Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 11

Morgunblaðið - 11.04.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Fylgist með á facebook • Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 Ferðajakkar - Gallabuxur Nýttu tímann - Laxdal er í leiðinni Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Stakir jakkar Kr. 8.900 Str. S-XXL Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Str. 38-58 Flott föt, fyrir flottar konur Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stjórn hjúkrunar- og dvalarheimilis- ins Brákarhlíðar í Borgarnesi skorar á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigð- isráðherra að endurskoða við undir- búning fjárlaga komandi árs, afstöðu sína til tillagna um fjölgun hjúkrun- arrýma innan núverandi húsnæðis heimilisins. Þá eru þingmenn kjör- dæmisins hvattir til að leggja málinu lið, samfélaginu til heilla. Stjórn Brákarhlíðar hefur á und- anförnum vikum og mánuðum talað fyrir óskum um fjölgun hjúkrunar- rýma sem hún telur unnt að útbúa innan núverandi húsnæðis. Hefur heilbrigðisráðuneytið hafnað þeim, meðal annars vegna skorts á fjár- heimildum. Ósamræmi í málflutningi Annars vegar er um að ræða að nota vannýtt rými til að bæta við fjór- um herbergjum fyrir hjúkrunarrými sem standast alla staðla varðandi gerð og aðbúnað. Það telja stjórnend- ur heimilisins að hægt sé að gera fyr- ir verð eins en taka jafnframt fram að ekki sé farið fram á að ráðuneytið taki þátt í þeim kostnaði. Ríkið greið- ir hins vegar dvalarkostnað heimilis- fólks. „Við höfum ítrekað fengið þau svör að ekki séu til peningar á fjárlögum fyrir þessari fjölgun og ekki fengið neinn ádrátt um að óskað yrði eftir fjármunum á komandi fjárlagaári. Okkur finnst ekki samræmi í mál- flutningi þegar rætt er um fjölgun hjúkrunarrýma í landinu með bygg- ingu nýrra heimila að fá þessi svör,“ segir Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar. Hann segir jafnframt að þau rök ráðuneytisins að vísa til góðrar stöðu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands standist ekki skoðun því langur bið- listi sé hjá Brákarhlíð og staðan ann- ars staðar jafni ekki út biðlistana. „Einstaklingar úr öðrum heilbrigðis- umdæmum sækjast eftir því að búa í Brákarhlíð og með tilkomu færni- og heilsumatsnefnda á sínum tíma var vistun hjúkrunarrýma ekki bundin við íbúa hvers umdæmis fyrir sig. Því er mikilvægt að geta virt vilja hvers einstaklings, hvort sem hann kemur af höfuðborgarsvæði eða annars staðar frá,“ segir í ályktun stjórnar- innar. Full hjúkrun í dvalarrýmum Hins vegar snúa óskir stjórnar Brákarhlíðar að því að breyta dval- arrýmum í hjúkrunarrými. Dvalar- rýmum hefur fækkað mikið á landinu og nú er svo komið að óvenju hátt hlutfall dvalarrýma er í Brákarhlíð, eða 17 af 52 varanlegum rýmum. Sjö af þessum sautján einstaklingum eru raunar með hjúkrunarrýmismat og fá þjónustu í samræmi við það, þótt heimilið fái ekki dvalarkostnað greiddan sem því nemur. Ráðuneytið hefur boðist til að skipta út tveimur dvalarrýmum fyrir hvert hjúkrunar- rými. Það telur stjórnin óásættan- legt, ekki aðeins fyrir heimilið heldur fyrir samfélagið allt, því eftir stæðu auð rými. Samkvæmt upplýsingum frá Bjarka kostar rekstur á fjórum nýj- um hjúkrunarrýmum rúmlega 45 milljónir á ári. Ef leyfi fengist til að breyta þeim 7 dvalarrýmum sem nú eru notuð fyrir einstaklinga sem komnir eru með hjúkrunarrýmismat og fá alla hjúkrunarþjónustu og umönnun myndi það kosta ríkið aukalega 42 milljónir á ári. Bjarki ítrekar að sjálfseignar- stofnunin myndi sjálf og í samstarfi við sveitarfélögin kosta breytingar á húsnæði og ekki leita eftir stuðningi Framkvæmdasjóðs aldraðra eða annarra opinberra sjóða í því efni. Skora á ráðherra að endurskoða afstöðu  Stjórn Brákarhlíðar býður upp á hagkvæma stækkun Morgunblaðið/Theodór Kristinn Þórðarson Brákarhlíð Hjúkrunar- og dvalarheimilið er sjálfseignarstofnun. Sveitar- félögin og Samband borgfirskra kvenna eru aðalbakhjarlar þess. „Hæ, ég heiti Gréta Thunberg. Ég er loftslagsaðgerðasinni frá Svíþjóð. Mér þykir fyrir því að hafa ekki get- að verið með ykkur í dag. Þar sem ég flýg ekki komst ég ekki. Mig langaði bara að segja að við unga fólkið er- um framtíðin. Nú blasir við okkur til- vistarkreppa, loftslagsváin. Við unga fólkið berum ekki ábyrgð á þessu ástandi, við fæddumst bara inn í það. Við erum engu að síður þau sem munum líða mest fyrir þaðog það er ekki sanngjarnt. Því þurfum við að draga eldri kynslóðirnar til ábyrgðar fyrir það sem þau eru búin að gera og það sem þau halda áfram að gera. Til þess þurfum við að bregðast við, því að hver dagur sem líður án að- gerða eru mistök og hvert ár sem líð- ur án aðgerða er hörmulegt stórslys. Við þurfum að gera eitthvað. Núna.“ Svona komst Gréta Thunberg að orði í ávarpi sínu á ungmenna- ráðstefnu um sjálfbæran lífsstíl í Hörpu í gær, unglingsstúlkan sem hefur vakið heimsathygli undan- farið, síðast fyrir að vera tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels fyrir fram- lag sitt til umhverfismála. Ávarpið var að vísu í myndbandslíki, enda gat Thunberg ekki mætt sjálf á svæðið: hún flýgur ekki vegna meng- unarinnar sem af hlýst. Neitar að fljúga og sendi því myndskeið  Gréta Thunberg ávarpaði gesti í Hörpu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rafræn boðskipti Loftslagshetjan hvatti ráðstefnugesti til aðgerða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.