Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 25
Eitt
ogannað
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
Sleggjukastarinn Hilmar Örn
Jónsson hóf keppnistímabil sitt í
Bandaríkjunum af krafti um nýliðna
helgi. Hilmar Örn sem stundar nám
við University of Virginia kastaði
sleggjunni 72,21 metra um helgina.
Þetta er lengsta kast hans síðan
2017 en þá þeytti Hilmar Örn sleggj-
unni lengst 72,38.
Erna Sóley Gunnarsdóttir sem
stundar nám og keppir fyrir Rice
University í Texas varpaði kúlunni
15,78 metra á móti um helgina.
Bætti hún þar með aldurs-
flokkametið í 18-19 ára og flokki og
20-22 ára flokki. Erna Sóley komst
þar með upp í þriðja sæti afrekslista
íslenskra kúluvarpara frá upphafi.
Diego Costa, framherji spænska
knattspyrnuliðsins Atlético Madrid,
gæti hafa spilað sinn síðasta leik á
yfirstandandi tímabili. Costa var rek-
inn af velli eftir hálftímaleik í við-
ureign Barcelona og Atletíco Madrid
á laugardaginn. Þessi skapbráði leik-
maður lét afar ósæmileg orð falla
við dómara leiksins í þann mund
sem dómarinn ætlaði að gefa hon-
um gult spjald. Costa var
rekinn af velli og
spænskir fjölmiðlar
telja að
fram-
herj-
inn
gæti
fengið átta
til tólf leikja
bann en málið er
komið á borð aga-
nefndar spænska
knattspyrnu-
sambandsins.
HONG KONG
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þetta kom upp nýlega vegna þess
að aðstoðarþjálfari liðsins er að taka
„Pro Licence“-þjálfararéttindin í
Kína í ár. Mixu óskaði eftir því að fá
mig með sér og þegar ég var búinn
að fá staðfestingu á að ég mætti gera
þetta af fullum krafti frá stjórn sam-
bandsins þá ákvað ég að taka slag-
inn,“ segir Þorlákur Már Árnason,
sem frá áramótum hefur verið yf-
irmaður knattspyrnumála hjá knatt-
spyrnusambandi Hong Kong, en í
dag tekur hann jafnframt við starfi
aðstoðarþjálfara karlalandsliðs þjóð-
arinnar og gegnir því út þetta ár.
Finninn Mixu Paatelainen, sem
áður var m.a. samherji Guðna Bergs-
sonar hjá Bolton í enska fótbolt-
anum, hefur verið ráðinn landsliðs-
þjálfari Hong Kong og Þorlákur
verður við hlið hans næstu mán-
uðina, eftir að hafa m.a. haft það
verkefni með höndum að finna nýjan
þjálfara og ráða Finnann í starfið.
Þorlákur segir að þetta muni
ganga upp hjá sér næstu mánuðina
en hann vilji í framhaldinu geta ein-
beitt sér að aðalstarfinu sem yfir-
maður knattspyrnumála.
„Það jákvæða við þetta er að ég
hef unnið með U23 landsliðinu síð-
ustu vikur og ég sé nokkra leikmenn
þaðan koma inn í A-landsliðið núna.
Ég hef hins vegar lagt áherslu á að
ég vilji eingöngu sinna þessu ásamt
mínu aðalstarfi út árið þar sem ég
hef mikið á minni könnu,“ sagði Þor-
lákur við Morgunblaðið.
Fyrsta verkefni landsliðsins með
Paatelainen og Þorlák við stjórnvöl-
inn er vináttulandsleikur gegn Taív-
an í júní og síðan fer liðið í und-
ankeppni HM 2022 í september og
leikur þá sex leiki af tíu í undanriðl-
inum á þremur mánuðum. Liðið er í
141. sæti á heimslista FIFA, í 27.
sæti af 46 Asíuþjóðum sem hefjast í
haust keppni um fjögur til fimm sæti
í lokakeppni HM sem fram fer í Kat-
ar 2022.
Legg til róttækar breytingar
Þorlákur segir að margt hafi
breyst síðan hann skrifaði undir
samning við knattspyrnusamband
Hong Kong í desember.
„Já, það hefur margt breyst á
stuttum tíma. Gary White, þjálfari
A-landsliðs karla, sagði starfi sínu
lausu eftir þrjá mánuði til að taka við
liði í 2. deild í Japan og þýskur ung-
lingalandsliðsþjálfari hætti eftir tíu
daga í starfi. Þetta er eitthvað sem
getur gerst í félagsfótbolta en mjög
sjaldgæft hjá knattspyrnu-
samböndum. Ég get alveg við-
urkennt að það var ekki mjög spenn-
andi að koma inn í svona aðstæður.
Þetta hefur hins vegar gengið vel
hingað til og sambandið hefur tekið
mjög vel í þær áherslur og breyt-
ingar sem ég hef viljað gera. Ég er
því fyrst og fremst þakklátur fyrir
það gríðarlega traust sem þeir hafa
sýnt mér. Ég er að leggja til nokkuð
róttækar breytingar, sérstaklega
hvað varðar val á leikmönnum. Sam-
bandið sjálft hefur verið með úrtöku-
lið allt frá 9 ára aldri sem ég vil
leggja niður enda ætti það ekki að
vera í verkahring knattspyrnu-
sambanda að þjálfa börn, heldur fé-
laganna í landinu. Þá er meðalaldur
leikmanna efstu deildar í Hong Kong
mjög hár og ungir leikmenn fá lítil
tækifæri þannig að við erum að
skoða núna að vera með okkar eigin
U23 lið í deildinni líkt og gert er í
Japan, Singapúr og fleiri löndum.
Það sem kemur manni kannski
mest á óvart er starfsmannaveltan
almennt í fótboltanum í Asíu. Samn-
ingar við leikmenn og þjálfara eru
mjög stuttir, flestir til eins árs. Þetta
er auðvitað ekki gott þegar er verið
að gera langtímaáætlanir eða mark-
mið en svona er skipulagið hérna,“
sagði Þorlákur.
Mjög gott vinnuumhverfi
Hong Kong er lítið land að flat-
armáli en er fjórða þéttbýlasta land í
heimi. Þar búa um 7,5 milljónir á
landsvæði sem er um það bil einn tí-
undi af stærð Íslands. Þorlákur er
ánægður með margt.
„Vinnuumhverfið er mjög gott og
þekking á meðal þjálfara og starfs-
manna er betri en ég átti von á. Við
erum með faglegt knattspyrnusvið
sem vinnur náið saman og erum ein-
mitt að klára að gera langtímaáætlun
til næstu fimm ára sem inniheldur
allar áherslur landsliða og kennslu-
aðferðir Þessi áætlun fer til allra fé-
laga í Hong Kong í lok sumars.
Við búum auðvitað að því á Íslandi
að eiga frábæra yngriflokkaþjálfara
þannig að stundum missi ég mig í því
að miða við þá. En það eru nokkrir
efnilegir þjálfarar að koma upp hér
sem við erum að styðja sérstaklega
við til að gera þá betri.
Sambandið tók í notkun frábæra
æfingaaðstöðu sem inniheldur þrjá
gervigrasvelli og tvo grasvelli ásamt
kennsluaðstöðu. Þetta hefur gjör-
breytt aðstöðu landsliðanna en ekki
síður þjálfaramenntuninni. Ég held
jafnvel að áhrifin séu meiri þar, að
geta verið með bóklega og verklega
kennslu á sama stað eykur gæðin
mikið.“
Líkir Íslendingum
Þorlákur hefur mikla reynslu af
þjálfun á Íslandi og starfaði um skeið
á Svíþjóð en segir að hann sé að sjálf-
sögðu kominn í annan heim.
„Stærsti munurinn fyrir mig er
kannski sá að ég er kominn í þessa
risastóru heimsálfu sem Asía er.
Hong Kong er blanda af Asíu og
Evrópu og að mínu mati er auðvelt
að aðlagast lífsstílnum. Hong
Kongbúar eru líkir Íslendingum,
duglegt og stolt fólk sem tekur svo-
lítinn tíma að kynnast. Asía er hins
vegar bæði langfjölmennasta heims-
álfan og sú langstærsta að flatarmáli
og það er svo mikill munur á trúar-
brögðum, hefðum og loftslagi innan
Asíu. Ég fór í síðasta mánuði til Mal-
asíu þar sem hitastigið var 35 gráður
og síðan yfir til Mongólíu þar sem
var 15 stiga frost. Þannig að þessi
heimur er mjög frábrugðinn en of-
boðslega áhugaverður. Svo er ég
auðvitað í starfi sem ég hef ekki sinnt
áður og er að læra nýja hluti á hverj-
um degi.“
170 umsóknir og
nokkrar frá Íslandi
Þegar starf landsliðsþjálfara hjá
Hong Kong var auglýst voru við-
brögðin gríðarleg og Íslendingar
sýndu jafnvel starfinu áhuga. Þor-
lákur vann úr umsóknunum og réð
Paatelainen til starfa eftir að hafa
valið fimm þjálfara í viðtöl af þeim
sem sóttust eftir starfinu.
„Já, það voru 170 umsóknir og þar
af voru nokkrir Íslendingar sem
sóttu um. Það er gríðarleg sam-
keppni um störf í knattspyrnuheim-
inum og svo eru laun auðvitað góð í
þessum toppstörfum. Hong Kong er
geysilega vinsæll staður og borgin
hefur í raun svo margt að bjóða.
Þannig að margir sem sækja um
starfið eru ekki bara að sækjast eftir
fótboltanum heldur líka lífstílnum
hér. Þróunin er hinsvegar sú að ef að
þjálfarar ætla að fá gott starf erlend-
is þá þurfa þeir skilyrðislaust að vera
með „Pro Licence“ þjálfaragráðuna,
svo mikil er samkeppnin,“ segir Þor-
lákur Árnason.
Kominn í annan heim
Þorlákur Már Árnason er orðinn aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Hong Kong
Gegnir starfinu til áramóta ásamt því að vera yfirmaður knattspyrnumála
Ljósmynd/HKFA
Þjálfun Þorlákur Már Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Hong Kong
á æfingu hjá U23 ára karlalandsliði Asíuþjóðarinnar.
Landslið Makedóníu sem mætir ís-
lenska landsliðinu í undankeppni
EM í handknattleik karla annað
kvöld í Laugardalshöll er að uppi-
stöðu til skipað sömu mönnum og
síðast þegar liðin leiddu saman
hesta sína. Síðast mættust liðin á
HM í München í janúar. Ísland vann
með tveggja marka mun, 24:22.
Helsta breyting er að Danilo
Brestovac hefur tekið við þjálfun af
Spánverjanum Raúl Gonzalez.
Kiril Lazarov, Stojanche Stoilov,
Dejan Manaskov, Filip Taleski og
markvörðurinn Borki Ristovski eru
sem fyrr burðarásar landsliðs
Makedóníu. iben@mbl.is
Nýr þjálfari
en sama lið
AFP
Stórskytta Kiril Lazarov er helsta
tromp landsliðs Makedóníu.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt