Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 2

Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 9 DAGA HAUSTFERÐIR TAMPA ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS VERÐ FRÁ 196.900 KR. INNIFALIÐ: FLUG, GISTING & MORGUNVERÐUR NÁNAR Á UU.IS SÉRTILBOÐ! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Innleiðing með frestskilyrði  Utanríkisráðherra mælti fyrir þriðja orkupakkanum  Fjórir fræðimenn unnu álitsgerðir  Yfirlýsing ekki lagalega bindandi en hefur ákveðna lagalega þýðingu Guðni Einarsson gudni@mbl.is Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra mælti í gær fyrir þingsályktunartillögu um þriðja orkupakkann. Síðan fór fram fyrri umræða. Tillagan inniheldur fyrirvara um að sá hluti er snýr að flutningi raforku yfir landamæri, t.d. með sæstreng, komi ekki til framkvæmda nema með aðkomu Alþingis á nýjan leik. „Fyrirvarinn bygg- ist á því að við erum ekki tengd raforkumarkaði ESB og það myndi eingöngu gerast ef sæstreng- ur yrði lagður,“ sagði Guðlaugur Þór á þingi í gær. Í greinargerð kemur fram að utanríkisráðu- neytið leitaði til fjögurra íslenskra fræðimanna um álit á stjórnskipulegum álitaefnum sem kynnu að vera uppi við innleiðingu og upptöku þriðja orkupakkans í íslenskan rétt. Stefán Már Stefánsson prófessor og Friðrik Árni Friðriksson Hirst, framkvæmdastjóri Laga- stofnunar HÍ, unnu álitsgerð um álitamál tengd framsali ríkisvalds til stofnana ESB/EFTA vegna þriðja orkupakkans, einkum 8. grein reglugerðar (EB) nr. 713/2009 sem er hluti af þriðja orku- pakkanum. Hún felur Samstarfsstofnun eftirlits- aðila á orkumarkaði (ACER) m.a. valdheimildir til að taka vissar ákvarðanir varðandi flutnings- virki sem flytja raforku milli ríkja sem mynda sameiginlegan raforkumarkað ESB. „Við innleiðum tilskipunina en frestum gild- istökunni. Alþingi lofar sjálfu sér því að ef grunn- virki [sæstrengur] verða áformuð þá fari þetta í ferli og þar með í stjórnarskrárferli. Gildistök- unni er einfaldlega frestað,“ sagði Stefán Már í samtali við Morgunblaðið. En stenst þetta ákvæði stjórnarskrána? „Við teljum það af því að þetta er innleitt en lögin koma ekki til fram- kvæmdar fyrr en ef tekin verður ákvörðun um að leggja sæstreng. Við erum í rauninni að fresta ákvarðanatökunni, þar með talið því sem lýtur að stjórnarskránni.“ Stefán Már bendir á að utanríkisráðherra telji að innleiðing með frestskilyrði standist þjóðrétt- arlega, meðal annars á grundvelli yfirlýsingar frá framkvæmdastjóra orkumála Evrópusambands- ins sem fylgir með þingsályktunartillögunni. Stefán Már segir að yfirlýsingin sé ekki lagalega bindandi en hafi þó ákveðna lagalega þýðingu. Yfirlýsing um sameiginlegan skilning Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Miguels Arias Canetes, framkvæmdastjóra orkumála í framkvæmdastjórn ESB, á gildi þriðja orkupakk- ans gagnvart Íslandi var gefin út í mars síðast- liðnum. Á 75 ára afmæli lýðveldisins 17. júní næstkomandi verður haldinn sér- stakur þingfundur barna og ung- menna í Alþingishúsinu. Fundurinn verður þegar í kjölfar hefðbundinnar morgunathafnar á Austurvelli. Þetta kemur fram í svari forsætis- ráðuneytisins við fyrirspurn Morg- unblaðsins. Alþingishúsið verður jafnframt opið almenningi síðdegis þjóðhátíð- ardaginn, að afloknum þingfundi barna og ungmenna. Till skoðunar er að hafa fleiri lykilstofnanir en Al- þingi opnar almenningi þennan dag, svo sem dómstóla og ráðuneyti. Þá hefur einnig verið rætt um að hafa hafrannsóknaskip opið almenningi. Afmælisins verður einnig minnst með dagskrá á Hrafnseyri, fæðing- arstað Jóns Sigurðssonar forseta, og í hverjum landshluta. Hinn 21. desember sl. samþykkti ríkisstjórnin að settur yrði á fót óformlegur vinnuhópur til þess að fjalla um það hvernig þess verði minnst að 17. júní á þessu ári eru 75 ár liðin frá stofnun lýðveldis á Ís- landi. Þar kom fram að tilvalið væri að virkja börn og ungmenni til víðtækr- ar þátttöku í hátíðarhöldum. Til dæmis mætti efna til fræðslu í skól- um sem tengist lýðræði og lýðveldi og fyrirhugað Barnaþing á árinu 2019 gæti að hluta verið helgað sömu málefnum. Söfn landsins gætu efnt til viðburða og sýninga og háskólar verið með dagskrá tengda lýðveldis- afmælinu. Með ýmsum hætti mætti einnig virkja íþróttafélög og æsku- lýðssamtök til að fagna afmælinu. „Horft er til ýmissa fleiri verkefna með fleiri aðilum sem unnt verður að greina frekar frá á næstu vikum,“ segir í svari forsætisráðuneytisins. gudmundur@mbl.is Þing barna og ungmenna  Tilefnið er 75 ára afmæli lýðveld- isins 17. júní Ljósmynd/Úr safni Afmæli Mannfjöldi við stofnun lýð- veldis á Þingvöllum 1944. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, tekur síðdegis í dag þátt í pallborðsumræðum á norðurslóða- ráðstefnu, International Arctic Forum, í Pétursborg í Rússlandi ásamt Vladimír Pútín, forseta Rússlands, Sauli Niinistö, forseta Finnlands, Ernu Solberg, for- sætisráðherra Noregs, og Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóð- ar. Málstofan ber yfirskriftina „Norðurslóðir – hafsjór tækifæra“, að því er segir í tilkynningu frá skrifstofu forsetans. Á morgun mun Guðni eiga fund með Pútín, en þann fund situr einnig Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra. Dagskrá forseta Íslands í fyrramálið hefst með heimsókn í Ríkisháskólann í Pétursborg. Hann mun eiga fund með rektor og flytja síðan opinberan fyrir- lestur sem ber heitið „Við mót- mælum öll! Fjölbreytni, gagnrýni og frelsi sem kjarni sagnfræði- rannsókna“. Guðni hittir Pútín í Pétursborg Guðni Th. Jóhannesson  Sækir norðurslóða- ráðstefnu í borginni Vladimír Pútín „Það er ekki búið að taka endanlega ákvörðun. Við höfum óskað eftir fjölda lóða hjá umhverfis- og skipu- lagssviði borgarinnar því við þurfum að byggja upp húsnæði fyrir á annað hundrað fatlaða einstaklinga á næstu 10 árum,“ segir Regína Ás- valdsdóttir, sviðsstjóri velferðar- sviðs Reykjavíkurborgar. Kurr er meðal íbúa Seljahverfis í Breiðholti vegna fyrirhugaðrar byggingar íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Haga- seli. Þegar hafa 800 manns skrifað undir mótmælalista gegn íbúða- kjarna fyrir fólk í þjónustuflokki III. Frestur til að senda inn athuga- semdir er til 16. apríl. Ekki búið að taka ákvörðun VR kynnti nýgerða kjarasamninga fyrir félags- mönnum á fundi á Hilton Reykjavík Nordica í gærkvöldi. Fundinum var einnig streymt á Mín- um síðum félagsmanna. Fundurinn var haldinn á íslensku og túlkaður á ensku. Rafræn atkvæðagreiðsla félagsmanna VR um kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Fé- lag atvinnurekenda hefst að morgni 11. apríl og lýkur á hádegi hinn 15. apríl. Kynning og rafræn atkvæðagreiðsla Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýir kjarasamningar VR við SA og FA kynntir félagsmönnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.