Morgunblaðið - 29.03.2019, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
EITT LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF PERUM
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Láttu drauminn rætast.
Tveir karlmenn voru handteknir í
Kórahverfi í Kópavogi í gærmorgun
eftir að tilkynnt var um menn vopn-
aða skotvopni þar. Voru mennirnir í
annarlegu ástandi við handtöku.
Sérsveit ríkislögreglustjóra og al-
mennir lögreglumenn voru með mik-
inn viðbúnað eftir að tilkynning
barst. Vegna alvarleika málsins báru
almennir lögreglumenn skotvopn og
klæddust sérstökum hlífðarbúnaði.
Sá sem tilkynnti lögreglu um
vopnaburð mannanna var vinkona
annars þeirra sem þá hafði fengið
sent myndband þar sem sást í skot-
vopn. Kom síðar í ljós að byssan var
óvirk.
Nemendum haldið fjarri
Ágúst Frímann Jakobsson, skóla-
stjóri Hörðuvallaskóla, segist hafa
fengið símtal frá lögreglu og var
hann beðinn um að halda nemendum
innandyra. Var þetta gert til öryggis
á meðan lögregla vann að því að
tryggja vettvang sem er nálægt ung-
lingadeild skólans.
Að sögn Ágústs Frímanns varð lít-
ið sem ekkert rask vegna þessa, en
nemendur voru þá staddir inni í
kennslustofum samkvæmt stunda-
skrá. Einhverjir þeirra tóku þó eftir
aðgerðum lögreglu og fylgdust for-
vitnir með úr fjarlægð.
Vel gekk að handtaka mennina og
voru þeir fluttir í fangageymslur.
Morgunblaðið/Þórunn
Til öryggis Sjúkraflutningamenn biðu skammt frá vettvangi aðgerða.
Byssan reyndist vera óvirk
Tveir voru handteknir eftir að tilkynnt var um skotvopn
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann í tveggja og hálfs
árs fangelsi fyrir að nauðga sam-
býliskonu sinni á heimili þeirra í
ágúst árið 2015. Samkvæmt ákæru
beitti maðurinn konuna ofbeldi og
ólögmætri nauðung, fór upp í rúm
hennar, reif utan af henni náttföt og
nærföt og eftir mikil átök náði hann
að yfirbuga hana og nauðga. Maður-
inn neitaði sök við málsmeðferð.
Í dómi héraðsdóms segir um
málavexti að konan hafi komið á lög-
reglustöð til að leggja fram kæru 30.
september 2015. Greindi hún m.a.
frá því við skýrslutöku að maðurinn
hefði að næturlagi ruðst inn í her-
bergi hennar og rifið föt utan af
henni. Hafi hann að því loknu þving-
að hana til kynferðismaka. Sonur
konunnar, þá 11 ára, hafi þá verið í
næsta herbergi og orðið var við
árásina. Konan greindi lögreglu
einnig frá þremur öðrum tilvikum
þar sem maðurinn hefði nauðgað sér
þetta sama sumar.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
maðurinn sé missaga um atriði máls-
ins og ótrúverðugur. Konan krafðist
átta milljóna króna í miskabætur en
manninum er í dómi héraðsdóms
gert að greiða henni 1,5 milljónir
króna í miskabætur og um þrjár
milljónir króna í sakarkostnað.
Nauðgaði sambýlis-
konu sinni 2015
Fékk 2,5 ára fangelsisdóm í héraði
Morgunblaðið/Ernir
Sekur Maðurinn var dæmdur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur.
Orrustuþotur á vegum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) hröktu á mið-
vikudag tvær rússneskar sprengju-
flugvélar út úr loftrýmiseftirlits-
svæði NATO við Íslandsstrendur.
Höfðu Rússarnir þó ekki brotið ís-
lenska lofthelgi, en þetta er í annað
skipti á fáeinum dögum sem orrustu-
þotur NATO eru sendar til móts við
sprengjuvélar Rússa hér við land.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslu Íslands voru þarna
á ferð tvær langdrægar sprengjuvél-
ar af gerðinni Tupolev TU-142, betur
þekktar sem Björninn. Vélarnar sem
sendar voru frá Keflavík eru á veg-
um ítalska flughersins og eru þær af
gerðinni Eurofighter Typhoon
EF-2000, en fjórar slíkar vélar eru
nú staðsettar á Keflavíkurflugvelli.
NATO stuggaði við
tveimur Björnum
Ljósmynd/Landhelgisgæsla Íslands
Herstyrkur Ítölsk herþota sést hér
lenda á Keflavíkurflugvelli nýverið.