Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 19
foreldrum sínum og sinna sínum
búskap þar.
Í fjölda ára fórum við Magga á
haustin að smala Jörvalandið með
börnum okkar og fleirum. Guð-
brandur var oftast fyrstur upp
hnjúkinn, reyndar með hundinn
Snotru í bandi á undan sem gerði
hann enn léttari á fæti!
Fyrir um tuttugu árum hóf
hann skógrækt á Jörva og gerðist
meðlimur í Vesturlandsskógum
og nam skógræktarfræði í
Landbúnaðarháskólanum. Rækt-
uðu þau hjón mikinn skóg sem nú
vex á Jörva.
Við sem áfram njótum lífsins
lifum nú með minningarnar um
ljúflinginn og athafnamanninn og
sjáum skóginn hans vaxa og dafna
áfram eins og barnabörnin og
barnabarnabörnin hans.
Söknuður og missir okkar allra
er mikill en þó mestur hennar
Mörtu sem var hans lífsförunaut-
ur frá því þau voru ung og hann
elskaði mikið og talaði oft um hvað
hann væri heppinn að eiga hana
fyrir konu.
Bestu þakkir fyrir allt og allt.
Stefán Bjarnason.
Elsku Guðbrandur afi. Mikið
þykir mér vænt um þær minning-
ar sem ég á um þig. Þú varst alltaf
svo iðinn, duglegur og útsjónar-
samur. Þú varst aldrei iðjulaus,
alltaf svo innilega glaður og hafðir
svo góða nærveru.
Þegar við vorum með þér í
Flatey borgaði sig alltaf að vera
nálægt þér, því þá voru mestar lík-
urnar á að ég kæmist með út á bát
að sigla eða veiða. Þú iðaðir alltaf í
skinninu að komast út á hafið bláa,
og þá var nú eins gott að vera
fyrstur að panta að fá að fara með.
Þegar við fórum út á Breiða-
fjörðinn var yfirleitt veitt þangað
til karið var fullt af fiski, fatan full
af eggjum eða pokinn fullur af
dún. Þú linntir ekki látum fyrr en
markmiðinu var náð. Þrautseigja
þín var aðdáunarverð.
Mér er einstaklega minnisstætt
þegar þú tókst mig með þér út á
ísilagt Haukadalsvatnið þar sem
við gerðum gat á ísinn með risa-
stórum bor og dorguðum svo í
gegnum hann. Þetta var ævintýri
sem gleymist seint.
Þú varst alltaf svo kátur og
brosmildur. Það var gaman að
spjalla við þig og fróðleikurinn og
ljóðabálkarnir sem þú mundir svo
vel fram á hinsta dag voru ein-
stakir.
Þegar við fórum með þér að
smala á Jörva sá maður yfirleitt
bara undir iljarnar á þér þar sem
þú varst alltaf fyrstur upp á topp-
inn og hægðir hvorki á þér né
linntir látum fyrr en allt féð var
komið í réttirnar. Krafturinn í þér
var ólýsanlegur.
Þú hafðir svo mikinn áhuga á
skógrækt að þú ákvaðst, ásamt
ömmu, að gerast skógarbóndi í
seinni tíð. Þrautseigjan var mikil
og þú fórst meira að segja á nám-
skeið Grænni skóga til að læra
meira um skógrækt. Mikið var ég
stolt þegar þú baðst mig að hjálpa
þér að skrifa ritgerð í náminu, því
þú hafðir víst aldrei skrifað rit-
gerð áður. Það vafðist ekki fyrir
ykkur ömmu, sem gerðuð allt svo
vel saman.
Það var svo yndislegt að sjá
hversu heit ást þín, aðdáun og
virðing til ömmu var, hún var nán-
ast áþreifanleg. Þið eruð sannar
fyrirmyndir.
Megi gæfan þig geyma,
megi Guð þér færa sigurlag.
Megi sól lýsa þína leið,
megi ljós þitt skína sérhvern dag.
Og bænar bið ég þér,
að ávallt geymi þig
Guð í hendi sér.
(Þýð. Bjarni Stefán Konráðsson)
Ég á eftir að sakna þín, elsku
afi minn. Minning þín lýsir upp
framtíð okkar og lifir í hjörtum
okkar um ókomna tíð.
Þín
Helena Marta.
Fleiri minningargreinar
um Guðbrand Þórðarson
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019
✝ Addi, eins oghann var ætíð
kallaður, fæddist
20. mars 1920 á
Eystri-Leirárgörð-
um, Leirár- og
Melahreppi. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Höfða 31.
mars 2019.
Foreldrar Adolfs
voru Einar Gísla-
son, f. 6. febrúar
1876, d. 16. júlí 1951, bóndi á
Eystri-Leirárgörðum, og Þór-
hanna Málmfríður Jóhann-
esdóttir, f. 3. apríl 1894, d. 1.
apríl 1977, húsmóðir.
Systkini Adda voru Theodór,
f. 1908, Óskar, f. 1912, Guð-
finna, f. 1916, Jóhannes, f. 1917,
Hannes, f. 1920, Guðrún, f. 1923,
og Guðríður, f.
1929.
Adolf bjó alla
sína tíð ásamt
Hannesi tvíbura-
bróður sínum og
Ólöfu eiginkonu
Hannesar á Eystri-
Leirárgörðum.
Þeir bræður Adolf
og Hannes tóku við
búskapnum árið
1949 og voru með
kýr, kindur og hesta þangað til
Magnús og síðar Hannes Adolf
tóku við búskapnum. Hann vann
að búskapnum eins og heilsan
og vinnuþrek leyfði með þeim
feðgum.
Útför Adolfs fer fram frá
Leirárkirkju í dag, 9. apríl 2019,
klukkan 15.
Elsku Addi afi minn.
Það er skrítið að hugsa til þess
að þú sért ekki lengur hjá okkur
en ég veit að þú ert kominn á betri
stað, til afa og Svölu, keyrandi um
á traktornum þínum alsæll að
skoða kindur.
Þú varst búinn að lifa góðu og
löngu lífi sem bóndi á
Eystri-Leirárgörðum. Þar bjóstu
alla þína tíð og vannst við búrekst-
urinn lengur en nokkur annar.
Það eru ekki margir sem hafa ver-
ið að tína rúllur komnir yfir 95 ára
aldurinn.
Ég hef alltaf litið á þig sem afa
minn líka og sagði amma mér einu
sinni skemmtilega sögu af afa-rifr-
ildi okkar systkina. Við vorum að
þrátta um hver ætti hvaða afa.
Hannes sagðist eiga afa Hannes,
Bjössi átti afa Bjössa og þá sagði
ég kokhraust að ég ætti afa Adda.
Ég hef alltaf verið stolt af því að
eiga ykkur tvo sem afana mína og
hef ég alltaf talað um ykkur sem
„amma og afarnir“. Mér fannst og
finnst enn gaman að sjá viðbrögð
fólks við því þegar afarnir eru
sagðir í fleirtölu. Svo taka við út-
skýringar á þessu, sem mér finn-
ast enn í dag mjög skemmtilegar.
Mér fannst alltaf gaman að
koma út í fjós til þín þegar þú
varst að fara með vísur eða raula
texta. Þú varst alltaf svo brosandi
og glaður, fíflaðist í mér hvort ég
kynni ekki vísurnar og lést mig
fara með þær með þér. Það eru fá-
ir sem eiga jafn margar glettnar
setningar og þú. Þegar þú varst að
fussa og sveia yfir einhverju eða
koma með fyndnar glefsur um
fólkið í kringum þig, það var oft
óborganlegt.
Ég var svo heppin að eignast
þig sem afa líka og nú þegar þú ert
farinn þá á ég minningarnar sem
mér þykir óendanlega vænt um og
munu fylgja mér um ókomna tíð.
Hvíldu í friði, elsku Addi minn.
Þín Ella.
Elín Málmfríður
Magnúsdóttir.
Ég var svo lánsamur að fá tvo
föðurafa í vöggugjöf, tvíbura-
bræðurna afa og Adda. Þegar ég
var að alast upp í sveitinni var frá-
bært að geta leitað yfir til ömmu
og bræðranna af hvaða tilefni sem
er, hvort sem það var að leika sem
barn, sníkja pening eða fá eitthvað
gott að borða. Ég átti í raun og
veru tvö heimili enda hlið við hlið.
Alltaf var tekið vel á móti mér
og þar var Addi engin undantekn-
ing.
Síðar þegar ég fór að vinna á
bænum sem unglingur, þá var
ekki heyskapur nema hafa Adda á
rauða Massey Ferguson-trak-
tornum.
Þú varst þá að múga, tína upp
rúllur af túnunum eða rúntandi
um. Það er ótrúlegt að hugsa til
þess að þú hafir unnið þangað til
þú varst næstum því hundrað ára,
það eru vandfundin önnur eins
hörkutól.
Ég á eftir að sakna þess að
kíkja yfir og heyra þig fara með
kaldhæðnar vísur hátt og snjallt
en að sama skapi er ég mjög þakk-
látur fyrir allar stundirnar sem við
áttum saman.
Minningarnar um góðan mann
munu lifa áfram.
Þinn frændi,
Davíð Ingi Magnússon.
Gústaf Adolf
Einarsson
✝ RögnvaldurÞorkelsson,
byggingarverk-
fræðingur og fram-
kvæmdastjóri í
Reykjavík, fæddist
23. september 1916
á Akureyri. Hann
lést 29. mars 2019.
Foreldrar hans
voru Þorkell
Þorkelsson, Phd.,
eðlisfræðingur,
kennari og forstöðumaður Lög-
gildingarstofu og síðar for-
stöðumaður Veðurstofu Íslands,
f. 6. nóvember 1876 á Frostastöð-
Einar verkfræðingur, f. 31.
ágúst 1925 í Reykjavík, d. 2013.
Rögnvaldur kvæntist 17. jan-
úar 1948 Ástu Rögnvaldsdóttur,
f. 31. janúar 1922 á Akureyri.
Foreldrar hennar voru Rögn-
valdur Snorrason, kaupmaður
og útgerðarmaður á Akureyri, f.
1886, d. 1923, og kona hans Sig-
ríður Sveinsdóttir, f. 11. ágúst
1890 í Nesi í Norðfirði, d. 1. mars
1990. Synir þeirra Ástu og Rögn-
valdar eru: 1) Jón Þorkell, f.
1948, bakarameistari og for-
stjóri, kona hans er Ragnheiður
Brynjólfsdóttir, f. 1947. 2)
Sturla, f. 1953, d. 2012, bifvéla-
virki, fyrri kona hans var Svein-
björg Eyvindsdóttir og seinni
kona hans er Auður Viðarsdótt-
ir.
Útförin fer fram frá Selja-
kirkju í dag, 9. apríl 2019, klukk-
an 13.
um í Skagafirði, d.
7. maí 1961, og
kona hans Rann-
veig Einarsdóttir, f.
3. janúar 1890 í
Hafnarfirði, d. 1.
maí 1962.
Systkini: Gísli
verkfræðingur, f. 2.
október 1912 á
Akureyri, d. 1971,
Sigurður verkfræð-
ingur, f. 1. febrúar
1914 á Akureyri, d. 1984, Sigríð-
ur snyrtifræðingur, f. 6. júní
1915 á Akureyri, d. 2012, Ingi-
björg yfirkennari, f. 20. júlí 1923,
Á kveðjustund vil ég þakka
Rögnvaldi tengdaföður mínum
samfylgd í meira en 50 ár.
Ég hitti hann fyrst þegar Jón
Þorkell kynnti mig fyrir foreldr-
um sínum árið 1969. Fyrstu kynni
voru mér kvíðablandin en eftir því
sem samskiptin urðu meiri og
kynnin betri hvarf kvíðinn og við
tók gagnkvæm virðing.
Röggi, eins og hann var kall-
aður innan fjölskyldunnar, var at-
hafnamaður mikill og féll sjaldan
verk úr hendi. Ég minnist hans
við teikniborðið heima í Eikjuvogi
að loknum annasömum vinudegi
en hann vann þá sem verkfræð-
ingur hjá framkvæmdadeild inn-
kaupastofnunar ríkisins.
Rögnvaldur var mikil náttúru-
unnandi og notaði frítíma sína til
að rækta og hlúa að plöntum sem
hann hafði sáð og gróðursett, ár-
angurinn leynir sér ekki í falleg-
um garði hans við Eikjuvog og
sumarbústað þeirra hjóna við
Þingvallavatn.
Rögnvaldur byggði sér glæsi-
legt hús í Eikjuvogi 23, þar var
vandað til verks bæði utandyra og
innan en Rögnvaldur var hvata-
maður í að ganga frá öllu utan-
dyra áður en klárað var inni, það
þótti mjög sérstakt á þeim tíma.
Eikjuvogur 23 var griðastaður
fjölskyldunnar, þar byrjuðum við
Jón Þorkell okkar búskaparár á
neðri hæð hússins, Ásta og Rögn-
valdur reyndust okkur vel og
aldrei bar skugga á okkar sam-
veru, þau voru bæði afskaplega
hjálpsöm og góð.
Oftar en ekki var sunnudags-
steikin borðuð þar og þau hjónin
Ásta og Röggi hjálpuðust að við
eldamennskuna en þau voru bæði
úrvalskokkar.
Ásta dekkaði borðið með tau-
servíettum og fallegum blómum
sem voru tekin úr garðinum
þeirra, við nutum samveru þeirra
og þökkum fyrir það.
En lífið er hverfult og 6. janúar
1982 andaðist Ásta langt fyrir
aldur fram og var það Rögnvaldi
þungbært en hann tók því með
æðruleysi.
Árið 2012 kom annað áfall,
Rögnvaldur missti son sinn
Sturlu aðeins 59 ára gamlan og
held ég að Rögnvaldur hafi aldrei
jafnað sig á því.
Röggi bar ekki tilfinningar sín-
ar á borð fyrir aðra, hann hafði
þær fyrir sig.
Rögnvaldur bjó lengst af æv-
inni í Eikjuvogi 23 og lét í ljós ósk
sína um að fá að vera þar svo lengi
sem heilsa leyfði og með hjálp
sonar síns Jóns Þorkels sem veitti
honum aðstoð og umhyggju við
daglegar þarfir gat hann búið þar
til 96 ára aldurs.
Síðustu árin dvaldi Röggi í
Skógarbæ, þar sem hann naut
ástúðar og umhyggju, og viljum
við hjónin þakka fyrir það.
Röggi, að leiðarlokum vil ég
þakka þér samfylgdina. Ég veit
að þú hefur orðið hvíldinni feginn
en þú getur verið stoltur af ævi-
starfi þínu; þú varst mjög góður
og vandvirkur verkfræðingur
sem aldrei gafst upp þótt stormar
blésu á móti. Á góðri stund varst
þú hrókur alls fagnaðar með þinn
fágaða húmor.
Það er ekki sorg sem fyllir hug-
ann þegar háaldraður maður
kveður, það er söknuður blandinn
óendanlegu þakklæti fyrir að hafa
notið svo langra samvista.
Hvíl í friði. Þín tengdadóttir
Ragnheiður.
Í dag kveð ég Rögga afa. Minn-
ingarnar koma upp í hugann þeg-
ar ég lít til baka. Sem lítill dreng-
ur man ég eftir afa sívinnandi við
teikniborðið sitt, nokkrar ferðir
fór ég með honum að mæla fyrir
möstrum og fleira.
Mér fannst ég vera stór og
stoltur af því að geta haldið í mál-
bandið hjá honum og geta hjálpað
honum og í mínum huga var hann
merkilegur maður.
Ferðirnar voru ekki bara
vinnuferðir heldur einnig lær-
dómur fyrir lítinn dreng þar sem
hann sagði mér hvað hin og þessi
fjöll hétu.
Rögnvaldur afi minn hafði
gaman af því að veiða og fórum
við í ýmsar ár og læki með stöng-
ina.
Hvíl í friði, afi minn.
Rögnvaldur
Þorkelsson.
Rögnvaldur
Þorkelsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Okkar ástkæri
MATTHÍAS GEIR GUÐJÓNSSON
andaðist að morgni föstudagsins 29. mars
á Droplaugarstöðum.
Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju
fimmtudaginn 11. apríl klukkan 13.
Sólveig Arnfríður Sigurjónsdóttir
Páll Matthíasson Ólöf Ragnheiður Björnsdóttir
Margrét Björnsdóttir Guðmundur Hallgrímsson
og barnabörn
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐLAUG SIGRÍÐUR
HARALDSDÓTTIR,
Tröllakór 2-4,
Kópavogi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 6. apríl.
Útförin fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 26. apríl klukkan
13:00.
Þóra B. Garðarsdóttir
Guðjón Garðarsson Guðrún A. Friðþjófsdóttir
Jón S. Garðarsson Anna Sigríður Ásgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN HELGASON,
Seglbúðum,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu
Klausturhólum 2. apríl, verður jarðsunginn
frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 13. apríl klukkan 13.
Guðrún Þorkelsdóttir
Björn Sævar Einarsson Guðrún Marta Torfadóttir
Helga Dúnu Jónsdóttir Þórarinn Bjarnason
Bjarni Þorkell Jónsson Gréta Rún Árnadóttir
barnabörn og langafastrákurinn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN JÚLÍA VALGEIRSDÓTTIR,
Dúdú,
Flétturima 30, Reykjavík,
áður Njarðvík og Keflavík,
andaðist á Borgarspítalanum föstudaginn
5. apríl. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 15. apríl klukkan 13.
Arnhildur Ásta Jósafatsd.
Valgeir Vésteinn Guðrúnars. Yolanda Corona López
Ríkharður Mar Jósafatsson Judith Ann Penrod
Ómar Örn Jósafatsson Harpa Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn