Morgunblaðið - 29.03.2019, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019
Gjaldþrot WOW air
raka saman þeirri fjárhæð sem hinn ung-
verskættaði milljarðamæringur og eigandi
ALC setti sem forsendu fyrir því að kyrr-
setningunni yrði aflétt. Og hann stóð fastur
fyrir, hvað sem fortölum WOW air leið. Þol-
inmæði hans var á þrotum eftir margra mán-
aða tilraunir WOW air til að endur-
skipuleggja fjárhag sinn og koma honum í
það form að skuldir hættu að hlaðast upp við
flugvélaleigusala, flugvallayfirvöld, lífeyr-
issjóði og ýmsa birgja félagsins.
Kempur á alþjóðaflugmarkaði
Udvar-Hazy þekkja allir í hinum al-
þjóðlega flugbransa og hann er í góðum
kynnum við annan auðkýfing sem mikið hef-
ur komið við sögu hér á landi á síðustu mán-
uðum, eða allt frá því að Icelandair Group
sleit viðræðum við WOW air í lok nóvember á
síðasta ári. Bill Franke, aðaleigandi Indigo
Partners, hratt í raun af stað atburðarás fyr-
ir rúmri viku síðan sem endaði með því að
Skúli Mogensen magalenti með félag sitt og
fann ekki leið til að koma því á loft að nýju.
Fimmtudaginn 21. mars var tilkynnt að Bill
Franke hefði ákveðið að slíta viðræðum um
mögulega aðkomu að WOW air en þá höfðu
viðræður þar um staðið sleitulaust frá því í
nóvember. Raunar hefur aldrei komið fram
opinberlega hversu lengi þær viðræður í
raun stóðu en Skúli viðurkenndi þegar upp
úr slitnaði milli WOW og Icelandair að hann
hefði um nokkurt skeið átt í samtali við In-
digo Partners um mögulega aðkomu síðar-
nefnda félagsins að WOW air.Allar vonir
höfðu verið bundnar við að Indigo myndi
leggja WOW air til allt að 90 milljónir dollara
til að hægt væri að halda rekstrinum gang-
andi. Slíkar voru vonirnar að skuldabréfa-
eigendur sem lagt höfðu félaginu til 50 millj-
ónir evra í september á síðasta ári, lýstu sig
tilbúna til að beygja sig í duftið, afskrifa
helming höfuðstóls bréfanna, fella niður
áfallna vexti sem komust á gjalddaga síðast-
liðinn sunnudag og falla frá ýmsum skil-
yrðum öðrum, m.a. þeim vöxtum sem upp-
haflega höfðu verið ákvarðaðir á bréfin.
En allt kom fyrir ekki og þá voru góð ráð
dýr. Stjórnvöld lögðu mikla áherslu á að
reynt yrði til þrautar að halda WOW air á
floti og af þeim sökum var Icelandair kallað
að borðinu. Erlendir sérfræðingar voru kall-
aðir til landsins en eftir nokkurra daga yf-
irlegu var niðurstaðan sú að það fælist of
mikil áhætta í því að kaupa félagið að hluta
til eða í heild. Það varð ljóst um kvöldmat-
arleytið á sunnudag og töldu þá margir að
dagar WOW væru taldir. Í þeim hópi var
flugvélaleigusalinn Jin Shan 20 sem ákvað á
sunnudag að láta kyrrsetja tvær vélar félags-
ins sem staðsettar voru í Norður-Ameríku.
Enn reynt til þrautar
En Skúli hafði ekki sagt sitt síðasta. Morg-
uninn eftir var endanlega ljóst að félag hans
gæti ekki greitt 150 milljóna króna vaxta-
greiðslu til fyrrnefndra skuldabréfaeigenda
og var þá ákveðið að virkjuð yrðu ákvæði í
samningum varðandi bréfin. Skuldabréfa-
eigendurnir tóku félagið yfir og settu af stað
vinnu til að tryggja full yfirráð yfir félaginu.
Töldu þeir þó mikilvægt að Skúli yrði áfram,
að minnsta kosti um sinn, forstjóri félagsins,
og vegna þeirrar ókyrrðar sem var í kringum
félagið stóð heldur ekki til að setja stjórn-
arformanninn, Liv Bergþórsdóttur, af. Á
sama tíma stigu forsætis- og fjármálaráð-
herra fram í fjölmiðlum, lýstu ástandinu sem
alvarlegu en að ekki kæmi til greina að
leggja félaginu til opinberan stuðning. Síð-
ustu vikur hefur WOW air m.a. falast eftir
ríkisábyrgð á frekari lánveitingum til félags-
ins og aukinni fyrirgreiðslu af hálfu Isavia
sem gefið hefur félaginu rýmri greiðslufresti
en dæmi eru um þegar kemur að lend-
ingagjöldum á Keflavíkurflugvelli. Þótt Jin
Shan 20 hafi misst þolinmæðina gagnvart
WOW air um liðna helgi héldu þrjú önnur
flugvélaleigufyrirtæki tryggð við félagið inn í
vikuna. Það gaf væntingar um að enn mætti
bjarga félaginu frá bráðum bana. Skúli Mo-
gensen mætti í sjónvarpsviðtöl, sagði aðgerð-
ir miða að því að gera félagið skuldléttara og
að ekkert benti til annars en að rekstur þess
yrði sjálfbær innan tíðar. Spurður af frétta-
mönnum Stöðvar 2 á þriðjudag hvort við-
skiptavinunum væri óhætt að kaupa miða
með félaginu sagði Skúli svo vera. „Þú ert al-
veg það bjartsýnn um að þetta sé að fara að
halda áfram,“ spurði blaðamaður. „Eins og
ég segi, við tókum risaskref í rétta átt í dag,
svo að ég tel svo vera,“ svaraði Skúli.En risa-
skrefið dugði ekki til. Líkt og áður sagði var
tilkynnt um miklar seinkanir á flugi félagsins
frá N-Ameríku í fyrrinótt. Yfirlýsing fé-
lagisns reyndist ekki rétt og forsvarsmenn
félagisns lögðu inn flugrekstrarleyfi WOW
air þegar klukkan var korter gengin í níu í
gærmorgun. Skömmu síðar sendi félagið frá
sér tilkynningu þess efnis að það væri hætt
starfsemi.
21. mars
Indigo Partners
slítur viðræðum við
WOW air.
Icelandair Group
skoðar möguleika á
aðkomu að félaginu.
24. mars
Icelandair Group slítur viðræð-
um um aðkomu að WOW air.
Stjórnvöld funda um stöðu
mála en verjast allra frétta.
Tvær vélar WOW air kyrrsettar
í N-Ameríku.
25. mars
Fjármála- og efnahagsráðherra útilokar ríkisaðstoð við
WOW air.
Forsætisráðherra segir stjórnvöld fylgjast með stöðunni og
staðfestir að fundað hafi verið á vettvangi Samgöngustofu.
Skuldabréfaeigendur greiða atkvæði um tillögu sem felst í
að taka WOW air yfi r.
27. mars
Vélar WOW air
kyrrsettar í Banda-
ríkjunum og Kanada
að kröfu fl ugvéla-
leigusala. Engin vél
fer í loftið.
22. -23. mars
Icelandair Group ásamt
ráðgjöfum kafar ofan
í gögn í tengslum við
rekstur og efnahag
WOW air.
26. mars
Skuldabréfaeigendur lýsa því yfi r að þeir hafi tekið félagið yfi r.
Björgólfur Jóhannsson, formaður stjórnar Íslandsstofu segir
Samgöngustofu hafa brugðist.
Skúli Mogensen lýsir því yfi r í fjölmiðlum að óhætt sé að
kaupa miða af félaginu og að starfsfólk muni fá útborgað um
mánaðamótin.
28. mars
3:06 WOW lýsir því
yfi r að félagið hafi
stöðvað rekstur
meðan gengið sé frá
hlutafjáraukningu.
um morguninn.
8:15 Forsvarsmenn
félagsins skila
fl ugrekstrarleyfi til
Samgöngustofu.
8:21 Tilkynnt er á
heimasíðu WOW
air að félagið hafi
hætt rekstri.
13:30 Sveinn Andri
Sveinsson og Þorsteinn
Einarsson skipaðir
skiptastjórar í kjölfar
þess að félagið er lýst
gjaldþrota í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Björgunaraðgerðir runnu út í sandinn
Mánaðarlangar tilraunir dugðu ekki til bjargar WOW air Neytendur afvegaleiddir undir lokin
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Klukkan var sex mínútur gengin í fjögur í
gærnótt þegar WOW air sendi fjölmiðlum
eftirfarandi tilkynningu: „WOW air er á loka-
metrunum að klára hlutafjáraukningu við
nýjan eigendahóp á félaginu. Allt flug hefur
verið stöðvað þangað til þeir samningar
verða kláraðir. Nánari upplýsingar verða
gefnar kl. 9. Félagið þakkar farþegum fyrir
stuðninginn og biðst velvirðingar á þeim
óþægindum sem þetta veldur.“ Tilkynningin
var send út í kjölfar þess að tíðindi tóku að
berast frá óánægðum viðskiptavinum fyrir-
tækisins sem sáu fram á miklar seinkanir á
flugi frá Norður-Ameríku til Keflavíkur. Það
sem farþegarnir vissu ekki var að Skúli Mo-
gensen og nánasta samstarfsfólk hans hafði
þá róið sannkallaðan lífróður í átt að því að fá
aflétt allsherjar kyrrsetningu á vélum félags-
ins í Bandaríkjunum og Kanada.
Þurftu að greiða ALC
Eina leiðin til þess að tryggja félaginu
áframhaldandi aðgang að vélunum fólst í að
greiða inn á bankareikning fyrirtækisins
ALC í Bandaríkjunum nokkrar milljónir doll-
ara en fyrirtækið það á sjö af þeim vélum
sem WOW hafði enn til umráða þar til í
fyrradag. Félagið er í eigu Steve Udvar-
Hazy sem hefur um nokkurra ára skeið átt í
sterku viðskiptasambandi við WOW air.
Forsvarsmönnum WOW air, Arion banka
og Arctica Finance reyndist ómögulegt að
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia,
segir starfsemina á Keflavíkurflug-
velli verða endurskipulagða vegna
brotthvarfs WOW
air af markaði.
Spurður hver
verði breytingin á
starfsmannafjölda
Isavia í Keflavík
vegna brotthvarfs
WOW segir hann
málið í skoðun.
„Við erum að
fara í gegnum
rekstraráætlanir
okkar. Áður en við
förum að velta fyrir okkur breytingu
á starfsmannafjölda förum við í al-
menna hagræðingu og fækkun sum-
arstarfsfólks. Við munum gefa okkur
góðan tíma til að taka réttar ákvarð-
anir. Rétt er þó að nefna að hjá öðrum
rekstraraðilum í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar gætum við séð fækkun
starfsfólks,“ segir Björn Óli.
Spurður hvaða áhrif brotthvarf
WOW hafi á uppbyggingaráætlun
Isavia segir hann fyrirtækið munu
taka stöðuna í lok ársins.
Meta stöðuna í árslok
„Í augnablikinu er vinna í gangi við
hönnun á tengibyggingu sem er fyrsti
áfangi í uppbyggingaráætlun Isavia
fyrir Keflavíkurflugvöll. Lokið verður
við hönnun tengibyggingar. Metið
verður í lok árs 2019 hvenær fram-
kvæmdir hefjast,“ segir Björn Óli um
fyrirhuguð áform.
Hann nefndi í sjónvarpsviðtali fyrir
nokkrum dögum að kostnaður á
hverja flugvél á vellinum gæti aukist
ef WOW færi af markaði.
Spurður hvort Isavia þurfi að
endurskoða gjaldskrár segir Björn
Óli að miðað við stöðuna í dag telji fé-
lagið á þessari stundu ekki ástæðu til
að hækka gjöldin.
Spurður hversu mikið sumar-
áætlun muni skerðast vegna brott-
hvarfs WOW vísar hann til umferðar
félagsins á flugvellinum.
„Áætlað var að um 20% af farþeg-
Isavia boðar
hagræðingu
Forstjóri Isavia segir að fyrst verði
sumarfólki fækkað eftir fall WOW
Björn Óli
Hauksson