Morgunblaðið - 11.04.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
*F
or
se
nd
ur
áb
yr
gð
ar
er
u
re
gl
ul
eg
t
þj
ón
us
tu
ef
tir
lit
se
m
ka
up
an
di
be
r
ko
st
na
ð
af
.L
es
tu
m
ei
ra
um
áb
yr
gð
in
a
á
w
w
w
.k
ia
.c
om
/a
by
rg
d.
*G
re
id
d
he
ild
ar
fjá
rh
æ
ð
á
7
ár
um
er
5.
38
3.
13
9
kr
.Á
rle
g
hl
ut
fa
lls
ta
la
ko
st
na
ða
r
er
9,
19
% Fylgdu
straumnum
36.777 kr.M.v. 50% innborgun eða bíl í uppítökuog lán til 84 mánaða. Vextir 7,7 %.
Afborgun á mánuði:
ASKJA · Krókhálsi 11–13 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Kia á Íslandi.
Fylgdu okkur á Facebook.
facebook.com/kiamotorsisland
Fjölhæfur fjölskyldubíll með allt að 64 km rafdrægni
Nýr Kia Optima Plug-in Hybrid er vel búinn og umhverfismildur fjölskyldubíll. Hann hefur 440 lítra farangursrými
og er því afar rúmgóður, með allt að 64 km rafdrægni og yfir 1.000 km heildardrægni á eldsneyti og rafmagni.
Optima PHEV er bæði fáanlegur í Sportswagon og Sedan útgáfu.
Komdu og reynsluaktu Kia Optima PHEV. Við tökum vel á móti þér.
4.590.777 kr.
Optima PHEV EX á verði frá:
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Undirbúningur stendur nú yfir við
að breyta Laugavegi í göngugötu til
frambúðar. Morgunblaðið greindi
frá því í gær að lögð hefur verið fram
tillaga um áfangaskiptingu und-
irbúnings þessa innan skipulags- og
samgönguráðs. Þar kom fram að í
sumar verður göngugatan stytt og
umferð beint upp Laugaveginn á
kaflanum frá Klapparstíg að
Frakkastíg. Fréttir af þessum
breytingum komu flatt upp á marga.
„Ég er svekkt að þurfa að horfa
upp á bílaröð fyrir utan búðina mína
í sumar en ekki gangandi vegfar-
endur,“ segir Tinna Brá Baldvins-
dóttir, eigandi verslunarinnar Hrím
við Laugaveg. Hún kveðst jákvæð
fyrir göngugötum í miðborginni en
er ósátt við að göngugötusvæðið
skuli stytt í ár. Tinna telur að hafi
flöskuháls myndast við Vatnsstíg áð-
ur muni hann bara myndast við
Klapparstíg nú.
Hún vonast til að þessar breyt-
ingar verði til þess að bílar geti ekki
þverað göngugötuna eins og verið
hefur. „Það er stórhættulegt. Það er
tímaspursmál hvenær alvarlegt slys
verður.“
Hvað umferð upp kafla Laugaveg-
arins varðar kveðst Tinna ekki sjá
tilganginn. „Það verður örugglega
eitthvað kjánalegt. Fólk á eftir að
verða hissa og finnast þetta skrítið.
Fólk mun flauta og vera með læti
held ég. Ég myndi gjarnan vilja fá
betri skýringar á þessum hug-
myndum borgarinnar.“
Óttast að þetta rugli fólk
Sólveig Grétarsdóttir, rekstrar-
stjóri Verslunar Guðsteins Eyjólfs-
sonar, segist vera fylgjandi sumar-
götum, jafnvel þó kúnnahópur
verslunarinnar sé ekki endilega
sama sinnis. „En ég held að það
verði bara til að rugla fólk að breyta
umferðinni svona. Margir nenna
ekki lengur í miðbæinn út af þessum
breytingum. Ég mun að sjálfsögðu
reyna að tækla þetta og vona að Ís-
lendingar haldi áfram að mæta á
Laugaveginn.“ Björn G. Sæbjörns-
son, verslunarstjóri í Brynju, segir
að tíðindi af akstri upp Laugaveginn
hafi komið sér mjög á óvart. „Það er
vissulega ánægjulegt að það verður
umferð fyrir framan verslunina hjá
okkur, sem hefur ekki verið síðustu
sjö eða átta ár. En ég skil ekki til-
ganginn með þessu. Þeim hefur nú
dottið ýmislegt skrítið í hug en að
keyra upp Laugaveginn til að bílar
mætist við Frakkastíg er stór-
furðulegt. Og útskýringin er sú að
þetta liðki til fyrir umferð. Þetta er
algerlega ofar mínum skilningi.“
Spennandi tímar fram undan
„Það stendur til að gera Lauga-
veginn að göngugötu til frambúðar
og ég held að þessi breyting á akst-
ursstefnu sé skemmtileg leið til að
breyta venjum fólks. Það er fínt að
hrista aðeins upp í okkur og fá okkur
til að breyta rútínunni,“ segir Guð-
rún Jóhannesdóttir, framkvæmda-
stjóri Kokku.
Hún segir að umferðinni sé breytt
vegna götuframkvæmda sem Veitur
þurfa að ráðast í og séu hugsaðar til
að tryggja sem best umferðarflæði.
„Á tímum samkeppni við netið er
lykilatriði að skapa skemmtilegt um-
hverfi og ég held að það séu spenn-
andi tímar fram undan í bænum.“
Undir þetta tekur Hörður Ágústs-
son, eigandi Maclands: „Fólki mun
kannski finnast þetta skrítið en ég sé
bara tækifæri. Sjálfur hefði ég viljað
hafa göngugötu fyrir utan hjá mér
en þarna er komið til móts við marga
og ég held að þetta sé góð lausn heilt
yfir. Leiðindatími framkvæmda er
að verða búinn og miðbærinn er að
verða geggjaður.“
„Fólk mun flauta og vera með læti“
Skiptar skoðanir verslunarfólks við Laugaveg á ákvörðun um að snúa umferð þar við á kafla í
sumar Á að bæta umferðarflæði vegna framkvæmda Varanlegar göngugötur undirbúnar
Morgunblaðið/Hari
Laugavegur Umferð verður beint upp Laugaveginn frá þessu horni Klapp-
arstígs að Frakkastíg í sumar. Það er gert vegna framkvæmda í miðbænum.
Varanlegar göngugötur
» Í sumar verður göngugötu-
svæðið minna en verið hefur,
eða frá Ingólfsstræti að Klapp-
arstíg.
» Ekið verður upp Laugaveg
frá Klapparstíg að Frakkastíg.
» Eftir 1. október er vonast til
að framkvæmdir geti hafist við
að gera fyrsta áfanga að
varanlegri göngugötu.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
í gær var umferð í báðar áttir um
Bankastræti á stríðsárunum. Vitað
er að ekið var í báðar áttir um
Laugaveg fyrr á tíð enda var hann
því sem næst eina leiðin inn og út
úr bænum frá því hann var full-
gerður undir lok nítjándu aldar.
Blaðið hefur ekki upplýsingar um
hvenær nákvæmlega Laugavegi
var breytt í einstefnugötu en með
hjálp Guðjóns Friðrikssonar sagn-
fræðings tókst í gær að þrengja
hringinn verulega. Í Vísi var að
finna eftirfarandi klausu í sept-
ember árið 1932.
„Nú er í lögum það ákvæði, að
skylt er að halda allri umferð um
vegi á vinstra helmingi þeirra.
Hvert mannsbarn í landinu veit, að
þetta ákvæði er sett til þess að
gera umferð greiðari og til þess að
afstýra slysum. Nú hefir það
ákvæði verið sett í umferðarreglur
í Reykjavík, að aðeins megi aka inn
Hverfisgötu og niður Laugaveg.“
Það er því ljóst að einstefnu-
umferð hefur verið um Laugaveg í
87 ár, hið minnsta, þar til því verð-
ur breytt 1. maí næstkomandi.
Á herjeppa á leið austur
Í gegnum tíðina hafa af og til
birst frásagnir af því að ekið hafi
verið upp Laugaveginn. Á seinni
árum hefur sennilega verið al-
gengast að um ungt fólk sé að
ræða sem vill kanna hvort það
komist upp með slíkt. Fyrr á tíð var
það oftar fyrir misgáning. Þannig
munu einhver dæmi um að her-
menn úr hernámsliðum hafi talið
að umferð væri í báðar áttir um
Laugaveg. Og svo voru það þeir
sem komu utan af landi og þekktu
ekki til í borginni sem var að
byggjast upp. Eftirfarandi sögu
sagði Sigurður Hreiðar ritstjóri
þegar Morgunblaðið leitaði til
hans:
„Það var bifreiðaeftirlitsmaður
á Austurlandi sem fór í bæinn fyrir
einhverja Austfirðinga til að ná í
herjeppa. Það var farið að selja Ís-
lendingum þá á árunum 1945-46.
Blessaður karlinn áttaði sig ekki á
því hvernig fyrirkomulagið var í
Reykjavík. Hann kom upp Klappar-
stíginn af Hverfisgötu og ætlaði
svo að aka inn úr. Á þessum tíma
voru umferðarlögregluþjónar á
hverju strái og hann komst ekki
langt áður en einn slíkur stökk í
veg fyrir hann. „Hvað ert þú að
fara maður minn? Heldurðu að þú
getir bara keyrt upp Laugaveg-
inn?“ spurði lögregluþjónninn.
„Það er nú bara svoleiðis „venur“
að það er alveg ótrúlegt hvað hægt
er að komast á þessum bílum. Þeir
eru með „dref“ á öllum hjólum!“
Um 90 ár frá því síðast var
ekið í báðar áttir um Laugaveg
BLAÐ BROTIÐ Í SAMGÖNGUSÖGU BORGARINNAR
Einstefna Auglýsing frá 1940 þar sem
ítrekað er að einstefna sé á Laugavegi.