og að- gengi að hreinlætis- og salern- isaðstöðu. Ljóst þykir að neyð- in er gríðarleg á þessu svæði. „Rauði krossinn á Íslandi hefur þegar sent einn sendifull- trúa á svæðið vegna flóðanna og er í viðbragsstöðu að senda fleiri,“ segir á heimasíðu Rauða krossins. Áhugasamir geta stutt starf Rauða krossins í sunnan- verðri Afríku með 2.900 króna framlagi með því að senda SMS-ið HJALP í núm- erið 1900. Einnig má leggja inn á reikning 0342-26-12, kt. 530269-2649. Setja í gang neyðarsöfnun RAUÐI KROSSINN Ljósmynd/Róbert Þorsteinsson Á vergangi Margar fjölskyldur í Malaví misstu heimili sín í ofsaflóðum. Róbert Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.