Morgunblaðið - 29.03.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 29.03.2019, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 Gjaldþrot WOW air FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Uppbygging leiðakerfis WOW Air á undanförnum árum varð til þess að nýir markaðir opnuðust fyrir ferskar íslenskar sjávarafurðir. Oft voru selj- endur óðara búnir að koma á við- skiptasamböndum um leið og nýr áfangastaður bættist við en nú gæti reynst erfitt að halda þessum mörk- uðum við. Cargo Express hefur verið um- boðsaðili fragtflutninga fyrir WOW og segir Róbert Tómasson, forstjóri fyrirtækisins, að það sé þungt högg að missa flugfélagið og minnki tölu- vert það flutningsrými sem útflytj- endur geta nýtt sér. „Stærsta breyt- ingin kom þó seint á síðasta ári þegar WOW skilaði breiðþotunum sem gátu borið mikla fragt. Undir það síð- asta voru sjö flugvélar í notkun, hver þeirra að hámarki með pláss fyrir 3-4 tonn af fragt og hver vél með við- komu á landinu tvisvar á dag.“ WOW Air á 60% hlut í Cargo Ex- press og segir Róbert að dagleg starfsemi muni haldast óbreytt þar til annað kemur í ljós. Aðrir hluthaf- ar vilji byggja reksturinn upp í sam- vinnu við önnur flugfélög en Cargo Express heldur utan um fragtflutn- inga með vélum Norwegian, Americ- an Airlines, United Airlines, airBal- tic og Air Canada. Róbert segir seljendum ferskra sjávarafurða standa til boða ýmsar leiðir til að koma vörum sínum á markað erlendis, og margar tenging- ar milli Íslands og Evrópu, bæði á sjó og með flugi. Möguleikarnir séu aft- ur á móti færri fyrir fisk á leið vestur um haf. Bæði detta vissir áfangastaðir út með WOW, og flutningsgetan til annarra markaðs- svæða minnkar. Er alls óvíst hvort að Icelandair og önnur flugfélög geti t.d. annað eft- irspurn eftir flutningum til vesturstrandar Bandaríkjanna.“ Róbert segir að það verði keppi- kefli Cargo Express að finna ásætt- anlega lausn fyrir þá útflytjendur sem verða fyrir áhrifum af gjaldþroti WOW. Bendir hann á að eftir að WOW hætti rekstri breiðþota hafi t.d. náðst góður árangur með flutn- ingum til Bandaríkjanna í gegnum Evrópu og nefnir hann tengingar í London, Osló og Madrid í því sam- bandi. Fiskurinn gæti farið annað Svavar Þór Guðmundsson, sölu- stjóri hjá sölu- og markaðsfyrir- tækinu Bacco, segir synd að missa tengingar WOW til Bandaríkjanna og Kanada enda hafi seljendur lagt mikið á sig til að koma ferskum ís- lenskum sjávarafurðum þar á fram- færi. „Sjávarútvegurinn var dugleg- ur að nýta þetta aukna framboð, bæði með sölu til nýrra svæða og eins með aukinni sókn inn á hefð- bundin markaðssvæði eins og aust- urströnd Bandaríkjanna. Er margt sem gerir N-Ameríkumarkað álit- legan, m.a. að þar er samkeppnin við Norðmenn ekki jafn hörð og hún er víða á Evrópumarkaði.“ Svavar gengur ekki svo langt að segja að hætta sé á að ófremdar- ástand skapist með fækkun flug- tenginga en þó megi vænta þess að sumir seljendur ferskra sjávaraf- urða þurfi að beina vörum sínum á aðra staði, þar sem ekki fáist eins hagstæð verð. Ekki væri hægt að leysa vandann með því t.d. að taka fragtflugvél á leigu og láta hana fljúga milli N-Am- eríku og Íslands, að mati Svavars „Þar er vandinn sá að vélarnar þurfa að vera vel nýttar bæði á leiðinni út og á leiðinni heim en fragtflug frá Vesturheimi til Íslands hefur dregist saman og mun síst aukast ef endalok WOW verða til þess að íslenska krón- an veikist.“ Eftirspurn í hámarki Valdimar Óskarsson, fram- kvæmdastjóri DB Schenker á Ís- landi, segir gjaldþrot WOW koma á mjög óheppilegum tíma fyrir útflytj- endur ferskra sjávarafurða enda eftirspurnin mikil vikurnar í kring- um páska. Þá megi vænta þess að ef vélar Icelandair troðfyllast af farþeg- um og farangri muni þurfa að ganga á plássið í lestum flugvélanna sem ella hefði mátt nota undir fisk og ann- an varning. Í ofanálag eru nýjustu þotur Icelandair, Boeing 737 Max 8 og Max 9, fyrst og fremst hannaðar til að bera marga ferðalanga en lítið af vöru og rúma varla meira en 1,5 tonn af fragt í hverri ferð, frekar en 4 til 8 tonn eins og hægt er í mörgum öðrum gerðum flugvéla af svipaðri stærð. Eins er hætta á að sjóflutningar á fiski til Evrópu raskist á sama tíma. „Sjóflutningakerfið okkar til Evrópu er að stórum hluta þannig sett upp að Bretland er þungamiðjan, og fiskur- inn verið sendur þaðan landleiðina til Frakklands, Benelux og annarra ná- lægra markaða. Fari Brexit illa mun það torvelda þessa flutninga tölu- vert.“ Raskar flutningum á ferskum fiski Morgunblaðið/Eggert Högg Útflytjendur hafa lagt mikið á sig til að nema land fyrir ferskan íslensk- an fisk í Bandaríkjunum og Kanada og stólað á stöðugar flugsamgöngur.  Seljendur hafa úr nokkrum leiðum að velja til að koma ferskum sjávarafurðum til Evrópu en endalok WOW þýða að tengingum við N-Ameríku fækkar  Brexit gæti truflað flutninga á sjó til Evrópu Róbert Tómasson Svavar Þór Guðmundsson Valdimar Óskarsson 29. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.41 121.99 121.7 Sterlingspund 160.21 160.99 160.6 Kanadadalur 90.56 91.1 90.83 Dönsk króna 18.335 18.443 18.389 Norsk króna 14.146 14.23 14.188 Sænsk króna 13.125 13.201 13.163 Svissn. franki 122.24 122.92 122.58 Japanskt jen 1.0998 1.1062 1.103 SDR 168.84 169.84 169.34 Evra 136.92 137.68 137.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.9201 Hrávöruverð Gull 1318.25 ($/únsa) Ál 1849.0 ($/tonn) LME Hráolía 67.9 ($/fatið) Brent Vinnumálastofnun setti strax í kjöl- far frétta af stöðvun rekstrar WOW air sérstaka viðbragðsáætlun í gang. Í orðsendingu sem beint var til rúm- lega 1.000 starfsmanna flugfélagsins segir að þeir sem hafa starfað hjá WOW air geti sótt um atvinnuleys- isbætur á heimasíðu stofnunarinnar og að áætluð afgreiðsla umsókna muni taka fjórar til sex vikur eftir að öll gögn hafa borist. Hvatti stofnunin fólk til að hefja ferlið sem fyrst í ljósi þess að at- vinnuleysisbætur eru greiddar frá þeim degi sem umsókn berst. Ljóst er að gjaldþrot WOW air hefur víð- tæk áhrif, sér í lagi í tilfellum þar sem báðar fyrirvinnur heimilis störfuðu hjá fyrirtækinu. Í ljósi þess að WOW air hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta þarf fólk að hafa samband við stéttarfélag sitt eða lögmann og fá aðstoð við að lýsa kröfu í væntanlegt bú til þess að fá greitt úr ábyrgðarsjóði launa en ekki er greitt úr sjóðnum fyrr en í fyrsta lagi eftir að kröfu hefur verið lýst og skiptastjóri hefur samþykkt kröfuna. Eftir að ábyrgðarsjóði launa berst umsögn og kröfuskrá skiptastjóra tekur sjóðurinn jafnan afstöðu til krafnanna innan fjögurra vikna. Ábyrgðarsjóðurinn starfar sam- kvæmt lögum nr. 88/2003. Í 6. grein laganna kemur fram að hámarks- ábyrgð á kröfum launamanna um vinnulaun fyrir síðustu þrjá starfs- mánuði hans í þjónustu vinnuveit- anda eða kröfu um bætur vegna launamissis í allt að þrjá mánuði vegna slita á ráðningarsamningi, sé 633 þúsund krónur á mánuði. Ábyrgð sjóðsins tekur einnig til kröfu lífeyr- issjóðs um lífeyrisiðgjöld sem fallið hafa á gjalddaga á síðustu 18 mán- uðum fyrir úrskurðardag. Risastórt mál Í samtali við mbl.is í gær sagði Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnu- málastofnunar að óvissa væri um út- gjöld þeirra tveggja sjóða sem um ræðir; atvinnuleysistryggingasjóðs og ábyrgðasjóðs launa. Veltur um- fang útgjaldanna á því hversu fljótt fólk fær starf á ný. Segir hún enn fremur að of snemmt sé að tala um krónur og aura í þessu samhengi. „Við erum enn að bíða eftir upplýs- ingum um fjölda þeirra sem missa vinnuna, og hversu langan uppsagn- arfrest fólk á og annað,“ segir Unnur. Skiljanlega hefur verið nokkur við- búnaður hjá Vinnumálastofnun í kjöl- far tíðindanna. „Svo höfum við verið að bæta við mannskap á síma og í þjónustuveri. Þá ætlum við að lengja afgreiðslu- tíma okkar á morgun [í dag] til klukk- an fjögur,“ segir Unnur. Er stofnun- in í nánu sambandi við Alþýðusambandið og reynir að láta upplýsingar flæða þar í gegn. Unnur segir málið risastórt á íslenskan mælikvarða og sérstakur hópur fólks vinni í málinu sem ekki fer í hefð- bundna afgreiðslu. Viðbragðsáætl- un sett í gang  Hámarksgreiðsla 633 þúsund krónur AÐALFUNDUR AðalfundurHBGranda hf. verður haldinn í dag, 29.mars 2019, í matsal félagsins aðNorðurgarði 1, 101Reykjavík og hefst hann klukkan17:00. Fundurinn fer framá íslensku. Dagskrá 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.11 í samþykktum félagsins. 2. Tillaga umheimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum samkvæmt55. gr. hlutafélagalaga. 3. Tillaga stjórnar umbreytingar á samþykktum félagsins á þá leið að hluthafafundur skipi tilnefningarnefnd sem starfi semundirnefnd stjórnar. Til bráðabirgða skipi stjórn fyrstu tilnefningarnefnd félagsins sem skuli hefja störf ekki síðar en 6mánuðum fyrir næsta aðalfund félagsins. 4. Önnurmál. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta: a) veitt öðrum skriflegt umboð. b) greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu, form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Aðrar upplýsingar Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma. Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.hbgrandi.is Stjórn HBGranda hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.