Morgunblaðið - 08.04.2019, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. APRÍL 2019 21
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bátar
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
og tek að mér
ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Urðarteigur 9, Fjarðabyggð, fnr. 216-9747 , þingl. eig. Andrzej
Jaroslaw Zajaczkowski og Edyta Beata Zajaczkowska, gerðarbeiðandi
Greiðslumiðlun ehf., föstudaginn 12. apríl nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Austurlandi
5. apríl 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rúta
fer frá Vesturgötu kl. 10.10 og Aflagranda kl. 10.20. Útskurður kl. 13.
Félagsvist kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Samprjón kl. 13.30-14.30. Bútasaumshópur kl. 13-16. Opið kaffi-
hús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.30, ath. breyttur tími.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /8.15 / 15. Kvennaleikfimi
Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði
kl. 11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Frí í stólajóga kl. 11. Brids
í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben
11-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulíns hópur kl. 9, jóga kl. 9.30, handavinna kl. 13, jóga
kl. 17, félagsvist kl. 20.
Hraunsel Kl 9 myndmennt, kl. 11 Gaflarakórinn, kl. 13 félagsvist
Hjallabraut, kl. 10-16 Fjölstofan.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls
spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga með Ingibjörgu kl. 9, ganga kl. 10
frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Dans í Borgum kl. 11
í dag. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum, allir velkomnir Félagsvist kl. 13
í Borgum og tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag og kóræfing
Korpusystkina kl. 16 í Borgum í dag.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45-10, lesið upp úr blöðum kl.
10.15, upplestur kl. 11, tréútskurður kl. 13-16, gönguhópur kl. 14,
Bókabíllinn kl. 14.15-15, bíó kl. 15.30.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir
Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl.
10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna á
Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Munið kynn-
ingu Öryggismiðstöðvarinnar nk. fimmtudag 11. apríl kl. 13-14. Allir
velkomnir, eldri borgarar og aðstandendur.
Stangarhylur 4 Dansleikur mánudagskvöld 8. apríl kl. 20-23,
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Færir þér
fréttirnar
mbl.is
✝ Þorgeir Hjör-leifsson fæddist
í Hnífsdal 14. októ-
ber 1924. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Grund 28.
mars 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Elísabet
Þórarinsdóttir, f. 6.
júlí 1902, d. 8. októ-
ber 1953, og Hjör-
leifur Steindórsson,
f. 29. mars 1895, d. 18. febrúar
1957.
Systkini Þorgeirs eru: Stein-
dór, f. 22. júlí 1926, d. 13. sept-
ember 2012, Jens, f. 13. nóv-
ember 1927, Þórarinn, f. 16.
ágúst 1930, d. 7. janúar 2003, og
Elsa Hjördís, f. 6. september
1937. Þorgeir kvæntist Unu Hall-
dórsdóttur 24. október 1953. Hún
var fædd á Ísafirði 12. ágúst 1931
og lést 5. nóvember 2000. For-
eldrar hennar voru Kristín Svan-
hildur Guðfinnsdóttir, f. 6. des-
ember 1907, d. 16. maí 1982, og
Halldór Jónsson, f. 28. apríl 1890,
d. 5. nóvember 1981.
Börn Unu og Þorgeirs eru: 1)
Elísabet, f. 12. janúar 1955. Son-
ur hennar og Finns M. Gunn-
laugssonar er Arnaldur Máni, f.
28. mars 1978. Sonur hans og
Mörtu Maríu Jónsdóttur er Jóa-
Síðan urðu verslunar- og skrif-
stofustörf hans ævistarf. Árið
1946 hóf hann störf á skrifstofu
Djúpbátsins, vann síðan í Bóka-
verslun Matthíasar Bjarnasonar,
í Neista og frá 1956 á skrifstofu
Kaupfélags Ísfirðinga. Árið 1965
settu Samvinnutryggingar upp
umboðsskrifstofu á Ísafirði og
varð Þorgeir forstöðumaður
hennar. Því starfi gegndi hann til
ársins 1978 þegar þau Una fluttu
suður. Þá varð hann trygginga-
fulltrúi hjá Samvinnutrygg-
ingum, síðar VÍS, í Ármúla 3 til
starfsloka árið 1994.
Þorgeir starfaði með Leik-
félagi Ísafjarðar og var formað-
ur þegar félagið setti upp Meyja-
skemmuna árið 1962 í samvinnu
við Karlakór Ísafjarðar. Hann
var í skátafélaginu Einherjum,
Hjálparsveit skáta og St.
Georgsgildinu í Reykjavík. Þor-
geir var í Oddfellowreglunni frá
árinu 1959, var yfirmeistari St.
Gest á Ísafirði 1974-1976 og vann
að stofnun Rb.st. Þóreyjar 1976.
Hann var einn af stofnendum St.
Snorra Goða í Hafnarfirði 1988,
fyrsti yfirmeistari og fyrsti heið-
ursfélagi hennar og sótti fundi
fram yfir nírætt.
Útför Þorgeirs fer fram frá
Áskirkju í dag, 8. apríl 2019,
klukkan 13.
kim Uni, f. 2. febr-
úar 2007. Sambýlis-
kona Arnaldar
Mána er Karna Sig-
urðardóttir, f. 23.
september 1984.
Börn þeirra eru:
Þorfinnur Sigurörn
Knörr, f. 25. apríl
2015, og Margrét
Elíanna Kára, f. 13.
júlí 2016. 2) Halldór,
f. 25. júlí 1956. Kona
hans er Sjöfn Heiða Steinsson, f.
14. mars 1957. Börn þeirra eru:
Berglind, f. 8. júlí 1980. Maður
hennar er Adib Birkland, f. 27.
júní 1980. Þeirra börn eru:
Brynja Amina, f. 3. nóvember
2010, Sindri Fadl, f. 11. maí 2013,
og Reynir Sanii, f. 5. október
2015; Hákon Atli, f. 16. október
1981. Kona hans er Bára Hlín
Kristjánsdóttir, f. 25. september
1981. Þeirra börn eru: Hilmir
Björn, f. 26. apríl 2012, og Ylfa
Björk, f. 28. mars 2015.
Þorgeir gekk í barna- og ungl-
ingaskóla í Hnífsdal. Hann vann
sem landmaður við beitningar til
ársins 1944 þegar hann fór til
Reykjavíkur. Þar vann hann við
málmsteypu en var fljótlega boð-
ið starf sem afgreiðslumaður í
Herrabúðinni á Skólavörðustíg
sem var í eigu sömu fjölskyldu.
Hve lengi get ég lofsungið þessi fjöll
lofsungið þetta haf, þessar eyjar og
strendur
já menn og alla hluti sem huga minn
gleðja
hve lengi, án þeirrar vissu að eitthvað sé
til
ofar sérhverjum stað, hverri reynslu og
hugsun sem teflir þessum fjöllum fram,
þessu hafi fjarlægð og nálægð, öllu - lífi
og dauða
leikur því fram fyrir augum mér öruggri
hendi?
(Hannes Pétursson)
Í dag kveðjum við hinstu kveðju
föðurbróður minn, Þorgeir Hjör-
leifsson, eða Geira eins og ég kall-
aði hann alltaf. Þetta ljóð Hann-
esar Péturssonar „Umhverfi“ fær
mig til að hugsa til fæðingarstaðar
okkar í Hnífsdal. Hafið og fjöllin
umhverfis okkur hafa eflaust mót-
að okkur án þess að við gerum
okkur grein fyrir þeim áhrifum
sem umhverfið hefur í uppvexti.
Það var yndislegt að fá að alast
upp með samheldinni fjölskyldu
Hjörleifs afa og Elísabetar ömmu.
Þorgeir var elstur þeirra fimm
systkina. Móðir þeirra var aðeins
51 árs þegar hún lést. Elsa sem
var yngst var þá 16 ára. Geiri tók
ungur að sér að sýna systkinum
sínum hver ábyrgð þeirra væri í
lífinu. Ekki voru þeir alltaf sam-
mála bræðurnir eins og systkina
er eðli og sagði Steindór bróðir
þeirra oft skemmtilegar sögur af
þeim, en vináttan ríkti.
Faðir minn, Jens, var miðju-
barnið og kvæntist fyrstur þeirra
bræðra. Móðir mín var þeim
systkinum og foreldrum þeirra,
meðan þau lifðu, mikil hjálpar-
hella. „Nanna mín,“ sagði Geiri oft
og iðulega þegar hann talaði um
hana og mamma minntist oft á
hversu stressuð og kvíðin hún var
þegar hún var að stífa skyrturnar
fyrir Geira því hann vildi alltaf
vera snyrtilegur til fara og hugsaði
líka vel um sig að öðru leyti.
Hjörleifsfjölskyldan stækkaði
og þeim systkinum var það mikil
gæfa hversu heppin þau voru með
maka sína og hvað öll fjölskyldan
náði vel saman.
Hlátur Geira hljómar fyrir eyr-
um mér þegar ég set þessi orð á
blað, hann tók alltaf á móti mér
hlæjandi og ég fékk innilegt faðm-
lag, aldrei voru skeggbroddar að
trufla því hann hafði alveg einstak-
lega mjúka og fallega húð, enda
fallegur allt í gegn.
Okkar störf í lífinu voru um
margt lík, skrifstofustörf lengst af.
Bæði unnum við við tryggingar og
enduðum starfsævi okkar hjá
sama fyrirtæki, VÍS.
Ég get ekki minnst Geira án
þess að nefna elsku Unu sem
kvaddi okkur alltof fljótt. Þau
voru einstaklega samhent, sam-
rýnd, félagslynd og gestrisin hjón.
Missir Geira var því mikill við frá-
fall Unu. Á þeim tíma sýndi hann
mikið æðruleysi.
Í minningunni frá tímum mín-
um fyrir vestan er hvað þau hjón
voru dugleg að ferðast og fara í
tjaldútilegur, bæði tvö ein og eins
með börnin sín tvö, Elsu og
Dúdda, enda skátar sannir.
Þakklæti er mér efst í huga á
þessari stundu fyrir þau forréttindi
að hafa fengið að alast upp með öllu
þessu góða fólki sem miðlaði til
okkar hvað lífið getur verið fallegt
og ástríkt. Ljúfar minningar um
þau hjón og hin sem farin eru
munu lifa með okkur.
Elsku fjölskylda – innilegar
samúðarkveðjur frá pabba og
okkur öllum í hans fjölskyldu.
Sigríður Ingibjörg Jensdóttir.
Fyrstu kynni mín af Þorgeiri
mági mínum rekja sig til ársins
1953 þegar samband hans og Unu
systur minnar hófst. Þetta var við-
burðasumar sem ég, átta ára snáði,
eyddi með foreldrum mínum í Val-
höll í Tunguskógi. Una kom þá í
heimsókn og kynnti fyrir okkur
þennan kærasta sinn frá Hnífsdal.
Ég komst fljótlega að því að hann
borðaði ekki krækiber en væri hins
vegar sólginn í aðalbláber! Það er
fremur lítið um þau þetta sumar en
ég vissi þó að þau væru helst inni í
birkikjarrinu og skreið því inn í
runna með lítið mál og kom stoltur
með það heim hálffullt og færði
þessum kærasta systur minnar!
Þannig hófst okkar vinátta sem
varði allar götur síðan.
Þau Una og Geiri mágur eins
og ég kallaði hann hófu búskap í
nágrenni við okkur í Sólgötu 8,
sem þótti á þeim tíma glæsilegt
hús og gekk því undir nafninu
„Höllin“. Þar fæddust bæði börn
þeirra, Elísabet og Halldór, sem í
okkar fjölskyldu hétu alltaf Elsa
og Dúddi, gælunöfn sem þau nota
enn. Það var því mikill samgangur
á milli heimilanna Hrannargötu 10
og Sólgötu 8 og því margs að
minnast en kannski standa að-
fangadagskvöldin þar upp úr. En
Geiri vildi ekki láta þar staðar
numið og gerðist fyrir hönd fjöl-
skyldunnar þátttakandi í nýjum
íbúðablokkum sem voru reistar á
okkar gamla fótboltavelli við Eyr-
argötu. Þar bjuggu þau sér fallegt
heimili upp úr 1960.
Fjölskyldan var alla tíð sam-
hent og var svo lánsöm að eiga
sameiginleg áhugamál sem voru
skátastarf, ferðalög og útivist.
Geiri og Dúddi tilheyrðu að sjálf-
sögðu skátafélaginu Einherjum en
Una og Elsa kvenskátafélaginu
Valkyrjunni. Geiri hafði fengið
dýrmæta reynslu í skátastarfi áð-
ur en hann stofnaði fjölskyldu.
Hann hafði farið á rekkamót í Sjåk
í Noregi árið 1949 og tveimur ár-
um síðar, árið 1951, sigldi hann
ásamt þremur ísfirskum skáta-
bræðrum með flaggskipi íslenska
flotans, Gullfossi, til Kaupmanna-
hafnar. Þaðan var haldið til Bad
Ischl í Austurríki áleiðis á hátind
alls skátastarfs í heiminum, sjálft
Jamboree. Þarf vart að ímynda sér
hvílík upplifun það hefur verið fyr-
ir unga menn á þessum árum. Í
bakaleið var komið við í heims-
borginni París en haldið heim aft-
ur frá Kaupmannahöfn. Una og
Geiri gegndu bæði forystustörfum
fyrir skátafélögin og ólu sín börn
upp í góðum skátaanda.
Á Ísafirði hóf Geiri sinn starfs-
feril á Djúpbátnum hjá Matthíasi
Bjarnasyni, var síðan um tíma
sölumaður hjá raftækjaverslun-
inni Neista en lengst af starfaði
hann hjá Samvinnutryggingum og
veitti umboði þeirra á Ísafirði for-
stöðu. Seint á áttunda áratugnum
flutti fjölskyldan búferlum til
Reykjavíkur en það sleit ekki okk-
ar góða sambandi því þeirra heim-
ili varð okkar í Reykjavík og okkar
þeirra á Ísafirði.
Það er margs að minnast en ég
vil þegar mágur minn kveður þenn-
an heim, 94 ára að aldri, þakka okk-
ar fjölmörgu og góðu samveru-
stundir á Ísafirði og í Reykjavík.
Við Salbjörg sendum Elsu, Dúdda,
Heiðu og öllum afkomendum inni-
legar samúðarkveðjur. Góður
drengur hefur kvatt okkur og horf-
ið til æðri heimkynna, en minningin
um hann og Unu mun lifa með okk-
ur alla tíð.
Ólafur Bjarni Halldórsson.
Hann var góður og grandvar
maður hann Þorgeir Hjörleifsson,
vandvirkur og samviskusamur í
öllu sem hann tók sér fyrir hendur
hvort sem það var atvinnan, skáta-
starfið eða fjölskyldulífið. Geiri var
elstur þeirra Hjörleifssystkina og
hefur væntanlega snemma fundið
fyrir þeirri ábyrgð. Hófsemi hans
og stilling hefur komið sér vel þeg-
ar mikið gekk á hjá yngri bræðr-
unum þremur og litlu systur. Á
æskuheimilinu í Hnífsdal ríkti
mikið ástríki sem varð þeim öllum
gott veganesti út í lífið og það hef-
ur alltaf verið yndislegt að sjá
kærleikann og kátínuna sem ein-
kenndi samverustundir Hjörleifs-
fjölskyldunnar. Það var bara svo
langt vestur þegar ég var krakki
og ferðirnar þangað því of fáar en
gestrisni þeirra Unu var einstök
og mér fannst alltaf vera glaðasól-
skin þegar við heimsóttum þau.
Eftir að þau fluttu suður hitt-
umst við oftar, sérlega minnisstæð
eru skötuboðin á Þorláksmessu hjá
Gullu og Ninna, gamlárskvöldið hjá
foreldrum mínum Grétu og Stein-
dóri og þrettándaveislan hjá Unu
og Geira. Þegar Nanna og Jenni og
Elsa og Kristmann voru í bænum
var allt fullkomnað.
Í júlí 2002 fór Hjörleifshópurinn
vestur til að minnast þess að 100 ár
voru liðin frá fæðingu ömmu El-
ísabetar á Blámýrum í Laugardal.
Þar sátum við í blíðviðri, hlustuð-
um á Geira rifja upp sögu ættmóð-
urinnar og við sem yngri vorum
fundum fyrir þakklæti fyrir að við
skyldum eiga þetta góða fólk og
þessar rætur. Það hefur fækkað
mikið í hópnum síðan þetta var.
Una kvaddi líka allt of fljótt og er
sárt saknað en Geiri sýndi stillingu
og styrk, dyggilega studdur af
börnum og barnabörnum. Nú eru
þau sameinuð á ný og ég trúi ekki
öðru en að það séu bæði faðmlög
og hlátrasköll þegar Hjörleifsfjöl-
skyldan kemur saman á himnum.
Far þú í friði Geiri frændi, ég
bið að heilsa þeim hinum!
Ragnheiður Steindórsdóttir.
Allt hefur sitt upphaf og endi.
Svo er einnig um lífsferil okkar
allra. Nú hefur heiðursmaðurinn
Þorgeir Hjörleifsson horfið yfir í
önnur heimkynni og ég trúi því að
hann sé búinn að hitta lífsförunaut
sinn til margra ára, hana Unu
Halldórsdóttur, sem lést árið 2000.
Ætla má að þar hafi orðið fagn-
aðarfundir.
Þorgeir var fæddur í Hnífsdal,
en flutti seinna til Ísafjarðar. Þar
vann hann fyrir Samvinnutrygg-
ingar, var umboðsmaður þeirra á
Ísafirði og nágrenni. Eftir að hann
flutti til Reykjavíkur var hann
áfram starfsmaður Samvinnu-
trygginga í nokkur ár. Hann gekk
í Oddfellowstúkuna Gest á Ísafirði
árið 1959 og gegndi þar mörgum
embættum uns hann varð formað-
ur stúkunnar. Nokkrum árum eft-
ir að hann flutti til Reykjavíkur
tók hann þátt í að stofna stúkuna
okkar, stúku nr. 16 Snorra goða,
sem var stofnuð fyrir u.þ.b. 30 ár-
um. Það var þar sem ég kynntist
Þorgeiri. Það var gott að hafa
reyndan mann að leita til. Ég veit
að þau verkefni sem hann innti af
hendi fyrir stúkuna okkar voru vel
af hendi leyst og honum til sóma,
eins og öll önnur þau störf þar sem
hann lagði hönd á plóginn. Fljót-
lega eftir stofnun stúkunnar okkar
var hann heiðraður með því að
gera hann að heiðursfélaga stúk-
unnar og var það að verðleikum.
Þorgeir sótti vel fundi á meðan
hann hafði heilsu til.
Þorgeir var orðvar maður og
talaði aldrei hann illa um náung-
ann. Hann var ekki maður sem
barði bumbur á torgum, eða vakti
á sér athygli í fjölmiðlum með há-
vaða og gífuryrðum. Hann vann öll
sín störf, hver sem þau voru, í
hljóði og af kostgæfni og áreiðan-
leika. Ef eitt orð ætti að lýsa Þor-
geiri, þá er það orðið ljúfmenni.
Þorgeir dvaldi á Grund í lok
æviskeiðsins, eftir að heilsa hans
tók að bila. Einn stúkubróðir okk-
ar, sem heimsótti hann oft þangað,
sagði að í hvert skipti sem hann
hefði komið til hans hefði alltaf
verið friður og ró yfir honum, bæði
áður og eftir að óminnið tók að
hrjá hann.
Í mínum huga mun minningin
um Þorgeir ætíð verða sveipuð
björtu ljósi. Ég þakka honum sam-
fylgdina og þær góðu stundir sem
við áttum saman. Ég er viss um að
honum hefur verið vel tekið þegar
hann kom í hús föðurins.
Við stúkubræður sendum börn-
um hans, ættingjum og vinum
innilegar samúðarkveðjur.
Kæri Þorgeir. Við, bræður þínir,
munum minnast þín um ókomin ár.
Jóhannes Sverrisson.
Þorgeir Hjörleifsson