Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.03.2019, Qupperneq 37
búist við einvígi Friðriks Ómars og
Hatara útilokar Sigurður alls ekki
hin lögin þrjú. „Ég held til dæmis að
Kristína Bærendsen hafi burði til að
koma úr launsátri. Hún er „wild car-
dið“ að þessu sinni og á að mínum
dómi mikið inni. Hún syngur á
ensku núna, sem hentar henni bet-
ur, og hefur sagt að hún muni gjör-
breyta atriðinu. Þetta hafi ekki verið
hún síðast. Lagið hefur líka fengið
mikla spilun í útvarpi og er með
vindinn í bakið.“
Sigurður er hrifinn af bæði Heru
Björk og Töru Mobee en telur
möguleika þeirra á sigri heldur
minni en hinna. „Hera er Hera; fag-
maður fram í fingurgóma og frábær
söngkona. Ég held hins vegar að
þetta sé ekki lagið að þessu sinni.
Það er þó klárt mál að hún myndi
standa sig vel ytra.“
Engin leið að „velja rangt“
Töru segir hann hafa stimplað sig
hressilega inn í íslenskt tónlistarlíf
með þátttöku sinni í keppninni í ár
og lagið hennar hafi alla burði til að
lifa vel og lengi – enda þótt það fari
ekki með sigur af hólmi. „Tara á eft-
ir að gera frábæra hluti í framtíð-
inni.“
Þegar þrýst er á Sigurð að upp-
lýsa hvaða lag hann telji líklegast
til að fara með sigur af hólmi svar-
ar hann: „Sjaldan hefur verið
erfiðara að spá um úrslit en þekki
ég þjóðina rétt verður það Friðrik
Ómar. Hann verður sterkur hjá
dómnefndinni og á eftir að sigla
þessu heim af fagmennsku og ör-
yggi. Þjóðin mun setja öryggið á
oddinn.“
Að áliti Sigurðar er þó engin
leið að „velja rangt“ eða verða fyr-
ir vonbrigðum að þessu sinni enda
eigi öll lögin erindi til Ísraels.
„Það er ekkert uppfyllingarefni í
þessari keppni, sem gerir hana
óvenju skemmtilega og spenn-
andi.“
Spurður hvar hann komi til með
að horfa á keppnina sjálfur færist
bros yfir varir Sigurðar. „Ég er
rosalega leiðinlegur í sambandi
við þessa keppni; það mega bara
vera vel valdir í kringum mig og
þá með því skilyrði að þeir tali
ekki á meðan. Ég þarf gott næði
enda skrifa ég mikið hjá mér með-
an á keppninni stendur. Ég hef
farið út á keppnina sem blaðamað-
ur og það var virkilega gaman en
best þykir mér samt að vera heima
í stofu með snakkið og voga-
ídýfuna.“
Kristína Bærendsen: Mama Said.
Tara Mobee: Fighting For Love.
MÁLMUR Lzzy Hale, söngkona bandaríska málmbandsins
Halestorm, upplýsir í viðtali við ástralska tímaritið Keen Eye
4 Concerts að hún hafi aldrei tekið bílpróf. Hale, sem er 35
ára, kveðst í tvígang hafa fengið æfingaleyfi en aldrei látið
vaða í prófið sjálft. Hún kann enga sérstaka skýringu á
þessu; verkefnið hafi bara færst neðar og neðar á for-
gangslistanum eftir því sem árin líða. „Þannig að lagið
sem ég samdi, Don’t Know How To Stop, fjallar því
meira um feril minn en bifreiðar,“ segir hún létt í
bragði. Einn augljós kostur er þó við prófleysið, að
sögn Hale: Hún þarf ekki að skutla vinum og vanda-
mönnum heim af djamminu þegar þeir hafa fengið
sér í tána. „Því miður segi ég þá bara; ég er ekki með
bílpróf og get ekki skutlað þér!“
Skutlar engum heim
Lzzy Hale í
banastuði. AFP
3.3. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
ROKK Ekki féll á hina fornfrægu bresku
rokkhljómsveit Queen á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni um liðna helgi. Kvikmyndin um sögu
sveitarinnar, Bohemian Rhapsody, gerði vel
og bandið hóf dagskrána með trukki og dýfu.
Ekki nóg með það, sjónvarpsstöðin ABC mun
í apríl frumsýna nýja heimildarmynd um
seinasta áratuginn í lífi Queen með áherslu á
nýja söngvarann, Adam Lambert, sem
Queen-liðar hittu fyrst í hæfileikaþættinum
American Idol. Myndin heitir einfaldlega:
The Show Must Go On: The Queen + Adam
Lambert Story. Þá heldur Queen í tónleika-
ferð í sumar og eru miðar þegar uppseldir.
Gömlu brýnin á Queenandi siglingu
Brian May og Adam Lambert á Óskarnum.
AFP
Það var „déjà vu“ hjá leikkonunum Glenn Close
og Amy Adams þegar þær héldu heim af Ósk-
arsverðlaunahátíðinni um síðustu helgi – tóm-
hentar. Close hefur nú verið tilnefnd sjö sinnum
án þess að vinna styttuna eftirsóttu og Adams sex
sinnum. Aðeins einn maður stendur raunar Close
„framar“ á þessum ágæta lista, Peter O’Toole var
tilnefndur átta sinnum til Óskarsverðlauna án
þess að hreppa hnossið. Hann vann ekki einu sinni
fyrir Arabíu-Lárens. Close deilir nú silfrinu með
öðrum stórleikara af gamla skólanum, Richard
Burton. Hann þótti líklegur fyrir bæði The
Spy Who Came in from the Cold og
Who’s Afraid of Virginia Woolf? en
greip í tómt í bæði skiptin.
Deborah Kerr, sem var upp á sitt
besta um miðja síðustu öld, var til-
nefnd sex sinnum án þess að vinna og
sama máli gegnir um skapgerð-
arleikkonuna Thelmu Ritter. Þær eru
báðar látnar, líkt og O’Toole og Bur-
ton, þannig að Close og Adams
tróna á toppnum þegar horft er
til núlifandi leikara sem Óskarinn
hefur ítrekað dregið til sín en
kastað jafnharðan frá sér aftur.
Flestir spáðu því að bið Close væri loks á enda
að þessu sinni en Olivia Colman smeygði sér
fram fyrir hana á lokametrunum – og skamm-
aðist sín hálfpartinn fyrir það. Á níunda ára-
tugnum náði Close þeim ótrúlega árangri
að vera tilnefnd fimm sinnum á sjö árum,
meðal annars fyrir tálkvendið ógurlega
Alex Forrest í spennutryllinum Fatal Att-
raction.
Close er orðin 71 árs og tækifærum
til að fá Óskarinn fer nú mögulega
fækkandi. Amy Adams er á hinn
bóginn aðeins 44 ára og heldur
væntanlega í vonina. Svo gæti
hún auðvitað átt eftir að
renna sér upp fyrir O’Toole.
Glenn Close á rauða dreglinum um liðna helgi. Hún bar
sig vel þrátt fyrir augljós vonbrigði með niðurstöðuna.
AFP
SEINHEPPNIR LEIKARAR
Óskar ekki
nærverunnar
Peter
O’Toole.
Arun Nevader/WireImage.com