Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 22

Morgunblaðið - 09.04.2019, Page 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 50 ára Sig- urður er frá Laugum í Reykjadal en er bóndi á Öndólfs- stöðum og sveitarstjórn- arfulltrúi í Þingeyjarsveit. Maki: Aðalbjörg Tryggva- dóttir, f. 1966, ferðaþjón- ustubóndi. Börn: Kristín Ingibjörg, f. 1990, Tryggvi Snær, f. 1992, og Starkaður Snær, f. 1997. Foreldrar: Snæbjörn Kristjánsson, f. 1924, og Helga Jósepsdóttir, f. 1926, d. 2008. Sigurður Hlynur Snæbjörnsson Séu arkitektar beðnir að „gæta sín á því að hanna hús sem falla að heild- armyndinni“ ber að gæta að því (: athuga það, gefa gaum að því) að það að gæta sín á e-u merkir að var- ast e-ð, vara sig á e-u. Betra er að biðja arkitektana að gæta þess – passa upp á – að húsin falli að heild- armyndinni. Málið Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft ekki að breyta viðmóti þínu, þú ert nógu aðlaðandi fyrir. Reyndu að hugsa áður en þú talar. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er hætt við að þú sért niðurdregin/n og gagn- rýnin/n á aðra í dag. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Horfðu á gam- anþætti, lestu og ræddu við vin sem hefur gaman af fífla- látum og fær þig til þess að hlæja. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert orðinn leið/ur á rútínunni og þig langar að gera eitthvað til tilbreytingar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú kemst yfir upplýs- ingar sem þig langar til að deila með öllum heiminum. Kurteisi kostar ekkert. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er allt í lagi að hlusta á annarra ráð en ástæðulaust að hlaupa eftir þeim. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ímyndunaraflið er af hinu góða ef menn kunna að hafa á því hemil og gera grein- armun á draumi og veruleika. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Finnist þér þú ganga á vegg, hvert sem þú snýrð þér, ættirðu að setjast niður og íhuga þinn gang. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það getur reynst erfitt að snúa blaðinu við þeg- ar deilur um viðkvæm málefni hafa farið úr böndunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú átt auðvelt með að koma auga á sannleikann en erfitt með að miðla hon- um. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hafðu augun hjá þér og láttu einskis ófreistað til þess að komast til botns í því máli, sem þú hefur tekið að þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Notaðu daginn til þess að fara yfir peningamál þín. Vertu ánægð/ur með þig og þína hæfileika. viðsson, snærisþjóf frá Rein, Lykla- Pétur í Gullna hliðinu og Svart þræl í Nýársnóttinni. Ég þótti nokkuð orðhvatur í framboðsræðum til að byrja með en faðir minn ávítaði mig: „Vertu aldrei persónulegur eða vondur við andstæðinga þína, þetta er gott fólk og þú getur þurft á vin- áttu þess að halda.“ Skemmtilegast þótti mér að verða landbúnaðarráðherra og geta látið verkin tala. Það er erfitt starf að vera þingmaður hvað þá ráðherra en gæfan féll mér í skaut, þjóðin var mér góð, ekki síst eftir að ég mild- aðist. Ég lít á ræðumennsku sem listgrein, en í henni þarf að vera smá uppistand, efnisrík og skemmtileg þarf ræðan að vera. Enn er ég eftir- sóttur ræðumaður og fundir mínir vel sóttir af fólki eins og á Kanarí og ég ávarpaði stærsta þorrablót heimsins í Kópavogi í vetur. Sagt er að þessi afmælisdagur sé sá erfiðasti á lífsleiðinni, þarna liggi skilin á milli þess að vera maður eða gamalmenni, þvílíkt bull. Ég ætla að lifa samkvæmt því að fögur sál er ávallt ung undir silfurhærum. Flug- stjórinn minn er auðvitað Guð al- máttugur, nú segir hann: spennið beltin, en ég vona að það sé langt til lendingar.“ G uðni Ágústsson fæddist á Brúnastöðum í Hraungerðishreppi 9. apríl 1949. Hann gekk í barnaskóla í Þingborg, fór í Héraðsskólann á Laugarvatni, lauk þaðan gagnfræðaprófi 1966 og varð búfræðingur frá Landbún- aðarskólanum á Hvanneyri 1968. Guðni var í sveit á Syðri-Bægisá í Öxnadal. Hann starfaði við tilrauna- búið í Laugardælum,vann hjá Sig- fúsi Kristinssyni Staðarsmið á Sel- fossi, var bústjóri á Hamri í Mosfellssveit og var mjólkur- eftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóa- manna 1976-1987. Guðni var kjörinn alþingismaður Sunnlendinga 1987 og var landbúnaðarráðherra 1999- 2007. Hann var formaður bankaráðs Búnaðarbanka Íslands 1990-1993 og bankaráðsmaður til 1998, jafnframt formaður Stofnlánadeildar landbún- aðarins og síðar formaður Lánasjóðs landbúnaðarins. Hann varð formað- ur Framsóknarflokksins 2007 en lét af þingmennsku haustið 2008. Guðni starfaði sem framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðn- aði til ársins 2015. Guðni var sæmdur stórriddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu og hlaut enn fremur úr hendi Svíakon- ungs Kungliga Nordstjärneorden. Guðni er formaður orðunefndar hinnar íslensku fálkaorðu. Hann er enn fremur formaður ritnefndar um Flóamannabók. Guðni er rithöf- undur og hefur gefið út tvær bækur auk ævisögu sinnar sem Sigmundur Ernir Rúnarsson skráði. „Ég var alinn upp við skráargat stjórnmálanna og var sjö ára þegar faðir minn var kosinn á Alþingi, þetta var í genunum að vilja taka þátt í félagsmálum. Formennska í ungmennafélagi sveitar minnar mót- aði mig strax og leiksviðið bæði á Laugarvatni og Hvanneyri hreinsaði mig af feimninni og ég hafði gaman strax af því að beita rödd minni í lestri og leikritum. Ég lék m.a. þrjár hetjur af ólíkri gerð: Jón Hregg- Fjölskylda Eiginkona Guðna er Margrét Hauksdóttir, f. 3.4. 1955: Foreldrar hennar voru hjónin Haukur Gísla- son, bóndi og hreppstjóri á Stóru- Reykjum í Flóa, f. 1920, d. 2002, og Sigurbjörg Geirsdóttir, f. 1932, d. 2018. Börn Guðna og Margrétar eru: 1) Brynja, f. 7.3. 1973. Maki: Auðunn Sólberg Valsson, f. 1964. Börn: Guðni Valur, f. 2000; Salka Margrét, f. 2002; Oliver Tumi, f. 2005; sonur Auðuns: Jökull Sólberg, f. 1986; son- ur hans: Rökkvi Sólberg, f. 2010. Unnusta Jökuls: Sunna Björk Gunnarsdóttir, f. 1992. 2) Agnes, f. 20.11. 1976. Börn: Freyja, f. 2003. Snorri, f. 2006. Barnsfaðir: Guðni Vilberg Björnsson, f. 1979. 3) Sig- urbjörg, f. 15.4. 1984. Maki: Arnar Þór Úlfarsson, f. 1980. Börn: Eva, f. 2012, og Eik, f. 2015. Systkini Guðna: Ásdís, f. 1942; Þorvaldur, f. 1943; Ketill Guðlaugur, f. 1945; Gísli, f. 1946, d. 2006; Geir, f. 1947; Hjálmar, f. 1948; Auður, f. 1950; Valdimar, f. 1951; Bragi, f. 1952; Guðrún, f. 1954; Tryggvi, f. 1955; Þorsteinn, f. 1956; Hrafnhild- ur, f. 1957; Sverrir, f. 1959; Jóhann, f. 1963. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra – 70 ára Fjölskyldan Frá vinstri: Brynja, Guðni, Margrét, Sigurbjörg og Agnes. Landbúnaðarráðherra- starfið skemmtilegast 40 ára Gunna El- ínborg er Hólmvík- ingur og þjónustu- fulltrúi hjá Sýslumann- inum á Vestfjörðum. Maki: Júlíus Freyr Jóns- son, f. 1975, vinnur hjá Orkubúi Vestfjarða. Börn: Helgi Sigurður, f. 2003, og Silja Dagrún, f. 1995. Foreldrar: Þorvaldur Garðar Helgason, f. 1955, og Bryndís Hauksdóttir, f. 1957. Þau eru búsett á Hólmavík. Guðrún E. Þorvaldsdóttir Krossgáta Lárétt: 1) 7) 8) 9) 12) 13) 14) 17) 18) 19) Æstur Kynið Rýran Skrín Bala Lygna Spaug Úðar Rjóða Æfir Anker Óféti Rupla Ein Ilma Efldi Gróf Ræfil Fæðir Ans 2) 3) 4) 5) 6) 10) 11) 14) 15) 16) Lóðrétt: Lárétt: 1) Grobba 7) Larfa 8) Skerti 9) Rosti 12) Sjóða 13) Gruna 14) Ómerk 17) Vistir 18) Tanga 19) Krafts Lóðrétt: 2) Rekkjum 3) Birgðir 4) Alir 5) Krús 6) Hani 10) Orrusta 11) Tónlist 14) Ótta 15) Eins 16) Kvak Lausn síðustu gátu 366 6 5 7 3 4 2 5 8 7 9 2 8 7 4 8 6 8 3 2 7 7 5 4 6 2 5 6 Sudoku Stig Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. 6 9 8 5 1 7 3 4 2 1 4 7 9 2 3 5 8 6 3 2 5 8 4 6 7 1 9 5 6 9 2 7 1 4 3 8 7 3 2 4 9 8 1 6 5 4 8 1 6 3 5 2 9 7 9 7 3 1 6 2 8 5 4 8 1 4 7 5 9 6 2 3 2 5 6 3 8 4 9 7 1 Lausn sudoku Kristín Friðbjarnardóttir er 90 ára í dag. Kristín fæddist og ólst upp á Vopnafirði. Hún var formaður sóknarnefndar Seltjarnarnessóknar frá stofnun hennar árið 1974 til 1990. Hún stofnaði og rak Tískuhúsið Ínu og varð síðar framkvæmdastjóri Kirkjuhússins. Eiginmaður Kristínar var Sigurður B. Haraldsson, d. 2002. Synir þeirra eru Friðbjörn og Haraldur Hlynur. Kristín tekur á móti gestum í safnaðarheimili Seltjarnarnesskirkju kl. 16-18 í dag. Árnað heilla 90 ára Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.