Morgunblaðið - 09.04.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 09.04.2019, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 FYRIR MÓÐUR OG BARN Spíra Omega3 PREGNANCY er ætlað þunguðum konum eða konum sem hyggja á barneignir. Varan innheldur bæði EPA og DHA, auk D-vítamíns og fólats. www.lysilife.is F æ st í a p ó te k u m NÝ TT FRÁ LÝ S I F Y R IR M Ó ÐUR OG BA R N NÝTT Barnamenning- arhátíð á Akur- eyri hefst í dag og stendur til sunnudags. Við setninguna í Hamragili í Hofi dag kl. 16 koma meðal annars fram Herra Hnetusmjör sem flytur nokkur lög, flutt er atriði úr fjölskyldusöngleiknum Gall- steinar afa Gissa og sýningin Þetta vilja börnin sjá – mynd- skreytingar í barnabókum er opn- uð. Í dag kl. 9.30 og 10.40 stendur Tónlistarskólinn á Akureyri fyrir Söngvaflóði þar sem leikskólabörn bjóða bæjarbúum upp á tónleika ásamt nemendum skólans. Á næstu dögum er boðið upp á ýms- ar smiðjur er snúa að ritlist, myndlist og leiklist, fyrirlestra, tónleika, stuttmyndahátíð, list- vinnustofu, barnakaffihús og hæfi- leikakeppni svo fátt eitt sé nefnt. Dagskrá Barnamenningarhátíðar á Akureyri má nálgast í heild sinni á vefnum: barnamenning.is Smiðjur og fróð- leikur á Akureyri Herra Hnetusmjör Barnamenning- arhátíð í Kópa- vogi hófst í gær og stendur til laugardags. Á þeim tíma bjóða Menningarhúsin í Kópavogi börn- um í leik- og grunnskólum „upp á fjöl- breytta og metnaðarfulla dag- skrá,“ eins og segir í tilkynningu. Auk fjölda smiðja og tónleika verða verk eftir nemendur til sýn- is á Bókasafni Kópavogs, Náttúrufræðistofu og Gerðarsafni en nemendahóparnir hafa unnið að verkunum sem sýnd verða í all- an vetur. Allar nánari upplýs- ingar um dagskrána má finna á vefnum: menningarhusin.kopa- vogur.is/fraedsla/barnamenning- arhatid. Fjölbreytt dagskrá í boði í Kópavogi Dúó Stemma. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Barnamenningarhátíð í Reykjavík er sett í 9. sinn í dag og stendur til 14. apríl. Opnunarhátíðin verður í Eld- borg Hörpu þar sem grunnskóla- nemendum í 4. bekk er boðið upp á tónleika og skemmtiatriði. Að opn- uninni lokinni hefjast tónleikar leik- skólabarna úr 32 leikskólum Reykja- víkur í Eldborg. Borgin verður undirlögð af menningar- viðburðum á næstu dögum en sérstök áhersla er lögð á þátttöku barna í menningu og listum yfir há- tíðina, að sögn Hörpu Rutar Hilmarsdóttur, verkefnastjóra barnamenningar hjá Reykjavíkurborgar. „Hugmyndin á bak við hátíðina er að auka sýnileika þess sem börnin leggja til menningar en líka að bjóða þeim tækifæri til að upplifa fjöl- breytta menningu. Það er margt sem rúmast innan þessarar hátíðar sem tengist menningu barna,“ segir Harpa og bætir við að allir viðburðir hátíðarinnar séu ókeypis. Samsöngur 760 leikskólabarna Á opnunardeginum í Hörpu fara fram tónleikarnir Lífið er heimsins besta gotterí þar sem 760 leikskóla- börn úr 32 leikskólum Reykjavíkur- borgar koma saman og syngja og leika lög eftir Jóhann G. Jóhannsson. Börnin hafa æft sönglögin í leikskól- anum í febrúar og mars en á þriðju- daginn koma þau saman og syngja ásamt hátíðarhljómsveit Tónskóla Sigursveins. Þá fara fram tónleikarnir Upp- takturinn á opnunardeginum í Hörpu þar sem þekktir tónlistarmenn flytja valin verk barna. Með verkefninu voru börn hvött til að setja saman tónsmíð eða drög að tónsmíð, óháð tónlistarstíl og senda inn í keppni í febrúar. Höfundar þeirra verka sem urðu fyrir valinu fengu því tækifæri til að fullvinna verk sín með aðstoð fagmanna. Boðið verður upp á samsöngs- tónleika í Gerðubergi í dag kl. 17 þar sem ÁsbjörgJónsdóttir og Auður Gudjohnsen kynna ný sönglög. Harpa segir langan undirbúning liggja að baki hátíðarinnar: „Margir viðburðir hátíðarinnar eru undir- búnir í marga mánuði. Ekki er um eina sýningu sem tekur klukkustund að ræða heldur hefur ferlið staðið yf- ir síðan í haust. Þetta er þátttökuhá- tíð og við auglýsum styrki svo að list- hópar, skólar og menningarstofnanir geti sótt um styrki til hátíðarinnar og skapað viðburði.“ Þrautaleikur á ljósmyndasafni Hátíðin samanstendur af fjöl- breyttri dagskrá um alla borgina og verða viðburðir haldnir meðal ann- ars í Listasafni Reykjavíkur, Sjó- minjasafninu í Reykjavík, Gerðu- bergi og Eldborg. Á Sjómanna- safninu í Reykjavík verður gestum boðið að setja upp sýndarveruleika- gleraugu og kafa neðansjávar í Breiðafirði. Þar geta gestir verið „viðstaddir“ þar sem hollenska kaupskipið Melckmeyt strandaði ár- ið 1659 en skipið liggur þar enn. Með gleraugunum og hjálp sérfræðinga safnsins verður hægt að skoða skips- flakið sögufræga. Á Ljósmyndasafninu í Reykjavík verður einnig nóg um að vera yfir hátíðina en þar verður þrautaleikur um sýningu Páls Stefánssonar, …núna. Á sýningunni verður lands- lagsmyndum frá Íslandi og ljós- myndum af flóttamönnum um víða veröld teflt saman og gerir það gest- um og gangandi kleift að velta fyrir sér lífi og aðstæðum barna á ólíkum tímum. Tónleikar með Emmsjé Gauta Helgina 13.-14. apríl verður barna- menningarhátíðin haldin hátíðleg í Breiðholti í fyrsta sinn. Þá verður menningarmiðstöðinni í Gerðubergi umbreytt í svokallaða Ævintýrahöll þar sem tónlist, myndlist, leiklist og föndur er meðal þess sem ber hæst. Á lokadegi hátíðarinnar verða tónleikar með rapparanum Emmsjé Gauta. Hátíðin hefur fest sig vel í sessi í Reykjavík. Fyrst var hún haldin árið 2010, síðan árið 2012 en hún hefur farið fram árlega síðan þá. „Það er ótrúlega skemmtilegt að skipuleggja þessa hátíð því það vilja allir vera með og opna dyrnar til að skapa tæki- færi fyrir börn,“ segir Harpa. Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefnum: barnamenningarhatid.is. Barnamenning tekur völdin Morgunblaðið/RAX Barnamenning Börnin í Dalskóla standa fyrir sýningunni Dýr og furðuverur á Listasafni Reykjavíkur.  Barnamenningarhátíð fer fram í Reykjavík 9.-14. apríl  Samsöngur 760 leik- skólabarna og tónleikar með Emmsjé Gauta á meðal viðburða um helgina Harpa Rut Hilmarsdóttir Hið tilkomumikla þjóðlistasafn Kat- ar var opnað í borginni Doha 27. mars, sköpunarverk hins heims- kunna franska arkitekts Jean Nou- vel. Safnið hefur verið í byggingu í rúm tíu ár og er engu líkt, sam- ansett úr disklaga formum sem tengjast saman bæði lárétt, lóðrétt og hallandi og einnig má sjá vísanir í forna byggingarlist Mið- Austurlanda. Innan í safninu má sjá sögu Katar og eru gangar sýning- arsalanna samanlagt um einn og hálfur kílómetri að lengd. Nouvel byggði hönnun sína á steinefnamynd- unum sem kall- aðar eru eyði- merkurblóm og eru, líkt og safn- ið sjálft, mikið undur. Úr fjar- lægð er engu lík- ara en að geim- skip frá annarri plánetu hafi lent í miðri Doha, höfuðborg Katar, eins og sjá má af ljósmyndinni. AFP Opnun Katarskir embættismenn við safnið mikla á opnunardegi. Líkt og geimskip frá annarri plánetu Jean Nouvel

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.