Morgunblaðið - 08.04.2019, Page 22

Morgunblaðið - 08.04.2019, Page 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 Jafnhliða annasömu starfi er mikilvægt að hreyfa sig reglulega;öðruvísi þrífst ég varla,“ segir Ingveldur Sæmundsdóttir, að-stoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sem er 49 ára í dag. „Ég fer vonandi út að skokka þegar vinnudegi lýkur; reyni að hlaupa þrisvar til fjórum sinnum í viku og þá samanlagt 45 til 70 kílómetra í viku. Ég reyni líka að fara einu sinni í viku á Esjuna. Mér finnst þetta nauðsynlegt og þá er mikilvægt að hafa markmið. Svo kynnist maður mörgu frábæru fólki á hlaupum.“ Ingveldur er frá bænum Bjólu í Rangárþingi ytra. „Foreldrar mínir ráku stórt bú og ég vandist því sem barn að ganga í öll störf. Tengsl mín við sveitina eru sterk og þangað fer ég oft,“ segir Ingveldur sem er viðskiptafræðingur að mennt. Hún vann lengi hjá Pennanum en sneri sér að pólitíkinni árið 2013. Var fyrst kosningastjóri Framsókn- arflokksins í Reykjavík fyrir alþingiskosningar það ár en varð seinna aðstoðarmaður ráðherra. „Hlutverk aðstoðarmanns er meðal annars að skapa pólitíska teng- ingu ráðherrans við faglegt starf í ráðuneytinu. Einnig að vera í tengslum við fólk og fjölmiðla, fylgjast með fréttum, bregðast við erindum og sjá til þess að allt í daglegu starfi ráðherrans gangi upp. Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir Ingveldur sem er gift Guðmundi Smára Ólafssyni. Þau eiga tvær dætur, Lilju Björk, 22 ára nema í skartgripahönnun, og Svanborgu Maríu, 26 ára stjórnamálafræðing og flugfreyju, sem er í sambúð og á eitt barn. „Ég býð fólkinu mínu heim í kvöldmat, tilkynnist hér með, og hendi kannski í eina köku fyrir vinnufélagana. Geng svo að því vísu að eigin- maðurinn komi mér á óvart,“ segir Ingveldur. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rangæingur Vandist því sem barn að ganga í öll störf, segir Ingveldur. Esjan í hverri viku Ingveldur Sæmundsdóttir er 49 ára í dag H jördís Geirsdóttir fæddist 8. apríl 1944 í Byggðarhorni í Flóa. „Ég ólst upp við al- menn sveitastörf á stóru sveitaheimili hjá ástríkum for- eldrum.“ Hjördís gekk í barna- og unglingaskóla Selfoss og fór eftir skólagöngu að vinna verslunarstörf á Selfossi hjá Kaupfélaginu Höfn og síðan Kaupfélagi Árnesinga. Hún lauk námi frá Húsmæðraskóla Suður- lands á Laugarvatni vorið 1962. Hún fór 15 ára að syngja með hljómsveit Gissurar bróður síns, Tónabræðrum, og söng síðan jafn- hliða vinnu og námi með annarri hljómsveit bróður síns, Caroll Quint- et, og síðan Safírsextett, sem voru skipaðir ungum mönnum af Suður- landi. Hún flutti til Reykjavíkur og vann við verslunarstörf og söng dans- og dægurlög með ýmsum hljóm- sveitum, m.a. Hljómsveit Karls Lil- lendahl, Hljómsveit Jóns Sigurðs- sonar, stórsveitinni Perlubandinu undir stjórn Karls Jónatanssonar, Hljómsveit Harmonikkuunnenda með ýmsum harmonikkuleikurum og Rokksveit Ólafs Þórarinssonar (Labba) á Selfossi. „Ég var í mörg ár svokölluð „freelance“ söngkona og söng og stjórnaði síðan eigin hljóm- sveit í áratug. Ég syng með Stórsveit Íslands við ýmis tækifæri.“ Hjördís lauk sjúkraliða- og snyrti- fræðinámi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1991 og starfaði á ýmsum deildum Landspítalans í Fossvogi og á snyrtistofunni Okkar á Hótel Esju. Hún starfaði jafnhliða sem skemmt- anastjóri fyrir íslenskar ferðaskrif- stofur erlendis. Hjördís hefur gert tvær hljóm- plötur, sú fyrri er Paradís á jörð, frá 1990. Þar léku undir félagar úr Mezzoforte ásamt fleirum. Sú seinni er Hjördís Geirsdóttir ásamt göml- um og glöðum félögum, frá 2001. „Þar spiluðu með mér 17 tónlistar- menn sem höfðu spilað með mér mis- lengi gegnum ferilinn. Aldurs- takmarkið var 50 ára og eldri nema bakraddirnar fengu undanþágu en þær voru dóttir mín Hera Björk og Kristjana Stefánsdóttir.“ Hjördís söng með Árnesingakórnum í Reykjavík og var formaður hans um Hjördís Geirsdóttir söngsnyrtiliði – 75 ára Söngkonur Hjördís ásamt dóttur sinni, Heru Björk, og dóttur Heru Bjarkar, Þórdísi Petru Ólafsdóttur. Söngfugl úr Flóanum Söngvin Afmælisbarnið Hjördís. Akranes Alma Ýr fæddist 8. ágúst 2018 kl. 20.45 á Akranesi. Hún var 2.830 g og 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Hulda Þórey Halldórs- dóttir og Ellert Ingi Ellertsson. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Léttur dúnjakki • 90% dúnn/10% fiður, þéttvafið nylon efni • Einstaklega þægilegir, hlýir og léttir, ferðapoki fylgir hverjum dúnjakka • 5 mismunandi litir • Stærðir: XS - 4XL – henta báðum kynjum Vnr: 1899 707 Verð: 13.480 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.