Morgunblaðið - 08.04.2019, Page 19

Morgunblaðið - 08.04.2019, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 ✝ Ingunn Sig-urrós Guð- brandsdóttir fædd- ist á Broddanesi í Strandasýslu 29. september 1928. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum í Reykjavík 31. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru Guð- brandur Benediktsson, f. 1897, d. 1979, bóndi á Broddanesi, og eiginkona hans Ingunn Þor- steinsdóttir, f. 1897, d. 1998. Alsystkini Ingunnar eru: Sig- urður, f. 1927, d. 1928, Björn, f. 1930, Þorsteinn Helgi, f. 1931, Benedikt, f. 1933, Sigurður Yngvi, f. 1934, og Sigríður, f. 1936, d. 2017. Hálfsystur henn- ar samfeðra voru: Sigrún, f. mýri í Skagafirði veturinn 1946-47. Hún vann við bústörf hjá foreldrum sínum og vann um tíma í Reykjavík við ýmis störf. Árið 1959 flutti Ingunn að Núpi í Dýrafirði og bjó þar ásamt eiginmanni sínum og börnum til ársins 1976 þegar fjölskyldan flutti í Kópavog. Ásamt húsmóðurstörfum kenndi Ingunn hannyrðir á Núpi og rak mötuneytið við skólann um tíma. Hún hafði einnig ásamt eiginmanni sínum umsjón með garðinum Skrúð allt þar til þau fluttu í Kópavog. 1977 hóf Ingunn störf við Fé- lagsheimili Kópavogs og starf- aði þar til starfsloka 2004. Einnig starfaði hún við heimilishjálp um tíma. Útförin fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag, 8. apríl 2019, klukkan 13. 1904, d. 1981, Matt- hildur, f. 1921, d. 2008, og Sigur- björg, f. 1923, d. 1984. Ingunn giftist Þorsteini Gunn- arssyni, f. 1917, d. 1989, árið 1960. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Ing- unn Sigríður, f. 1962, maki Þórhall- ur Ólafsson, f. 1959. 2) Tryggvi, f. 1964, fyrri kona Hafdís Viggósdóttir, f. 1967, dóttir þeirra er a) Alexandra Sif, f. 1995, seinni kona Erla Dögg Ingjaldsdóttir, f. 1973, dætur þeirra eru a) Carmen Inga, f. 2002 b) Andrea Reyn, f. 2006. Ingunn tók barnaskólapróf í sveitinni sinn og stundaði nám við húsmæðraskólann á Löngu- Í dag kveð ég þig, elsku móðir mín, með söknuð og sorg í hjarta. Þú huggaðir sem barn, last fyr- ir mig á kvöldin Þyrnirós og kenndir mér að prjóna. Sast yfir mér myrkfælinni þar til ég sofn- aði út frá kliðnum í prjónunum þínum og sagðir mér sögur frá Broddanesi. Þú áttir langa og viðburðaríka ævi og upplifðir miklar sam- félagslegar breytingar sem þú lærðir að nýta þér. Þú varst ósér- hlífin, dugleg og útsjónarsöm kona og varst ávallt tilbúin að hjálpa öllum sem leituðu til þín. Þú varst skyldurækin, hógvær og kvartaðir aldrei. Þú gerðir ekki kröfur til annarra en sjálfrar þín. Þér féll aldrei verk úr hendi og ég sé þig fyrir mér sitjandi með prjónana og fylgjast með hand- boltaleik og það kom ekki lykkju- fall þótt strákarnir okkar brenndu af. Þú vildir veg okkar systkina sem mestan, hjálpaðir okkur eins og þú máttir til og hvattir okkur til dáða í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. En þú sagðir okkur líka til syndanna ef þér fannst við vera að beygja af réttri leið. Þú tókst ávallt vel á móti öllum og nutu vinir okkar systkina þess á unglingsárunum. Þú bakaðir gjarnan fyrir okkur pönnukökur sem hurfu beint af pönnunni ofan í svanga maga. Þú lést fátt stöðva þig og fórst í ófáar ferðir til Bandaríkjanna til Tryggva, án þess að tala ensku. Þar fórst þú út í Trader Joe’s eins og þú værir að fara út í Nóatún í Hamraborg. Ég mun sakna þín, skopskyns þíns og spjalls um rósarækt og hannyrðir. Ég mun geyma minningu um þig í hjarta mér. Elsku móðir mín kær, ætíð varst þú mér nær, ég sakna þín, góða mamma mín. Já, mild var þín hönd er um vanga þú straukst, ef eitthvað mér bjátaði á. Við minningu um þig geymum og aldrei við gleymum, hve trygg varst þú okkur og góð. Við kveðjum þig, mamma, og geymum í ramma í hjarta okkar minningu um þig. (Gylfi V. Óskarsson) Þín dóttir, Ingunn (Inga Sigga). Hún Ína var að kveðja. Það var skrýtið að tilkynna að tengdamóð- ir mín hefði verið að kveðja okkur í síðasta sinn. Margar minningar leita á hug- ann og þetta er eins og mörg stutt myndskeið. Þú flakkaðir víða með okkur bæði innanlands og utan. Fórum í veiðiferð á Snæfellsnes og gistum í tjaldi. Fórum í Þórs- mörk og þú vildir gista í tjaldi. Fórst líka með okkur til Berlínar, Rómar og Barcelona. Nokkrar ferðir fórum við norður á Brodda- nes og þar leið þér vel. Mér er mjög minnisstæð ferðin þar sem þú fórst með okkur út í Traðar- nes. Það var ekkert sem stoppaði þig, hvorki girðingar, sjúkdómur né göngugrind. Það var sama hvað við þvældumst með þig, aldrei kvartaðir þú. Þú lést ekki tungumál né vega- lengdir stöðva för þína. Þú fórst nokkrar ferðir til Ameríku til að heimsækja Tryggva og fjöl- skyldu. Þú varst útsjónarsöm og seig en þó fyrst og fremst með stórt hjarta. Aldrei var komið að tóm- um kofunum þegar leitað var að- stoðar þinnar. Við Bassi komum oft í kvöld- göngu til þín meðan þú varst á Álfhólsveginum og ég hélt svo áfram að líta inn til þín eftir að þú fluttir á Droplaugarstaði. Þar ræddum við um eitt og annað. Lásum saman bækur eða hlust- uðum á góða tónlist. Skemmtileg- ast fannst þér þó ef við komumst eitthvað út að ganga og þá sér- staklega að skoða garða og blóm. Einnig var gaman að komast bara í bíltúra. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Takk fyrir allt, kæra Ína, og hvíl í friði. Kveðja, Þórhallur. Ég og amma vorum bestu vin- konur. Við eyddum æskuárunum mínum í að þræða miðbæ Kópa- vogs hátt og lágt. Við vorum fastagestir á bókasafni Kópavogs, Náttúrustofu Kópavogs, Gerðar- safni og auðvitað svo í Félags- heimili Kópavogs, þar sem amma vann í mörg ár. En á meðan amma kenndi mér á menningarheim Kópavogs kenndi ég henni hvern- ig skal eyða föstudagskvöldum. Ég fór með hana á vídeóleiguna í Hamraborg, valdi tvær góðar spólur, pantaði svo pepperoni- pítsu fyrir okkur og svo sátum við tvær, í græna flauelssófasettinu á Álfhólsveginum, og nutum saman. Þau voru þónokkur föstudags- kvöldin nákvæmlega svona, þau kvöld sitja mér alltaf ofarlega í huga, og mér þykir vænt um þau. Amma á stóran þátt í þeirri manneskju sem ég er í dag. Hún var ákveðin, dugleg og útsjónar- söm kona sem lét ekkert stoppa sig. Hún var ekki með bílpróf, en samt fann hún sér einhverja leið til að sækja mig í skólann nokkr- um sinnum í viku, enda gerði hún allt fyrir mig öllum stundum og það með bros á vör. Elsku amma mín, ég sakna þín. Takk fyrir allt. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Alexandra Sif Tryggvadóttir. Því vegför manna iðju án er ævireik á söndum, en átak hvert er ævilán í iðjumanna höndum. (Stefán frá Hvítadal) Ingunn systir mín, sem kvödd er í dag, var næstelst í hópi sjö al- systkina sem fædd voru á níu ár- um. Elsta systkinið dó innan við ársgamalt. Ína varð því fljótt leið- andi í hópnum. Á unga aldri leysti hún öll vandamál strax og hélt þeim sið alla tíð síðan. Ína var jafnvíg til allrar vinnu, bæði inn- anhúss og utan. Hún var einn vet- ur á húsmæðraskólanum á Löngumýri og sú menntun er hún fékk þar kom henni vel. Eftir dvölina á Löngumýri var Ína að mestu í forsvari fyrir heimilið heima á Broddanesi fram yfir þrí- tugt. Þá flutti hún vestur að Núpi í Dýrafirði, ásamt eiginmanni sín- um, Þorsteini Gunnarssyni kenn- ara. Þar komu vel í ljós hæfileikar Ínu við garðyrkju. Þau hjónin sáu um blóma- og trjágarðinn Skrúð á Núpi um árabil meðan þau voru vestra. Eftir að þau fluttu suður vann Ína í Félagsheimili Kópa- vogs. Hún hélt áfram með blóma- og garðrækt meðan heilsan entist. Í meira en 20 ár glímdi Ína við erf- iðan sjúkdóm og síðustu æviárin dvaldi hún á Droplaugarstöðum. Ég á Ínu systur minni meira að þakka en flestum öðrum. Hún ýtti mér af stað í skólanám og veitti mér þá aðstoð sem dugði mér. Fleiri nutu hjálpar hennar, bæði skyldir og óskyldir, ekki síst á því árabili sem hún var á Núpi. Nú þegar allt er orðið hljótt heima í Broddanesi er lítið eftir annað en að minnast alls sem vel var gert þar og af góðum vilja. Hvíl í friði, elsku systir. Þinn bróðir Benedikt. Það var björt sumarnótt þegar ég hitti Ingunni fyrst, þar sem ég sat í bíl fyrir utan Álfhólsveginn og átti að hitta Tryggva. Hún kom til mín með þau skilaboð að Tryggvi væri í miðbænum og ég ætti að sækja hann þangað. Hún var róleg og yfirveguð og ekki var hægt að finna neinn pirring hjá henni þrátt fyrir að hafa verið vakin um miðja nótt til bera mér skilaboðin. Síðar átti ég eftir að fá að kynnast einstakri manneskju sem reyndist mér svo vel og kenndi mér svo margt um lífið og tilveruna. Við fyrstu sýn kom Ingunn mér fyrir sjónir sem feimin manneskja sem lét ekki mikið fyrir sér fara. En annað átti eftir að koma á dag- inn. Því stærri og sterkari mann- eskju hef ég varla hitt. Ingunn lét verkin tala og það var ekkert verkefni sem ekki var hægt að leysa. Ávallt ráðagóð og reiðubúin að aðstoða ef það var á hennar færi. Ömmuhlutverkið tók Ingunn alvarlega og lagði hún á sig langt ferðalag til Los Angeles til sjá sonardóttur sína nokkurra vikna gamla og þann dag varð ást við fyrstu sýn og gaf hún þessari litlu mannveru alla sína ást og um- hyggju. Samband Ingunnar og Alexöndru var einstakt og fallegt. Dóttir mín gat ekki fengið betri fyrirmynd til að leiða sig út í lífið en Ingunni ömmu. Dagar Ingunn- ar ömmu og Alexöndru voru fullir af ævintýrum og kósíheitum og var þar grunnur lagður að góðum minningum sem dóttir mín mun geta yljað sér við um ókomin ár. Ingunn var ekki með bílpróf en það var henni ekki til trafala og aftraði henni ekki frá því að sjá til þessa að sækja Alexöndru í Ísaks- skóla þar sem henni fannst óþarfi að barnið þyrfti að dvelja í dægra- dvöl eftir skóla þar til að ég kæm- ist til að sækja hana. Ingunn fékk samstarfskonur sínar eða Sigurð bæjarstjóra til að skutla sér til að ná í barnið í skólann. Þetta var svo lýsandi fyrir hana að bjarga sér og þar sem hún var öllum svo góð og greiðvikin þá voru allir tilbúnir að aðstoða hana. Á erfiðu tímabili í lífi okkar mæðgna stóð Ingunn sem klettur á bak við okkur og var Ingunni það vel ljóst að velferð mín var velferð barnsins. Þegar brekkan var brött og ég sá ekki fram á að geta klifið hana ein þá sendi hún mér línuna og dró mig upp og stappaði í mig stálinu og aðstoðaði mig við að finna ljósið á ný og fyrir það verð ég henni ævinlega þakk- lát. Með hjartað fullt af þakklæti kveð ég með virðingu hana Ing- unni mína og megi minningin um sterka og yndislega konu lifa. Ég veit að hún mun vaka yfir okkur og það sem hún hefur kennt okk- ur mun vísa okkur veginn. Elsku Alexandra mín, Inga Sigga, Þórhallur, Tryggvi, Erla, Carmen og Andrea, ég votta ykk- ur mína dýpstu samúð. Hafdís Viggósdóttir. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Núna ertu farin í ferðina þína síðustu og trúi ég því að mamma hafi tekið vel á móti þér og þið systur hafið skellt í nokkrar pönnukökur og sitjið svo og prjónið saman eitthvað fallegt. Þið voruð alla tíð mjög samrýndar og báruð hag hvor annarrar fyrir brjósti. Það voru ófáar sendingarnar sem komu til okkar að Broddanesi frá þér. Fatnaður á okkur systk- inin, útsaumuð sængurver og ef þið voruð á ferðinni seinni part sumars komuð þið færandi hendi með bláber og fleira góðgæti. Þegar ég þurfti svo að fara að heiman í skóla kom ekkert annað til greina en að ég færi vestur að Núpi og byggi þar hjá þér og fjöl- skyldunni og var ég þar í tvo vetur í góðu yfirlæti hjá ykkur og síðan aðra tvo í Kópavoginum eftir að þið fluttuð þangað. Áfram hafðirðu hönd í bagga og fylgdist með mér og mínum eftir að ég hóf sjálf búskap ung að aldri. Ég minnist þess ekki að þér hafi fallið verk úr hendi enda allt- af nóg að gera. Þegar ég var hjá ykkur á Núpi vannstu í mötuneyti skólans og þið Þorsteinn sáuð einnig um garðinn Skrúð og naust þú þín þar í hinum ýmsu verkum og var garðurinn fallegur og vel hirtur í ykkar umsjón. Eftir að þið fluttuð á Álfhóls- veginn vannstu í Félagsheimili Kópavogs og var vinnudagurinn oft langur en alltaf var tími til að sinna blómunum í garðinum og prjóna. Síðustu árin voru þér erfið enda bundin við hjólastól og háð öðrum um flest en Inga Sigga og Þórhallur önnuðust þig af ástríki og umhyggju allt til hinstu stund- ar. Elsku Ína, þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Hvíl í friði. Ingunn Einarsdóttir. Árið 1987 réðst ég til vinnu hjá Kópavogsbæ, þ.e. til Félagsheim- ilis Kópavogs. Þar var fyrir Ing- unn Guðbrandsdóttir, sem hélt í alla enda hvað varðaði veitingar fyrir hinar ýmsu deildir og fundi bæjarins. Okkur varð strax vel til vina, hún með áratuga reynslu og ég með mitt sjónarhorn. Eftir því sem umsvifin jukust í vinnunni komu fleiri til starfa og myndaðist þá vinnuhópur sem var einstaklega samheldinn. Aldrei var nein lognmolla hvar sem við vorum að störfum. Alltaf var gam- an í vinnunni þó að aðstæður væru ekki alltaf þær bestu. Það þurfti t.d. að sinna veitingum þar sem skóflustunga var tekin, heitt kakó og kleinur í snjóskafli, vígsla leikskóla, eða annarra stofnana bæjarins. Kaffiveitingar undir vegg í stórstormi þar sem grjót- hnullungar héldu dúkuðu borði í skefjum. Aldrei kvartaði Ingunn, mætti þar sem hennar var þörf. Ingunn hafði einstaklega gott verksvit, vann sér allt eins létt og hægt var. Orðatiltæki hennar heyrast enn í dag hjá öllum okkar sem unnum með henni. „Nota ferðina“, sagði hún ef einhver kom tómhentur úr sal þegar veisl- ur voru í Félagsheimilinu. Það vakti oft undrun mína hvílíkt út- hald þessi smávaxna kona hafði til vinnu. Ingunn var mikill náttúruunn- andi. Skrúður var henni einstak- lega kær þar sem hún hafði ásamt eiginmanni sínum séð um umönn- un garðsins í 17 ár. Hún sagði mér frá því þegar þau hjón ferðuðust um landið þvert og endilangt til að safna íslenskum jurtum fyrir garðinn. Einnig hafði hún sterkar rætur til Núps og það var gaman að fylgjast með þegar gamlir nemendur frá Núpi komu í Fé- lagsheimilið og gleðin auðsæ þeg- ar þau hittu Ínu aftur, oft eftir margra ára aðskilnað og ótrúlegt en satt þá mundi hún nöfn þeirra allflestra. Fjölskylda Ingunnar var henni mikilvægust af öllu, hvort sem voru börnin hennar tvö og fjöl- skyldur þeirra, systkini hennar eða frændgarðurinn allur. Og þegar Broddanes bar á góma kom glampi í augun á henni og nátt- úrulýsingar hennar urðu ljóslif- andi. Hún var minnisgóð með af- brigðum, sagði skemmtilega frá gamalli tíð og fólki sem hún hafði kynnst. Aldrei lagði hún neitt nei- kvætt til nokkurrar manneskju, sá alltaf það jákvæða í hverjum og einum. Nú hefur Ingunn kvatt þetta líf eftir erfið veikindi. Ég sit full hryggðar en einnig full þakklætis fyrir að hafa fengið að starfa með henni, læra af henni og njóta sam- veru með henni. Ég votta börnum hennar, Ing- unni Sigríði og Tryggva og fjöl- skyldum þeirra, mína dýpstu samúð. Anna Hallgrímsdóttir. Ingunn Guðbrandsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGUNN GUÐBRANDSDÓTTIR, Álfhólsvegi 21, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum sunnudaginn 31. mars. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 8. apríl klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að leyfa líknarfélögum að njóta þess. Ingunn S. Þorsteinsdóttir Þórhallur Ólafsson Tryggvi Þorsteinsson Erla Dögg Ingjaldsdóttir Alexandra Sif Carmen Inga og Andrea Reyn Tryggvadætur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, RUTH RAGNARSDÓTTIR, Neðstaleiti 6, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 2. apríl, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju föstudaginn 12. apríl klukkan 13. Ragnhildur Lára Conradt-Eberlin, Carsten Conradt-Eberlin Tómas Sigurþórsson Kristinn Sigurþórsson Guðrún Kristjánsdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HEIÐVEIG HÁLFDÁNARDÓTTIR, lést fimmtudaginn 4. apríl á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför Heiðveigar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 15. apríl kl. 13. Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir Gunnlaugur M. Sigmundsson Herdís J. Sigurbjörnsdóttir Helga S. Sigurbjörnsdóttir Karl Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.