Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 18
Helga tók hlé mitt í löngu og ströngu námi og ákvað að láta einn gamlan draum rætast; að fara að læra að sauma, baka, elda og þrífa í Hústjórnarskólanum í Reykjavík. Morgunblaðið/Eggert Helga tekur á móti blaðamanni í and-dyri Landspítalans í Fossvogi ogarkar hratt á undan upp sex hæðir. Hún blæs ekki úr nös enda íþróttamanneskja, komin af miklu frjálsíþróttafólki og æfði bæði hástökk og 400 metra hlaup þegar hún var yngri. Blaðamaður hins vegar byrjar viðtalið aðeins andstuttur en nær sér fljótt á strik. Þessi 29 ára unglæknir hefur mörg áhugamál og mitt í löngu og ströngu námi ákvað hún að láta einn gamlan draum rætast; að fara að læra að sauma, baka, elda og þrífa í Hús- stjórnarskólanum í Reykjavík. Lét æskudrauminn rætast Helga var mikill námsmaður í grunnskóla og segir að læknisfræðin hafi svo heillað. „Mér hefur alltaf fundist gaman í skóla og haft breitt áhugasvið. Það sem heillaði mig við læknisfræðina var að mér finnst það vera sambland af vísindavinnu og því að vinna með fólki. Þetta er ákveðin list í bland við vísindi,“ segir Helga og útskýrir að dagarnir á spít- alanum séu ekki allir eins. „Yfirleitt mæti ég hálf átta og tek á móti sjúklingum sem eru að fara í aðgerð. Svo geng ég líka vaktir. Inn á milli tek ég vikutímabil á gjörgæslu. Það er mismikið að gera og oft mjög mikið. Og svo er auðvitað misjafnt hversu erfið tilfellin eru,“ segir Helga og segir hún þau vera vel undirbúin andlega undir erf- iðleika og dauðsföll. „Það er eitthvað sem maður lærir að takast á við.“ Hvað kom til að þú fórst í Hússtjórnarskól- ann? „Mig var búið að langa lengi að fara í Húsó. Það hefur verið draumur frá því að ég var krakki en hafði aldrei fundið tíma fyrir það. Ég var að hugsa um að fara beint eftir menntó en valdi frekar að fara í Lýðháskóla í Danmörku,“ segir hún og bætir við að í fyrra haust hafi verið kjörinn tími til að stíga út fyr- ir þægindarammann. Hún geymdi sumarfríið fram á haust og lengdi í því til að geta látið þennan gamla draum rætast en námið er ein önn. Fannst þér ekkert gamaldags að fara í svona skóla? „Mér finnst þetta mjög gagnlegt og ekkert minna núna og jafnvel meira en áður því þarna er kennd færni sem var inni á heimilum hér áður fyrr og hefur að mörgu leyti gleymst. Þarna er samansafn af þekkingu sem er ekki til á svo mörgum heimilum lengur,“ segir hún. „Amma hafði farið í svona skóla þegar hún var ung og svo þekkti ég eina sem fór í þenn- an skóla og þá uppgötvaði ég að þessi skóli væri enn til,“ segir Helga og segir að sér hafi alltaf þótt gaman að heimilisstörfum og bakstri sem lítil stúlka. „Ég var mikið að dunda mér að baka og svo var ég mikið í handavinnu. Pabbi er mjög flinkur að teikna og báðar ömmur mínar mikl- ar handavinnukonur, en mamma mín alls ekki,“ segir Helga og hlær. Fín handavinna í læknisfræðinni Helga segir fjölskyldu sína og samferðarfólk hafa tekið vel í þessa hugmynd og fannst mörgum þetta spennandi. Fólk spurði hana mikið hvað hún væri að læra og gera í skól- anum. Og hvað lærðir þú í skólanum? „Það var svo rosalega margt. Þetta var svo skemmtilegt. Það er kennd undirstaðan í öll- um handavinnugreinunum, þannig að maður getur bjargað sér í þeim öllum. Svo voru kennd undirstöðuatriði í vefnaði og fatasaumi. Það var líka stíft prógram í eldhúsinu og mað- ur vandist að elda fyrir marga og vera skipu- lagður. Það voru líka kennd þrif og það var mjög skemmtilegt að læra hvernig á að þrífa mismunandi hluti og gera sér auðveldara fyr- ir. Nokkuð sem maður hafði ekki hugsað út í fyrr. Áður gat maður bjargað sér en fór lík- lega miklu lengri leið. Nú hugsa ég hlutina öðruvísi og skipulegg mig betur,“ segir hún. Nú er Helga aftur komin til starfa á Land- spítalanum í Fossvogi og segist ekki hafa mik- inn tíma fyrir saumaskap. „Ég er líka að vinna í mastersritgerð minni sem ég skila í vor, samhliða vinnunni,“ segir hún en bætir við að hún sé duglegri að elda en áður en hún fór í námið. „Í skólanum var kennt að búa til gömlu góðu íslensku réttina; steikta ýsu í raspi, hvernig á að þykkja sósur og súpur og baka kleinur, formkökur og hjónabandssælu,“ segir hún. Hefðirðu ekki átt að fara út í lýtalækningar þar sem þú hefðir fengið að sauma meira? „Tja, það er líka fín handavinna í svæf- ingalækningum. Ég er oft að setja upp æða- leggi í grannar æðar eða setja miðlæga æða- leggi sem þarf að sauma í fólk.“ Aðspurð hvort hún telji að eitthvað úr Hús- stjórnarskólanum muni nýtast í læknisfræði svarar Helga: „Mér finnst mikilvægt að gera ekki bara eitthvað eitt í lífinu. Maður verður að hafa einhver áhugamál utan vinnu. Það er gott fyrir mann að sjá hlutina frá öðru sjón- arhorni og fara út fyrir þægindarammann. Maður kemur þá ferskari til baka með breiðari sjóndeildarhring.“ Kann að baka kleinur og setja upp æðalegg Helga saumaði þennan fallega kjól í náminu. Helga Þráinsdóttir er læknir í sérnámi í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Síðasta haust tók hún hlé frá lækningum og lagði stund á nám í Hússtjórnarskólanum. Hún segir þar kennda færni sem hefur gleymst í gegnum árin. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Mér finnst þetta mjög gagn-legt og ekkert minna núna ogjafnvel meira en áður því þarnaer kennd færni sem var inni á heimilum hér áður fyrr og hefur að mörgu leyti gleymst. KÚVENDING 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.