Morgunblaðið - 08.04.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Benjamín Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, lét hafa eftir sér á
laugardaginn var að hann hygðist
innlima landtökubyggðir Ísraels-
manna á Vesturbakkanum í Ísraels-
ríki ef hann næði kjöri í kosningun-
um sem fara fram á morgun. Þar
með gekk hann lengra en áður í lof-
orðum sínum um þessi efni en verði
af áformum hans er talið að öll von
sé úti um tveggja ríkja lausn Ísraels
og Palestínu. Um er að ræða byggð
rúmlega 700.000 Ísraelsmanna á
svæði innan alþjóðlega viður-
kenndra landamæra Palestínu, yfir-
ráð, sem ísraelskir stuðningsmenn
þessara byggða segja umdeild.
„Þessi yfirlýsing er ekki aðeins gerð
í hita kosningabaráttunnar,“ er haft
eftir Hanan Ashrawi, yfirmanni hjá
samtökum um frjálsa Palestínu.
„Þetta lokar á alla möguleika á
friði,“ sagði hún.
Netanyahu er sagður vera að
höfða til þjóðernissinnaðra kjósenda
langt til hægri með þessum ummæl-
um. Meginandstæðingur hans af
vinstri væng, Benny Gantz, sagði
skammarlegt að fiska eftir atkvæð-
um með þessu móti. „Maður spyr sig
af hverju Netanyahu innlimaði þessi
svæði ekki á þeim 13 árum sem hann
gat það en gerði það ekki?“ spurði
Gantz. Hann kvaðst andvígur ein-
hliða aðgerðum af þessum toga og
sagðist sjálfur myndu leitast við að
halda friðnum á þessum svæðum,
með stuðningi íbúa jafnt sem al-
þjóðasamfélagsins.
Mjótt á munum milli nafnanna
Gengið er til kosninga á morgun.
Um sex milljónir eru á kjörskrá og
kosningaþátttaka í Ísrael er oftast
mikil. Kosningabaráttan hefur
harðnað síðustu vikur. Netanyahu
og Gantz keppa um meirihluta at-
kvæða, Netanyahu sem leiðtogi Lik-
ud-flokksins á hægri vængnum og
Gantz sem leiðtogi Blárra og hvítra á
þeim vinstri. Netanyahu sækist eftir
þingstyrk til að geta orðið forsætis-
ráðherra aftur. Hann hefur gegnt
embættinu frá 2009 og gegndi því
einnig á árunum 1996-1999. Hann og
Donald Trump Bandaríkjaforseti
eiga í ágætu vinfengi og Netanyahu
hefur látið hafa eftir sér í viðtölum
að ekki sé útilokað að á næsta kjör-
tímabili fái hann stuðning Trumps til
þess að innlima umrædd svæði á
Vesturbakkanum. Trump lýsti því
yfir ekki alls fyrir löngu að hann
teldi Gólanhæðir heyra undir Ísr-
aelsríki, sem var umdeild ákvörðun.
Benjamín Gantz fylgir fast á eftir
nafna sínum Netanyahu í fylgi í að-
draganda kosninga. Hann var for-
seti ísraelska herráðsins, sem aflar
honum vinsælda. Hann er leiðtogi
Bláa og hvíta flokksins, sem hann
stofnaði í febrúar á þessu ári með
sjónvarpsmanninum Yair Lapid.
Gantz naut virðingar sem hermaður
og var meðal annars lofaður af sjálf-
um Netanyahu á sínum tíma sem
„framúrskarandi foringi“ en
forsætisráðherrann lýsir núna
keppinaut sínum sem „veik-
lunduðum vinstrimanni“, segir í um-
fjöllun Al Jazeera um kosninga-
baráttuna. Þess er vert að geta að
þrátt fyrir andstöðu sína við nýfallin
ummæli Netanyahus hefur hann
stært sig í aðdraganda kosninganna
af því að hafa „sent Gaza aftur til
steinaldar“ með hernaðaraðgerðum
sínum á svæðinu.
Netanyahu lofar innlimun
Netanyahu kveðst ætla að innlima umdeildar landtökubyggðir á Vesturbakkanum
í Ísrael Sagður seilast eftir atkvæðum langt til hægri Þingkosningar á morgun
AFP
Hart tekist á Á lokametrum kosningabaráttunnar sakar Benny Gantz, til hægri, Benjamín Netanyahu, til vinstri,
um að leggjast lágt í leit sinni að atkvæðum, með því að lofa innlimun umdeildra byggða í Ísraelsríki.
AFP
Trump Stuðningsmaður Netanyahus í Jerúsalem. Netanyahu útilokar ekki
að hann muni njóta stuðnings Trumps við fyrirhugaða innlimun landsvæða.
Of háu leiguverði var mótmælt á
götum borga víða um Evrópu á
laugardag, einkum í Þýskalandi.
Mestur fjöldi kom saman í Berlín
þar sem leiguverðið hefur tvöfaldast
á síðustu tíu árum. Þar er talað um
að á fimmta tug þúsunda hafi fylkt
liði á Alexanderplatz. Hækkandi
leigu var líka mótmælt í öðrum borg-
um Þýskalands sem og til dæmis í
Barselóna, Amsterdam og París.
Mótmælin í Berlín voru að hluta á
vegum hreyfingarinnar „Sviptum
Deutsche Wohnen & Co. eignum
sínum.“ Deutsche Wohnen & Co. er
stærsta leigufélagið í Berlín og mót-
mælin beinast ekki síst að því: kraf-
an er sú að teknar verði eignarnámi
eignir allra einkarekinna leigufélaga
sem eiga fleiri en 3.000 íbúðir.
Deutsche Wohnen & Co. á 111.500
íbúðir, rúm 5% af tveimur milljónum
skráðra íbúða í Berlín.
Haft var eftir talsmanni leigu-
félagsins að tónninn í orðræðu mót-
mælenda hafi tekið „mjög popúlíska
stefnu“. Talsmaður hreyfingarinnar,
Rouzbeh Taheri, sagði kröfurnar
aftur á móti einfaldlega nauðsyn-
legar, enda hefðu aðgerðir stjórn-
valda til að stemma stigu við hækk-
un á leiguverði ekki borið neinn
árangur til þessa. Að hans mati er
áríðandi að minnka umsvif leigu-
félaganna og þannig einnig senda
þau skilaboð til fjárfesta að ekki sé
hyggilegt að fjárfesta í Berlín.
Hjá flestum stjórnmálamönnum
kveður við sama tón, að ekki sé ráð
að stjórnvöld taki eignir leigufélag-
anna eignarnámi. Andrea Nahles,
formaður Sósíaldemókrata, sagði þá
aðgerð tímafreka og kostnaðarsama
í viðtali við Bild am Sonntag. Hún
myndi tefja fyrir nýbyggingum
stjórnvalda á félagslegu húsnæði og
þannig bíta í skottið á sjálfri sér.
Hins vegar er umræða um leiguþak
komin vel á veg, að sögn Nahles.
Vilja að leigufélög
séu tekin eignarnámi
Hækkandi leigu mótmælt í Evrópu
AFP
„Leigubrjálæði“ Leiguverð í Berlín
hefur tvöfaldast á tíu árum.
Danskur karlmaður, tvítugur að
aldri, beið bana í skotbardaga í
Rungsted á Sjálandi norður af
Kaupmannahöfn á laugardaginn.
Fjórir á þrítugsaldri eru særðir,
ýmist með skot- eða stungusár. Þeir
eru á sjúkrahúsi. Átökin voru upp-
gjör á milli tveggja glæpaklíkna á
svæðinu, að því er lögregluemb-
ættið á Norður-Sjálandi greinir frá.
Tveir hafa verið dæmdir í fjög-
urra vikna gæsluvarðhald. Þeir eru
grunaðir um að hafa tekið þátt í því
að skipuleggja og framkvæma skot-
árásina. Að minnsta kosti annar
þeirra neitar að hafa átt aðild að
málinu. Vitni að atburðarásinni
kváðust hafa heyrt sex byssuskot á
sjöunda tímanum síðdegis á laug-
ardag.
DANMÖRK
Ljósmynd/Wikipedia
Skotárás Glæpaklíkur tókust á.
Tvítugur Dani skot-
inn til bana í átökum
Menn óttast að
Líbýa sé á barmi
borgarastyrj-
aldar. Minnst 21
lést og 27 særð-
ust um helgina í
átökum í kring-
um Trípólí,
höfuðborgina.
Um hana sátu
uppreisnarmenn
sem eru undir stjórn stríðsherrans
Khalifa Haftar. Viðurkenndur for-
sætisráðherra landsins segir Haft-
ar vera að fremja valdarán. Á með-
al látinna var læknir á vegum
Rauða krossins. 14 hinna látnu voru
uppreisnarmenn. Bandaríkjamenn
kölluðu sveitir sínar heim frá Líbýu
í gær.
SETIÐ UM TRÍPÓLÍ
21 lést í átökum í
Líbýu um helgina
Khalifa Haftar