Morgunblaðið - 08.04.2019, Qupperneq 12
Fjölbreytni Börnin velta hér fyrir
sér mismunandi húðlit jarðarbúa
með því að mála hendur sínar.
Gaman saman Börnin gróðursetja hér og að vinna með jafnrétti.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta hefur heppnast rosa-lega vel enda eru börnmjög áhugasöm um um-hverfi sitt og þau eru
fljót að tileinka sér nýjungar og
annan hugsunarhátt. Börnin hér í
leikskólanum eru opin og virk og
með Jarðarorminum hafa þau
kennt foreldrum sínum nýjar að-
ferðir og nýja hugsun. Það er mik-
ilvægt að kenna börnum sem allra
fyrst að ganga vel um landið og
hvað þau geti gert til að vernda
auðlindir jarðar. Á leikskólastig-
inu hefur áhersla á sjálfbærni-
menntun stöðugt farið vaxandi og
aukin vitund er um að því fyrr
sem börn fá fræðslu því meiri lík-
ur eru á að þau tileinki sér ákveð-
in gildi sem fullorðnir ein-
staklingar,“ segir Björg Helga
Geirsdóttir leikskólastjóri á
Lundabóli í Garðabæ, en leikskól-
inn vinnur að alþjóðlegu verkefni,
Jarðarorminum, Earthworm: One
Earth, One World; The Meta-
morphosis of Sustainability
Education in the Early Childhood
Education and Care. Ásamt Ís-
landi tóku þrjú önnur lönd þátt í
verkefninu, Spánn, Litháen og
Rúmenía.
„Hún Maricris Castillo de
Luna, er prímus mótor í þessu, en
hún er grunnskólakennari og
starfar hjá okkur við kennslu elstu
barnanna. Þetta á allt upphaf sitt í
því að Maricris fór í meistaranám
í Háskóla Íslands fyrir fjórum ár-
um og þar valdi hún að taka fyrir
sjálfbærni. Hún fræddi okkur
samkennara sína heilmikið um
hlýnun jarðar og fleira sem ekki
var komið svo mikið í umræðuna
þá. Hún sá að við yrðum að kenna
börnunum hugmyndafræði sjálf-
bærni og hún fór því fljótlega að
gera ýmis verkefni með börn-
unum. Hún bjó til dæmis til lítinn
sjó í stórum bala, lét börnin setja
ýmislegt í sjóinn til að sjá með
eigin augum hvað gerist. Þau sáu
að mold sökk til dæmis til botns
og vatnið varð þá aftur hreint, en
olía settist ofan á sjóinn og hana
var erfitt að hreinsa. Plast flaut
líka ofan á og eyddist ekki í sjón-
um,“ segir Björg og bætir við að í
framhaldinu af allri þessari vakn-
ingu hafi Lundaborg sótt um og
fengið styrk fyrir jarðarorms-
verkefninu hjá þróunarsjóði leik-
skóla Garðabæjar.
„Við fengum líka Erasmus-
ferðastyrk en með þessu verkefni
er áhersla á að kenna leik-
skólakennurum, fræða þá um
sjálfbærni svo þeir geti komið
þessu inni í kennsluna hjá sér.“
Fótgangandi í búðina til að
kaupa íslenskt grænmeti
En hver er þessu jarðar-
ormur?
„Hann er heimatilbúinn orm-
ur sem ferðast á milli heimila
leikskólabarnanna í Garðabæ
ásamt bók með fróðleik um hvern-
ig fjölskyldur geti tekið þátt með
því að fara í einfaldar sjálf-
bærniaðgerðir á heimilinu. Við
bjuggum til stóran orm úr af-
gangssokkum, því flestir eiga jú
helling af stökum sokkum. Krökk-
unum fannst þetta mjög gaman og
þau kölluðu þá táfýlusokka sem
þau og við starfsfólkið lögðum til í
orminn. Á því heimili sem orm-
urinn er staddur hverju sinni á
heimilisfólkið að gera eitthvað
saman sem er innlegg í sjálf-
bærni. Leikskólabarnið er þá í
raun að fræða foreldra sína, til
dæmis stakk eitt barnið upp á því
við foreldra sína að þau færu fót-
gangandi saman út í búð að kaupa
íslenska tómata. Þannig læra
börnin að allt sem við gerum í
rétta átt skiptir máli. Bók fylgir
með jarðarorminum þar sem fólk
skráir hvað það gerir, hvort sem
það tekur strætó frekar en að
ferðast á einkabílnum á milli
staða, kaupir íslensk jarðarber en
ekki þau sem flutt eru hingað yfir
hálfan heiminn, og fleira hvetjandi
Gulla kokkur Fer hér yfir ruslaflokkunarmál með börnunum. Jarðarormur Barn afhendir næsta barni orminn góða. Kennari les upp fyrir börnin hvað jarmur gerði heima hjá drengnum.
Jarðarormur flakkar milli heimila
Krakkarnir í leikskól-
anum Lundabóli í
Garðabæ hafa lært mikið
um umhverfismálin,
enda er framtíðin þeirra.
Því fyrr sem börn fá
fræðslu því meiri líkur
eru á að þau tileinki sér
ákveðin gildi sem full-
orðnir einstaklingar. Þau
bjuggu til orm úr göml-
um táfýlusokkum.
Útikennsla Hér læra börnin á Lundabóli um gróður jarðar, en þeim finnst
virkilega gamana að læra um móður jörð þegar þau eru út í náttúrunni.
Samstarf við önnur lönd Maricris
og Björg í Rúmeníu með viðurkenn-
ingu fyrir Íslandskynningu sína.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími 570 8600
Smyril Line Seyðisfjörður 470 2808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Heimsæktu Færeyjar eða
Danmörku með Norrænu
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
Innifalið: Sigling með Norrænu fram og til baka, flutningur á bíl og gisting í 2m klefa án glugga.
Verð miðast gengi DKK 2. apríl 2019 og getur breyst.
DANMÖRK FÆREYJAR
Lágannatímabil verð á mann ISK 58.000
Miðannartímabil verð á mann ISK 77.000
Háannatímabil verð á mann ISK 150.000
Lágannatímabil verð á mann ISK37.250
Miðannartímabil verð á mann ISK57.900
Háannatímabil verð á mann ISK88.800