Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 27
3.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 Auðvelt er að komast í dags- siglingar frá eyjunni og um að gera að nýta sér að vera stadd- ur á eyju og geta hoppað í bát og skoðað fleiri grískar eyjar. Vinsælt er að sigla til Santor- ini en hún er 100 kílómetra norðan við Krít. Santorini er eldfjallaeyja, leif- ar af eldfjalli sem sprakk, og einstök í mikilfengleika sínum. Einn fallegasti staðurinn á eyj- unni er bærinn Oía, staðurinn sem margir þekkja af myndum og úr bíómyndum; með hvítu húsunum sem byggð eru inn í klettana, bláu þökunum, kirkj- unum og stórkostlegu útsýni. Annars eru mörg þorp á Santorini til að skoða og hvert með sinn sérstaka stíl. Höfuð- staðurinn, Fira, og borgin Mykonos eru líflegar, með verslunum og börum, og í Fira er hægt að fara með kláfi til að njóta útsýnisins. SANTORINI Sigldu annað Í þorpinu Ano Vovues, ekki svo fjarri Chania, er að finna ólífutré sem talið er það elsta í heiminum. Ómögulegt er að vita ná- kvæman aldur þess. Í það minnsta er það 2000 ára gamalt en vísindamenn á Krít halda því fram að það sé 4.000 ára gamalt þar sem fornir kirkjugarðar eru nærri trénu og eru þeir það gamlir. Enn þann dag í dag vaxa ólífur á trénu. Í litlu þorpi ólífutrésins er líka safn um ólífurækt Krít- verja og svo er einkar fal- legt að keyra um sveitirnar í kring svo það má gera ým- islegt fleira í ferðinni en skoða þetta merka tré. ANO VOUVES Elsta ólífutré heims Samaria-gljúfrið er í raun þjóðgarður og býður upp á náttúru sem er mjög ólík þeirri sem sést á hinum grískum eyjunum. Frá Chania er rúm- lega klukkutímakeyrsla að þjóðgarðinum en gljúfrið klýfur Hvítufjöllin, annan hæsta fjall- garð á Krít. Gangan getur verið nokkuð erfið á köflum, í bröttum hlutum og stundum er slóðinn mjög grýttur, en hvíldarstaðir dúkka með reglulegu millibili upp þar sem boðið er upp á vatn. Fyrir þá fótfráu er útsýnið og náttúran þess virði, með 2000 ára gömlum trjám víða, lindum, fossum, sjaldgæfum plöntum. Það tekur um sex til átta klukkustundir að fara í gegnum gljúfrið og á endastöð tekur við hafið og falleg strönd þar sem gott er að kæla sig. Í þessa ferð þarf að vera vel skóaður, með plástra og muna að gljúfrið er sannarlega ekki hættulaust og at- hyglin þarf að vera hundrað prósent í göng- unni. DAGSGANGA Í HRIKALEGRI FEGURÐ Samaria-gljúfrið Það er hagstætt að leigja bíla á Krít og þægilegt og gaman að keyra og heimsækja lítil þorp. Eitt af þeim fal- legri er þó ekki hægt að komast nærri nema með bát, sumir reyndar fara í göngu yfir fjöllin, en þetta er þorpið Loutro. Loutro er lítið fiskiþorp sem hefur nánast staðið í stað svo þarna fá ferðalangar í æð „gömlu, gömlu“ Krít þar sem þorpið virðist ekki hafa tekið breytingum í aldir og þess má ekki vænta að þjónusta við ferðamenn sé mikil. Þegar þangað er komið er um að gera að slaka á, njóta þess að virða fyrir sér útsýnið og mannlífið. LOUTRO Falinn demantur Settu þína ráðstefnu í Hörpu Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur Nánar á harpa.is/radstefnur VELDU ÚR MEÐ SÁL www.gilbert.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.