Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 29

Morgunblaðið - 09.04.2019, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2019 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is fyrir heimilið VifturHitarar LofthreinsitækiRakatæki Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Seabear mun koma fram á Iceland Airwaves-tónlistar- hátíðinni í haust en hún hefur legið í dvala frá árinu 2011. Liðsmenn sveitarinnar hafa verið önnum kafn- ir í öðrum verkefnum frá því Sea- bear lagðist í dvala, Sindri Már Sig- fússon gefið út og komið fram undir nafninu Sin Fang og Sóley Stefáns- dóttir átt góðu gengi að fagna sem sólótónlistarmaðurinn Sóley, svo tveir liðsmenn séu nefndir. Seabear var upphaflega sólóverk- efni Sindra Más en þróaðist yfir í til- raunakennda og fjölmenna og þjóð- lagaskotna indírokksveit. Seabear gaf út tvær hljóðversskífur á vegum Morr Music, The Ghost That Car- ried Us Away árið 2007 og We Built a Fire þremur árum síðar. Var þeim vel tekið af gagnrýnendum og hróð- ur sveitarinnar barst víða og hún hélt í langar tónleikaferðir um Evr- ópu og Bandaríkin. Þá rötuðu lög sveitarinnar líka í sjónvarpsþættina Gossip Girl og Grey’s Anatomy. Og nú er sveitin vöknuð af værum blundi og farin að vinna að því að leggja drög að næstu plötu. Léku á styrktartónleikum Sóley byrjaði í hljómsveitinni árið 2010 og vann því með henni að ann- arri breiðskífunni, We Built a Fire fyrrnefndri. Hún segir endurkomu sveitarinnar þannig til komna að Halldór bassaleikari hafi misst eigur sínar í bruna og hljómsveitin hafi í kjölfarið leikið á styrktartónleikum fyrir hann á Húrra og leikið nokkur lög. „En það var áður en við ákváð- um að gera eitthvað saman,“ nefnir Sóley og að hljómsveitin hafi oft stungið upp á því í gríni að byrja aft- ur að spila. Þau hafi öll verið upptek- in við sína listsköpun en Sindri hafi svo gert alvöru úr hugmyndinni og hóað liðinu saman. „Það eru allir að eldast og ruglu- dallarnir eru orðnir edrú núna,“ seg- ir Sóley sposk um hljómsveitina Seabear árið 2019. Og talandi um aldur þá er Sóley yngsti meðlimur hljómsveitarinnar, 32 ára og Halldór átti afmæli um daginn, varð 38 ára. Liðsmenn eru allir á þessu aldurs- bili, að sögn Sóleyjar, fólk á fertugs- aldri sem hefur komið víða við í list- sköpun sinni frá því að Seabear lagðist í dvala. Sóley segir þau Sindra hafa sinnt sínum sólóverkefnum og að Guggý (Guðbjörg) hafi verið í „alls konar fiðlugríni“. „Dóri er í myndlist og gengur farsællega og Kjartan og Örn Ingi hafa verið eitthvað að spila þannig að við fórum öll í okkar horn,“ segir hún. Tímarnir breytast og mennirnir með Spurð út í hina væntanlegu plötu Seabear segir Sóley að hugmynda- vinnan sé komin í gang. „Við ætlum líka bara að sjá hvað gerist, erum byrjuð að henda í einhver lög og svo bara sjáum við til. Þeir sem mæta á þessa tónleika á Airwaves vilja örugglega líka heyra gömlu lögin,“ segir hún. En telur Sóley að tónlist Seabear muni taka einhverjum breytingum? „Jaaa, við erum búin að vera ræða það og auðvitað breytast tímarnir og maður sjálfur með sem listamaður, þroskast á níu árum og ekkert okkar er að gera einhverja svona kassa- gítars-kántrítónlist núna, eins og við vorum kannski svolítið að gera. En við erum samt ekkert að fara að gera rappplötu,“ segir Sóley kímin, „við erum að gera þetta af því við er- um vinir og finnst þetta gaman“. Seabear-túrar voru skrautlegir – Verða engir tónleikar haldnir áður en kemur að Airwaves? „Við erum ekki búin að ákveða það, þetta gerðist allt mjög óvænt og við ætlum bara að sjá til. Það getur vel verið að við spilum eitthvað áð- ur,“ svarar Sóley og telur líklegt að Seabear muni leika í Hafnarhúsi á Iceland Airwaves. Hún hafi gert það fyrir margt löngu, nýkomin úr fimm vikna löngu tónleikaferðalagi. „Þess- ir túrar voru alltaf mjög skrautlegir og ég held að þeir séu hálfpartinn í sögubókunum,“ segir Sóley og hlær. Ýmsum sögum fari af Seabear-tón- leikaferðum þar sem jafnan voru upphitunarsveitir með í för og því nokkuð fjölmennt. Blaðamaður spyr nánar út í þessi skrautlegheit og fær þau svör að túrarnir hafi verið ein af ástæðum þess að hljómsveitin hætti á sínum tíma. „En þeir sem voru hvað glað- astir eru allir orðnir svo rólegir. Ég var yngst og skildi ekkert hvað var að gerast,“ bætir Sóley við glettin. – Nú voruð þið orðin vinsæl utan landsteinanna og áttuð ykkur marga aðdáendur erlendis. Er ekki líklegt að þið farið aftur út að spila? „Við erum að hugsa málið, við vor- um ekkert „Of Monsters and Men“- fræg en okkur gekk ofboðslega vel úti og enginn veit hvernig hefði farið hefðum við haldið áfram. Kannski var bara fínt að hætta en jú, við er- um alveg opin fyrir öllu. Það eru allir komnir með börn og það er aðeins flóknara að vera sjö foreldrar en það getur vel verið að við förum í styttri túra ef þeir eru í boði,“ svarar Sóley. Frekari upplýsingar um dagskrá Iceland Airwaves má finna á vef hátíðarinnar, icelandairwaves.is. Sæbjörn snýr aftur Seabear 2019 Liðsmenn hljómsveitarinnar, frá vinstri til hægri, eru Halldór Ragnarsson, Örn Ingi Ágústsson, Sindri Már Sigfússon, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Kjartan Bragi Bjarnason og Sóley Stefánsdóttir.  Hljómsveitin Seabear rís úr átta ára dvala og kemur fram á Iceland Airwaves  Plata væntanleg  Allir að eldast og rugludallarnir orðnir edrú, segir Sóley Stjórn Drama- ten, konunglega leikhússins í Stokkhólmi, til- kynnti í gær að leikhússtjórinn Eirik Stubø hefði verið látinn taka poka sinn. Stubø, sem verið hefur leikhússtjóri og listrænn stjórnandi Dramaten frá 2015, hefur sætt harðri gagnrýni frá því að Sænska sjónvarpið frum- sýndi heimildarmyndina Älska mig för den jag är í lok mars. Í mynd- inni var fjallað er um ævi söngkon- unnar Josefin Nilsson og fram kom að hún hefði ítrekað orðið fyrir bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu fyrrverandi sambýlis- manns sem hefur árum saman starfað sem leikari við Dramaten. Maðurinn hlaut 1997 þriggja mán- aða skilorðsbundinn dóm fyrir of- beldið sem hann beitti Nilsson. Myndin vakti hörð viðbrögð al- mennings sem hótaði að sniðganga leikhúsið og efndi til mótmæla fyrir framan leikhúsið. Í kjölfar ákváðu stjórnendur leikhússins að hætta sýningum á uppfærslu sem mað- urinn lék í. Félag leikara við húsið krafðist þess einnig að stjórnendur tryggðu öruggt vinnuumhverfi, en síðla árs 2017 var hætt við aðra sýn- ingu sem maðurinn átti að vera í þegar fram komu ásakanir um of- beldi hans í garð samstarfsfélaga. Í fréttatilkynningu frá Ulriku Årehed Kågström, stjórnar- formanni, kom fram að stjórn leik- hússins bæri ekki lengur traust til Stubø sem leikhússtjóra. „Undir stjórn Eiriks hefur Dramaten unnið mikla listræna sigra og áhorf- endum fjölgað. Við vonum að leik- húsið geti notið krafta Eiriks sem leikstjóra síðar meir. Það er nið- urstaða stjórnarinnar að Dramaten þurfi ferska vinda til að huga að starfsumhverfinu. Við teljum það best gert með því fá ráða nýjan leikhússtjóra,“ skrifar Kågström. Við starfinu tekur Maria Groop Russel, sem áður gengdi starfi aðstoðarleikhússtjóra. Menningar- málaráðherra Svíþjóðar, Amanda Lind, segist treysta því að stjórn Dramaten tryggi nú starfsfólki leikhússins öruggt starfsumhverfi. Leikhússtjórinn tekur poka sinn Eirik Stubø Tríóið Mókrókar kemur fram á Jazzkvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Tríóið skipa Benjamín Gísli Einarsson á píanó, hljómborð og hljóðgervla, Þorkell Ragnar Grét- arsson á rafgítar og Þórir Hólm Jónsson á trommur. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggj- endum tónleikanna leikur tríóið frumsamda músík í opnum útsetn- ingum með mikla áherslu á frjáls- an spuna. Mókrókar hafa komið fram á ýmsum tónlistar- viðburðum bæði hérlendis og erlendis síðastliðið ár, m.a. á DølaJazz 2018 í Noregi. Tríóið er á leið í hljóðver í maí og stefnir á að gefa út sína fyrstu plötu í sumar. Tónlistarflutningur hefst kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis. Kex hostel er við Skúlagötu 28. Tríóið Mókrókar á Kex hosteli í kvöld Upptaka Mókrókar eru á leið í hljóðver. Shazam! Ný Ný Pet Sematary (2019) Ný Ný Dumbo (2019) 1 2 Us 2 3 Captain Marvel 3 5 How to Train Your Dragon: The Hidden World 4 6 Asterix: The Secret of the Magic Potion 5 3 Dragged Across Concrete 6 2 The Lego Movie 2: The Second Part 7 9 Alita: Battle Angel (2019) 14 8 Bíólistinn 5.–7. apríl 2019 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Bíóaðsókn helgarinnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.