Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 20

Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 ✝ GunnlaugurValdimarsson fæddist í Flatey á Breiðafirði 20. maí 1927. Hann lést á St. Fransiskus- sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 27. mars 2019. Foreldrar hans voru Ingigerður Sigurbrandsdóttir frá Skáleyjum, Breiðafirði, f. 22. ágúst 1901, d. 26. janúar 1994, og Valdimar Sigurðsson frá Hvítanesi í Ög- urhreppi, f. 25. júní 1898, d. 26. september 1970. Alsystkini Gunnlaugs eru: Guðlaug, f. 14. nóvember 1919, d. 2016, Karitas Svanhild- f. 16. maí 1942, d. 25. ágúst 2018, og Kristín Jóhanna, f. 5. ágúst 1943, d. 3. mars 2018. Hálfsystkini samfeðra eru: Guðmundína Lilja, f. 24. febr- úar 1948, Ólöf Sigmars, f. 24. júní 1949, Helgi, f. 16. júlí 1950, og Guðmundur, f. 20. nóvember 1951, d. 21. janúar 1977. Hálfsystir sammæðra er Elín Breiðfjörð, f. 18. júlí 1945. Sambýliskona Gunnlaugs var Oddbjörg Sonja Einarsdóttir, f. 18. desember 1920, d. 17. febr- úar 1995. Synir þeirra eru: 1) Einar D.G., f. 13. nóvember 1946, kvæntur Þóru Margréti Sigurð- ardóttur, f. 29. október 1950. 2) Yngvinn Valdimar, f. 27. sept- ember 1951, kvæntur Jóhönnu Þorleifsdóttur, f. 19. júlí 1952. Gunnlaugur var kvæntur Sigrúnu Sigurgeirsdóttur, f. 23. apríl 1935 á Ísafirði. Gunnlaugur verður jarðsung- inn frá Ísafjarðarkirkju í dag, 9. apríl 2019, klukkan 14. ur, f. 30. mars 1924, d. 14. desem- ber 1925, Ingi- björg, f. 29. júní 1925, d. 26. janúar 2013, Gunnar Haf- steinn, f. 21. júní 1928, d. 14. febrúar 1996, Jón Þorberg, f. 16. nóvember 1929, d. 12. októ- ber 2018, Sigurður Óli, f. 11. janúar 1931, Kristinn Sigvaldi, f. 2. júní 1932, d. 20. október 2001, Ingvar Einar, f. 21. desember 1933, d. 17. janúar 2019, Fífill Héðinn, f. 19. október 1935, Svanhildur Theodóra, f. 4. sept- ember 1937, Guðbrandur, f. 5. desember 1940, Kristrún Inga. Sæll, sonur sæll. Ég er á mjög fallegum stað sem ég má ekki segja þér hver er. Hér sól og blíða og mér líður vel og allt er í góðu lagi. Þannig byrjaði símtal við föður minn fyrir mörgum árum þegar hann var háseti á varðskipi Land- helgigæslunnar. Varðskipsmenn máttu ekki segja hvar þeir voru niðurkomnir þegar þeir höfðu samband við ættingja símleiðis. Grunur minn er sá að hann hafi verið í Stykkishólmi við Breiða- fjörð. Þannig myndi sennilega hljóma símtal frá föður mínum í dag því hann er kominn á fallegan stað þar sem honum líður vel og vel er tekið á móti honum og sér- staklega að afastráknum sem honum var svo kær, honum Jóa okkar. Faðir minn var alinn upp í Rúf- eyjum í Breiðafirði í hópi margra systkina. Vann hann ýmis bústörf til sjós og lands. Veiddi fisk, fugl og sel, tíndi egg og dún. Virkjaði hönd og huga við veiðar, báta- smíði og vélaviðgerðir. Vand- virkni, hugulsemi og atorka fylgdi föður mínum í hverju verki. Snemma ýtti faðir minn bát úr vör og lagði í ölduna. Sjómennska var honum allt hvort sem var á trillum, minni bátum, varðskipum eða millilandaskipum. Stundum var mikil mótbára sem hann sigldi einfaldlega í gegnum af kunnáttu og rósemi með sjó- mannsbænina á vörum sér. Þær voru ófáar sjóferðirnar okkar pabba. Minningar streyma fram. Bæði innanlands og utan. Hvort það var á stærri bátum eða trill- um úti á Faxaflóa eða frá Hólm- inum út á Breiðafjörðinn til að ná í fisk í soðið eða sigling um skerin og eyjarnar sem hann gat nefnt allar með nafni og fannst fallegar. Og þegar í land var komið þótti honum ekkert skemmtilegra en að dytta að bátnum. Þó að það þyrfti að skipta um hvert borð og nagla í bátnum var það unnið af föður mínum af natni og vand- virkni. Ófáar stundirnar áttum við saman í hesthúsinu og hestaferð- irnar okkar voru þvílík ævintýri að minningar um þær gleymast ekki. Föður mínum þótti heldur ekki leiðinlegt að ferðast um land- ið sitt fagra og margar ævintýra- ferðir fórum við um landið þar sem hann kenndi mér veiðiskap og að búa til te úr blómum og jurt- um. Ketilkaffið hans var það besta í heimi. Hann kenndi mér að nýta alla veidda bráð hvort sem það var fiskur, fugl eða jafnvel selur. Æska landsins var honum kær en faðir minn starfaði um tíma sem skátaforingi í skátahreyfingunni.. Starfssvið föður míns var í mörg ár verkamannavinna og sjó- mennska og þá helst við vélgæslu bæði á fiskiskipum og farskipum. Faðir minn vann hjá Vatns- veitu Reykjavíkur sem verkstjóri og lagerstarfsmaður þar sem hann lauk starfævi sinni. Eftir andlát sambýliskonu sinnar kynntist hann eftirlifandi eigin- konu sinni, Sigrúnu Sigurgeirs- dóttur frá Ísafirði. Þau hófu bú- skap á Ísafirði en fluttu þaðan í Stykkishólm þar sem þau bjuggu saman síðan. Nú syrgir tengdadóttir tengdaföður sinn, dætur mínar góðan afa og barnabarnabörnin langafa sin. Gulli afi kom fram við þau af kærleika og ástúð. Við biðj- um góðan Guð að blessa Sigrúnu í söknuði hennar og gefa henni styrk. Hvíl í friði, pabbi minn. Yngvinn. Gunnlaugur Valdimarsson Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bátar Hjólbarðar Bridgestone 4 sumardekk til sölu Notuð aðeins síðasta sumar. 16 tommu. 195/50 R 16 Verð aðeins 50 þús. Upplýsingar í síma 698-2598 Ný Bridgstone ónotuð 4 sumardekk til sölu 18 tommu, 225/40 R 18, Verð aðeins 70 þús. Upplýsingar í síma 698-2598. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Nudd Nudd Nudd Whole body massage S. 7660348, Alena Nudd Vantar þig fagmann? FINNA.is Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, TÓMAS ÞÓRIR GARÐARSSON, Heiðargerði 20, Akranesi, lést á sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 2. apríl. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 16. apríl klukkan 13. Lára Valgerður Jóhannesdóttir Róbert Steinar Tómasson Ragna Björg Guðmundsdóttir Jóhannes Ásgeir Eiríksson Garðar Örn Tómasson Berglind Erla Engilbertsdóttir Guðjón Birgir Tómasson Margrét Egilsdóttir Elín Guðrún Tómasdóttir Fannar Þór Eyþórsson og barnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU MARÍU HALLSDÓTTUR, Strikinu 12, Garðabæ, sem lést 28. febrúar. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heiðmerkur á hjúkrunaheimilinu Ísafold fyrir einstaka umönnun og hlýju. Baldur Ágústsson Halla Elín Baldursdóttir Helga Guðbjörg Baldursd. Gísli Baldur Garðarsson Ágúst Baldursson Sigurlín Baldursdóttir Guðjón Ómar Davíðsson barnabörn og langömmubörn Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, HELGU ARADÓTTUR lyfjafræðings, áður til heimilis í Árskógum 8, sem lést á Hrafnistu, Reykjavík, 10. mars. Starfsfólki Hrafnistu eru færðar sérstakar þakkir fyrir umönnun. Anna Vigdís Eggertsdóttir Sveinn Eggertsson Ari Eggertsson og aðrir aðstandendur Áskær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, INGIBERG J. HANNESSON, fyrrv. prófastur og alþingismaður, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudagin 7. apríl. Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 15. apríl klukkan 13. Helga Steinarsdóttir Birkir Ingibergsson Sigurveig Þóra Guðjónsdóttir Þorsteinn H. Ingibergsson Marelie Nacilla Rubio Bragi J. Ingibergsson Stefanía Ólafsdóttir Sólrún Helga Ingibergsdóttir Pétur Fannar Hjaltason barnabörn og barnabarnabörn SIGRÍÐUR LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR frá Siglufirði lést á Hrafnistu laugardaginn 23. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Jarðsett var að sið ásatrúarmanna. Ásgeir G. Daníelsson Jórunn Daníelsdótir Daníel Á. Daníelsson Áslaug H. Daníelsdóttir makar, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær bróðir okkar og stjúpfaðir, FINNUR STEFÁN GUÐMUNDSSON, Bekansstöðum, sem lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 31. mars, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 11. apríl klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Tómas Guðmundsson Jón Valgeir Viggósson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.