Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Qupperneq 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Qupperneq 31
sína á flugrekstri sem fjárfestingarkosti þegar hann tók þátt í umræðu um dauðadóma, sem er vinsæl þræta vestra. Buffet sagðist eindregið á móti því að opinberir starfsmenn hefðu heimildir til að dæma menn til dauða. Hann sagðist þó gera þá undantekn- ingu að hann teldi ekki útilokað að það hefði mátt réttlæta dauðadóma yfir Wright-bræðrum sem fyrir- byggjandi aðgerð! Það voru jú þeir bræður sem eru taldir upphafsmenn flugstarfseminnar, sem fuglar himinsins og englar Paradísar höfðu einokað fram að því. Óþarft er að taka þetta kersknital Buffets of alvar- lega enda voru þeir bræður prýðismenn, gáfaðir og hæfileikaríkir. Ofmenntun skólakerfisins þjakaði ekki þá bræður. Corville Wright lét þrjú ár í gagn- fræðaskóla duga, en bróðir hans Wilbur Wright var menntatröllið í fjölskyldunni eftir 4 ár í gaggó. Þeir bræður hefðu sjálfsagt getað sagt eitthvað svipað og Ronald Reagan sem útskrifaðist 21 árs með gráðu í hagfræði og félagsfræði úr Eureka-mennta-/ háskólanum: „Ef mér hefði lánast að fara í merkari skóla en Eureka hefði hugsanlega eitthvað getað orð- ið úr mér,“ sagði forsetinn. Tekur flugið En við þessa viðskiptalegu fordóma Buffets ríka bættist svo flughræðsla hans, því að hann var lengi vel ófáanlegur til að stíga upp í flugvél, því hann ótt- aðist að sömu lögmál giltu um flugið og hlutabréf fyrirtækjanna um það að allt gæti tekið fyrirvara- lausar dýfur og jafnvel fallið í grýtta jörð þegar minnst varði. Á seinni árum lætur hann þó til leiðast að fara í flugvél á milli staða enda minnkandi líkur á því að hann muni ungur týna lífi í flugslysi. En allt er þetta hjal augljósir órar og útúrdúrar frá því sem opnað var á í upphafi. Sannarlega hljóta menn að vonast til að Mogensen og menn hans (bæði kynin talin) komist í gegnum þennan mótvind þótt bál sé. En það auðveldar svo sannarlega ekki þann leik að lukkuriddarar hafi á versta tíma náð því að gerast laumufarþegar í verkalýðshreyfingunni og hika ekki við að beita aðferðum sem eru handan við þekkt og viðurkennd mörk. Mörg þúsund félagsmenn „fá“ nú að greiða atkvæði í sendibíl, undir vökulu auga verkfallsboðenda, um að senda 700 útlendinga í skæruverkföll gegn ungri grein á vinnumarkaði. Þegar mest liggur við Það var sveigjanleiki og viðbragðshraði sjálfstæðrar myntar sem lagði grunn að ferðaiðnaðinum sem burð- aratvinnugrein hér eftir fall bankanna og annars sem kjölsog þess tók. Ferðaiðnaðurinn er ekki með gróinn grundvöll til áratuga eins og er raunin í mörgum löndum sem við erum tekin að keppa við, og eru þess vegna ekki eins varnarlaus og við fyrir óvæntum sveiflum, svo ekki sé talað um heimatilbúna eyðileggingarherferð. Það er vart hægt að hugsa sér harðdrægari skilyrði til þess að bjarga ungu framsæknu flugfélagi fyrir horn en nú eru til þess þegar fallexi hangir yfir slíkum rekstri. Og þá er ekki aðeins verið að tala um hinn stórskaðlega skæruhernað sem boðaður hefur verið, sem óneitanlega minnir meir á skemmdarverk gagn- vart þjóðfélaginu í heild en á venjulega vinnudeilu síð- ari áratuga. Aðdragandinn einn og þær hótanir sem þá lágu í loftinu eitruðu svo allt andrúmsloft að mjög hefur dregið úr vilja og getu fyrirtækja á fjölmörgum svið- um og veltan á markaði minnir helst á snigil sem hörf- ar inn í kuðung sinn í nauðvörn. Fólkið í landinu fælist frá fjárfestingum, stórum og smáum með tilheyrandi afleiðingum. Ekki er til það verkalýðsfélag í heiminum sem skapað hefur ný störf fyrir almenning og er ekki gerð krafa til þess. En þeg- ar starfaeyðir er komin efst á verkefnalista slíkra fé- laga þá er illa komið. Þegar skæruverkföll, sem augljóslega stangast á við lagaumhverfið svo ekki sé talað um anda þess, bætast svo við geta vart verið verri skilyrði til þess að bjarga megi flugfélagi og þúsund starfsmönnum þess og enn fleiri tengdum og afleiddum störfum. Þessi heimatilbúningur skellur nú eins og vondur vellingur í andlit þeirra sem í varnarbaráttunni standa. Kerfisbreytingar blasa við Fá lönd í heiminum eru eins bundin í hagldir laun- þegahreyfinga og enn er reyndin hér á landi. Í raun eru það Samtök atvinnulífsins sem hafa rekið þau trippi fyrir viðsemjendur sína. Það hefur orkað tví- mælis lengi, svo ekki sé meira sagt. En forsenda þess hefur verið sú að verkalýðshreyfingin misnoti ekki afl sitt og stöðu í þjóðfélaginu og sverfi svo að fyrir- tækjunum að þeim verði ómögulegt að halda rekstri sínum gangandi í óbreyttri mynd. Þegar svo er komið er verkalýðshreyfingin farin að gjalda sjálfri sér högg- in en þó fyrst og síðast félagsmönnunum sem fæstir kusu þessa „leiðtoga.“ Lengi mun svíða í þau sár. Ekki kæmi á óvart þó að þá mundi myndast þrýst- ingur frá almenningi í landinu um að hann yrði ekki lengur skilinn eftir varnarlaus gagnvart þeim sem ábyrgðarlausir og umboðslitlir grafa undan tilveru hans, með markmið í öndvegi sem ekkert hafa að gera með ábatasama tilveru félagsmanna sem eru þving- aðir í þessi félög. Fyrir löngu er orðið tímabært að nútímavæða þessa skipan mála eins og aðra þætti þjóðfélagsins. Morgunblaðið/Hari 3.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.