Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019 Um sumt er heimurinn aðreyna að gerast skynsamari.Sem betur fer. Alla vega vit- um við sífellt meira um hvað er gott og uppbyggilegt og hvað brýtur nið- ur, bæði til líkama og sálar. Við vitum að gott er að hreyfa sig, forðast að gleypa mikinn sykur, alls ekki leggjast í spik, eyðileggja lung- un með reykingum og lifrina með óhóflegri áfengisneyslu og að mikið pilluát getur valdið hliðarverkunum. Með öðrum orðum, þá vitum við að mikilvægt er að hlúa að heilbrigði okkar og því meira sem við gerum af því þeim mun betri verða varnir okk- ar gegn sjúkdómum og vanlíðan. Í samræmi við þetta hafa sprottið upp líkamsræktarstöðvar, veitinga- staðir með heilnæmri fæðu, talað er um að fá landbúnaðarafurðir beint frá búi, helst allt lífrænt ræktað, næringarfræði hefur orðið vinsæl námsgrein og fræðingar á því sviði eftirsóttir ráðgefendur. Þeir útskýra hvernig mataræði hefur áhrif á líðan barnanna okkar. Til marks um allt þetta þá finnst okkur rétt að fjárveitingavaldið veiti heilbrigðisyfirvöldum stuðning til fyrirbyggjandi aðgerða. Við þykj- umst vita að með því móti tryggjum við best heilsuna og pyngjuna einnig. Þegar upp er staðið er nefnilega ódýrara að koma í veg fyrir sjúk- dóma en að grípa til aðgerða þegar skaðinn er orðinn. Það er kostn- aðarsamara og dregur þar að auki úr lífsgæðum, heilsunni hnignar og vellíðan að sama skapi. En ef þetta er nú allt svona aug- ljóst, hvernig stendur þá á því að það skuli yfirleitt vera til umræðu að opna fyrir inn- flutning á matvöru sem vitað er að geti verið varasöm til neyslu og það sem meira er, flutt með sér bakteríur sem geta haft var- anleg áhrif á lýðheilsu? Ég er að sjálfsögðu að tala um frumvarp land- búnaðarráðherra um innflutning á hráu kjöti. Og hvernig stendur á því að við lát- um heildsala komast upp með lög- sóknir á hendur okkur, almenningi og skattgreiðendum, til að brjóta varnarmúra þjóðarinnar um við- kvæma innlenda matvælaframleiðslu sem vísindamenn hafa sýnt fram á að er frírri af sjúkdómum og sýklalyfj- um en nokkurs staðar á byggðu bóli? Úrtölumennirnir eru margir. Gamall krati skrifar að hér komi far- fuglar sem skíti á túnum okkar án þess að faraldur hljótist af, ekki fremur en af öllum túristunum sem til landsins koma. Og hafa menn ekki komist klakklaust frá utanlands- ferðum, er enn spurt. Það er reyndar allur gangur á því en látum það liggja á milli hluta. Verra er að sjá í ritstjórn- arskrifum í útbreiddum blöðum kall- að eftir því að þetta eigi að snúast um það eitt að virða lögmál viðskipta. Stjórnmálamaður kemur fram í sjón- varpi og segir frystireglur ekkert annað en ómerkilega markaðs- hindrun! Ég leyfi mér að spyrja: Les þetta fólk sér ekki til? Kynnir það sér ekki niðurstöður vísindarannsókna? Eiga þetta að heita varðstöðumenn al- mennings? Guðni Ágústsson, fyrrum landbún- aðarráðherra, hitti naglann á höfuðið í grein í Morgunblaðinu síðastliðinn þriðjudag. Hann benti á að Íslend- ingar hefðu illu heilli reynt að verjast ágangi kaupmanna á grundvelli mark- aðsröksemda. Samkvæmt EES- samningnum, sem verslunin reynir að nýta sem sverð sitt og skjöld, væri hins vegar að finna klásúlu um að heilbrigðissjón- armið stæðu ofar þessum lögmálum og á þeim grunni ættum við að verj- ast. Hið sama hef- ur Jón Bjarnason sagt, en einnig hann var landbún- aðarráðherra sem kunnugt er. Víðast hvar í heiminum reyna menn nú að finna varnir gegn fjöl- ónæmum bakteríum sem berast með hráu kjöti. Læknavísindin standa ráðþrota frammi fyrir vánni en reyna að vinna sér tíma. Það eigum við líka að gera þótt ekki væri til annars en að fresta vandanum í þeirri von að hann verði um síðir haminn. Þótt farfuglar eigi viðdvöl á Íslandi og ferðamenn og Íslendingar sjálfir fari víða um lönd þá hljótum við að gera það sem í okkar valdi stendur til að verjast eins lengi og auðið er. Hún er ágæt æðruleysisbænin sem gengur út á að þótt menn eigi að sætta sig við það sem þeir fái ekki breytt þá skuli þeir ekki missa kjark- inn til að gera þó það sem gerlegt er til góðs. Hvort skal meta meira viðskipti eða heilbrigði? ’Verra er að sjá í rit-stjórnarskrifum í út-breiddum blöðum kallaðeftir því að þetta eigi að snúast um það eitt að virða lögmál viðskipta. Stjórnmálamaður kemur fram í sjónvarpi og segir frystireglur ekkert annað en ómerkilega markaðs- hindrun! Ég leyfi mér að spyrja: Les þetta fólk sér ekki til? Kynnir það sér ekki niðurstöður vísinda- rannsókna? Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Morgunblaðið/Eggert Sulturnar frá Nicolas Vahé eru æðislegar á bolludagsbollurnar Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Dásamlegur þvottur - einfalt, íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar fylgja. Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Þvottavél 119.990 kr. Þurrkari 144.990 kr. VETTVANGUR Eftir maraþon- ræðuhöld fram á nótt á Alþingi tísti þingkonan Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir: Fimm sinnum í ræðum á þinginu hefur verið notað orðið: „bache- lor“. En í gær í fyrsta sinn ekki í samhengi við námsgráðu heldur sjónvarpsþátt sjónvarpsþáttanna. Það er því ekkert annað í stöð- unni en að fara núna og horfa á nýj- asta þáttinn eftir 12 tíma stemningu í þinginu. Ármann Jakobsson, prófessor og rithöfundur, tísti: „Ég var spurður í gær hvernig ég hefði tíma til að skrifa allar þessar bækur. Svarið er: Það er út af öllum þessum matarboðum sem þið bjóðið mér ekki í.“ Birta Björnsdóttir fréttakona tísti um komandi vandræði foreldra á öskudaginn: „Viku fyrir: Ég: „Hvað viljið þið að vera á ösku- daginn?“ Börnin: ? -Tveimur dögum fyrir: Ég: „Hvað viljið þið að vera á öskudaginn?“ Börnin: ? -Kvöldið fyrir öskudag: Börnin: „Ég ætla að vera grænn einhyrningur á hjólaskautum með regnbogaskikkju og gleraugu úr nashyrningsbeini.““ Fjölmiðlaráðgjafinn Stein- grímur Sævarr Ólafsson tísti: „Heyrði útvarps- auglýsingu um eitt- hvert bókhalds- kerfi hvurs nafn var svo langt að ég held að það eitt og sér kalli á annað bókhaldskerfi.“ AF NETINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.