Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019
Þ
að fer ekki á milli mála að flugfélagið
WOW á í vök að verjast núna. Það
eru vond tíðindi en ekki alveg ný.
Margir hafa horft á ævintýralegan
vöxt félagsins með undrun og stolti í
senn og það hefur óneitanlega verið í
augum þeirra eins konar táknmynd fyrir frískleika,
hugmyndaauðgi og áræðni.
Þegar slær í baksegl hættir okkur til að horfa til
annarra atriða, sem eru spegilmynd þeirra sem nefnd
voru. Skort hafi eðlilega varfærni, áhættufælni þurfi
að vera í bland við djörfung og hikleysi og margt af
þessu tagi er tínt til.
En þær athugasemdir flokkast óneitanlega að
nokkru leyti undir handhæga eftiráspeki, sem allir
gera sig einhvern tíma seka um.
Ekki fer vel á því að bréfritari setji sig í stellingar
þess sem sé upplagðari en aðrir til að skipa sæti próf-
dómara í atvinnulífinu og nú í flugrekstri sérstaklega.
Öll hans verklega reynsla á því sviði er orðin 60 ára
gömul og stafar frá flugdrekarekstri á Klambratúni
sem endaði með brotlendingu.
En honum ætti þó að vera óhætt að minna á það,
sem aðrir óvitar þekkja einnig, að flugrekstur lýtur
sérstökum lögmálum eða kannski öllu heldur er iðu-
lega á skjön við viðurkennd lögmál í viðskiptarekstri.
Warren Buffet er sagður þriðji ríkasti maður í
heimi á eftir Jóakim frænda og einhverjum þriðja
manni sem bréfritari man ekki í augnablikinu hver
er.
Haft er fyrir satt að Buffet hafi orðið svona ríkur af
því að hann hafi svo mikið nef fyrir viðskiptum.
Leiðtogar alþjóðlegrar jafnaðarstefnu hafa ekki
enn krafist þess að þeir sem hafa slík nef framan í
andlitinu á sér skuli settir í lýtaaðgerðir, niðurgreidd-
ar af hinu opinbera, svo að þeirra nef taki ekki öðrum
nösum fram eftir það.
Það er þó óþarfi að naggast út í kratahugsuði fyrir
að hafa ekki í önnum sínum komið þeirri kröfu á for-
gangslista. Þeir eru jú upp fyrir haus í öðrum hug-
myndum sem eru ekki síður vitlausar en þessi og því
nokkur vorkunn.
Aðeins vængstýfð félög
En Buffet, sem er 88 ára gamall og því með augljóst
forskot á unglinga í greininni, var lengi með við-
skiptalega fordóma gegn öllum flugrekstri. Jafnvel
með sjúklegt ofnæmi fyrir honum.
Buffet sagði að finna mætti afsökun fyrir því að
festa fé sitt í nánast hvaða rekstri sem væri, en þó
aldrei í flugrekstri. Warren Buffet undirstrikaði óbeit
Heimilisbölin
eru verst
’
Þegar skæruverkföll, sem augljóslega
stangast á við lagaumhverfið svo ekki sé
talað um anda þess, bætast svo við geta vart
verið verri skilyrði til þess að bjarga megi
flugfélagi og þúsund starfsmönnum þess og
enn fleiri tengdum og afleiddum störfum.
Þessi heimatilbúningur skellur nú eins og
vondur vellingur í andlit þeirra sem í varn-
arbaráttunni standa.
Reykjavíkurbréf01.03.19