Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 6

Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Vertu með í páskaleik Góu á goa is!. Vilja að skattabreytingar komi fyrr  Formenn verkalýðsfélaga segja jákvæð viðbrögð við Lífskjarasamningnum á kynningarfundum  Helst gagnrýnt að bíða þurfi eftir skattalækkunum til 2020 Freyr Bjarnason Ómar Friðriksson Nýgerðir kjarasamningar falla í góð- an jarðveg meðal félagsmanna stétt- arfélaga ef marka má fyrstu við- brögð á kynningarfundum sem standa yfir þessa dagana að sögn for- ystumanna verkalýðsfélaga. Í frétt á vefsíðu VerkVest á Vestfjörðum seg- ir að Lífskjarasamningurinn hafi fengið góðar undirtektir á fundi trúnaðarráðs og trúnaðarmanna. ,,Þó svo almenn ánægja hafi verið með aðkomu stjórnvalda lýstu fund- armenn óánægju sinni með að skattabreytingar skuli ekki koma fram fyrr en á næsta ári og því muni of hátt hlutfall af taxtahækkunum og uppbótargreiðslum fara í skattinn,“ segir þar. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir eft- ir kynningarfund í Ísfiski í gærmorg- un að undirtektir hafi verið góðar. ,,Því meira sem ég hugsa um þennan kjarasamning, þeim mun sannfærð- ari er ég um að hann er risastór tíma- mótasamningur fyrir íslenskt verka- fólk. Ef ég lít aftur í tímann þá er þetta einn besti kjarasamningur sem gerður hefur verið fyrir verkafólk sem tekur laun eftir launatöxtum í marga áratugi,“ segir hann. Spurður hvort hann verði var við óanægju með að of langt sé í skatta- breytingar stjórnvalda sem eru ekki fyrirhugaðar fyrr en á fjárlögum næsta árs segir Vilhjálmur rétt að helsta gagnrýnin sem komið hafi fram sé á þetta atriði. „Við erum að bíða eftir nánari útfærslu stjórn- valda á því hvort sé hægt að láta þetta trappast inn með hraðari hætti en fyrirhugað er. Við myndum fagna því ef það yrði gert,“ segir hann. „Ég heyri ekki annað en menn séu bara nokkuð sáttir með þetta og menn eru mjög jákvæðir gagnvart þeirri nýbreytni að tengja launa- breytingar við hagvöxtinn og finnst bæði spennandi og sanngjarnt að samið sé um að ef hagvöxturinn vex skipti menn því á milli sín,“ segir Björn Snæ- björnsson, for- maður SGS og Einingar-Iðju. Aðgerðir stjórnvalda mælist líka vel fyrir, sérstaklega breytingarnar í skatta- og húsnæð- ismálum og lenging fæðingarorlofs- ins sem lengi hafi verið barist fyrir. Aðspurður segir hann það rétt að menn hefðu viljað sjá skattalækkan- irnar koma fyrr til framkvæmda. „En þetta kemur.“ Spurt um styttingu vinnutíma Mikið var spurt um styttingu vinnuvikunnar þegar nýr kjara- samningur VR við SA var kynntur sl. mánudagskvöld. Í lífskjarasamn- ingnum var samið um 45 mínútna styttingu á vinnutíma á viku frá og með 1. janúar 2020. Útfærsla stytt- ingarinnar er í höndum hvers vinnu- staðar fyrir sig. Að sögn Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, var húsfyllir á fundinum, allt gekk vel fyrir sig og mikið var spurt. „Það sem brann svolítið á fólki var út- færslan á styttingu vinnuvikunnar. Þetta hljómar ekki mikið, níu mín- útur á dag, en ef aðrir möguleikar eru teknir sem standa fólki til boða, m.a. að breyta vinnufyrirkomulag- inu og kaffitímunum, þá er þetta um- talsvert mikil stytting,“ sagði hann. Ragnar nefnir að eitt af því sem er óljóst eftir undirritun kjarasamn- ingsins sé að á síðustu metrunum var samið um að ríkið myndi auka skattalækkanir á milli- og lægri tekjuhópa úr sjö þúsund kr. í 10 þús- und og einnig taka út frystingu á persónuafslætti. Ekki gafst tími til að útfæra nákvæma leið hvað þetta varðar. „Við töldum bara skynsam- legra að ná samningnum sem fyrst þannig að hækkanirnar taki gildi sem fyrst. Það er gríðarlegt hags- munamál líka fyrir okkar félags- menn að þetta komi til framkvæmda sem allra fyrst og launafulltrúar fyr- irtækja hafi eins mikinn tíma og hægt er til að ganga frá þessu öllu saman.“ Vilhjálmur Birgisson Björn Snæbjörnsson Ragnar Þór Ingólfsson Ekki liggur fyrir hvaða sveitarfélög munu taka þátt í útboði Strætó og Reykjavíkurborgar á akstursþjón- ustu fatlaðra fyrir næstu ár. Hafn- arfjarðarbær dró sig út úr sam- starfi sveitarfélaganna vegna kostnaðar og Kópavogsbær hefur ekki tekið þátt. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, segir að ákveðið hafi verið að fulltrúar nokkurra sveitar- félaga og Strætó muni hittast til að fara yfir málin á næstunni og meta hvaða leiðir séu skynsamlegastar. Aukinn kostnaður Kostnaður hefur aukist mikið. Samkvæmt nýju kostnaðarmati nálgast kostnaður Mosfellsbæjar 100 milljónir á ári en hann var 40 milljónir við upphaf samstarfsins. Haraldur segir að þótt íbúum hafi fjölgað og þjónusta verið aukin sé þetta samt mikil hækkun kostn- aðar. Núverandi samningur við verk- taka rennur út um næstu áramót. Þótt unnið hafi verið að undirbún- ingi útboðs hefur ekki verið ákveðið hvaða sveitarfélög standa að því. Mosfellsbær, Garðabær og Sel- tjarnarnes eru að velta því fyrir sér hvernig best sé að standa að mál- um. Haraldur segir hugsanlegt að leita þurfi eftir framlengingu samn- inga við núverandi verktaka um nokkra mánuði til að nægur tími gefist til undirbúnings nýju útboði. helgi@mbl.is Velta fyrir sér þátttöku í út- boði akstursþjónustu fatlaðra  Óvissa í kjölfar útgöngu Hafnar- fjarðarbæjar Morgunblaðið/Kristinn Ferðaþjónusta Ekki liggur fyrir hvaða sveitarfélög verða með. Styrkur svifryks var verulegur í Reykjavík í gær. Ástæðan er sand- fok frá söndunum á Suðurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er gert ráð fyrir svipuðum veður- farsaðstæðum í dag og því mögulegt að styrkur svif- ryks verði hár áfram af sömu orsök- um. Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Síðdegis í gær voru klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 295 míkrógrömm á rúmmetra. Við Njörvasund/Sæbraut voru þau 303 míkrógrömm á rúm- metra, í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum 139 míkrógrömm á rúm- metra og í mælistöðinni við Fossa- leyni/Víkurveg 343 míkrógrömm á rúmmetra. Svifryk frá söndunum á Suðurlandi Mengun Mikið svifryk í Reykjavík.  Gæti haldið áfram Nýjum Páli Jónssyni GK var hleypt af stokkunum hjá Al- kor-skipasmíðastöðinni í Pól- landi í vikunni. Skipið er smíðað fyrir Vísi hf. í Grinda- vík og er fyrsta nýsmíði fyrir- tækisins á skipi af þessari stærðargráðu í rúmlega hálfrar aldar sögu þess. Skip- ið er sérhannað til línuveiða og er væntanlegt til heima- hafnar í Grindavík í haust. Nýja skipið er 45 metra langt og 10,5 metra breitt. Að sögn Péturs H. Páls- sonar, framkvæmdastjóra Vísis, hefur smíði skipsins gengið vel. Sömuleiðis sam- skiptin við pólsku skipa- smíðastöðina sem áður hefur unnið ýmis verkefni fyrir Vísi við endurnýjun á skipum fyrirtækisins. Nýr Páll Jóns- son GK leysir af hólmi eldra skip með sama nafni. Væntan- legur til Grindavík- ur í haust Ljósmynd/Kjartan Viðarsson Nýjum Páli Jónssyni GK hleypt af stokkunum í Póllandi Sáttafundur var í kjara- deilu sam- flots iðn- aðarmanna og SA í gær og eru fundir boðaðir í dag og á morgun. Spurður hvort byggt verði á lífs- kjarasamningnum í viðræðunum sagði Kristján Þórður Snæbjarn- arson, formaður Rafiðnaðar- sambandsins, að ekkert hafi verið farið efnislega í það. „Við erum með í kröfugerð okkar að ná fram auknum kaupmætti launa fyrir iðnaðarmenn og reyna að leita leiða til að stytta vinnuvikuna. Það er margt sem er búið að vinna með sem okkur hugnast al- veg en það þarf að klára ýmis mál þessu tengd án þess að ég geti farið dýpra ofan í það.“ Ná auknum kaupmætti IÐNAÐARMENN OG SA Kristján Þórður Snæbjarnarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.