Morgunblaðið - 08.04.2019, Page 13
Úti í skógi Náttúruskoðun barnanna og varðeldur. Þau búa svo vel að hafa
lítinn skóg við leikskólann Lundaból sem gaman er að fara í og læra um.
fyrir næstu foreldra sem fá orm-
inn og bókina heim til sín.“
Börnin skrifuðu bæjarstjór-
anum bréf vegna rúðunnar
Björg segir að þar sem fram-
tíðin sé í höndum leikskólabarna
þá sé áríðandi að gera þau með-
vituð nógu fljótt um að jarðarbúar
þurfa að breyta sínum lífsháttum.
„Þau fræðast líka í útikennslu
um plönturnar og lífríkið. Þau
fengu gefins plöntur sem þau
gróðursettu og tóku ábyrgð á að
vökva og halda þeim á lífi. Þau
lærðu að flokka rusl og endurnýta,
en við höfum lagt áherslu á að
gera við og laga leikföngin í leik-
skólanum, í stað þess að henda og
kaupa ný. Við fræddum þau líka
um sameignir okkar í samfélaginu,
hvernig við berum ábyrgð á þeim.
Krakkarnir höfðu til dæmis miklar
áhyggjur af því þegar við fórum í
strætó að þá var oftar en einu
sinni búið að brjóta rúðu í strætó-
skýli sem við þurftum að bíða í.
Þau veltu fyrir sér hverjir gerðu
svonalagað, skemmdu hluti sem
áttu að skýla okkur fyrir vindi og
regni. Þau skrifuðu bæjarstjór-
anum bréf um þetta, létu sig málið
varða. Við fórum í leik með þeim
til að kenna þeim hvernig allir
leggja í púkk svo hægt sé að
kaupa sameiginlega hluti í bæjar-
samfélaginu okkar. Við bjuggum
til peninga og settum þau í hlut-
verk: Foreldrar fara í vinnuna og
fá pening að launum. Einn pen-
ingur fer í að kaupa mat, annar
fer í að fara í sund, en sá þriðji
fer í stóra verkið, sem heitir
Garðabær. Allir setja þennan
þriðja pening í stóru budduna og
þannig verður til sjóður. Og fyrir
þann pening eru keyptir ljósa-
staurar, byggðir leikskólar, bekk-
ir, ruslatunnur og strætóskýli. Við
eigum þetta því öll saman,
mömmur, pabbar og börnin sem
búa í Garðabæ. Þetta virkaði mjög
vel og þau lærðu að ganga vel um
leikskólann sinn, bæinn og heim-
ilið sitt. Ég skal hundur heita ef
þessir krakkar kveikja í bekkjum
eða sprengja ruslatunnur í fram-
tíðinni,“ segir Björg og hlær.
Misjafn húðlitur jarðarbúa
Björg segir að verkefnið hafi
einnig snúist um að kenna börn-
unum um fjölbreytileika mann-
fólksins á jörðinni sem við byggj-
um saman.
„Við fræddum þau um að þó
svo að börnin í Garðabæ séu flest
ljós á hörund og búi í steyptum
húsum, þá sé það ekki allsstaðar
þannig. Sumstaðar á jörðinni eru
börnin dökk á hörund og búa ekki
í steinhúsum. En þó margt geti
verið ólíkt þá kenndum við börn-
unum að horfa frekar til þess sem
er líkt með öllum börnum jarðar.
Þau verða til dæmis öll glöð á
sama hátt og flest hræðast þau
sömu hluti, öll gráta þau eins og
hlæja, og flestum krökkum þykir
ís góður.“
Björg segir að ekki sé nóg að
fræða leikskólabörn og kveikja hjá
þeim meðvitund um samfélagslega
ábyrgð, hvort sem hún snýr að
bæjarfélaginu eða umhverfis-
málum á heimsvísu, heldur þurfi
þetta að halda áfram á næsta
skólastigi, grunnskólanum.
„Í grunnskólanum þarf að
bæta við enn meiri þekkingu um
þessi mál, sjálfbærni og umhverf-
isvernd. Um næstu áramót eða
haustið 2020, þegar Maricris kem-
ur úr námsleyfi, ætlum við að
fylgja þessum hóp eftir í grunn-
skólanum, halda áfram með þessa
vinnu í samstarfi við grunnskól-
ann. Hér í leikskólanum erum við
til dæmis með Svanga Manga, fötu
sem gleypir alla matarafganga, og
börnin sjá um að fara með hann út
og tæma. Þegar krökkunum var
boðið í hádegismat í grunnskól-
anum voru þau alveg gáttuð á því
að þar var enginn Svangi Mangi,
heldur fór maturinn saman við
hitt ruslið,“ segir Björg og hlær.
„Þau eiga eftir að kenna
mörgum, þessir krakkar, það er
ég viss um. Þau eru virkir þátt-
takendur, sérstaklega elstu börnin
í leikskólanum.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019
Ég verð að geta
unnið og lifað.
Laus við verki.
Fyrir góða líðan
nota ég Gold,
Active og gelið.
Erna Geirlaug Árnadóttir – innanhússarkitekt
Á morgun, þriðjudag 9. apríl, verður opn-
uð sýningin Þau vilja lifa, í bókasafninu í
Spönginni í Reykjavík. Þar má sjá afrakst-
ur nemenda Brúarskóla sem hafa unnið
þemavinnu í vetur um dýr í útrýmingar-
hættu. „Börnin nýttu sköpunarkraftinn og
veltu fyrir sér samspili dýraríkisins og
okkar sjálfra. Þau uppgötvuðu margar
áhugaverðar staðreyndir og fróðleik um
fjölbreytileika náttúrunnar. Til að vekja at-
hygli á ástandi margra dýra sem eru í út-
rýmingarhættu hafa þau sett fram, í
myndum og máli, staðreyndir sem varpa
ljósi á þá hættu sem við okkur blasir,“
segir í tilkynningu.
Sýning á dagskrá barnamenningarhátíðar í Reykjavík
Dýrin vilja lifa
Ísbjörn Þeir eru í útrýmingarhættu. Eitt af verkum nemenda Brúarskóla.