Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 BAKSVIÐ Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Vinnuvika nemenda í Mennta- skólanum við Hamrahlíð (MH) er milli 40 og 50 klukkustundir að sögn Bóasar Valdórssonar, sálfræðings við skólann. Þetta er að teknu tilliti til mætingar í kennslustundir, heimanáms, launaðrar vinnu og skipulagðra æfinga vegna tónlistar- náms, íþróttaiðkunar o.fl. Þá segjast 50% nemenda skólans ekki hafa verið útsofnir síð- ustu þrjátíu daga. Bóas var einn málshefjenda á ráðstefnu Guð- brandsstofnunar á Hólum í Hjalta- dal um kvíða sem fram fór sl. helgi. Landlæknisemb- ættið, Geðhjálp, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Félag íslenskra músíkþerapista komu að ráðstefnunni. Farið var um víðan völl og örfyrirlestrum, svo- nefndum kveikjum, skipt í fjórar lotur sem höfðu yfirskriftirnar líf í snjöllum heimi, lífskapphlaupið, líf og lýðheilsa og ráð við kvíða. Meðal annars var fjallað um svefn og kvíða, loftslagsmál og kvíða, niður- stöður úr verkefninu Áfallasögur kvenna og kulnun. Flókið tímabil ævinnar Bóas fjallaði um kvíða út frá sjón- arhóli framhaldsskólanema. Boðið hefur verið upp á sálfræðiþjónustu í MH í þrjú ár og víðar í framhalds- skólum. „Ég velti því upp um helgina hvaða væntingar og kröfur við gerum til unga fólksins,“ segir Bóas í samtali við Morgunblaðið. „Mér finnst við oft gleyma því að það hefur alltaf verið flókið að vera ungur, það er eðlilegt að því fylgi ákveðnar krísur. Það er eðlilegt að eiga í erfiðleikum þegar maður er að reyna að finna sína fjöl í lífinu, upplifa nýjar aðstæður í fyrsta skipti og takast á við þær. Þetta getur verið ruglingslegt tímabil,“ segir hann. „Á sama tíma er þetta tímabil ótrúlega þroskandi og mik- ilvægt er að unga fólkið fái tækifæri til að taka út þann þroska sem fylgir, við getum ekki verndað fólk fyrir lífinu,“ segir Bóas. Fleira valdi en snjallsímarnir Spurður hvort umræða um „kvíðafaraldur“ hér á landi sé þá mögulega tilkomin vegna meiri um- ræðu um slíka kvilla kveður Bóas já við. „Ég freistast til að nálgast mál- ið þannig, já. Það eru ekki sterkar vísbendingar um að kvíðaraskanir séu að aukast. Það eru ákveðnir list- ar yfir einkenni sem hækka og lækka milli ára sem gefa okkur vís- bendingar um að ungt fólk þekki kannski betur tilfinningalíf sitt. Að ungt fólk sé meðvitaðra og nefni hlutina réttum nöfnum,“ segir Bóas Samfélagsmiðlar og snjallsímar eru gjarnan ofarlega á baugi þegar rætt er um orsakir kvíða. Bóas seg- ir að fleiri hlutir valdi álagi og kvíða heldur en snjallsímar, en hann hef- ur skoðað málið í víðara samhengi. Hann segir að t.d. séu merki þess í MH að nemendur skólans sofi ekki nægilega mikið. „Um 50% nemenda í mínum skóla segjast aldrei hafa verið útsofin síð- ustu þrjátíu daga og þetta er ítrek- að nokkur ár aftur í tímann. Það er ekki ólíklegt að þetta hafi bein áhrif á það hvernig fólk tekst á við mót- læti og tekst á við dagleg verkefni. Fólk verður tilfinninganæmara,“ segir hann. Áhyggjur af mikilli vinnu Vinnuálag nemenda er einnig of- arlega í huga Bóasar, en hann hefur kortlagt þessa hluti hjá nemendum MH. Vinnuvika hjá nemendum í MH er að jafnaði 40-50 klukku- stundir. „Ég myndi segja að það sé í meira lagi. Þetta gildir um þær formlegu skyldur sem nemendurnir hafa tekið að sér í venjulegri viku, þ.e.a.s. mætingu í kennslustundir, heimanám, launaða vinnu og form- lega skipulagðar æfingar (tónlist, íþróttir o.fl.),“ segir Bóas. „Þetta er uppskrift að streitu og er líklegt til að valda álags- einkennum sem gætu líkst kvíða, en eiga frekar uppruna í álagi heldur en að þau séu tilkomin vegna geð- sjúkdóma,“ segir Bóas sem fer jafn- an markvisst yfir atriði tengd álagi þegar nemendur leita til hans. „Ég ræði það hvernig hægt er að draga úr álaginu, samviskubit og hvernig finna má klukkutíma til að komast yfir hlutina,“ segir Bóas. „Stundum þarf að forgangsraða með því að sleppa hlutum á kostnað annarra. Ef skólinn er í forgangi, þá gæti þurft að draga úr á tómstundavett- vanginum,“ segir hann og kveðst einnig hugsi yfir því hve miklum tíma nemendur verji á vinnumark- aði í venjulegri skólaviku. Vinnuálagið uppskrift að streitu  Vinnuvika nemenda í MH 40-50 klukkustundir  Helmingur nemenda segist ekki sofa nóg  Erfiðleikar eðlilegir þegar ungt fólk finnur fjöl sína  Guðbrandsstofnun hélt ráðstefnu um kvíða Morgunblaðið/Hari MH Sálfræðingur segir fleiri skýringar geta verið á kvíða en snjalltæki. Í þessu samhengi nefndir hann t.d. svefnleysi. Bóas Valdórsson „Við höfum orð- ið vör við kvíða í samfélaginu á mjög mörgum sviðum. Bæði hjá unga fólkinu okkar, öryrkjum og öldruðum svo dæmi séu nefnd. Á ráðstefnunni voru til dæmis erindi um fjármál öryrkja og aldr- aðra. Það má segja að það sé kvíði alls staðar í samfélaginu,“ segir Solveig Lára Guðmunds- dóttir, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Aðspurð segist hún þó ekki finna fyrir miklum kvíða í kirkjusamfélaginu. „Ein hliðin á auknum kvíða er tengslaleysi fólks við uppruna sinn. Þeir sem eru í kirkjusamfélaginu og rækta sitt samband við almættið standa á traustari fótum. Það er mín skoðun,“ segir hún. Aftur á móti leita margir til kirkjunnar vegna kvíða, að hennar sögn. „Það er gríðarlega mikil sál- gæsla sem unnin er af prestum í samfélaginu. Þar kemur kvíði mjög oft upp á yfirborðið,“ segir hún. Ræða um kvíða við presta FRÁ SJÓNARHÓLI ÞJÓÐKIRKJUNNAR Solveig Lára Guðmundsdóttir Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Frábært úrval af sundfötum Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.