Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 2
Hvert er markmiðið með þessari ráð-
stefnu?
„Þetta er árleg ráðstefna um barnabækur og að
henni standa ólík samtök sem bera hag barna-
bókmennta fyrir brjósti. Tilgangurinn er einfald-
lega að freista þess að auka veg barnabókmennta
hér á landi.“
Mér skilst að sjónum verði sér-
staklega beint að umræðu um gæði
barnabóka sem fram fór á árinu sem
leið.
„Það er rétt. Okkar langar til að taka þá umræðu
áfram en hún snerist ekki síst um það hversu litla
gagnrýni barnabækur fá í fjölmiðlum. Þessi gagn-
rýni var svo sem ekki mikil fyrir en hefur minnkað
enn frekar. Mögulega tengist það versnandi hag
fjölmiðla. Það er einn þáttur í sjónvarpi helgaður bók-
um og þar fá barnabækur hlægilega lítið vægi; svo lítið
raunar að betra væri líklega að sleppa því.“
Það endurspeglar sumsé ekki gildi þessara
bóka?
„Nei, barnabækur eru mikilvægustu bækur sem koma út
og geta skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar. Sumir
ganga jafnvel svo langt að halda því fram að barnabækur
geti bjargað mannslífum.“
Rannsóknir sýna að lestur á undir högg
að sækja, þetta tengist væntanlega?
„Heldur betur. Lestur ungmenna hefur farið minnk-
andi í langan tíma og um leið lesskilningur. Það er
mjög alvarlegt mál og í þessu sambandi gegna barna-
bókahöfundar lykilhlutverki. Það er synd að stuðning-
urinn sé ekki meiri. Fróðlegt verður að hlusta á Lilju
Alfreðsdóttur menntamálaráðherra á ráðstefnunni en
hún hefur boðað frumvarp þar sem íslenskan verður
sett í fyrsta sæti.“
Lastu sjálfur mikið sem barn?
„Já, mjög mikið. Kláraði alla staflana heima og var
byrjaður á Þórbergi 12 ára. Það var ekkert óvenju-
legt á þeim tíma; mín kynslóð las mjög mikið. Ég
hef fylgst með börnunum mínum og því miður eru
þau líklegri til að velja bók á ensku en íslensku. Ég
er líka orðinn afi og nú er sko lesið áður en farið er
að sofa. Afastrákurinn minn er reyndar bara fjög-
urra ára og skoðar bara myndirnar. En það er
prýðileg byrjun.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
ÁSMUNDUR HELGASON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Geta bjargað
mannslífum
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Þá eru menn hættir að myrða á Siglufirði. Í bili. Það stórsér á samfélag-inu þar nyrðra eftir þessar tvær fyrstu seríur af Ófærð og Gunnarbæjarstjóri Birgisson getur varla með góðri samvisku mælt af sínum
alkunna þunga: Það er gott að búa á Siglufirði! Nema að hann sé þá að tala
við Ted Bundy.
En alltént. Fegnastur er ég Andra vegna. Hinn skeleggi rannsóknarlög-
reglumaður var sem frægt er orðið farinn að þramma um eins og björn í til-
vistarkreppu. Eða var það Björn? Eins vel og rannsókninni miðaði, miðað við
aðstæður, þá seig sífellt á ógæfuhliðina í einkalífinu hjá aumingja karlinum.
Konan skilin við hann og eldri dóttirin vildi helst ekki heyra á hann minnst.
Maður beið bara eftir að hann næði sér í sviðakjamma í lúgusjoppu. Þeir
borða ef til vill ekki kjamma þarna á
Sigló.
Þetta er svo sem ekkert einsdæmi
þegar kemur að rannsóknarlög-
reglumönnum í sjónvarpi. Hafið þið
séð Marcellu hina bresku á Netflix?
Hún er líka með allt lóðbeint niðrum
sig í einkalífinu. Karlinn farinn frá
henni og börnin vilja helst ekki deila
með henni herbergi, hvað þá meira.
Svo fer hún fyrirvaralaust í óminnis-
ástand og er þá til alls líkleg. Í orðs-
ins fyllstu merkingu, hún flytur lík
milli hreppa. Án þess að muna.
Svo er það DCI Luther, svalasti maður sjónvarpssögunnar. Hann og
Kunta Kinte. Luther er að vísu barnlaus, að því er næst verður komist, en
konan löngu skilin við hann og lífsneistinn slokknaður. Til að bæta gráu ofan
á svart eltir sturluð kona hann á röndum og fretar á allt sem hreyfist með
vélbyssu. Menn hafa bugast af minna tilefni.
Hvað segir þetta okkur í hnotskurn? Jú, það er tómt vesen að vera rann-
sóknarlögreglumaður og afleitt fyrir einkalífið.
Einmitt þess vegna varpa ég fram þeirri frumlegu hugmynd að einhver
handritshöfundur, til dæmis í svartnættinu hér á norðurslóðum, hendi í rann-
sóknarlögreglumann sem er stríðgyrtur í brók, í leik og starfi. Tanaður og
tattúveraður, hrókur alls fagnaðar á mannamótum og hendir í fimmur með
fallegu börnunum sínum á morgnana áður en hann smellir einum renn-
blautum á stórglæsilegu konuna sína sem er bankastjóri hjá ríkinu og fékk
83% launahækkun í gær. Og þið eigið kollgátuna; hún hefur engin áform um
að skilja við karlinn. Engin. Hvorki í þessu lífi né því næsta.
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Það er gott að
búa á Siglufirði!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Maður beið bara eftirað hann næði sér ísviðakjamma í lúgusjoppu.Þeir borða ef til vill ekki
kjamma þarna á Sigló.
Fannar Kristmundsson
Ég er búsettur erlendis en eina sem
ég kannast við er Hatari.
SPURNING
DAGSINS
Hvaða lagi
spáir þú
sigri í
Söngva-
keppninni?
Lara Stevensdóttir
Hatari.
Hilmar Þór Rúnarsson
Friðrik Ómar.
Hulda Axelsdóttir
Ég held að Hatari vinni.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Ásmundur Helgason er einn skipuleggjenda ráðstefnunnar „Þetta
er bara barnabók“ sem fram fer í Borgarbókasafninu Gerðubergi í
dag, laugardag, kl. 10.30-13. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um
íslenskar barna- og unglingabókmenntir og er aðgangur ókeypis.