Morgunblaðið - 29.03.2019, Side 23

Morgunblaðið - 29.03.2019, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MARS 2019 ✝ Elín EyglóSteinþórsdóttir fæddist í Reykja- vík 13. maí 1946. Hún lést á líknar- deild Landspít- alans 13. mars 2019. Hún var dóttir hjónanna Stein- þórs Eiríkssonar, f. 8.10. 1904, d. 4.3. 1994, og Guð- ríður Steindórsdóttur, f. 12.10. 1916, d. 26.8. 2001. Systkini Elínar eru: 1) Svein- björg Steinþórsdóttir, f. 15.3. 1945, maki Jörgen Frank Mic- helsen, f. 10.11. 1941, d. 25.3. 1998. Börn þeirra: a) Steinþór Frank, f. 1965, maki María Teresa Michelsen. Börn þeirra: Sveinbjörg Dione, f. 1999, Benedikt, f. 1990, móðir Sigríð- ur Heiða Ragnarsdóttir. b) Arnar Páll, f. 1969, maki Guð- rún Ólína Ágústsdóttir. Börn þeirra: Ágúst Frank, f. 1991, unnusta Camille Holst, barn þeirra, Freja. Elísa, f. 1993, unnusti Þórir Már Guðnason. Íris, f. 2001. c) Emil Orri, f. 1973, maki Guðlaug Jóhanns- dóttir. Synir þeirra: Jóhann dóttir. b) Margrét Lind, f. 1979, maki Björgvin Guðjónsson. Synir þeirra: Bjarki Freyr, f. 2003, Breki Þór, f. 2012, Bragi Hrafn, f. 2017. Elín var ógift og barnlaus. Hún ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík, á Reynimel 24. Þar átti hún endalausar sólskins- skinsstundir ásamt ástríkri fjölskyldu. Skólagangan hófst í Mela- skóla, síðan Hagaskóla og með útskrift úr Verzlunarskólanum 1965. Byrjaði sinn atvinnuferil í Bæjarútgerðinni við að breiða saltfisk og vann síðan í skreið. Einnig fékkst hún við barna- pössun sem algengt var hjá stúlkum þess tíma. Að námi loknu vann hún í eitt ár við skrifstofustörf hjá H. Ólafsson og Bernhöft. Hleypti síðan heimdraganum og fór ásamt tveimur vinkonum til Kaup- mannahafnar og vann á Hótel D’Angleterre um tíma. Með haustinu var hún ráðin sem þjónn á Iceland Food Center í London, þar sem hún vann um veturinn. Þegar heim kom þá réð hún sig sem einkaritari hjá G. Ólafsson hf. í Fischersundi. Árið 1970 hóf hún störf hjá Loftleiðum, Flugleiðum, síðar Icelandair, sem sölumaður/ ferðaráðgjafi, þar til hún lauk störfum þann 1. október 2014. Útförin fer fram frá Nes- kirkju í dag, 29. mars 2019, klukkan 13. Frank, f. 2001, Daníel Þór, f. 2007, Baldur Orri, f. 2013. 2) Eirikur Steinþórsson, f. 2.2. 1948, maki Anna Birna Grí- mólfsdóttir, 21.10. 1951, d. 21.2. 2005. Börn þeirra: a) Þuríður Val- gerður, f. 1966, maki Guðrún Sig- urðardóttir. Dætur þeirra: Sig- ríður Eyrún, f. 2008, Jódís Hanna, f. 2009, Rebekka Ey- rún, f. 2015. b) Guðríður, f. 1969. Sonur Eiríkur, f. 1991, unnusta Kristjana Hafdal Þor- varðardóttir, sonur þeirra Balt- asar Hafdal. Faðir Eiríks er Jó- hann Magnús Ólafsson. c) Þóra Björk, f. 1985, maki Hannes Ingi Guðmundsson. Börn þeirra: Anna Isabella, f. 2010, Sebastían Víkingur, f. 2012, Amelía Arney, f. 2014. 3) Stein- dór Steinþórsson, f. 20.7. 1950, maki Anna Marie Georgsdóttir, f. 28.7. 1954. Börn þeirra: a) Georg Þór, f. 1972, d. 2013. Dóttir hans: Tinna, f. 1993, unnusti Jón Hólm. Móðir Tinnu er Katrín Margrét Guðjóns- Í dag kveðjum við elskulega föðursystur okkar sem var okkur svo kær og stórt skarð er höggvið í fjölskylduna. Ella frænka greindist með illvígan sjúkdóm fyrir rúmu ári en tapaði stríðinu við þennan skaðvald alltof snemma. Við systurnar vorum svo lánsamar að búa í kjallaran- um á Reynimelnum fyrstu upp- vaxtarár okkar og hún uppi hjá ömmu og afa. Hún vann alla tíð hjá Icelandair og það var unun að hlusta á hana segja frá öllum ferðalögunum sem voru framandi fyrir lítil börn í þá daga. Við elsk- uðum að fá að koma inn í her- bergið hennar og skoða allt dótið hennar, allt var flott hjá henni í okkar augum. Við gátum enda- laust skoðað og flett í gegnum National Geograpich og látið okkur dreyma um framandi staði í heiminum. Við hlökkuðumávallt til þess þegar hún kæmi að utan og eitt sinn fengum við fallegar risastórar brúður sem voru eins og stelpurnar í Húsinu á slétt- unni. Hún var skemmtileg og yndisleg frænka og hafði eina sérgáfu, hún gat jarmað eins og lamb sem vakti alltaf kátínu okk- ur krakkanna. Í seinni tíð aðhylltist hún búddisma og fór víðsvegar um heiminn og iðkaði sína íhugun í hinum ýmsu klaustrum og í eitt sinn eyddi hún nokkrum vikum með ekki ómerkari manni en Richard Gere, þannig var hún í hnotskurn, alltaf líf og fjör í kringum hana með alls konar fólki. Við systurnar erum að safna fyrir ferð til Indlands sem er á nokkurra ára plani og ætlum að upplifa það sem Ella frænka upplifði í sínum ferðum, því mið- ur verður hún ekki með okkur í þeirri ferð. Ella frænka var mikil barnagæla og Eiríkur minn var svo heppinn að njóta samvista við hana, hún var dugleg að bjóða honum í bíó og út að borða og svo þegar dæturnar hennar Rúrýjar bættust í hópinn, þá kom hún gjarnan út á nes og fór með stelp- urnar þeirra Guðrúnar í göngu út að Seltjörn til að gefa fuglunum. Eftir sitja góðar minningar um yndislega frænku og söknuður- inn er sár. Hugur okkar er hjá pabba og systkinum hans. Hafðu þökk fyrir allt, elsku frænka. Þínar frænkur, Þuríður og Guðríður Eiríksdætur. Í dag kveð ég kæra vinkonu til margra áratuga. Eða eins og Ella mín orðaði það í jólakortinu „vin- konur frá örófi“. Þegar hugurinn reikar til baka, þá er margs að minnast. En nú þegar leiðir skilja, þá er mér þakklæti efst í huga. Í Ellu átti ég heiðarlega, trausta og góða vinkonu. Það var gaman að gleðjast með henni á góðum stundum og ómetanlegur styrkur að eiga hana að á erfiðum tímum. Takk fyrir samfylgdina og allt, elsku vinkona. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Guðlaug Einarsdóttir. Mín fyrstu kynni af Ellu, eins og hún var alltaf kölluð, voru á okkar fyrsta ári í Hagaskólanum. Þar vorum við bekkjarfélagar og sessunautar. Lítið vissi ég þá að þarna byrjaði náinn vinskapur sem hélst til dauðadags eða sam- tals í 60 ár. Í gegnum vinskap minn við Ellu kynntist ég yndis- legu fjölskyldu hennar sem varð mér mjög kærkomin. Hún ólst upp á heimili sem var umvafið hlýju og ástríkum aga. Á ung- lingsárunum var ég tíður gestur á heimili hennar á Reynimelnum og naut ég þess vel að vera í nær- veru fjölskyldu hennar. Leið okk- ar lá í Verslunarskólann og út- skrifuðumst við þaðan með góðar minningar frá námsárum okkar. Þar kynntumst við Ella góðum vinkonum og höfum við haldið hópinn fram á þennan dag. Ella var há og glæsileg ung stúlka, og hélt þeim glæsileika fram á síðasta dag. Hún var skap- föst og hafði fastmótaðar skoð- anir á mönnum og málefnum, hreinskilin og trygglynd vinum sinum. Hún var mikill dýravinur og lifði kötturinn hennar, Hríma, fram á háan aldur í góðu yfirlæti. Ella naut þess að vera úti í nátt- úrunni og voru andleg mál henni mjög áhugaverð, hún var mikill bókavinur og sérlega vel ritfær á íslenska tungu. Á þessari kveðjustundu koma mörg minningabrot í gegnum hugann. Við Ella ferðuðumst mikið saman erlendis á okkar yngri árum. Árið eftir að við út- skrifuðumst úr Versló sigldum við með Gullfossi til Kaupmanna- hafnar ásamt Margréti vinkonu okkar. Við unnum í smátíma hjá Hotel D’Angleterre sem her- bergisþernur og nutum við ver- unnar vel í þeirri borg þó vinnan væri ekki skemmtileg. Síðan lá leið okkar til London til að vinna hjá Iceland Food Centre. Við unnum þar í eitt ár sem þjónustu- stúlkur og var hlutverk okkar að kynna íslenskan mat. Við kunn- um vel við okkur í þeirri skemmtilegu stórborg. Ári eftir heimkomu, fórum við til Kaliforn- íu og dvöldum þar í nokkra mán- uði og upplifðum við þar margt skemmtilegt. Þegar við snérum til baka til Íslands bauðst okkur bílfar yfir Bandaríkin og var það mikil ævintýraferð. Á seinni ár- um höfðum við gaman af að rifja upp þessar ánægjulegu minning- ar sem við höfðum úr þessum ferðalögum okkar. Leiðir okkar skildu þegar ég giftist og flutti til Bandaríkjanna. Þótt langt væri á milli okkar slitnuðu þessi sterku vinarbönd aldrei. Ella var stór hluti af fjöl- skyldu minni bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hún sýndi Torfa bróður mínum og Guðrúnu konu hans eintakan hlýhug á elli- árum þeirra og var tíður gestur á heimili þeirra. Heimsóknir Ellu til okkar í Bandaríkjunum voru tíðar í gegnum árin. Alltaf kom hún fær- andi hendi með töskurnar fullar af íslensku góðgæti, en hún var gjafmild með afbrigðum. Ég er ævinlega þakklát fyrir að hafa kynnst Ellu og hennar fjölskyldu. Nú hefur Ella verið leyst frá sín- um þjáningum og óska ég henni Guðs blessunar á leið sinni yfir móðuna miklu og góðrar heim- komu. Elsku Summa, Eiki, Denni og fjölskyldur, ég, Reed og fjöl- skyldan mín vottum ykkur öllum innilega samúð og biðjum Guð að vera ykkur styrkur í sorg ykkar. Elísabet Ingólfsdóttir Dinsmore. Í dag kveðjum við kæra vin- konu og vinnufélaga Elínu Stein- þórsdóttur sem var búin að vinna hjá Flugleiðum-Icelandair nán- ast alla sína starfsævi og með okkur flestum í yfir 20 ár. Ella var einstök, hún var hjálp- söm og þjónustulunduð við sam- starfsmenn og viðskiptavini, skemmtilegur karakter, með frá- bæran húmor og gaman að vera nálægt henni, Ella var náttúru- unnandi, dýravinur, næm og skemmtileg, með áhuga á alls konar fræðum, stundaði íhugun og jóga löngu áður en við vissum hvað það var. Við vorum nágrannar eftir að hún steig það stóra skref að flytja úr Vesturbænum og kaupa sér nýja íbúð í Kópavogi, við Salka litum oft inn hjá henni á leið okk- ar um hverfið, þær fögnuðu hvor annarri einlæglega og við Ella áttum gott spjall um allt milli himins og jarðar. Síðast í desem- ber áttum við klukkutíma gæða- stund eins og hún kallaði það, hún var þá búin að glíma við krabbamein í meira en ár. Þá fann ég hversu sterk hún var, hún vissi þá að hún mundi ekki lifa þetta af en var róleg og æðru- laus. Ella var smekkkona, hún bjó ein en naut lífsins, las og horfði á bíómyndir, hreyfði sig og hug- leiddi. Hún virtist alltaf svo sjálfri nóg þó að félagslynd væri og umvafin fólki sem þótti vænt um hana. Hún eldaði fyrir sig eina, lagði á borð og naut mat- arins. Hún vandaði allt sem hún gerði, hvort sem það var vinnan eða annað, hætti ekki fyrr en allt var klárað og frágengið, smekk- leg og smart í tauinu og með nýja heimilið sitt, allt valið með gæði og notagildi í huga og iðnaðar- mennirnir fengu engan afslátt af að klára allt eins og hún vildi hafa það. Ella kom okkur endalaust á óvart í vinnunni, margir muna eftir því þegar hún talaði inn á símsvarann þegar Hríma litla var ein heima eða þegar hún stóð upp frá vinnu sinni og gerði teygjuæf- ingar upp úr þurru. Nýliðar ráku líka upp stór augu þegar hún opnaði gluggann og jarmaði til að ná sér í loft og hreinsa röddina, eða bara sér og öðrum til skemmtunar. Ella var mikill dýravinur, eftir að Hríma var farin tók hún að fæða annan kött í hverfinu, gaf honum að éta og hlúði að honum á meðan hann þurfti. Einu sinni uppgötvaði hún kettlingafulla læðu undir skúr við flugvöllinn, færði henni mat um tíma þar til kisa var búin að gjóta, þá kom Ella henni í öruggt skjól í Katt- holti þar sem hún þekkti vel til enda fór hún þangað reglulega til að sinna heimilislausum köttum. Svo var það tjaldurinn sem kom ár eftir ár til okkar á græna blett- inn bak við hús, á hverju vori til- kynnti hún mér komu hans, þá hafði hún heyrt í vorboðanum og var komin út í glugga með það sama til að fagna honum. Ella átti góða fjölskyldu og vini sem hugsuðu vel um hana til síðasta dags, okkur fannst við þekkja þau öll enda varð henni tíðrætt um sína nánustu, við vor- um hinsvegar hennar fjölskylda í vinnunni. Elsku Ella, takk fyrir allt. Sigríður S. Helgadóttir. Elín Eygló Steinþórsdóttir Móðir okkar, tengdamóðir, amma,langamma og langalangamma, HREFNA MAGNÚSDÓTTIR frá Hellissandi, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn 23. mars. Útför hennar fer fram frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 30. mars klukkan 14. Ari Skúlason Jana Pind Hulda Skúladóttir Drífa Skúladóttir Viðar Gylfason börn, barnabörn og barnabarnabörn Vegna andláts og úfarar SIGRÚNAR JÓNSDÓTTUR þökkum við auðsýnda samúð. Sérstakar þakkir til starfsmanna heimahlynningar á Akureyri og Furuhlíðar á öldrunarheimilinu Hlíð. Aðstandendur Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SKÚLI GEIRSSON, fyrrverandi bóndi á Írafelli, lést 25. mars. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 2. apríl klukkan 13. Hólmfríður Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Árnason Ylfa Þorsteinsdóttir Guðmundur Árnason Áslaug Kjartansdóttir Þorbjörg Skúladóttir Sigurður B. Svavarsson Guðrún Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR JÓNA SIGURÐARDÓTTIR, Þórshamri, Tálknafirði, lést á Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar þriðjudaginn 26. mars. Útförin fer fram frá Tálknafjarðarkirkju laugardaginn 6. apríl klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Tálknafjarðarkirkju. Magnús Kr. Guðmundsson og fjölskylda Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, SVANHVÍT MAGNÚSDÓTTIR ljósmóðir, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 26. mars. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju miðvikudaginn 3. apríl klukkan 15. Magnús Eðvald Kristjánsson Jónína Kristjánsdóttir Halldór Kristjánsson Ingibjörg Herta Magnúsdóttir Svanhvít Helga Magnúsdóttir, Steinn Örvar Bjarnarson Alexander Eðvald Magnússon Magnús Eðvald Halldórsson Magnea Marín Halldórsdóttir Elín G. Magnúsdóttir Móðir mín, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR OGATA, lést í Árgerði, Lögmannshlíð, Akureyri, 13. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur þakka starfsfólki Árgerðis hlýja og góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Snorri Ogata Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.