Morgunblaðið - 08.04.2019, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 08.04.2019, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is Ársfundur 2019 1. Fundur settur 2. Skýrsla stjórnar 3. Gerð grein fyrir ársreikningi 4. Tryggingafræðileg úttekt 5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt 6. Önnur mál Ársfundur SL lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 8. apríl 2019 kl. 16.30, að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík. Allir sjóðfélagar, jafnt greiðandi sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn. DAGSKRÁ Reykjavík 19. 03. 2019 Stjórn SL lífeyrissjóðs Framkvæmdir eru hafnar við byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi. Þar verða sýningar, skrifstofur og önnur aðstaða Þjóð- garðsins Snæfellsjökuls og er þess vænst að húsið, sem verður 720 fermetrar að flatarmáli, sé komið í gagnið eftir tvö til þrjú ár, að sögn Jóns Björnssonar þjóðgarðs- varðar. Grunnur og plata að hús- inu eiga að vera tilbúin í júní næstkomandi og þá verður byrjað að reisa sjálft húsið og burðarvirki þess. Þá er fólk búið að setja fram drög að sýningunni í gestastof- unni, hvar verður meðal annars sagt frá þeim sögnum og kynngi- kröftum sem á svæðinu eru. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra var á svæðinu fyrir helgi og kynnti sér aðstæður. Þar var einnig Sigrún Magnús- dóttir, fyrrverandi umhverfis- ráðherra, en í embættistíð sinni fyrir nokkrum árum tók hún fyrstu skóflustunguna að mann- virki þessu. Kostnaðaráætlun vegna byggingar þjóðgarðs- miðstöðvarinnar hljóðar upp á 582 milljónir króna Við þetta er því að bæta að á dögunum var alls 230 milljónum króna úthlutað til ýmissa verkefna í þjóðgarðinum, sem unnin verða á næstu þremur árum. Má þar nefna gerð útsýnispalla, salernis- aðstöðu, bílastæða og göngustíga – við Arnarstapa, Malarrif, Djúpa- lónssand og á Öndverðarnesi en fjöldi ferðamanna kemur á þessa staði og er aðsóknin alltaf að aukast. sbs@mbl.is Ljósmynd/Jón Björnsson Upphaf Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra við skurðgröfu þegar framkvæmdir við þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi hófust fyrir helgi. Framkvæmdir í þjóðgarði  Gestastofa og göngustígar  Fjölsóttir ferðamannastaðir Þrjár milljónir kostar á dag að hafa frítt í Strætó, að sögn Guðmundar Heiðars Helgasonar, upplýsingafull- trúa Strætó, en í dag munu íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta nýtt sér frían dagsmiða í Strætóappinu vegna vísbendinga um svifryks- mengun. Ákvörðunin er tekin ein- hliða af Strætó, en ekki hefur verið mótaður ferill eða skipulag þannig að ávallt verði frítt í Strætó þegar ógn stendur af svifryki í borginni. Spurður hvort Strætó búist við mikilli fjölgun farþega í dag kveðst Guðmundur vonast til fjölgunar. „Við verðum með einhverja í flot- anum á bakvakt. Ef það verður mik- ið álag á ákveðnum leiðum getum við þá sent aukabíla. Það hefur oft reynst vel. Við erum að gera þetta í fyrsta sinn og vitum í raun ekki hverju búast má við,“ segir hann. Verða að nota Strætóappið Borið hefur á gagnrýni vegna þess fyrirkomulags Strætó að þeir sem vilji taka strætó frítt á gráum dögum þurfi að ná í Strætóappið og virkja inni í því frímiða sem gildir út dag- inn. „Fólk hefur spurt hvort það sé ekki einfaldara að hafa bara frítt fyr- ir alla. Ástæðan fyrir því að við ger- um þetta svona er að við viljum geta mælt það vel hve margir nýta sér þetta og virkja þá miðann. Síðan vilj- um við líka gefa fleirum færi á því að prófa appið og vita hvernig það virk- ar. Það er hugsunin,“ segir hann. Spurður hver kostnaðurinn við að hafa frítt í strætó í heilan dag sé, segir Guðmundur að miðað við venjulegan dag yrði kostnaðurinn u.þ.b. þrjár milljónir króna. „Ég veit ekki hver endanlegur kostnaður af þessu verður á morgun, það fer eftir því hve margir munu nota þennan miða í staðinn fyrir hefðbundin far- gjöld í rauninni,“ segir Guðmundur. Ákvörðunin um að hafa frítt í strætó er tekin af Strætó, en ekki af þeim sveitarfélögum sem eru eig- endur félagsins. Ekki liggur fyrir ferill eða skipulag þannig að ávallt verði frítt í strætó á svonefndum „gráum dögum“. jbe@mbl.is Morgunblaðið/Júlíus Svifryk Þegar ekki er sópað í borg- inni eykst mengun og er því spáð. Hver dag- ur kostar 3 milljónir  Strætó verður án endurgjalds í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.