Morgunblaðið - 29.03.2019, Side 6

Morgunblaðið - 29.03.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is Opið virka daga kl. 8-18 Sængurverasett, dúkar, servíettur, viskustykki, dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór, handklæði & þvottapokar. Vörurnar fást í Efnalauginni Björg í Mjódd LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili, sjúkrastofnanir og heimili Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Starfsmenn WOW air voru niðurlútir að sjá þegar þeir mættu í höfuð- stöðvar fyrirtækisins í Katrínartúni í gærmorgun. Þegar blaðamaður mætti í höfuðstöðvarnar rétt fyrir kl. 9 var búið að loka móttöku fyrir- tækisins og starfsmannafundur var að hefjast. Starfsmenn mynduðu þar hring um Skúla Mogensen, eiganda WOW air, sem hélt stutta ræðu. Að ræðu lokinni heyrðist lófaklapp áður en starfsmenn fóru á flug um skrif- stofurnar. Hluti starfsmanna virtist vera að pakka saman persónulegum munum í pappakassa en einhverjir virtust vera að vinna. Einhverjir settust niður með kaffi til að spjalla saman enda mikið búið að ganga á hjá fyrirtækinu síðustu vikurnar. Það mátti sjá nokkra starfsmenn hálf-klökka á göngum fyrirtækisins enda gríðarlega erfiður tími. Skúli sagði í bréfi sem hann sendi starfsfólki í gær að hann myndi aldr- ei fyrirgefa sér að hafa ekki gripið til aðgerða fyrr því það væri augljóst hversu ótrúlegt flugfélag WOW air hefði verið. „Ég gæti ekki verið stoltari“ Af skilaboðum starfsmanna á sam- félagsmiðlum að dæma er ljóst að mikil tilfinningatengsl hafa náð að myndast við fyrirtækið. Margir starfsmenn hafa unnið hjá WOW air frá stofnun fyrirtækisins. „Þetta var gaman! Nú tekur eitthvað annað við,“ segir einn starfsmaðurinn og bætir við að hún sé ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast því frábæra fólki sem starfað hefði hjá WOW air. „Þvílíkur baráttuhugur, ég gæti ekki verið stoltari.“ „Það verður skrýtið að hitta ykkur ekki á hverjum degi“ Annar starfsmaður segist orðlaus og sorgmæddur. Þakklæti í garð samstarfsfélaga er henni efst í huga. Þakkar hún WOW air fyrir frábært ferðalag og vinnufélögum fyrir dásamlegt samstarf. Þeir væru henni sem fjölskylda. „Mér líður eins og ég hafi misst náinn fjölskyldumeðlim, það verður skrýtið að hitta ykkur ekki á hverj- um degi, deila með ykkur sögum og hlusta á ykkar – Ég sakna ykkar strax.“ Fleiri starfsmenn tjáðu sig um fall WOW air í gær. Meðal annars í at- hugasemdum við færslur fyrrverandi samstarfsmanna sinna. Þar er einnig mest áberandi þakklæti fyrir sam- starfið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kveðjustund Starfsmenn á skrifstofum WOW air komu saman til fundar með eiganda fyrirtækisins í hinsta sinn. Vinnufélagar kvaddir í höfuðstöðvum WOW air  „Mér líður eins og ég hafi misst náinn fjölskyldumeðlim“ Pakkað Margir starfsmenn virtust vera að pakka persónulegum munum. Magnús Heimir Jónasson Anna Sigríður Einarsdóttir Jóhann Ólafsson Áhyggjufullir flugfarþegar voru mættir í höfuðstöðvar WOW air í Katrínartúni fyrir hádegi í gær. Um er að ræða útlendinga sem höfðu áhyggjur af því að þeir komist ekki til síns heima Blaðamaður Morgunblaðsins var í höfuðstöðvum WOW air og varð vitni að því þegar Niraj Varia frá Banda- ríkjunum kom til þess að reyna að ræða við starfsfólk og fá svör við því hvernig hann ætti að komast heim. Varia var hér á landi ásamt fjölskyldu sinni og vinafjölskyldu, sjö manns samtals, og áttu þau öll flug til To- ronto í Kanada. Hann sagðist ekkert vita um framhaldið og bankaði í öng- um sínum á dyrnar hjá móttökunni. Varia elti starfsmann sem var á leið inn um starfsmannainngang en var stöðvaður og spurður hvort hann væri með starfsmannapassa. Þegar hann sagði starfsmanninum frá vand- ræðum sínum var honum tjáð að það væri ekkert hægt að gera á skrifstof- unni og hann yrði að hringja til að fá aðstoð. Hann gekk um höfuðstöðv- arnar eftir þessi samskipti í leit að að- stoð en endaði svo á að yfirgefa skrif- stofurnar í uppnámi. Varia tjáði blaðamanni á leiðinni út að hann ætlaði sér að reyna að hringja í von um að koma fjölskyld- unni heim. Erlent par sem átti einnig miða með WOW air var líka mætt í höfuðstöðvarnar í leit af svörum en þau vildu ekki ræða við fjölmiðla. Nokkur þúsund manns áttu bókað flug með WOW air til og frá landinu í gærnótt og í gær. Starfsfólk Isavia á Keflavíkurflugvelli gekk um og hengdi upp tilkynningar með upplýs- ingatexta á íslensku og á ensku víðs- vegar um flugvöllinn fyrir farþega WOW air. Töluverð röð myndaðist framan við skrifstofu Icelandair á Keflavík- urflugvelli af fólki sem ætlaði að taka tengiflug með WOW air til Banda- ríkjanna og ekki frétti af gjaldþroti flugfélagsins fyrr en komið var til Ís- lands. „Þetta er hræðilegt,“ sagði eldri maður, Jim, sem beið í röðinni. Hann kom með flugi frá Manchester og ætl- aði að taka tengiflug með WOW air til Bandaríkjanna. „Maður ætlaði að fljúga með WOW air út af lágu fargjöldunum og svo gerist þetta. Ég veit ekkert hvað ger- ist næst,“ sagði hann og var aug- ljóslega í nokkru uppnámi. Strandaglópar í leit að svörum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Örvænting Bandaríkjamaðurinn Niraj Varia gekk um höfuðstöðvar WOW í leit að svörum í gærmorgun.  Farþegar með flug frá Íslandi mættu í höfuðstöðvar WOW air  Tvær fjölskyldur með flug til Toronto strandaglópar  Farþegar sem áttu tengiflug til Bandaríkjanna mynduðu röð hjá Icelandair Morgunblaðið/Anna Sigríður Biðröð Farþegar sem voru fastir á Leifsstöð mynduðu röð hjá upplýsingaborði Icelandair í leit að flugi. Samgöngustofa (samgongustofa.is) bendir farþegum WOW air, sem komast ekki leiðar sinnar vegna stöðvunar starfsemi félagsins, á að kanna möguleika á flugi hjá öðrum flugfélögum. Nokkur flugfélög buðu farþegum WOW air aðstoð með því að bjóða þeim svonefnd björgunar- fargjöld sem gilda tímabundið. Þeim sem keyptu flugmiða með kreditkorti var bent á að hafa sam- band við útgefanda kortsins til að kanna hvort þeir fengju flugmiðann endurgreiddan. Farþegar sem keyptu alferð, flug með gistingu o.fl., af evrópskum ferðaskipuleggj- anda eiga rétt á heimflutningi á grundvelli reglna um alferðir. Icelandair setti í gær upp síðu (icelandair.is/getmehome) þar sem farþegum WOW buðust afsláttar- kjör. Fargjald til og frá Evrópu var 60 bandaríkjadalir (7.340 kr.) án skatta og gjalda og 100 dalir (12.233 kr.) til eða frá Norður-Ameríku án skatta og gjalda. Þessi fargjöld gilda fyrir farþega sem eiga bókaða heimferð með WOW air til 11. apríl. Þá ákvað Icelandair að flytja áhafn- ir sem voru við störf erlendis heim þeim að kostnaðarlausu. Auk Ice- landair bjóða flugfélögin Easyjet, Norwegian, Wizz air og XL Air- ways farþegum WOW air sérstök afsláttarkjör. Nánar má lesa um það á heimasíðu Samgöngustofu. Farþegar í pakkaferðum Á heimasíðu Neytendastofu (neytendastofa.is) kemur fram að réttindi flugfarþega séu ólík eftir því hvort flugferð er hluti af pakka- ferð eða keyptur er stakur flugmiði. Skipuleggjandi og smásali pakka- ferðar beri sameiginlega ábyrgð á að koma ferðamönnum á áfangastað og til baka. Þeir sem keypt hafa pakkaferð eða eru í pakkaferð, og flughluti ferðarinnar er með flug- félagi sem stöðvar rekstur, eiga að snúa sér til þeirra varðandi frekari upplýsingar. Verði flugfélag sem sér aðeins um flughluta pakkaferðar gjald- þrota ber skipuleggjanda og smá- sala skylda til að útvega ferðamönn- um annað flug á áfangastað eða til baka. Sé pakkaferð ekki hafin þegar rekstur flugfélagsins stöðvast á að breyta pakkaferðasamningi, ef það má, eftir atvikum gegn afslætti á verði ferðarinnar. Eins kemur til greina að hætta við ferð gegn end- urgreiðslu eða aflýsa ferð gegn fullri endurgreiðslu. Ferðamenn geta leitað upplýsinga hjá Neyt- endastofu. gudni@mbl.is Boðið upp á björg- unarfargjöld  Farþegar WOW air verða aðstoðaðir Gjaldþrot WOW air

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.