Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 25

Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 25
Eitt ogannað ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019  Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson hóf keppnistímabil sitt í Bandaríkjunum af krafti um nýliðna helgi. Hilmar Örn sem stundar nám við University of Virginia kastaði sleggjunni 72,21 metra um helgina. Þetta er lengsta kast hans síðan 2017 en þá þeytti Hilmar Örn sleggj- unni lengst 72,38.  Erna Sóley Gunnarsdóttir sem stundar nám og keppir fyrir Rice University í Texas varpaði kúlunni 15,78 metra á móti um helgina. Bætti hún þar með aldurs- flokkametið í 18-19 ára og flokki og 20-22 ára flokki. Erna Sóley komst þar með upp í þriðja sæti afrekslista íslenskra kúluvarpara frá upphafi.  Diego Costa, framherji spænska knattspyrnuliðsins Atlético Madrid, gæti hafa spilað sinn síðasta leik á yfirstandandi tímabili. Costa var rek- inn af velli eftir hálftímaleik í við- ureign Barcelona og Atletíco Madrid á laugardaginn. Þessi skapbráði leik- maður lét afar ósæmileg orð falla við dómara leiksins í þann mund sem dómarinn ætlaði að gefa hon- um gult spjald. Costa var rekinn af velli og spænskir fjölmiðlar telja að fram- herj- inn gæti fengið átta til tólf leikja bann en málið er komið á borð aga- nefndar spænska knattspyrnu- sambandsins. HONG KONG Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Þetta kom upp nýlega vegna þess að aðstoðarþjálfari liðsins er að taka „Pro Licence“-þjálfararéttindin í Kína í ár. Mixu óskaði eftir því að fá mig með sér og þegar ég var búinn að fá staðfestingu á að ég mætti gera þetta af fullum krafti frá stjórn sam- bandsins þá ákvað ég að taka slag- inn,“ segir Þorlákur Már Árnason, sem frá áramótum hefur verið yf- irmaður knattspyrnumála hjá knatt- spyrnusambandi Hong Kong, en í dag tekur hann jafnframt við starfi aðstoðarþjálfara karlalandsliðs þjóð- arinnar og gegnir því út þetta ár. Finninn Mixu Paatelainen, sem áður var m.a. samherji Guðna Bergs- sonar hjá Bolton í enska fótbolt- anum, hefur verið ráðinn landsliðs- þjálfari Hong Kong og Þorlákur verður við hlið hans næstu mán- uðina, eftir að hafa m.a. haft það verkefni með höndum að finna nýjan þjálfara og ráða Finnann í starfið. Þorlákur segir að þetta muni ganga upp hjá sér næstu mánuðina en hann vilji í framhaldinu geta ein- beitt sér að aðalstarfinu sem yfir- maður knattspyrnumála. „Það jákvæða við þetta er að ég hef unnið með U23 landsliðinu síð- ustu vikur og ég sé nokkra leikmenn þaðan koma inn í A-landsliðið núna. Ég hef hins vegar lagt áherslu á að ég vilji eingöngu sinna þessu ásamt mínu aðalstarfi út árið þar sem ég hef mikið á minni könnu,“ sagði Þor- lákur við Morgunblaðið. Fyrsta verkefni landsliðsins með Paatelainen og Þorlák við stjórnvöl- inn er vináttulandsleikur gegn Taív- an í júní og síðan fer liðið í und- ankeppni HM 2022 í september og leikur þá sex leiki af tíu í undanriðl- inum á þremur mánuðum. Liðið er í 141. sæti á heimslista FIFA, í 27. sæti af 46 Asíuþjóðum sem hefjast í haust keppni um fjögur til fimm sæti í lokakeppni HM sem fram fer í Kat- ar 2022. Legg til róttækar breytingar Þorlákur segir að margt hafi breyst síðan hann skrifaði undir samning við knattspyrnusamband Hong Kong í desember. „Já, það hefur margt breyst á stuttum tíma. Gary White, þjálfari A-landsliðs karla, sagði starfi sínu lausu eftir þrjá mánuði til að taka við liði í 2. deild í Japan og þýskur ung- lingalandsliðsþjálfari hætti eftir tíu daga í starfi. Þetta er eitthvað sem getur gerst í félagsfótbolta en mjög sjaldgæft hjá knattspyrnu- samböndum. Ég get alveg við- urkennt að það var ekki mjög spenn- andi að koma inn í svona aðstæður. Þetta hefur hins vegar gengið vel hingað til og sambandið hefur tekið mjög vel í þær áherslur og breyt- ingar sem ég hef viljað gera. Ég er því fyrst og fremst þakklátur fyrir það gríðarlega traust sem þeir hafa sýnt mér. Ég er að leggja til nokkuð róttækar breytingar, sérstaklega hvað varðar val á leikmönnum. Sam- bandið sjálft hefur verið með úrtöku- lið allt frá 9 ára aldri sem ég vil leggja niður enda ætti það ekki að vera í verkahring knattspyrnu- sambanda að þjálfa börn, heldur fé- laganna í landinu. Þá er meðalaldur leikmanna efstu deildar í Hong Kong mjög hár og ungir leikmenn fá lítil tækifæri þannig að við erum að skoða núna að vera með okkar eigin U23 lið í deildinni líkt og gert er í Japan, Singapúr og fleiri löndum. Það sem kemur manni kannski mest á óvart er starfsmannaveltan almennt í fótboltanum í Asíu. Samn- ingar við leikmenn og þjálfara eru mjög stuttir, flestir til eins árs. Þetta er auðvitað ekki gott þegar er verið að gera langtímaáætlanir eða mark- mið en svona er skipulagið hérna,“ sagði Þorlákur. Mjög gott vinnuumhverfi Hong Kong er lítið land að flat- armáli en er fjórða þéttbýlasta land í heimi. Þar búa um 7,5 milljónir á landsvæði sem er um það bil einn tí- undi af stærð Íslands. Þorlákur er ánægður með margt. „Vinnuumhverfið er mjög gott og þekking á meðal þjálfara og starfs- manna er betri en ég átti von á. Við erum með faglegt knattspyrnusvið sem vinnur náið saman og erum ein- mitt að klára að gera langtímaáætlun til næstu fimm ára sem inniheldur allar áherslur landsliða og kennslu- aðferðir Þessi áætlun fer til allra fé- laga í Hong Kong í lok sumars. Við búum auðvitað að því á Íslandi að eiga frábæra yngriflokkaþjálfara þannig að stundum missi ég mig í því að miða við þá. En það eru nokkrir efnilegir þjálfarar að koma upp hér sem við erum að styðja sérstaklega við til að gera þá betri. Sambandið tók í notkun frábæra æfingaaðstöðu sem inniheldur þrjá gervigrasvelli og tvo grasvelli ásamt kennsluaðstöðu. Þetta hefur gjör- breytt aðstöðu landsliðanna en ekki síður þjálfaramenntuninni. Ég held jafnvel að áhrifin séu meiri þar, að geta verið með bóklega og verklega kennslu á sama stað eykur gæðin mikið.“ Líkir Íslendingum Þorlákur hefur mikla reynslu af þjálfun á Íslandi og starfaði um skeið á Svíþjóð en segir að hann sé að sjálf- sögðu kominn í annan heim. „Stærsti munurinn fyrir mig er kannski sá að ég er kominn í þessa risastóru heimsálfu sem Asía er. Hong Kong er blanda af Asíu og Evrópu og að mínu mati er auðvelt að aðlagast lífsstílnum. Hong Kongbúar eru líkir Íslendingum, duglegt og stolt fólk sem tekur svo- lítinn tíma að kynnast. Asía er hins vegar bæði langfjölmennasta heims- álfan og sú langstærsta að flatarmáli og það er svo mikill munur á trúar- brögðum, hefðum og loftslagi innan Asíu. Ég fór í síðasta mánuði til Mal- asíu þar sem hitastigið var 35 gráður og síðan yfir til Mongólíu þar sem var 15 stiga frost. Þannig að þessi heimur er mjög frábrugðinn en of- boðslega áhugaverður. Svo er ég auðvitað í starfi sem ég hef ekki sinnt áður og er að læra nýja hluti á hverj- um degi.“ 170 umsóknir og nokkrar frá Íslandi Þegar starf landsliðsþjálfara hjá Hong Kong var auglýst voru við- brögðin gríðarleg og Íslendingar sýndu jafnvel starfinu áhuga. Þor- lákur vann úr umsóknunum og réð Paatelainen til starfa eftir að hafa valið fimm þjálfara í viðtöl af þeim sem sóttust eftir starfinu. „Já, það voru 170 umsóknir og þar af voru nokkrir Íslendingar sem sóttu um. Það er gríðarleg sam- keppni um störf í knattspyrnuheim- inum og svo eru laun auðvitað góð í þessum toppstörfum. Hong Kong er geysilega vinsæll staður og borgin hefur í raun svo margt að bjóða. Þannig að margir sem sækja um starfið eru ekki bara að sækjast eftir fótboltanum heldur líka lífstílnum hér. Þróunin er hinsvegar sú að ef að þjálfarar ætla að fá gott starf erlend- is þá þurfa þeir skilyrðislaust að vera með „Pro Licence“ þjálfaragráðuna, svo mikil er samkeppnin,“ segir Þor- lákur Árnason. Kominn í annan heim  Þorlákur Már Árnason er orðinn aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Hong Kong  Gegnir starfinu til áramóta ásamt því að vera yfirmaður knattspyrnumála Ljósmynd/HKFA Þjálfun Þorlákur Már Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Hong Kong á æfingu hjá U23 ára karlalandsliði Asíuþjóðarinnar. Landslið Makedóníu sem mætir ís- lenska landsliðinu í undankeppni EM í handknattleik karla annað kvöld í Laugardalshöll er að uppi- stöðu til skipað sömu mönnum og síðast þegar liðin leiddu saman hesta sína. Síðast mættust liðin á HM í München í janúar. Ísland vann með tveggja marka mun, 24:22. Helsta breyting er að Danilo Brestovac hefur tekið við þjálfun af Spánverjanum Raúl Gonzalez. Kiril Lazarov, Stojanche Stoilov, Dejan Manaskov, Filip Taleski og markvörðurinn Borki Ristovski eru sem fyrr burðarásar landsliðs Makedóníu. iben@mbl.is Nýr þjálfari en sama lið AFP Stórskytta Kiril Lazarov er helsta tromp landsliðs Makedóníu. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.