Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.3. 2019
LESBÓK
ÚTHALD Söngkonan Joan Baez segir aldurinn ekki
lengur trufla sig en hún er orðin 78 ára og á kveðjutúr
um heiminn. „Fyrir um tveimur árum hugsaði ég með
mér: Guð minn góður, ég fer að verða áttræð. Það varð
til þess að ég gekk um gólf heima segjandi við sjálfa mig
í um mánuð: Ég fer að verða áttræð. En í dag skiptir
þetta mig engu máli,“ segir Baez í viðtali við breska
blaðið The Guardian. Hún viðurkennir að samhengið
skipti máli en móðir hennar heitin náði hundrað ára
aldri og faðir hennar lést þegar hann var 94 ára – þétt-
hærður og fulltenntur. „Ég á ennþá langt í land [að ná
þeim],“ segir söngkonan sem fer vel með sig, stundar
Gokhale-æfingar, jóga, pílates og hugleiðslu enda þótt
henni hafi alltaf þótt það síðastnefnda frekar leiðinlegt.
Baez ber aldurinn vel
Joan Baez á
yngri árum.
Ljósmynd/Ron Kroon
MÁLMUR Duff McKagan, bassaleikari Guns
N’ Roses, gaf vangaveltum þess efnis að hið
goðsagnakenna band komi til með að hlaða í
nýja breiðskífu í framtíðinni byr undir báða
vængi í samtali við rokkútvarpið SiriusXM í
Bandaríkjunum á dögunum. „Ég hef heyrt
magnað stöff sem Axl hefur verið að vinna
að. Þannig að ég er mjög spenntur fyrir þess-
um möguleika án þess að vilja skrúfa vænt-
ingarnar upp úr öllu valdi. Þetta mun gerast
þegar það gerist,“ sagði hann um nýja plötu.
McKagan ræddi einnig um heimstúrinn, sem
skilaði GNR m.a. upp á Íslandsstrendur, og
kvaðst óendanlega þakklátur fyrir viðtökur.
Ný plata kemur þegar hún kemur
Slash og Axl í essinu sínu á Laugardalsvelli.
Morgunblaðið/Valli
Frá tökum á Ófærð 2 á síðasta ári.
Meiri Ófærð
RÚV Enda þótt önnur sería Ófærð-
ar sé búin er hún samt ekki búin,
því á sunnudagskvöldið verður
sýndur heimildarþátturinn Ófærð –
á bak við tjöldin. Tíu þátta fram-
haldssería er ekki hrist fram úr
erminni og ófá handtökin á bak við
efnið sem á endanum rataði á skjái
landsmanna. Í heimildarþættinum
er skyggnst bak við tjöldin og rætt
við aðstandendur. Þjóðin fær því
mögulega að sjá hann Ásgeir sinn
einu sinni enn. Sprelllifandi.
SJÓNVARP SÍM-
ANS Aðdáendur
bandarísku sjón-
varpsþáttanna
This Is Us og Law
and Order: Special
Victims Unit kom-
ust margir hverjir
í uppnám um liðna
helgi þegar þátt-
unum var fyrir-
varalaust og án skýringa kippt af
sunnudagsdagskránni. Þeir hinir
sömu geta nú tekið gleði sína á ný
enda eru báðir þættir komnir á ný á
dagskrá þessa helgina. Stöðin lætur
ekki þar við sitja því spennu-
þátturinn The Truth About the
Harry Quebert Affair er á sínum
stað, auk þess sem harðjaxlinn Ray
Donovan er kominn á kreik á ný.
Uppnámi afstýrt
Mariska Har-
gitay í SVU.
STÖÐ 2 Viltu í alvöru deyja? kall-
ast þáttaröð úr smiðju Lóu Pind
sem hefur göngu sína á sunnudags-
kvöldið. Þar ræðir Lóa við foreldra,
systkini, maka og börn þeirra sem
hafa svipt sig lífi. Einnig kynnumst
við ungri konu sem var í sjálfsvígs-
hættu fyrir fáeinum mánuðum.
Tugir Íslendinga svipta sig lífi á
hverju ári. Dýrmætt líf tapast og
eftir sitja sorgmæddir ástvinir.
Lóa Pind stjórnar þættinum.
Viltu deyja?
Ég held að það sé mikil spennafyrir kvöldinu, standardinn íkeppninni er mjög hár og öll
lögin fimm í raun þess verðug að
vera fulltrúi Íslands í Eurovision-
keppninni í Tel Aviv í vor,“ segir
Sigurður Þorri Gunnarsson, dag-
skrárstjóri útvarpsstöðvarinnar
K100, spurður hvaða tilfinningu
hann hafi fyrir úrslitum Söngva-
keppninnar í Laugardalshöllinni í
kvöld, laugardagskvöld.
„Til að byrja með heyrðust þessar
klassísku úrtöluraddir um að lögin í
keppninni í ár væru ekki nógu góð
en núna þegar á hólminn er komið
stöndum við eftir með fimm mjög
góð lög. Keppnin er að mínu mati
mun sterkari en í fyrra og með því
sterkasta í mörg ár. Breiddin er til
dæmis meiri en oftast áður; reynt
fólk í bland við ungt og bráðefnilegt
og atriðin mjög ólík innbyrðis. Allt
getur gerst,“ segir hann.
Hatari gegn Friðriki Ómari
Sigurður segir óvenju erfitt að segja
fyrir um sigurvegara. „Það hefur
verið mikil stemning í þjóðfélaginu
fyrir Hatara og umræðan aðallega
snúist um það hver verði með þeim í
einvíginu í lokin.“
– Og hver verður það?
„Mér finnst líklegast að það verði
Friðrik Ómar. Hann er reynslumik-
ill fagmaður og lagið hans er bæði
frambærilegt hér heima og fyrir
keppnina úti. Hann ætlar að syngja
á íslensku sem gefur laginu sérstöðu
innan um allar ballöðurnar sem
verða í keppninni í ár. Það hefur áð-
ur gefist vel að syngja ballöðu á ís-
lensku; skemmst er að minnast Ey-
þórs Inga sem flaug upp úr for-
keppninni á sínum tíma. Maður
finnur líka að þetta lag skiptir höf-
undinn miklu máli; textinn er per-
sónulegur og Friðrik fer alltaf alla
leið, hvort sem hann er að syngja
sjálfur eða setja upp sýningu í
Hörpu eða á Fiskideginum mikla.
Hann er orðinn Herra „sjóvbiss“ Ís-
lands. Friðrik mun koma með
sprengju í Höllinni og gaman yrði að
sjá hann þróa atriðið áfram í Euro-
vision-keppninni.“
Framkoman verið spes
Sigurði þykir lag Hatara einnig
mjög gott; atriðið sjónrænt og flutn-
ingur góður, ekki síst hjá forsöngv-
urunum. „Þeir eru báðir mjög góðir
og barkasöngvarinn á hæsta getu-
stigi.“
Fyrir liggi þó að þjóðin tæki meiri
áhættu með að velja Hatara en Frið-
rik Ómar. „Fram-
koma þeirra í við-
tölum hefur verið
spes og þeim tekist
að strjúka ein-
hverjum á röng-
unni. Það er
ákveðin
áhætta fólg-
in í því að
fara með
svona „leik-
ið“ atriði út
sem er
pródúserað
langt út
fyrir sviðið;
við munum
hvernig fór
fyrir Sylvíu
Nótt á sínum
tíma. Hættan
er sú að Hatari
fari yfir strikið
úti og floppi. Mín
tilfinning er raunar sú
að fari Hatari út verði
lagið annaðhvort í topp
fimm eða algjörlega á
botninum. Þetta er
ekki þrettánda-sætis-
lag.“
Enda þótt hann
Friðrik Ómar: Hvað ef ég get ekki elskað?
Styr hefur staðið um þátt-
töku Íslands í Eurovision
að þessu sinni vegna
meintra mannréttinda-
brota Ísraelsstjórnar.
Sigurði þykir óheppi-
legt að keppnin fari
fram þar um slóðir en
er þó ósammála því að
sniðganga eigi hana; betra
sé að mæta til leiks og nota
tækifærið til að láta gott af
sér leiða. „Annars er Euro-
vision auðvitað ekki pólitísk-
ur viðburður og öllum ráð-
um beitt til að halda pólitík
fyrir utan keppnina,“ segir
hann. Þó hafi það ekki alltaf
tekist; eins og þegar Úkra-
ínumenn meinuðu þátttak-
anda Rússlands að vera með
um árið. „Eurovision var
stofnuð á sínum tíma til að
hjálpa til við að stuðla að
friði í Evrópu. Gleymum ekki
því markmiði og verum með
í gleðinni.“
Verum með
í gleðinni
Sigurður Þorri
Gunnarsson
Öryggið sett
á oddinn
Úrslitin ráðast í Söngvakeppninni í Laugar-
dalshöllinni í kvöld, laugardagskvöld. Fimm
lög berjast um að verja heiður Íslands í sjálfri
Eurovision-keppninni í Tel Aviv í vor og
þykja öll eiga möguleika á sigri.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Hera Björk: Moving On.
Hatari: Hatrið mun sigra.
Ljósmyndir/Mummi Lú