Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 6

Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 Gildi–lífeyrissjóður Ársfundur 2019 Dagskrá fundarins Venjuleg ársfundarstörf. Tillögur til breytinga á samþykktum. Önnur mál, löglega upp borin. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúarráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. 1. 2. 3. Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 11. apríl kl. 17.00 www.gildi.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru nokkrir samningafundir búnir að eiga sér stað. Það er búið að fara góða fyrstu umferð yfir öll málin og finna sameiginlega snertifleti. Nú höldum við áfram og gefum í,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Viðræður um kjarasamninga op- inberra starfsmanna eru farnar af stað og færist þungi í viðræðurnar eftir að skrifað var undir lífskjara- samning í liðinni viku. „Það hafa nokkur félög þegar haldið fundi og ég á von á því að viðræður fari á skrið á næstu dögum og vikum. Fyrstu fundir eru fyrstu fundir, það er engar fréttir að segja af þeim,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM. Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis, segir að viðræður byrji rólega en halda verði vel á spilunum. „Nú eru að koma páskar svo ég hef trú á því að menn setji í hraðgír í maí. Það er að duga eða drepast þá ef menn vilja ná þessu fyrir sumar- leyfi.“ Hann segist aðspurður ekki vera að fara að kvitta upp á lífskjara- samninginn óbreyttan fyrir sína fé- lagsmenn. „Við lítum svo á að það sé ákveðinn hluti af vinnumarkaðinum sem er búinn með sína kjarasamn- inga. Við eigum eftir að gera okkar kjarasamning. Mér sýnist að það sé margt þokkalegt í þessum lífskjara- samningi, annað ágætt og sumt er ekki nógu gott. Við föllumst til dæm- is ekki á þá útfærslu á styttingu vinnutímans að menn borgi fyrir hana sjálfir með kaffitímunum. Það mun ekki gerast.“ Skrifa ekki undir copy/paste-samning Enn á eftir að ganga frá kjara- samningum á almenna markaðinum. Samflot iðnaðarmanna fundar með Samtökum atvinnulífsins hjá ríkis- sáttasemjara á morgun og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja eiga boðaðan fund með SA í dag. „Þar munum við byrja á að skoða þennan kjarasamning sem búið er að gera. Lengra er það nú ekki komið,“ segir Friðbert Traustason, fram- kvæmdastjóri SSF. Hann segir að félagsmenn sínir hafi verið í biðstöðu rétt eins og sam- flot iðnaðarmanna meðan gengið var frá lífskjarasamningnum. „Við erum ekki aðilar að þeim samningum og ekki bundnir af þeim. Við förum á fullt í kjaraviðræður í framhaldi af fundinum í dag. Það hlýtur að liggja fyrir hver kostnaður fyrirtækjanna er af þess- um samningum, að það sé búið að reikna út þann kostnaðarauka sem þau geta borið. Ég hef verið sammála því að menn haldi sig innan þess kostnaðar- ramma sem fyrirtækin treysta sér til að taka á sig. En það er ekki þar með sagt að það þurfi allir að skrifa undir copy/paste-samning. Það er enginn að tala um að einhver ætli að fá meira en aðrir heldur að það sé sam- ið um það sem er í boði milli aðila hverju sinni.“ Mjólkurfræðingafélag Íslands vís- aði viðræðum um nýjan kjarasamn- ing við Samtök atvinnulífsins til rík- issáttasemjara um miðjan mars. Samkvæmt upplýsingum frá Eiríki Ingvarssyni, formanni félagsins, hef- ur einn fundur verið haldinn hjá rík- issáttasemjara og bíða mjólkurfræð- ingar eftir því að vera boðaðir á þann næsta. „Við erum bara í biðstöðu, boltinn er hjá sáttasemjara. Við reiknum með að fá kynningu á þess- um samningum sem búið er að gera og þá kemur kannski í ljós hvort allir ganga inn í þennan pakka eða hvað.“ Ekki bundnir af lífskjarasamningum  Viðræður um kjarasamning opinberra starfsmanna í hraðgír eftir páska  Bankafólk fundar í dag Árni Stefán Jónsson Friðbert Traustason Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hafði sam- band við Ragnheiði Sveinþórsdóttur símleiðis í gær í kjöl- far umfjöllunar Morgunblaðsins um að Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hefðu synjað beiðni um greiðsluþátttöku í læknismeðferð sem níu ára sonur hennar, Ægir Guðni Sig- urðsson, fær vegna fæðingargalla. „Hún vildi fullvissa mig um það að það væri verið að vinna í þessu í ráðuneytinu. Þetta væri vegna stofnanatregðu sem ætti ekki að líðast,“ segir Ragnheiður. Ægir Guðni fæddist með skarð í gómi og vegna synjunarinnar hafa foreldrar hans þurft að greiða meðferðina sjálf. Síðasta haust var reglugerð breytt og stóðu vonir til að sú breyting myndi tryggja að greiðsluþátttaka myndi ná til þeirra barna sem áður ekki nutu slíkrar aðstoðar við meðferðarkostnað. „Svandís sagði að hún hefði látið breyta reglugerð og að hennar vilji hefði komið fram op- inberlega,“ segir Ragnheiður og kveðst bjartsýn hvað framhaldið varðar. „Ég var það hins vegar líka þegar reglugerðarbreytingin fór í gegn, þannig að ég er alveg meðvituð um að það er ekkert fast fyrr en að við erum búin að fá samþykki SÍ, en mig langar virkilega að trúa því að núna verði þetta klárað,“ bætir hún við. Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins segist SÍ ekki getað tjáð sig um einstök mál einstaklinga sem stofnunin hefur eða hefur haft til meðferðar. Staðan sé þó sú að stofnunin starfi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og í þeim er kveðið á um með hvaða hætti greiðsluþátttöku skal háttað. „Þar er sérstaklega tekið fram að heimilt sé að taka þátt í þeim ef um er að ræða alvarlegar afleiðingar meðfæddra galla, slysa eða sjúkdóma.“ Bent er á að í reglugerð sé tekið fram að það þurfi að vera meiri líkur en minni á að fæðingargalli valdi alvarlegum afleiðingum. Innan stofnunarinnar starfi tannlæknir og í slíkum til- vikum séu fengnir til aðstoðar tannréttingarsérfræðing og kjálkaskurðlæknir til þess að meta alvarleika tilvika. Þá séu 85% beiðna um greiðsluþáttöku samþykkt. Sum börn séu með alvarlegan vanda þar sem skarð getur verið alveg í gegnum tanngarðinn, en svo séu önnur börn sem séu að kljást við lítinn hluta örvefs sem hafi engin áhrif á tennur barnsins. „Það er þetta sem sérfræðingar okkar reyna að meta.“ Sagði stofnanatregðu vera ástæðu synjunar  Sjúkratryggingar kosta meðferð á grundvelli alvarleika Morgunblaðið/Óskar Pétur Synjað Beiðni foreldra Ægis Guðna um greiðsluþátt- töku vegna læknismeðferðar hans var hafnað. Hrafnar elta hér undarlegan fugl við ós Leirvogsár í Mosfellsdal og flæma hann í burtu. Fuglinn vantar dökkt litarefni og slíkir fuglar hafa verið kallaðir mórauðir hrafnar. Þeir eru mjög sjaldgæfir en sjást flest ár, aðallega vestanlands, að sögn Kristins H. Skarphéðinssonar, dýravistfræðings hjá Náttúrufræði- stofnun Íslands. Sjaldséður krummi lagður í einelti Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Mórauður hrafn á flótta Neytendastofa hefur bannað Heklu og tónlistarmanninum Emmsjé Gauta að nota duldar auglýsingar á Instagram og Facebook. Í tilkynningu á vef Neytendastofu kemur fram að borist hafi ábend- ingar um færslur Heklu og Emmsjé Gauta á samfélagsmiðlunum Insta- gram og Facebook sem hugsanlega væru duldar auglýsingar á AudiQ5- bifreið. Neytendastofa krafði Heklu um upplýsingar um hvort endurgjald hefði komið fyrir umfjöllunina og hver aðkoma fyrirtækisins hefði ver- ið að umfjölluninni. Fram kom að Hekla gerði samkomulag við tónlist- armanninn um m.a. markaðs- setningu á bifreiðinni auk þess sem gerður var rekstrarleigusamningur um afnot af bifreið til einkanota. Neytendastofa taldi að um væri að ræða markaðssetningu og að ekki hefði komið fram með nægilega skýrum hætti að umfjöllunin hefði verið auglýsing eða hún væri gerð í viðskiptalegum tilgangi. Um tvær færslur er að ræða frá 11. september 2018, þ.e. myndbirt- ingu á instagram-reikningi Emmsjé Gauta og myndbirtingu á insta- gram-reikningi Heklu. Duldar auglýsingar á samfélagsmiðlum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.