Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Page 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Page 34
Þær hafa aldrei á ævinni fengið verð-launagrip. Hvorug. Fyrr en núna. Ogþá ekki fyrir eigin afrek heldur ann- arra, aðallega í íþróttum. Vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir fengu þá hugmynd að vinna verkefni með verðlaunagripi í öndvegi þeg- ar þær á haustdögum voru að vafra um í Góða hirðinum og ráku augun í nokkra slíka. Þær eru hönnunartvíeykið á bak við Fléttu, útskrifaðar frá Listaháskóla Íslands 2016 og 2017 og þeim dettur oft ýmislegt skrýtið í hug. „Við höfum flutt vinnustofuna okkar tíma- bundið í Gryfjuna í Ásmundarsal, þar sem við vinnum að þessu nýjasta verkefni okkar, Trophy, fyrir allra safngesta augum og spjöllum við þá í leiðinni ef svo ber undir. Verkefnið snýst um að „afbyggja“ verð- launagripi og setja þá í nýtt samhengi með því að skapa úr þeim annars konar hluti, oftast skúlptúra. Við höfum þó líka búið til nytjahluti eins og borð, lampa og fleira,“ segir Hrefna. Að þessu sögðu tekur hún fram að hug- myndin sé þó ekki fyrst og fremst að endurnýta hlutina til þess að koma í veg fyrir sóun. Svo margir verðlaunagripir séu enda ekki á hillunum í Góða hirðinum eða á glámbekk hér og þar að umhverfinu stafi ógn af. „Við erum ekki að boða eitt né neitt. Ef markmiðið hefði verið að leysa vandamál til þess að bjarga heiminum hefðum við val- ið okkur annars konar verkefni. Þetta verk- efni sprettur af áhuga á hlutunum sjálfum, sögunni sem býr að baki, hráefnunum og því sem gerist þegar þeir eru settir í nýtt samhengi,“ útskýrir Hrefna. Topplyklar og hendurnar „Sem vöruhönnuðir byrjuðum við einfald- lega að pæla í efniviðnum, sem er yfirleitt marmari, plast og málmur í þessum bikurum. Okkur finnst þau hvert um sig áhugaverð hráefni en kannski sér- staklega hvernig þau eru notuð sam- an. Við hófumst handa við að skrúfa gripina í sundur og setja hlutana síðan saman með öðrum hætti og okkar lagi þannig að úr varð nýr gripur. Við notum oftast einingar úr mörgum gripum í einn hlut, til dæmis í lítið sófaborð, sem við settum síðan glerplötu ofan á. Einu verk- færi okkar eru topplyklar og svo hend- urnar,“ segja þær um verklagið og hráefn- ið. Um liðna helgi efndu þær til viðburð- arins Samtal um sigra og verðlaunaaf- hending í Ásmundarsal. Tilgangurinn var að bjóða sigurvegurum að koma í heim- sókn til þess að deila sögum af af- rekum sínum eða leggja til verk- efnisins verðlaunabikara svo þeir mættu öðlast nýtt líf. Heimtur voru góðar. Minningar um gleði og sigra Hugmyndafræðilegur þáttur verkefnisins hverfist að sögn þeirra Birtu Rósar og Hrefnu um spurningar á borð við hvað það sé við hluti og/eða hönnun sem laði fólk að þeim. Efnið eða formið? Hvernig tengist fólk hlutum, hvaða hluti vill það hafa í kringum sig og hvers vegna? Í framhaldi af þessum pælingum segja þær að vel megi spyrja sig hvaða hlutir, sem við erum með í stofunni heima hjá okk- ur, séu verðlaunagripir í ein- hverjum skilningi þegar öllu er á botninn hvolft. „Þótt okkur hafi ekki áskotnast neinar Eddu- eða Grímustyttur, heldur mest- megnis verðlaunabikarar, sem margir hverjir söfn- uðu bara ryki hjá íþróttafélögunum eða heima hjá fólki, vekja þeir ákveðnar tilfinn- ingar. Verðlauna- gripir eru ein- staklega áhugaverðir hlutir. Þeir eru vitn- isburður um afrek og ár- angur og minningar um stóru stundirnar, gleði og sigra í lífinu. Að baki þeim er saga um ótal vinnustundir og þrotlausar æfingar,“ seg- ir Hrefna og bætir við að gripirnir séu táknrænir frekar en að hægt sé að meta þá til fjár. Afraksturinn á Hönnunarmars Allar þessar tilfinningar skoða þær stöllur í umbreytingarferlinu þar sem þær bogra yfir verkunum með sínum fábreyttu verk- færum í Gryfjunni. Þær viðurkenna for- dóma með því að gera svolítinn greinarmun á verðlaunagripunum. Í þeirra augum eru þeir nefnilega ekki allir jafnir. „Við notum bara bikara sem hafa verið notaðir sem verðlaun og lyft í sigurvímu,“ segja þær. Hrefna og Birta Rós stofnuðu Fléttu fyr- ir rúmu ári, en hafa um fimm ára skeið unnið saman að ýmsum fjölbreyttum verk- efnum. Í fyrra sýndu þær á Hönnunarmars kertastjaka úr leir, sem þær mótuðu á einni mínútu, og teppi búið til úr gallabuxum sem þær fengu í Rauða krossinum og ætla að sýna aftur í Norr11 á Hönnunarmars 2019, sem haldinn verður dagana 28.-31. mars. Annars verður afraksturinn af vinnunni með verðlaunagripina helsta skrautfjöðrin á þeim vettvangi og eins og nú til sýnis í Gryfjunni í Ásmundarsal. Vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynj- ólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir hafa loksins fengið verðlaunagripi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verðlaun fá nýtt líf í annarri mynd Sófaborð samansett úr mörgum verðlauna- gripum að viðbættri hringlaga glerplötu. Eru hlutirnir sem við erum með í stofunni heima hjá okkur verðlaunagripir í einhverjum skilningi? Vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir í Fléttu safna gömlum verðlaunabikurum og setja í nýtt samhengi. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is ’Verðlaunagripir eru ein-staklega áhugaverðir hlut-ir. Þeir eru vitnisburður um af-rek og árangur og minningar um stóru stundirnar, gleði og sigra í lífinu. Að baki þeim er saga um ótal vinnustundir og þrotlausar æfingar. 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019 LESBÓK

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.