Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 11.04.2019, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2019 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Valin besta nýja vara ársins, Nordbygg 2016 Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Öld er liðin frá því mikið snjóflóð féll úr Staðarhólshnjúk við Siglufjörð og sópaði með sér öllum mannvirkjum síldarverksmiðju, sem þar stóð, og sex öðrum húsum. „Þar stóð ekki steinn yfir steini og eyðileggingin af- skapleg,“ sagði í blaðinu Fram. Níu manns létust í snjóflóðinu, sem féll 12. apríl árið 1919 en sjö komust lífs af. Sama dag og daginn eftir féllu snjóflóð í Engidal og í Héðinsfirði og þar létu samtals níu lífið. Síldarverksmiðjan, sem stóð á sjávarbökkunum sunnan og neðan Staðarhóls, var í daglegu tali nefnd Evangers-verksmiðjan eftir tveimur norskum bræðrum, Gustav og Olav Evanger. Þarna var áður búið að setja upp síldarútgerð og síldar- söltun en Evangerbræður reistu verksmiðjuna í félagi við fyrirtækið Thomas Morgan & Sohn í Hamborg. Á söguskilti í Síldarminjasafninu á Siglufirði segir, að verksmiðjuhúsið hafi verið þrílyft, byggt úr timbri á steyptum grunni. Á jarðhæð var 140 hestafla vél knúin gufuafli. Gufan var leidd í járnrörum frá kolakyntum gufukatli. Reim frá gufuvélinni lá upp á næstu hæð og sneri þar löngum öxli. Á öxlinum voru margar og mis- stórar reimskífur og þaðan lágu reimar upp og niður og sneru press- um, kvörnum, færiböndum og margs konar öðrum vélbúnaði. Allt var upp- lýst með rafmagni frá gufutúrbínu. Fyrir framan var steinsteypt síldar- þró og úr henni var síldin flutt með færibandi í sex suðukör á efstu hæð. Verksmiðjan tók til starfa árið 1911 og var fyrsta stóra síldarverk- smiðjan á Íslandi. Þar voru byggð geymslu- og starfsmannahús, ramm- byggð bjálkahús í norskum stíl. Myndaðist lítið þorp austan fjarðar- ins sem blasti við kauptúninu á Eyr- inni. Alls unnu 80-100 manns við verksmiðjuna á vertíðum og fyrstu átta árin sem hún starfaði tók hún við mjög miklu af síld til bræðslu og skapaði mikil verðmæti. Í bókinni Siglfirskir söguþættir, eftir Þ. Ragnar Jónasson, sem kom út árið 1997, segir að fáir hafi aug- ljóslega gert sér grein fyrir því að yf- ir þessum glæsilegu mannvirkjum við Staðarhól vofði stórhætta. Að- eins voru þó liðin 80 ár frá því að snjóflóð hafði fallið á sömu slóðum, árið 1839 og einhverjir í Siglufirði hlytu að hafa haft spurnir af þeim hamförum. Raunar sagði í Morgun- blaðinu, þegar fjallað var þar um náttúruhamfarirnar, að eftir sein- asta flóðið hafi verið gerður grjót- garður uppi í hlíðinni til varnar gegn snjóflóðum framvegis, „en nú kom hann að engu haldi, því að snjórinn var svo mikill, að hann var í kafi.“ Ógurlegt snjóflóð Veturinn 1919 var einn mesti snjó- flóðavetur á síðustu öld. Laugardag- inn 12. apríl féll mikið snjóflóð úr Staðarhólshnjúk og Skollaskál. Flóð- ið sópaði með sér öllum verksmiðju- húsunum, geymsluhúsum og íbúðar- húsum, ásamt birgðum af tómum síldartunnum og áfylltum lýsis- fötum. Ekki var starfsemi í verk- smiðjunni þegar þetta gerðist en norskur verkstjóri var í íbúðarhús- inu ásamt konu sinni. Í frásögn Þ. Ragnars kemur fram, að blaðið Fram hafi komið út þennan örlagaríka laugardag eins og aðra laugardaga. „Svo virðist sem búið hafi verið að prenta forsíðu blaðsins þegar fréttir bárust af flóðinu en frásögn komst inn á aðra síðu. Aðalfyrirsögnin er „Ógurlegt snjóflóð og síðan stendur með heldur minna letri „féll hér austan fjarðar í nótt. Tók yfir um 1.000 faðma svæði. Sópaði sjö húsum út í sjó, og gekk yfir bæinn í Neðri- Skútu. 16 manns lentu í flóðinu. 7 náðust lifandi eftir 10 tíma. 9 manns ófundið ennþá og talið af. Flóðbylgj- an æddi hér yfir á eyri og gerði stór- skaða. Tjónið um 1 1/2 milljón kr.“ Á eftir fylgdi ítarleg frétt þar sem meðal annars sagði: „Eftir því sem vér best vitum enn þá verða menn fyrst varir þessa voða viðburðar þannig að um kl. 4 í nótt verður vökumaður á m.b. Æskan, sem lá við Lýsisbryggju svokallaða, sjónar- vottur þess að flóðbylgja ógurleg kemur æðandi austan yfir fjörðinn. Sá hann um leið að fjörðurinn var snjóhvítur og hyggur í svipinn að hafís sé þar kominn. Flóðbylgjan æðir á land upp með afskaplegum aðgangi og tók t.d. skip þetta sjó inn að lúkugötum um leið og bylgjan reið yfir. Afleiðingar flóðbylgjunnar urðu hroðalegar. Utan frá Bakkevig og alla leið suður til Roalds eyðilögð- ust allar bryggjur meira og minna og svo var afl bylgjunnar mikið að tvö fiskiskip Sam. verslananna, sem á landi stóðu, fluttust úr stað en mót- orbátar og smærri bátar lágu sem hráviði hér og þar um eyraroddann, m.b. Georg spónmölvaðist og mótor- bátur sem lá upp við Roaldsbryggju hentist á hvolf.“ Heimilisfólkið fannst örent Síðar kom í ljós, að snjóflóð hafði einnig fallið á bæinn Engidal og þar fórst sjö manna fjölskylda. Í blaðinu Fram, sem kom út viku síðar, segir svo frá, að afarmikið snjóflóð hafi fallið um þveran dalinn og síðan ofan eftir honum, hlaupið á bæjarhúsin og grafið þau en eigi náð peningahúsum er stóðu nær sjónum. „Sást þar ekkert líf heima við, þar er bærinn hafði staðið, nema hundur einn sem var þar á vakki. Sáu menn hvar héppi hafði grafið sig upp úr flóðinu og að hann var blóðugur og rifinn á löppunum. Haus á dauðu hrossi sást upp úr fönninni og kofa- rústum rétt fyrir neðan bæinn. Var þegar farið að moka upp bæjarrúst- irnar og er þar skemmst af að segja að heimilisfólkið allt, 7 manns, fannst þar örent í bæjarbrotunum undir 4 til 5 álna þykku flóði. Var fólkið allt í rúmunum svo snjóflóðið hefur fallið að náttarþeli, og miklar líkur til að verið hafi sömu nóttina og voðaflóðið féll hér í Siglufirði, því líkin voru mikið farin að rotna.“ Að auki létust tveir karlmenn þessa sömu helgi þegar snjóflóð féllu úr fjöllum í Héðinsfirði. Alls létu því 18 manns lífið af völdum snjóflóða. Evangersbræðurnir voru í Noregi þegar þessir atburðir gerðust. Síldarbræðsla þeirra var ekki endur- byggð, en árið 1922 komu þeir bræð- ur aftur til Siglufjarðar og reistu síldarstöðina að nýju og komu upp lifrarbræðslu og íveruhúsum. Olaf sá þar um mikla síldarsöltun í mörg ár og félag þeirra reisti síldarverk- smiðjur víðar á landinu. Verksmiðja sópaðist á haf út  18 létu lífið í snjóflóðum í Engidal, Siglufirði og Héðinsfirði fyrir réttri öld  Eitt flóð hreif stærstu síldarverksmiðju landsins með sér  Flóðbylgja æddi á land handan fjarðarins og eyðilagði bryggjur Lítið þorp Evangers-verksmiðjan framan við Staðarhól í Siglufirði var stærsta síldarbræðsluverksmiðja á Íslandi þegar hún var reist árið 1911. Teikning/Örlygur Kristfinnsson Norsk hús Vatnslitamynd í Síldarminjasafninu af Evangers-verksmiðjunni. Síldarminjasafnið á Siglu- firði og Siglufjarðarkirkja minnast á morgun og laug- ardag atburðanna, sem urðu á Staðarhólsbökkum, í Engidal og Héðinsfirði fyr- ir réttri öld, með sérstakri dagskrá. Á morgun verður gengið að rústum Evangersverk- smiðjunnar undir leiðsögn starfsmanna Síldarminja- safnsins. Gangan hefst klukkan 17. Klukkan 18:30 verður ekið á einkabílum í Héðinsfjörð og Engidal þar sem snjóflóð féllu. Sr. Sig- urður Ægisson mun minnast þeirra sem fórust í snjóflóðunum. Á laugardag klukkan 11 verður kyrrðarstund í Siglufjarðarkirkju til minningar um þau átján sem fórust. Níu létu lífið á Staðarhólsbökkum, sjö í Engidal og tveir í Héðinsfirði. Atburðanna minnst MINNINGARDAGSKRÁ UM HELGINA Minnisvarði Fjölskyldunni í Engidal, sem fórst í snjóflóði, var reistur minnisvarði árið 1969.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.