Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 22
en það eru 20 ár síðan við gengum til
liðs við það. Sú ákvörðun var draum-
ur margra í Póllandi um langan
tíma,“ segir Czaputowicz og bendir
á að einnig séu þrjátíu ár liðin frá
því að járntjaldið féll. Þá hafi Pól-
verjar viljað auka samskipti sín við
Evrópu og taka þátt í Atlantshafs-
bandalaginu og segir Czaputowicz
að báðar þær ákvarðanir hafi reynst
þess virði fyrir Pólverja.
Vilja efla pólskukennslu
Samskipti Íslands og Póllands
hafa farið mjög vaxandi á síðustu ár-
um, en það má ekki síst rekja til
þess að um 20.000 Pólverjar hafa
hér fasta búsetu, og eru þeir fjöl-
mennastir erlendra ríkisborgara hér
á landi. Czaputowicz segir góð sam-
skipti ríkjanna forgangsmál og nefn-
ir sem dæmi þá staðreynd að Pól-
land sé eitt af fimmtán ríkjum sem
starfræki hér sendiráð.
Hann segir að eitt af því sem hann
hafi rætt við Guðlaug Þór utanrík-
isráðherra á fundinum hafi verið
kennsla fyrir pólskumælandi börn á
móðurmáli þeirra. „Sumir skólar
bjóða upp á þann möguleika að nem-
endur fái kennslu á pólsku,“ segir
Czaputowicz, og nefnir Selfoss sem
dæmi, þar sem 45 pólskir nemendur
njóti aðgangs að pólskumælandi
kennurum. „Önnur lausn sem skólar
geta boðið upp á er að hafa tíma á
laugardögum, sem er ekki jafngóð
lausn,“ segir Czaputowicz en bætir
við að þessi kennsla sé nú frekar
einskorðuð við minni sveitarfélögin.
„Við myndum vilja sjá að einn eða
tveir skólar á höfuðborgarsvæðinu
gætu boðið pólskum nemendum upp
á kennslu á móðurmáli þeirra,“ segir
ráðherrann en bætir við að það fari
eftir vilja sveitarfélagsins.
Mörg viðskiptafæri í boði
Þá segir Czaputowicz að utanrík-
isverslun milli ríkjanna hafi farið
vaxandi á síðustu árum og að hún
geti enn aukist í framtíðinni. Hann
nefnir sem dæmi hina miklu þekk-
ingu sem Íslendingar hafi upp á að
bjóða í nýtingu jarðvarma. Þá séu
útflutningsgreinar Pólverja fjöl-
breyttar, ekki síst í landbúnaði.
„Sem dæmi þá flytjum við út epli til
flestra ríkja Evrópusambandsins, en
ekki til Íslands,“ segir Czaputowicz.
Þá sé ferðamennska sífellt mikil-
vægari þáttur í samskiptum
ríkjanna. Ráðherrann bendir á að
hingað til lands komi um 70.000 Pól-
verjar á ári hverju, sem sé mjög hátt
hlutfall, og að á móti hafi Íslend-
ingar um langt skeið getað flogið
beint til fjögurra borga í Póllandi, og
sú fimmta, Kraká, sé að bætast við í
sumar. Það sé mikilvægt, því að
aukin samskipti af þessu tagi séu
lykillinn að góðu samstarfi ríkjanna.
Morgunblaðið/Eggert
Pólland Jacek Czaputowicz, utanríkisráðherra Póllands, segir góð samskipti við Ísland skipta miklu máli.
Mörg tækifæri í boði
Utanríkisráðherra Póllands heimsótti landið um helgina
Vilja auka móðurmálskennslu fyrir pólsk börn hérlendis
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Það er margt líkt með þjóðum okk-
ar,“ segir Jacek Czaputowicz, utan-
ríkisráðherra Póllands, en hann var
staddur hér á landi um síðustu helgi
og fundaði þá meðal annars með
Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkis-
ráðherra og Guðna Th. Jóhannes-
syni, forseta Íslands.
Czaputowicz var þá á heimleið af
fundi utanríkisráðherra Atlants-
hafsbandalagsins í Washington, en
þar var þess minnst að 70 ár eru lið-
in frá undirritun Atlantshafssátt-
málans.
Hann tekur fram að þar hafi ekki
bara verið um afmælisfögnuð að
ræða heldur hafi þetta einnig verið
hefðbundinn ráðherrafundur banda-
lagsins. „Við ræddum þar þær ógnir
sem steðja að bandalaginu. Þær eru
í raun svipaðar og þær sem voru
þegar bandalagið var stofnað þar
sem hin árásargjarna stefna Rúss-
lands er meginógnin,“ segir Czap-
utowicz. Hann vísar þar sérstaklega
til hegðunar Rússa í Úkraínu og
Sýrlandi, sem og þess þrýstings sem
nágrannar Rússlands finni fyrir í sí-
auknum mæli.
„Árið í ár er einnig visst afmælis-
ár fyrir Pólland innan bandalagsins,
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
Fjölmargir íslenskir skák-menn höfðu náð góðumúrslitum í fyrstu þremurumferðum Reykjavíkur-
skákmótsins sem hófst í Hörpu á
mánudaginn. Má þar nefna sigur
hins 15 ára gamla Stephans Briem
í 1. umferð yfir bandaríska stór-
meistaranum Andrew Tang og sig-
ur Braga Þorfinnssonar á Indverj-
anum Abhijeet Gupta, sem vann
Reykjavíkurskákmótið 2016. Eftir
þriðju umferð voru fimm skák-
menn með fullt hús vinninga og
þekktastir þeirra Armenarnir
Movsesian og Hovhannisjan, 26
skákmenn voru með 2½ vinning,
þ.á m. Hannes Hlífar Stefánsson,
Bragi Þorfinnsson, Sigurbjörn
Björnsson, Tinna Kristín Finn-
bogadóttir og Pétur Pálmi Harðar-
son.
Röðunarkerfið í fyrstu fimm um-
ferðunum virkar þannig að þeir
sem liggja á svipuðu stigabili tefla
saman. Mótshaldarinn vill með
þessum hætti koma til móts við
það sjónarmið að erfitt sé að sækja
titiláfanga þegar mikill stigamunur
er á keppendum.
Um nánari úrslit er hægt að
benda á skak.is og góða heimasíðu
mótsins.
Sigurbjörn Björnsson hefur teflt
nokkrar af skemmtilegustu skák-
um mótsins. Hann átti unnið tafl
gegn Brasilíumanninum Fier í 2.
umferð, samdi of snemma en sýndi
klærnar í 3. umferð, sem fram fór
samdægurs, en þá tefldi hann við
Djukic frá Svartfjallalandi. Sá
valdi hið hvassa drekaafbrigði
Sikileyjarvarnar – kínversku leið-
ina, en kom ekki að tómum kofun-
um því að Sigurbjörn Björnsson
hafði teflt þetta áður á Gestamóti
Goðans í Stúkunni á Kópavogsvelli
fyrir nokkrum árum. Skákir þess
móts voru ekki birtar opinberlega
en það liggur fyrir að Sigurbjörn
lagði út í þá baráttu með „nýja“
vitneskju um helstu galla „Kín-
verska drekans“. Hann tekur óhik-
að slaginn í vinsælum byrjunum og
heldur vonandi áfram á sömu
braut:
Sigurbjörn Björnsson – Nikola
Djukic
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7.
f3 0-0 8. Bc4 Rc6 9. Dd2 Bd7 10.
0-0-0 Hb8
Upphafsleikur „Kínverska drek-
ans“. Algengara er 10. … Hc8.
11. Bb3 Ra5 12. h4 b5 13. h5
Rc4 14. De1!?
Ekkert er nýtt undir sólinni,
svipuð hugmynd sást í skák Fisc-
hers við Gligoric fyrir 60 árum!
Hvítur heldur í b3-biskupinn, sem
á svo sannarlega eftir að koma við
sögu.
14. … Rxe3 15. Dxe3 b4
Hann má vara sig á 15. … a5
vegna 16. h6! Bh8 17. e5 dxe5 18.
Rc6 o.s.frv.
16. Rce2 Da5?!
Krítíski leikurinn er 16. … e5
sem hvítur verður að svara með 17.
Rf5 gxf5 18. h6 með miklum flækj-
um.
17. g4 Dc5 18. Kb1 Hfc8 19.
hxg6 hxg6 20. Rf4 Dg5?
Ekki góður reitur fyrir drottn-
inguna. Hann varð að leika 20. …
e6.
21. Rf5! gxf5 22. gxf5 Rg4
Reynir að loka g-línunni en árás-
in kemur úr annarri átt.
23. Bxf7+! Kxf7 24. Db3+ Kf8
25. Rg6+ Dxg6 26. fxg6 Re5 27.
De3 Be8 28. Hh7 Bxg6
Reynir að berjast með þrjá létta
fyrir drottningu en Sigurbjörn gef-
ur engin grið.
29. Hxg7! Kxg7 30. f4 Rc4 31.
Dd4+ e5 32. Dxa7+ Kf8 33. Hh1
Bf7 34. Hh7 Rd2+ 35. Kc1
– og svartur gafst upp.
Fjórða umferð hófst í gær kl. 17.
en þá tefldi Bragi Þorfinnsson við
Norðmanninn Johan-Sebastian
Christiansen, Hannes Hlífar við
Frakkann Alashtar Aasef, Jóhann
Hjartarson við Vigni Vatnar Stef-
ánsson og Sigurbjörn Björnsson
við Vladimir Potkin. Helstu úrslit
lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun. GAMMA er stærsti
styrktaraðili Reykjavíkurskákmóts-
ins.
Að ráða niðurlögum
„kínverska drekans“
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is