Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019
Um sumt er heimurinn aðreyna að gerast skynsamari.Sem betur fer. Alla vega vit-
um við sífellt meira um hvað er gott
og uppbyggilegt og hvað brýtur nið-
ur, bæði til líkama og sálar.
Við vitum að gott er að hreyfa sig,
forðast að gleypa mikinn sykur, alls
ekki leggjast í spik, eyðileggja lung-
un með reykingum og lifrina með
óhóflegri áfengisneyslu og að mikið
pilluát getur valdið hliðarverkunum.
Með öðrum orðum, þá vitum við að
mikilvægt er að hlúa að heilbrigði
okkar og því meira sem við gerum af
því þeim mun betri verða varnir okk-
ar gegn sjúkdómum og vanlíðan.
Í samræmi við þetta hafa sprottið
upp líkamsræktarstöðvar, veitinga-
staðir með heilnæmri fæðu, talað er
um að fá landbúnaðarafurðir beint
frá búi, helst allt lífrænt ræktað,
næringarfræði hefur orðið vinsæl
námsgrein og fræðingar á því sviði
eftirsóttir ráðgefendur. Þeir útskýra
hvernig mataræði hefur áhrif á líðan
barnanna okkar.
Til marks um allt þetta þá finnst
okkur rétt að fjárveitingavaldið veiti
heilbrigðisyfirvöldum stuðning til
fyrirbyggjandi aðgerða. Við þykj-
umst vita að með því móti tryggjum
við best heilsuna og pyngjuna einnig.
Þegar upp er staðið er nefnilega
ódýrara að koma í veg fyrir sjúk-
dóma en að grípa
til aðgerða þegar
skaðinn er orðinn.
Það er kostn-
aðarsamara og
dregur þar að auki
úr lífsgæðum,
heilsunni hnignar
og vellíðan að
sama skapi.
En ef þetta er
nú allt svona aug-
ljóst, hvernig
stendur þá á því að
það skuli yfirleitt
vera til umræðu að
opna fyrir inn-
flutning á matvöru
sem vitað er að
geti verið varasöm
til neyslu og það sem meira er, flutt
með sér bakteríur sem geta haft var-
anleg áhrif á lýðheilsu? Ég er að
sjálfsögðu að tala um frumvarp land-
búnaðarráðherra um innflutning á
hráu kjöti.
Og hvernig stendur á því að við lát-
um heildsala komast upp með lög-
sóknir á hendur okkur, almenningi
og skattgreiðendum, til að brjóta
varnarmúra þjóðarinnar um við-
kvæma innlenda matvælaframleiðslu
sem vísindamenn hafa sýnt fram á að
er frírri af sjúkdómum og sýklalyfj-
um en nokkurs staðar á byggðu bóli?
Úrtölumennirnir eru margir.
Gamall krati skrifar að hér komi far-
fuglar sem skíti á túnum okkar án
þess að faraldur hljótist af, ekki
fremur en af öllum túristunum sem
til landsins koma. Og hafa menn ekki
komist klakklaust frá utanlands-
ferðum, er enn spurt. Það er reyndar
allur gangur á því en látum það liggja
á milli hluta.
Verra er að sjá í ritstjórn-
arskrifum í útbreiddum blöðum kall-
að eftir því að þetta eigi að snúast um
það eitt að virða lögmál viðskipta.
Stjórnmálamaður kemur fram í sjón-
varpi og segir frystireglur ekkert
annað en ómerkilega markaðs-
hindrun!
Ég leyfi mér að spyrja: Les þetta
fólk sér ekki til? Kynnir það sér ekki
niðurstöður vísindarannsókna? Eiga
þetta að heita varðstöðumenn al-
mennings?
Guðni Ágústsson, fyrrum landbún-
aðarráðherra, hitti naglann á höfuðið
í grein í Morgunblaðinu síðastliðinn
þriðjudag. Hann benti á að Íslend-
ingar hefðu illu
heilli reynt að
verjast ágangi
kaupmanna á
grundvelli mark-
aðsröksemda.
Samkvæmt EES-
samningnum, sem
verslunin reynir
að nýta sem sverð
sitt og skjöld,
væri hins vegar að
finna klásúlu um
að heilbrigðissjón-
armið stæðu ofar
þessum lögmálum
og á þeim grunni
ættum við að verj-
ast. Hið sama hef-
ur Jón Bjarnason
sagt, en einnig hann var landbún-
aðarráðherra sem kunnugt er.
Víðast hvar í heiminum reyna
menn nú að finna varnir gegn fjöl-
ónæmum bakteríum sem berast með
hráu kjöti. Læknavísindin standa
ráðþrota frammi fyrir vánni en reyna
að vinna sér tíma. Það eigum við líka
að gera þótt ekki væri til annars en
að fresta vandanum í þeirri von að
hann verði um síðir haminn.
Þótt farfuglar eigi viðdvöl á Íslandi
og ferðamenn og Íslendingar sjálfir
fari víða um lönd þá hljótum við að
gera það sem í okkar valdi stendur til
að verjast eins lengi og auðið er.
Hún er ágæt æðruleysisbænin
sem gengur út á að þótt menn eigi að
sætta sig við það sem þeir fái ekki
breytt þá skuli þeir ekki missa kjark-
inn til að gera þó það sem gerlegt er
til góðs.
Hvort skal meta meira
viðskipti eða heilbrigði?
’Verra er að sjá í rit-stjórnarskrifum í út-breiddum blöðum kallaðeftir því að þetta eigi að
snúast um það eitt að
virða lögmál viðskipta.
Stjórnmálamaður kemur
fram í sjónvarpi og segir
frystireglur ekkert annað
en ómerkilega markaðs-
hindrun! Ég leyfi mér að
spyrja: Les þetta fólk sér
ekki til? Kynnir það sér
ekki niðurstöður vísinda-
rannsókna?
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Morgunblaðið/Eggert
Sulturnar frá Nicolas Vahé
eru æðislegar á bolludagsbollurnar
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Dásamlegur þvottur
- einfalt, íslenskt
stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar fylgja.
Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn
í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Þvottavél 119.990 kr.
Þurrkari 144.990 kr.
VETTVANGUR
Eftir maraþon-
ræðuhöld fram á
nótt á Alþingi tísti
þingkonan Áslaug
Arna Sigur-
björnsdóttir:
Fimm sinnum í ræðum á þinginu
hefur verið notað orðið: „bache-
lor“. En í gær í fyrsta sinn ekki í
samhengi við námsgráðu heldur
sjónvarpsþátt sjónvarpsþáttanna.
Það er því ekkert annað í stöð-
unni en að fara núna og horfa á nýj-
asta þáttinn eftir 12 tíma stemningu
í þinginu.
Ármann Jakobsson, prófessor
og rithöfundur,
tísti: „Ég var
spurður í gær
hvernig ég hefði
tíma til að skrifa
allar þessar bækur.
Svarið er: Það er
út af öllum þessum matarboðum
sem þið bjóðið mér ekki í.“
Birta Björnsdóttir fréttakona
tísti um komandi
vandræði foreldra
á öskudaginn:
„Viku fyrir:
Ég: „Hvað viljið
þið að vera á ösku-
daginn?“
Börnin: ?
-Tveimur dögum fyrir:
Ég: „Hvað viljið þið að vera á
öskudaginn?“
Börnin: ?
-Kvöldið fyrir öskudag:
Börnin: „Ég ætla að vera grænn
einhyrningur á hjólaskautum með
regnbogaskikkju og gleraugu úr
nashyrningsbeini.““
Fjölmiðlaráðgjafinn Stein-
grímur Sævarr
Ólafsson tísti:
„Heyrði útvarps-
auglýsingu um eitt-
hvert bókhalds-
kerfi hvurs nafn
var svo langt að ég held að það eitt
og sér kalli á annað bókhaldskerfi.“
AF NETINU