Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
sláttutraktorar
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Hersveitir stríðsherrans Khalifa
Haftar héldu í gær áfram sókn
sinni að Trípólí, höfuðborg Líbíu,
þrátt fyrir að öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna hefði kallað eftir
vopnahléi um helgina. Sameinuðu
þjóðirnar greindu frá því að þús-
undir manna væru nú á flótta frá
Trípólí vegna átakanna.
Federica Mogherini, utanríkis-
málastjóri Evrópusambandsins,
hvatti í gær leiðtoga stríðandi fylk-
inga í Líbíu, og Haftar sérstaklega,
til þess að bera klæði á vopnin og
snúa aftur að samningaborðinu til
þess að finna lausn á deilunum.
Aðalflugvöllur höfuðborgarinnar,
Mitiga, varð fyrir loftárás í gær-
morgun sem varð til þess að hon-
um var lokað, en aðrir flugvellir í
nágrenni borgarinnar höfðu þá
þegar orðið fyrir árásum. Hvorug
fylkingin lýsti yfir ábyrgð á árás-
inni á flugvöllinn, en enginn lést í
henni.
Átökum verði hætt
þegar í stað
Bandaríkjastjórn hvatti um
helgina til þess að öllum hernaðar-
aðgerðum í Líbíu yrði hætt „þegar
í stað“ og öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna tók í svipaðan streng.
Rússar, sem hafa stutt við bakið á
Haftar, komu hins vegar í veg fyrir
formlega ályktun öryggisráðsins,
þar sem kallað var eftir að hann
hætti áhlaupi sínu á höfuðborgina.
Ítrekuðu stjórnvöld í Moskvu þá
afstöðu sína í gær að allir deilu-
aðilar yrðu að forðast aðgerðir sem
gætu leitt til þess að óbreyttir
borgarar létu lífið.
Ótti við frekari átök
Heilbrigðisráðuneyti Líbíu áætl-
aði í gær að um 35 hefðu látist í
átökunum um helgina og 50 til við-
bótar særst. Sögðu talsmenn Haft-
ar að þeir hefðu misst 14 manns í
sókn sinni til þessa.
Maria Ribeiro, mannréttinda-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Líb-
íu, sagði í gær að um 2.800 manns
væru nú á vergangi eftir átökin, og
að bardagarnir hefðu einnig komið
í veg fyrir að hjálparsveitir kæm-
ust til þeirra sem hefðu særst, sem
og til viðgerða á rafmagnslínum í
nágrenni Trípólí.
Vildi hún að gert yrði tímabund-
ið vopnahlé svo hægt yrði að koma
fólki til aðstoðar, en tilraunir til
þess að koma slíku hléi á um
helgina runnu allar út í sandinn.
Ghassan Salame, erindreki Sam-
einuðu þjóðanna, sem hefur það
hlutverk að reyna að stilla til friðar
í landinu, sagði að samtökin væru
staðráðin í að halda áfram með
friðarráðstefnu, sem átti að fara
fram dagana 14.-16. apríl næst-
komandi, en þar átti meðal annars
að skipuleggja kosningar sem gætu
orðið grunnur að sátt milli stríð-
andi fylkinga. Fundaði Salame með
Fayez al Sarraj, forsætisráðherra
Líbíu, í gær til þess að ræða
hvernig alþjóðasamtökin gætu
greitt úr þeirri stöðu sem komin
væri upp.
Sókninni haldið áfram
Allir flugvellir í nágrenni Trípólí lokaðir eftir loftárásir Evrópusambandið
hvetur Haftar til að stöðva áhlaupið Fjöldi fólks á vergangi eftir átökin
TRÍPÓLÍ
200 km
NÍGER
Tóbrúk
Derna
Sabha
Murzuk
Ajdabiya
Bengasí
Sirte
Ben Jawad
Zintan
Misrata
Zuwara
Nalut
Gharyan
Al-Baida
EG
YP
TA
LA
N
D
SÚ
D
AN
Ras Lanuf
Miðjarðarhaf
TÚNIS
ALSÍR
TSJAD
Þjóðarher Líbíu og bandamenn hans
Ríki Íslams
Tubu-ættbálkar og bandamenn
Sabratha
Heimild: Risk Intelligence, AFP
Tuareg-ættbálkurinn
Barist um yfirráð í Líbíu
Ríkisstjórn landsins og bandamenn hennar
Áhrifasvæði í strjálbýli
Yfirráðasvæði
Þessir belgísku hermenn tóku þátt í minningarathöfn í
Kigali, höfuðborg Rúanda, í gær. Skoðuðu þeir tíu
granítstólpa sem reistir voru í minningu tíu liðsfélaga
þeirra sem létu lífið í þjóðarmorðunum í Rúanda, en
þess var minnst um helgina að 25 ár eru liðin frá upp-
hafi þeirra. Um 800.000 manns létu lífið í morðunum.
AFP
25 ár frá þjóðarmorðunum í Rúanda
Recep Tayyip
Erdogan, Tyrk-
landsforseti,
sagði í gær að
niðurstaða kosn-
inganna í Ist-
anbúl í síðasta
mánuði væri
„þjófnaður“, en
AKP-flokkur
hans tapaði
borgarstjóra-
embættinu bæði þar og í höfuð-
borginni Ankara. Sagði Erdogan
mögulegt að kjósa þyrfti aftur, þar
sem 13-14.000 atkvæði væru of lítill
munur til þess að öruggt væri að
Mansur Yavas, frambjóðandi CHP-
flokksins í Istanbúl, hefði farið með
sigur af hólmi.
Segir úrslitin í
Istanbúl „þjófnað“
Recep Tayyip
Erdogan
TYRKLAND
Mark Rutte, for-
sætisráðherra
Hollands, sagði í
gær að hver
ákvörðun Evr-
ópusambandsins
um að fram-
lengja aftur þann
tímafrest sem
Bretar hafa til
þess að ganga úr
sambandinu myndi velta á því hvort
Bretar gætu tryggt „samstarfs-
vilja“ í málinu. Leiðtogar sam-
bandsríkjanna munu ákveða á
morgun hvort og þá hversu langan
frest Bretar fá.
Aukinn tímafrestur
veltur á Bretum
Mark Rutte
BREXIT
Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær að
íranski lýðveldisvörðurinn, sem inni-
heldur helstu sérsveitir íranska
hersins, hefði verið settur á lista
með hryðjuverkasamtökum. Donald
Trump Bandaríkjaforseti sagði í
sérstakri yfirlýsingu að ákvörðunin
tæki mið af þeirri staðreynd að ekki
bara styddi Íran við hryðjuverka-
starfsemi, heldur tækju liðsmenn
lýðveldisvarðarins virkan þátt í
hryðjuverkum.
„Lýðveldisvörðurinn er helsta leið
írönsku ríkisstjórnarinnar til þess að
stýra hinni al-
þjóðlegu hryðju-
verkaherferð
sinni og fram-
kvæma hana,“
sagði ennfremur í
yfirlýsingu
Trumps. Þetta er
í fyrsta sinn sem
Bandaríkjastjórn
hefur sett opin-
bera stofnun sem
tilheyrir erlendu ríkisvaldi á lista
sinn yfir hryðjuverkasamtök, en
ákvörðunin gerir lýðveldisverðinum
meðal annars erfiðara fyrir að eiga
bankaviðskipti utan Írans.
Benjamín Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, fagnaði ákvörðun
Trumps mjög og sagði að hún myndi
koma ríkjum heimshlutans til góða.
Mohammad Javad Zarif, utanrík-
isráðherra Írans, hvatti aftur á móti
írönsk stjórnvöld til þess að gjalda
líku líkt og setja bandarískar her-
sveitir á lista Íransstjórnar yfir
hryðjuverkasamtök en á þeim lista
eru fyrir samtökin Ríki íslams.
Sagðir styðja við hryðjuverk
Sérsveitir Írans settar á lista yfir hryðjuverkasamtök
Donald
Trump